Morgunblaðið - 18.08.2022, Síða 52

Morgunblaðið - 18.08.2022, Síða 52
VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Fram undan er takmarkalaust starfsár í öllum skilningi, því nú gefst loks tækifæri fyrir hljómsveit- ina að blómstra á ný,“ segir Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmda- stjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands (SÍ), og tekur fram að gaman sé að geta tekið á móti gestum á opnu húsi í Hörpu á menningarnótt á laugar- dag sem marki upphaf starfsársins, ásamt með tónleikunum „Klassíkin okkar“, sem sendir verða út í beinni á RÚV föstudaginn 2. september, þar sem boðið verður upp á einleik- araveislu, og fyrstu áskriftartón- leikum vetrarins fimmtudaginn 8. september. Þess má geta að tvennir tónleikar verða í boði á menningar- nótt, þar sem gestir geta annars veg- ar kynnst undrum alheimsins kl. 15 undir leiðsögn Stjörnu-Sævars og hins vegar heyrt klassíska hlaupa- lagalista Jóns Jónssonar kl. 17. Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða á sinfonia.is eða í miðasölu Hörpu á tónleikadegi. Ekkert lengur sjálfsagt „Við hlökkum til að fá tónleika- gesti aftur í hús, enda bjóðum við upp á fjölbreytt, litríkt og kröftugt starfsár með fjölda innlendra og er- lendra stjarna,“ segir Halla Oddný Magnúsdóttir, listrænn ráðgjafi SÍ. „Eitt af því sem faraldurinn kenndi okkur er að það er ekki sjálfgefið að geta notið menningar í eigin persónu og því um að gera fyrir fólk að drífa sig af stað og njóta þess að þetta er aftur hægt,“ segir Halla og tekur fram að hún hlakki mikið til fyrstu áskriftartónleika vetrarins þar sem heyra megi verkið Archora eftir Önnu Þorvaldsdóttur, staðartón- skáld SÍ, undir stjórn Evu Ollikai- nen, aðalhljómsveitarstjóra SÍ, sem heimsfrumflutt var við glimrandi viðtökur á BBC Proms í liðinni viku. „Á sömu tónleikum leikur Daniil Trifonov, sem er einn af stærstu stjörnum samtímans í píanóheim- inum, píanókonsert nr. 4 eftir Beet- hoven,“ segir Halla og tekur fram að komandi starfsár endurspegli upp- skeru sveitarinnar eftir þolgæði síð- ustu tveggja ára. „Við njótum þess á allt annan hátt en áður að fá þessar stórstjörnur til okkar og erum full þakklætis, því það er ekkert lengur sjálfsagt,“ segir Halla. Sem fyrr verður, að sögn Láru og Höllu, boðið upp á fjölbreytta efnis- skrá í vetur. „Enda krefst hlutverk okkar sem þjóðarhljómsveitar að við setjum upp marga ólíka hatta,“ segir Lára. Bendir hún á að boðið verði upp á sjö tónleika í rauðu tónleika- röðinni „þar sem heyra má kraft- mikla sinfóníska tónlist með íslensk- um og erlendum einleikurum í fremstu röð. Hvað felst í aðgengileika? Það eru einnig sjö tónleikar í gulu röðinni, sem hugsuð er fyrir þá sem vilja fjölbreytt og litrík meistaraverk úr ýmsum átum með glæsilegum einleikurum og einsöngvurum. Boðið er upp á fimm tónleika í grænu röð- inni, sem allir nema Vínartónleika- rnir verða sýndir í beinni útsendingu á RÚV. „Hér er um að ræða styttri tónleika án hlés með kynningum á sviðinu þar sem ljósi er varpað á ýmsar skemmtilegar sögur á bak við meistaraverkin sem heyrast,“ segir Lára og tekur fram að hugmyndin með grænu röðinni sé að hún sé að- gengileg. „Í því samhengi höfum við skoðað hvað felst í því að vera að- gengilegur, því það snýst ekki bara um að heyra kunnuglega tónlist heldur einnig hvernig efnisskráin er sett saman og kynnt fyrir áhorf- endum,“ segir Lára og bendir á að vinsælar tónleikakynningar í Hörpu- horni fyrir áskriftartónleika gegni mikilvægu hlutverki í því að opna heim tónlistarinnar fyrir tónleika- gestum. Rækta tengslin við listafólkið Af öðrum röðum nefnir Lára Litla tónsprotann, en undir merkjum hans verður boðið upp á ferna tón- leika, þeirra á meðal stytta útgáfu af Töfraflautunni 18. febrúar undir stjórn Korniliousar Michaiidis og Dýrasinfóníuna eftir metsöluhöf- undinn Dan Brown 13. maí. „Sami fjöldi tónleika er í bæði föstudags- röðinni, sem eru hugsaðir sem af- slappaðir og styttri tónleikar í Norð- urljósum þar sem kynnast má nýjum hliðum á listamönnum starfs- ársins, og í svörtu röðinni þar sem Sæunn Þorsteinsdóttir staðar- listamaður starfsársins er í einleiks- hlutverki og flytur m.a. verk eftir Bach, Önnu Þorvaldsdóttur og Shos- takovitsj auk þess sem hún frum- flytur nýtt verk eftir Veronique Vöku,“ segir Lára og tekur fram að gott sé fyrir hljómsveitina að rækta tengsl við listafólk með því að bjóða því að vinna að nokkrum ólíkum tón- leikum á sama starfsárinu. Þetta eigi til dæmis við um Nathanaël Iselin, sem er staðarhljómsveitar- stjóri ársins, Bertrand de Billy, sem er aðalgestastjórnandi sveitarinnar í ár, og Íslandsvininn og píanóleik- arann Stephen Hough, sem verður listamaður í samstarfi á komandi starfsári. Hann kemur fram á ein- leikstónleikum 13. janúar, daginn eftir að hann leikur píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven með hljómsveit- inni auk þess sem hann leikur píanó- konsert nr. 2 eftir Rakhmanínov á tónleikum 23. febrúar, en síðast- nefndu tvennir tónleikarnir eru hluti af upptakti að tónleikaferð sveitar- innar til Bretlands í apríl. „Í þeirri tónleikaferð verður einn- ig flutt verkið Metacosmos eftir Önnu, sem sjálf mun taka virkan þátt í tónleikakynningum, en hún býr í Bretlandi,“ segir Lára, en hljómsveitarstjóri verður Eva Olli- kainen. „Við fengum boð frá sömu skipuleggjendum og sáu um tón- leikaferðina okkar til Bretlands í febrúar 2020. Það er stefna þeirra að gefa þeim erlendu sveitum sem þeir bjóða tækifæri til að koma reglulega til að rækta sambandið við áhorf- endur á staðnum,“ segir Lára og tekur fram að ýmsar aðrar tónleika- ferðir séu í farvatninu sem verði kynntar síðar. Vill þróa hljóm sveitarinnar Í viðtali við Ollikainen í bæklingi, þar sem komandi starfsár er kynnt, kemur fram að meðal meginmark- miða hennar sem aðalhljómsveitar- stjóra SÍ sé að „leggja rækt við hljóm- bæ hljómsveitarinnar – þróa hennar einstaka hljóm“ enda sé það ósk hennar að hljómur SÍ verði „auð- þekktur og sérstakur“. Þegar þetta er borið undir Láru og Höllu benda þær á að Eva Ollikainen sé metnaðarfull, hafi skýra framtíðarsýn og sé óþreyt- andi við að vinna að markmiði sínu í góðri samvinnu við hljóðfæraleikara sveitarinnar. „Það er ekki sama hvernig svona stór hópur hljóðfæraleikara spilar sig saman og hlustar hver á annan,“ segir Halla og Lára bætir við að uppstilling hljómsveitarinnar á sviðinu geti t.d. haft afgerandi áhrif á samspilið og samhljóminn. „Við erum ótrúlega lán- söm að vera með þennan stórkostlega sal sem Eldborg er, en það er enn hægt að rannsaka möguleika hljóms- ins í honum,“ segir Lára og tekur fram að tónleikaferðir séu mikilvægur liður í vinnunni við að þróa hljóminn, enda afar lærdómsríkt að leika sömu verkin í ólíkum tónleikarýmum. Laufey alin upp hjá Sinfó Auk framangreindra tónleika má nefna að boðið verður upp á ýmsa tón- leika utan tónleikaraða. „Sem eru til- valdir í Regnbogakort,“ segir Halla og nefnir í því samhengi kvikmynda- sýninguna á Harry Potter og leyni- klefanum í mars, tónleika í september þar sem Ungsveit SÍ leikur sinfóníu nr. 2 eftir Rakhmanínov og tónleika 27. október þar sem tónlist Laufeyjar verður flutt í hljómsveitarútsetn- ingum. „Svo skemmtilega vill til að Laufey er nánast alin upp í hljóm- sveitinni, enda dóttir Lin Wei fiðlu- leikara og tók sjálf þátt í Ungsveitinni á sínum tíma,“ segir Lára. Viðburður að fá Trifonov Spurð um helstu hápunkta ársins segja Lára og Halla margt hægt að nefna. „Það er mikill viðburður að fá Trifonov til landsins,“ segir Lára og Halla bætir við: „Það er svo mikill viðburður að við ætlum ekki að sleppa honum fyrr en hann hefur líka leikið einleikstónleika laugardaginn 10. september, enda er hann ein af rokkstjörnum klassíska tónlistar- heimsins,“ bætir Halla við og bendir á að faraldurinn hafi leitt til þess að einleikarar staldri stundum lengur við en áður og leiki oft tvenna tón- leika með ólíkum efnisskrám, sem sé mikill fengur fyrir íslenska tónleika- gesti. Nefna þær í því samhengi m.a. tón- leika 17. nóvember þar sem fiðluleik- arinn Baiba Skride og sellóleikarinn Harriet Krijgh leika konsert eftir Sofiu Gubaidulinu ásamt bayan- leikaranum Elsbeth Moser auk þess sem flutt er verkið Sinfónískir dansar eftir Rakhmanínóv, en daginn eftir stýra þær kammertónleikum á föstu- dagstónleikum þar sem þær leika æskuverk eftir Shostakovitsj og Mendelssohn. „Í byrjun nóvember verða hér glæsilegir pólskir tónleikar þar sem Jan Lisiecki leikur píanókonsert nr. 1 eftir Chopin,“ segir Halla og bendir á að laugardaginn 5. nóvember verði pólskt þema á einum af þremur barnastundum Sinfóníunnar á kom- andi vetri. „Ég er mjög spennt fyrir Íslandsfrumflutningnum á slagverks- konserti eftir Daníel Bjarnason í jan- úar í flutningi Martins Grubingers. Þetta verður síðasti séns til að heyra Grubinger spila, því hann ætlar að snúa sér að öðru en tónlistinni,“ segir Halla og tekur fram að hún hlakki einnig mjög mikið til tónleikanna 14. apríl þar sem Eva Ollikainen stjórni Metacosmos eftir Önnu Þorvalds- dóttur og sinfóníu nr. 5 eftir Tsjaj- kovskíj, sem verði í farteskinu fyrir tónleikaferðina, og einnig Luonnotar eftir Sibelius og Voice verser eftir Jukka Tiensuu þar sem Anu Komsi syngur einsöng. „Það er alltaf svo gaman þegar maður fær stóru rómantísku sinfóní- urnar í bland við nýtt og jafnvel dálít- ið flippað efni, en allt er þetta dýrleg músík,“ segir Halla. „Svo má ekki gleyma að Bertrand de Billy heldur áfram að stjórna sinfóníum Brahms og fær með sér flotta einleikara í konsertum eftir Brahms,“ segir Lára og bendir á að á tónleikum 9. mars leiki Sunwook Kim einleik í píanó- konsert nr. 2 eftir Brahms og á tón- leikum 8. júní leiki Augustin Hadelich einleik í fiðlukonsert eftir Brahms. Hljóðrita tvö verka Önnu „Meðan faraldurinn gekk yfir gát- um við ekki verið með tónleika á Myrkum músíkdögum og því ánægjulegt að geta boðið upp á tvenna tónleika á hátíðinni í ár,“ segir Lára, en undir lok janúar verða tón- leikar með verkum Báru Gísladóttur auk þess sem verk eftir meðal anars Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur og Gunnar Andreas Kristinsson munu heyrast. Þess má að lokum geta að SÍ mun halda áfram að hljóðrita verk til alþjóðlegrar útgáfu. „Í vetur munum við hljóðrita tvö verk eftir Önnu, þ.e. Archora og Aiôn, hvort tveggja undir stjórn Evu,“ segir Lára og bendir á að SÍ hafi átt gjöfult samstarf við Sono Luminus á síðustu árum. „Undir þeirra merkjum kemur á starfsárinu út ný plata þar sem verk íslenskra og bandarískra samtíma- tónskálda eru í forgrunni undir stjórn Daníels Bjarnasonar sem er lista- maður í samstarfi hjá okkur. Meðal þeirra sem eiga verk á þeirri plötu eru María Huld Markan Sigfúsdóttir og Missy Mazzoli,“ segir Lára og tek- ur fram að ýmislegt fleira sé í bígerð sem of snemmt sé þó að segja frá. Morgunblaðið/Hákon Í stafni Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri, og Halla Oddný Magnúsdóttir, listrænn ráðgjafi. „Takmarkalaust starfsár“ - „Bjóðum upp á fjölbreytt, litríkt og kröftugt starfsár með fjölda erlendra og innlendra stjarna“ - Opið hús hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpu á menningarnótt á laugardaginn kemur 52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2022 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.