Morgunblaðið - 18.08.2022, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022
DAGAR
ALLARTELWIN
VÖRURÁTILBOÐI
SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
vfs.is
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Hinn 22 ára gamli Ingimar Birnir
Tryggvason hefur lagt mikið á sig
til að elta tónlistardrauminn sem
hann hefur átt frá barnæsku en
hann gaf á dögunum út nýtt lag
ásamt bandaríska tónlistarmann-
inum Ryan Edwards, lagið Cotton
Candy, en þeir kynntust á
lagasmíðanámskeiði hjá einum
besta lagahöfundi heims, Ryan Ted-
der. Sá síðarnefndi, sem er að-
alsöngvari hljómsveitarinnar One-
Republic, er þekktur fyrir að skrifa
„hittara“ en hann er til að mynda
maðurinn á bak við Halo með
Beyoncé og Counting Stars með
OneRepublic.
Eftir að hafa heyrt lag Edwards,
sem kallar sig The808, ákvað Ingi-
mar að hafa samband við hann og
saman gerðu þeir í framhaldi lagið
Cotton Candy þrátt fyrir að vera
hvor í sínu landinu en þeir nýttu
tæknina í lagasmíðarnar og sömdu
það í gegnum fjarskiptaforritið
Zoom.
Ingimar byrjaði 11 ára gamall að
vinna í tónlistarforritinu Ableton,
sem hann notar enn í dag, og fékk
hann sérstakan innblástur frá plötu-
snúðnum og lagahöfundinum Avicii.
„Ég elskaði Avicii og EDM
(electronic dance music) vegna þess
að mér leið eins og ég svifi í skýj-
unum þegar ég botnaði hana í
heyrnartólunum,“ segir Ingimar,
sem sérhæfir sig í þess konar tón-
list.
„Það tók mig mörg ár að finna
leyndarmálin og trixin sem hann
[Avicii] notfærði sér,“ segir Ingimar
sem segist ekki vita hvers vegna
hann varð svo heillaður af því að
búa til og skapa tónlist en hann
leiddist náttúrulega á þessa braut.
Innblásturinn að lögunum sínum
fær hann úr öllu því fallega sem
verður á vegi hans.
„Eins og þegar skýin eru bleik
hérna á sumrin og fuglarnir syngja.
Ég hef skrifað ansi mörg lög með þá
mynd í huga eða þegar ég hef verið
með þá sjón fyrir augunum. Til
dæmis í Cotton Candy,“ segir Ingi-
mar og bætir við að raunverulegur
fuglasöngur heyrist lágt í bakgrunni
lagsins sem gefi því ákveðið „væb“.
Ingimar dreymir þó um að búa til
tónlist með stórstjörnum og vonast
til að geta fylgt þeim draumi eftir.
Mest dreymir hann um að komast
í stúdíó með Coldplay-söngvaranum
Chris Martin og gefa út lag með
hljómsveitinni, sem er í miklu uppá-
haldi. Hann bætir við að sér þætti
ekki verra að slá í gegn í tónlistinni.
„Ég vil vera skellihlæjandi og
geta látið mömmu velja sér hús og
bíl og bara straujað kortið mitt án
þess að finna mikið fyrir því,“ segir
Ingimar sem er að vinna með lista-
mönnum úti um allan heim um þess-
ar mundir. Einnig fékk hann boð til
Los Angeles í september þar sem
hann mun skrifa og framleiða fyrir
ákveðinn listamann í fimm þúsund
fermetra glæsihýsi í Hollywood. Það
er því nóg spennandi fram undan
hjá listamanninum unga, sem hvet-
ur annað ungt fólk, sem dreymir um
framtíð í tónlistarbransanum, til að
fikra sig áfram og gefast ekki upp.
„Það sem hefur hjálpað mér mest
er að vera nógu kaldur að ná í tæki-
færin. Svo er það bara að gera nóg.
Í 90% skipta er maður að gera eitt-
hvað glatað en ef þú gerir fullt þá
dettur ein hugmynd inn sem nær
vonandi alla leið,“ segir Ingimar að
lokum.
Hægt er að hlusta á lagið Cotton
Candy á Spotify-síðu Ingimars und-
ir nafninu Martin & Eric og hjá tón-
listarmanninum The 808.
Vill geta gefið mömmu sinni hús
Tónlistarmaðurinn og
lagahöfundurinn upp-
rennandi, Ingimar Birnir,
á stóra drauma hvað
viðkemur tónlistinni en
hann gaf á dögunum út
lagið Cotton Candy.
Draumur Ingimar segir fjölda tækifæra hafa skapast eftir að hann fór á
námskeið hjá lagahöfundinum Ryan Tedders sem er m.a. höfundur Halo.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Róbert Marshall hefur marga fjör-
una sopið og starfað við ýmislegt en
hann hefur meðal annars starfað
sem fréttamaður, stjórnmálamaður
og sem upplýsingafulltrúi ríkis-
stjórnarinnar. Það var þó ekki fyrr
en eftir að hann lenti í alvarlegu
vélsleðaslysi árið 2014 að hann
ákvað fyrir alvöru að elta draum
sinn, sem var að hans sögn „að
syngja og vera á fjöllum“ en hann
starfar nú sem leiðsögumaður auk
þess sem hann er söngvari hljóm-
sveitarinnar Lizt.
Forgangsraðaði upp á nýtt
„Sagan er þessi, ef ég reyni að
kjarna hana, að ég lendi í slysi 2014
þar sem ég var ansi lemstraður.
Braut 17 bein og hlaut innvortis
meiðsl og annað slíkt.
Upp úr því forgangsraðaði ég
upp á nýtt. Ég fékk allt aftur til
baka. Náði góðri heilsu og ákvað að
hætta í pólitík og kanna það hvort
maður gæti látið þann draum ræt-
ast að vinna við útivist,“ lýsti Ró-
bert í morgunþættinum Ísland
vaknar í vikunni fyrir þeim Kristínu
Sif, Ásgeiri Páli og Jóni Axel.
Hann tók undir það að slysið
hefði sett hlutina í nýtt samhengi
en hann segir að slysið hefði auð-
veldlega getað verið sitt síðasta.
„Þannig að allt eftir það hefur
verið bónus,“ sagði hann.
Syngur bara og er á fjöllum
„Ég held að það sé hollt fyrir
okkur öll – það þarf kannski ekki að
lenda í alvarlegu slysi til að gera
það – að velta því fyrir sér hvað í
fjáranum við erum að gera við líf
okkar,“ sagði Róbert sem staðfesti
að hann væri svo sannarlega að
fylgja draumi sínum í dag.
„Ég sagði 2016: Nú ætla ég bara
að syngja og vera á fjöllum. Upp úr
því stofnuðum við Þór Freysson
hljómsveitina Lizt,“ sagði Róbert en
hljómsveitin, sem sérhæfir sig í
rokki frá níunda áratugnum, er
skipuð þeim Hersi Sigurgeirssyni,
Gunz A La Tomma og Kristni Sig-
urgeirssyni auk stofnendanna Ró-
berts og Þórs. Þá eru lög með
söngvaranum David Bowie í sér-
stöku uppáhaldi hjá sveitinni en Ró-
bert þykir ná rödd Bowies merki-
lega vel.
„Við föttuðum að stærðin á kinn-
holunum og öllum þessum rýmum í
hausnum á mér – sem búa til rödd-
ina – virðist mjög svipuð og í Bowie.
Þannig að ég syng mjög náttúru-
lega dálítið svipað honum,“ sagði
Róbert.
„Stór orð. Það hljómar í áttina að
minnsta kosti,“ bætti Róbert kím-
inn við en Lizt hefur haldið Bowie-
tónleika nokkrum sinnum á ári síð-
astliðin ár. Róbert sagði þó að
hljómsveitin væri einungis tóm-
stundaiðja hjá sér.
„Þetta er hobbíið mitt. Ég náði að
þróa fjallahobbíið mitt og útivistina
í vinnu og hef þetta sem hobbí og
gleði. Það er öllum gríðarlega hollt
að vera í kór eða hljómsveit eða að
syngja í sturtunni,“ sagði Róbert
sem þó ætlar að blanda saman leik
og starfi um komandi helgi þar sem
hann tekur þátt í Fjalla- og rokk-
festivali sem haldið verður 19.-21.
ágúst á Hala í Suðursveit.
Róbert verður með leiðsögn,
ásamt Hauki Inga Einarssyni, um
Nautastíginn, sem er um 14 km leið
sem tekur um 8-10 klukkustundir, á
laugardag. Um kvöldið mun svo
Lizt spila ásamt tveimur öðrum
sveitum, Díatóniku og Dúkkulís-
unum, í hlöðunni á Hala þar sem
verður jafnframt grillað.
Hægt er að nálgast miða á við-
burðinn í gegnum upplýsingar á
Facebook-viðburði festivalsins.
Útilíf Róbert Marshall er mikill fjallagarpur og nýtur þess að fá að starfa
við það sem hann elskar; að ganga á fjöll og vera úti í náttúrunni.
Lizt Hljómsveitin Lizt sérhæfir sig í 80’s-rokki, sér í lagi lögum tónlistar-
snillingsins Davids Bowies. Róbert er sagður ná rödd hans merkilega vel.
Elti drauminn eftir
lífshættulegt slys
Róbert Marshall, fyrrverandi stjórnmálamaður og
upplýsingafulltrúi, ákvað að breyta um stefnu í líf-
inu eftir að hafa lent í lífshættulegu vélsleðaslysi.