Morgunblaðið - 18.08.2022, Síða 45

Morgunblaðið - 18.08.2022, Síða 45
✝ Katrín Hendriks- dóttir fæddist í Reykjavík 4. janúar 1927. Hún lést 22. júlí 2022 á hjúkrunar- heimilinu Ljósheim- um á Selfossi. Foreldrar hennar voru Hendrik Einar Einarsson og Ágústa Margrét Gísladóttir. Systkini Katrínar eru Sigríður, Gísli (lát- inn), Vilhjálmur (látinn) og Þóra Jenný Hendriksbörn. Katrín giftist Þorsteini Einars- syni, f. 1922, d. 1975, hinn 5. sept- ember 1945. Börn þeirra eru: Ás- gerður Margrét, f. 1945, gift Jóhannesi Óskarssyni; Einar Hin- rik, f. 1948, d. 1948; Hinrik, f. 1949, kvæntur Guðnýju Ragn- hildi Jónasdóttur; Matthías, f. 1952, kvæntur Bryndísi Brynj- ólfsdóttur; Jóel, f. 1954, kvæntur Vigdísi Silju Þórisdóttur; Anna, f. 1957, hennar maður er Guðmar Guðmundsson; Elísabet, f. 1960, gift Detlef Guderian; og Katrín, f. 1966, gift Theodór Francis Birgissyni. Katrín ólst upp í Reykjavík og bjó þar allt fram að 93 ára aldri, eða þar til hún fór á hjúkrunar- heimili, fyrst í Vík í Mýrdal en síðar á Selfossi. Katrín varð ekkja aðeins 48 ára gömul þegar hún missti maka sinn í vinnuslysi. Eft- ir að yngsta barn þeirra var kom- ið í grunnskóla vann hún ýmis verkamannastörf. Var hún sam- viskusöm og traustur samstarfs- maður og einstaklega vel liðin af öllum sem henni kynntust. Katrín tók virkan þátt í starfi hvíta- sunnukirkjunnar Fíladelfíu í Reykjavík, enda var það starf henni hugleikið. Útför hennar fer fram frá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu í dag, 18. ágúst 2022, kl. 13. Elsku móðir mín Katrín var einstök manneskja og sér á parti eins og hún sagði sjálf. Ég á henni margt að þakka, umfram allt að hún veitti mér öryggi, skjól og op- inn faðm í uppvexti mínum. Hún veitti mér sveigjanleika og hlustun, leyfði mér að fara mínar leiðir. Hún hélt sínu striki og lífs- gildum sem gáfu henni öryggi og fullvissu um vonarríka framtíð. Hennar fullvissa var ófrávíkjan- leg, sönn og einlæg. Fullvissa hennar var einlæg og kraftmikil trú á Jesú Krist. Það gaf henni stöðugleika, frið, ró, æðruleysi. Sem áhorfandi vildi ég eignast það sem mamma átti, ég leitaði og fann. Ég verð henni ævinlega þakklát fyrir þá stóru gjöf. Mamma Þó líði margir dagar og hverfi æviár, minn hugur til þín leitar ó, fyrirmyndin mín. Þín ást og móðurhugur umvefja hjarta mitt, í þakklæti ég andvarpa hvíldu í friði mamma mín. (Katk, 2022) Bless á meðan. Þín Katrín. Í dag fylgjum við tengdamóðir minni, Katrínu Hendriksdóttur, til grafar. Með Katrínu er geng- inn einn stærsti karakter sem ég hef kynnst. Kynni okkar byrjuðu ekki endilega vel þar sem ég var kornungur þegar ég varð ástfang- inn af yngstu dóttur hennar og það fannst henni ekki góð hug- mynd. Í gegnum árin lærðum við þó að meta hvort annað og á milli okkar varð mjög hlý og einlæg vinátta. Hún var einstaklega heil- steyptur einstaklingur, stálheið- arleg, einlæg og afar trúföst sjálfri sér, fólkinu sínu og skapara sínum. Aldrei heyrði ég hana hall- mæla einhverjum eða tala í bakið á samferðamönnum sínum. Það var hennar siður að segja hlutina beint við þá sem hún átti eitthvað vantalað við. Katrín var raungóð og hafði þann hæfileika að eiga auðvelt með að taka þarfir ann- arra fram yfir sínar eigin. Hún var mjög listhneigð og deildi oft með mér vísukornum sem hún hafði sett saman og sner- ust þau flest um einlæga vináttu hennar og Jesú Krists. Hún mál- aði líka á striga og stundaði það fram undir tíræðisaldur. Þá er ónefndur útsaumur hennar, sem var glæsileg listsköpun út af fyrir sig. Hún sagði mér síðastliðið vor að sig hefði langað sem unga stúlku að verða hjúkrunarkona eða listamaður. Ungar konur fæddar í upphafi síðustu aldar höfðu því miður sjaldnast val um í hvaða farveg líf þeirra fór. Tengdaforeldrar mínir eignuðust ung stóran barnahóp og börnin urðu það listform sem tengda- mamma helgaði líf sitt. Því verk- efni sinnti hún listavel. Tengdamamma hafði ekki allt- af lífsins meðbyr og á köflum hefði verið auðvelt fyrir hana að leggja árar í bát. Það kom þó aldrei til greina. Ung að árum misstu tengdaforeldrar mínir átta mán- aða son sinn og tengdamamma mín varð síðan ekkja aðeins 48 ára gömul eftir að tengdapabbi lést í hörmulegu vinnuslysi. Það þurfti gríðarlegan styrk til að halda áfram eftir að hún missti Steina sinn og sótti hún þann styrk í óbil- andi trú sína á Guð. Ég á tengdamömmu minni gríðarlega margt að þakka og er afar þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast henni. En einmitt það hvernig mamma hún var börnum sínum og hvernig amma hún var börnunum mínum er það sem ég er þakklátastur fyrir. Katrín var alltaf til staðar fyrir börnin mín, sem öll voru mjög tengd ömmu sinni. Þeim fannst hún reyndar stundum svolítið stíf á meining- unni en þau kunnu á sama tíma að njóta þess hve launfyndin hún gat verið. Katrín var ekki kona margra orða og gerði litlar kröfur fyrir sjálfa sig. Henni var þó mikilvægt að fólkið hennar stæði við sitt og sinnti sínu með sóma. Það gerði hún líka sjálf í stóru sem smáu. Mig langar að enda þessi kveðju- orð mín á broti úr texta eftir Braga Valdimar Skúlason, en textinn finnst mér eiga einstak- lega vel við elsku tengdamömmu mína: Þegar birtan dofnar og rykið sest þá sigrar ekki sá sem á mest heldur sá eða sú sem breytir best. Tengdamamma var guðhrædd og grandvör kona sem gætti þess í hvívetna að breyta rétt gagnvart bæði mönnum og málleysingjum. Ég heiðra og blessa minningu þessarar mögnuðu konu. Líf mitt er ríkara vegna hennar. Theodor Francis Birgisson. Það eru margar tilfinningar sem koma upp þegar hugurinn leitar til elsku ömmu. Amma var einstök kona á svo margan hátt og trúfesti hennar og þrautseigja hafa alltaf verið mér til fyrir- myndar. Á svo ótal marga vegu hefur hún kennt mér að það að fylgja sinni eigin sannfæringu fleytir manni lengra en flest ann- að, og að æðruleysi ofar öllu er ávísun á frið og gleði. Amma sýndi mér alltaf ást og þó að það hafi ekki alltaf verið með orðum, þá gerði hún það svo sannarlega í verki. Hvort sem það var í gegn- um skrifuð bréf sem hún sendi mér yfir hafið þegar ég var búsett erlendis, heitur kvöldmatur þegar ég kom svöng og heimsótti hana eða bænirnar hennar. Ég man ófá kvöldin sem við eyddum saman fyrir framan sjónvarpið að horfa á sápuóperur eða aðrar minna skemmtilegar bíómyndir á RÚV, sem var uppáhaldssjónvarpsstöð- in hennar, þá gat hún alltaf sann- fært mig um að þetta væri eðal- sjónvarpsefni, svo áfram gláptum við saman, ósjaldan með súkku- laðirúsínur í hendi. Amma var ein- stök kona með hjarta úr gulli. Þegar lífið blés hressilega á móti, þá var faðmlag frá ömmu með orðunum „Guð blessi þig og styrki“ eins og byr undir báða vængi. Amma var ekki kona margra orða en alltaf átti ég skjól hjá henni, jafnvel þegar langt leið á milli þess að við hittumst og spjölluðum. Spilakvöld með fras- anum „legg við hjá ömmu og loka“ kalla enn þann dag í dag fram hlátur og gleði enda hafði amma endalaust gaman af því að spila, og spilaði mikið við okkur systk- inin. Ég sakna hennar sárt. Sakna þess að hlæja ekki með henni, borða súkkulaði með henni, spjalla um daginn og veginn og bara vera með henni. Hún var ekki alltaf meðvituð um sitt eigið ágæti, en amma var einn stærsti karakter sem ég hef kynnst. Elsku amma, þín er sárt saknað en ég veit að þú ert á betri stað og brosir við okkur með dásamlega glettna brosinu þínu. Minning þín lifir og það mun hún alltaf gera. Ég elska þig. Þín dótturdóttir, Thea Theodórsdóttir. Amma. Þú varst merkileg kona. Það fara ekki margir í gegn- um lífið sem þú fórst í gegnum, og koma út á hinum endanum með heilt haf af fólki sem saknar þín eins og við gerum núna. Mér líður eins og það gerist of oft, að þyngsl tilverunnar dempi og takmarki þann kærleik sem manneskja get- ur gefið frá sér. Það gerðist ekki hjá þér. Það var ekki ein sekúnda í samverustundum okkar þar sem ég skynjaði ekki hvað þér þótti vænt um mig. Og ég veit að ég er ekki einn um að skynja þá tilfinn- ingu. Ég á svo margar góðar minningar af okkur að tala saman, spila rommý, eða bara horfa á sjö- fréttirnar. Minningar sem fyrir öðrum hljóma kannski hversdags- legar, en eru fyrir mér eins og demantar. Því hvað er lífið nema strengur af hversdagslegum at- burðum? Ég er ævinlega þakklát- ur fyrir að hafa fengið að njóta nokkurra þeirra með þér. Þessar minningar eru núna það eina sem ég á eftir og ég mun geyma þær og varðveita hjá mér að eilífu. Ég vildi að þú hefðir getað meðtekið hversu vænt mér þótti um þig þegar ég kvaddi þig, en innst inni veit ég að þú vissir það. Ég elska þig amma, og eins og allir sem fengu þann heiður að kynnast þér, þá varstu elskuð, og verður svo innilega sárt saknað. Sem vinar, ömmu, húmorista, lífskúnstners og spilafélaga. Ég veit að þú ert núna á þeim stað sem þú ert búin að vera að bíða eftir síðan þú varst lítil stelpa. Ég vona að hann sé allt sem þú óskaðir. Ef einhver á hann skilið þá ert það þú. Jósúa Theodórsson. Katrín Hendriksdóttir MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022 þessu tímabili. Hólmsteinn gegndi mörgum störfum fyrir Körfu- knattleikssambandið, bæði í stjórn þess og gegndi formennsku árin 1969 til 1973. Hann vann við dómgæslu fyrir KKÍ í mörg ár, því alla tíð átti körfuknattleikurinn hug hans allan. Hólmsteinn var mjög traustur og góður félagi, hógvær og yfir- vegaður og því ávallt gott að leita til hans með hverslags erfið mál- efni. Hann tók við formennsku í ÍR 1986 og gegndi því til 1993, því má segja að hann hafi setið í stjórn fé- lagsins í 16 ár. Hann var gerður að heiðursfélaga árið 2007. Ég átti því láni að fagna að starfa með honum í stjórn Vatns- veitu Reykjavíkur og þar bar allt að sama brunni, hógværðin, róleg- heitin og yfirvegunin. Hólmsteins verður sárt saknað og við munum minnast góðs drengs og afburða ÍR-ings og ég vil þakka fyrir öll árin sem við átt- um saman. Eftirlifandi eiginkonu, frú Guð- nýju Pétursdóttur, og börnunum Pétri og Eddu votta ég samúð vegna fráfalls Hólmsteins. Þórir Lárusson, fv. formaður ÍR. Góður nágranni og vinur kveð- ur. Kveðjustundin er alltaf erfið, minningar streyma fram. Eðlilegt er að litið sé um farinn veg og minnst góðra samverustunda. Upphaf kynna okkar Hólmsteins eru í störfum okkar fyrir Reykja- víkurborg, hann hjá Vatnsveitu og ég hjá Rafmagnsveitu og síðar hjá Vélamiðstöð. Sem nágrannar áttu fjölskyldur okkar mjög góðar samverustundir og kynnin þróast þannig bæði í starfi og leik, m.a. fórum við ásamt eiginkonum í ógleymanlega ökuferð suður um alla Evrópu og margar aðrar sam- eiginlegar ferðir bæði innanlands og utan. Hólmsteinn var útskrifaður við- skiptafræðingur frá HÍ og ráðinn til Vatnsveitunnar 1968 sem skrif- stofustjóri og staðgengill vatns- veitustjóra. Verður vatnsveitu- stjóri 1999 þar til veitan sameinast nýstofnaðri Orkuveitu og er svo aðstoðarforstjóri OR til starfs- loka. Hólmsteinn var mjög fé- lagslyndur, auk þátttöku sem kom til vegna starfa sinna tók hann rík- an þátt í íþróttastarfi, varð m.a. Ís- landsmeistari í körfubolta með ÍR og var þar í stjórn um tíma. Fékk gullmerki Íþróttabandalags Reykjavíkur, sem er æðsta heið- ursviðurkenning bandalagsins. Eftir starfslok fjölgaði mjög góð- um stundum á golfvellinum. Mér er ljúft að minnast þátt- töku hans í starfi TBO, sem er frjáls félagsskapur meðal áhrifa- ríkra starfsmanna hjá nokkrum borgum á Norðurlöndum, stofn- aður í Svíþjóð 1928. Félagið TBO Reykjavík var stofnað 1952 og er Hólmsteinn skráður félagi frá 1974, þannig verða árin 24 sem hann var virkur þátttakandi og gegndi ýmsum stjórnarstörfum fyrir félagið, s.s. störfum varaodd- vita. Öll þátttaka hans í TBO var einstaklega happadrjúg og veitt af miklum rausnarskap, þannig kom það ekki á óvart þegar Hólmsteini var veitt verðskulduð viðurkenn- ing og hann gerður að heiðurs- félaga 2016. Minning um einstak- lega góðan dreng og félaga lifir meðal okkar í TBO Reykjavík. Persónulega minnumst við margra góðra stunda með þeim hjónum Guðnýju og Hólmsteini. Vegna hrakandi heilsu Hólm- steins var minna um samveru- stundir síðustu tvö árin. Við eigum dýrmætar minningar um góðan dreng, þökkum samfylgdina og sendum fjölskyldunni einlægar samúðarkveðjur. Guðrún og Hersir Oddsson, fv. oddviti TBO. - Fleiri minningargreinar um Hólmstein Sigurðs- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUNNLAUGS ÞÓRS INGVARSSONAR tannlæknis. Auður Gestsdóttir Margrét Gunnlaugsdóttir Guðmundur Rafn Bjarnason Brynja Gunnlaugsdóttir Emil H. Valgeirsson Ingvar Þór Gunnlaugsson Margrét Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför elskulegs eiginmanns, sonar, bróður og frænda INGVARS LUNDBERG hljóðhönnuðar. Santía Svanhvít Sigurjónsdóttir Margrét Sigurjónsdóttir Jóhanna Gísladóttir Rúnar Laxdal Gunnarsson Anton Lundberg Þórey Þorkelsdóttir Ragnar Lundberg Marina Suturina vinir og aðrir aðstandendur Kær bróðir okkar, mágur og frændi, ODDUR GUÐMUNDUR JÓHANNSSON, Lindargötu 2, Siglufirði, lést 31. júlí. Útförin fór fram í kyrrþey frá Siglufjarðarkirkju fimmtudaginn 12. ágúst. Hjartans þakkir til starfsfólks á Sambýlinu á Siglufirði. Þökkum auðsýnda samúð. Helgi Jóhannsson Svandís Óskarsdóttir Már Jóhannsson Ragnheiður Kristjánsdóttir Rut, Sigurður og Jóhann Pálsbörn Innilegar þakkir til allra sem sýnt hafa samúð og hlýhug vegna andláts föður, tengdaföður, afa og langafa, ÞORGRÍMS JÓNSSONAR málmsteypumeistara, Hrafnistu, Laugarási, áður Rauðalæk 19, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Engeyjar, Hrafnistu, fyrir notalegt viðmót og góða umönnun. Bára Þorgerður Þorgrímsd. Ólafur Jónsson Sigurður Trausti Þorgrímss. Zhanna Þorgrímsdóttir Jón Þór Þorgrímsson Aldís Yngvadóttir Herdís Þorgrímsdóttir Kristinn G. Hjaltalín barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA KRISTMUNDSDÓTTIR, andaðist fimmtudaginn 11. ágúst. Útförin verður frá Seljakirkju miðvikudaginn 24. ágúst klukkan 11. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Brjóstaheill-Samhjálp kvenna eða Alzheimersamtökin. Guðmundur Hjálmarsson Erna Jóna Sigmundsdóttir Hörður Erlingsson Kristmundur Sigmundsson Valeria Golozoubova Daði Guðmundsson Álfheiður Sigurðardóttir ömmu- og langömmubörn Faðir okkar, stjúpi, afi og langafi, ÁSGEIR SVANBERGSSON, lést mánudaginn 15. ágúst. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. ágúst klukkan 13. Gísli Ásgeirsson Páll Ásgeir Ásgeirsson Hrafney Ásgeirsdóttir Þorbjörg Ásgeirsdóttir Áslaug Ásgeirsdóttir Bryndís Þórhallsdóttir Björg Þórhallsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.