Morgunblaðið - 18.08.2022, Qupperneq 60
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
V
e
rð
o
g
v
ö
ru
u
p
p
lý
si
n
g
a
r
í
a
u
g
lý
si
n
g
u
n
n
i
e
ru
b
ir
ta
r
m
e
ð
fy
ri
rv
a
ra
u
m
p
re
n
tv
il
lu
r.
ÖRUM
Hægindastóll. Alis grár, grænn, hvítur eða mustard. 105×46×83 cm.
Nú 134.990 kr. 149.990 kr.
NÝTT
&SPENNANDI
Kynningarafsláttur af völdum vörum
SKANNAÐU QR
KÓÐANN TIL AÐ
SKOÐA NÝJA
BÆKLINGINN
KARE OSCAR
Hægindastóll með mjúku
velvet áklæði. Rauður,
svartur eða appelsínugulur.
Nú 89.990 kr. 109.990 kr.
KARE ROMAN
Hliðarborð með klukku.
Brass eða svart.
Ø41,5 × 56 cm.
Nú 31.990 kr. 39.990 kr.
RIVERDALE LUNE
Vasi, smoke.
Ø17,5 × 40 cm.
14.990 kr.
RUNNER
Stytta.
25 × 11 × 12,5 cm.
15.990 kr.
BITZ GALAXY SVART
Diskur 27 cm. 3.290 kr.
Diskur 21 cm. 2.490 kr.
Diskur 17 cm. 2.290 kr.
Krús m/haldi 30cl 4 stk. 7.690 kr.
Pastaskál 20 cm. 3.990 kr.
Skál 18cm. 3.490 kr.
Skál 12 cm. 1.990 kr.
Salatskál 24 cm. 8.990 kr.
Skálasett á bakka. 7.490 kr.
Skálasett 4 stk. 6.990 kr.
Salt og piparkvörn. 14.790 kr.
ri
tunga. Alice grátt eða Alice Midnight Blue áklæði.
242 × 170 × 78 cm. Nú 409.990 kr. 459.990 kr.
BARON tungusófi. Vinstri eða hæg
Félag íslenskra bóka-
útgefenda (Fíbút) leitar
að einstaklingum sem
hefðu áhuga á að sitja í
dómnefnd Íslensku bók-
menntaverðlaunanna.
„Leitað er eftir fólki á
ólíkum aldri með fjöl-
breyttan bakgrunn og
menntun auk mikils
tíma til lesturs. Laun fyrir
nefndarsetu eru 125.000 kr.
auk þess sem nefndarmeðlimir fá allar framlagðar
bækur í sínum flokki til eignar,“ segir í tilkynningu á
Facebook-síðu Fíbút, en reikna má með að hverri nefnd
berist á bilinu 50 til 70 bækur. Ráðgert er að dóm-
nefndir hefji störf í síðasta lagi 12. september, sem er
tæplega mánuði fyrr en síðustu ár. Dómnefnd velur til-
nefndar bækur í þremur flokkum sem kynntar verða 1.
desember við hátíðlega athöfn. Tekið er á móti um-
sóknum til og með 21. ágúst. Nánari upplýsingar og
umsóknareyðublað má finna á fyrrgreindri síðu Fíbút.
Fíbút leitar að dómnefndarfólki
FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 230. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson og kringlukast-
arinn Guðni Valur Guðnason tryggðu sér í gær sæti í úr-
slitum í sínum greinum á Evrópumótinu í frjálsíþróttum
en mótið fer fram í München í Þýskalandi. Hilmar kast-
aði lengst 76,33 metra, sem er hans besta kast á árinu
og hans annað besta kast frá upphafi. Íslandsmet FH-
ingsins er 77,10 metrar. Guðni kastaði kringlunni lengst
61,80 metra og rétt slapp inn í úrslitin en hann var í
neðsta sæti af þeim tólf sem fóru áfram. Íslandsmet
Guðna í greininni er 69,35 metrar. »51
Hilmar og Guðni Valur í úrslitin
ÍÞRÓTTIR MENNING
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég er rosa ánægður með þetta. Lag-
ið er ógeðslega flott,“ segir Bubbi
Morthens tónlistarmaður sem lagði í
vikunni lokahönd á nýja útgáfu af
KR-laginu svokallaða. Lagið heitir
ýmist Við erum KR eða Allir sem
einn en hefur gjarnan verið nefnt eitt
besta stuðningsmannalag íslenskra
íþróttafélaga, ef ekki hið besta.
Nýja útgáfan er að sögn Bubba nú-
tímaleg og geta allir tengt sig við lag-
ið, ekki bara karlkyns fótboltaáhuga-
menn eins og áður var. Í endurbættu
útgáfunni segir í textanum: „Við
stöndum saman öll sem eitt“ í stað
„Við stöndum saman allir sem einn“
og svo framvegis. „Nú geta stelpur og
strákar í boltanum, hán og trans og
fólk í stúkunni verið með,“ segir tón-
listarmaðurinn sem segir að langur
aðdragandi sé að þessu hjá sér.
„Ég ætlaði alltaf að gera lag fyrir
KR-stelpurnar en á þeim tíma sem
það var í deiglunni var umræða um
jafnréttismál og alls konar aðra hluti
ekki komin þangað sem hún er í dag.
Þetta hvíldi alltaf dálítið á mér og
mér fannst ég ekki hafa staðið mig en
svo laust þessu allt í einu niður í hug-
ann á mér: „Við erum svört, við erum
hvít, við stöndum saman öll sem eitt.“
Og þar með var vandamálið úr sög-
unni. En hugsaðu þér, það tók allan
þennan tíma.“
Bubbi segir að þungi fargi sé af sér
létt. „Lagið var fínt á sínum tíma en
það var barn síns tíma. Það þurfti all-
ar þessar breytingar í þjóðfélaginu en
ég náði þessu loksins. Nú eiga allir
lagið.“
Guðmundur Óskar Guðmundsson
hafði umsjón með endurgerð lagsins
og Selma Björnsdóttir var fengin til
að syngja á móti Bubba. Í vikunni var
stórum hópi KR-inga smalað saman í
íþróttahús félagsins til að syngja kór í
laginu og taka upp myndband. Stefnt
er að því að frumflytja lagið á stórleik
KR gegn FH í Bestu deild karla
sunnudaginn 28. ágúst næstkomandi.
Bubbi játar því að gengi KR-
liðsins hafi ekki verið upp á marga
fiska í sumar en vonast til að lagið
hristi upp í mannskapnum. „Lagið er
flott á sigurstundum og þegar gengið
er gegnum dimma dali. Það mun
birta aftur yfir og við komum tvíefld
til leiks, bæði í karla- og kvennabolt-
anum.“
Selma Björnsdóttir segir að það
hafi verið ánægjulegt að vera beðin
að syngja lagið með Bubba. „Það var
tími til kominn að breyta þessu og
vera í nútímanum,“ segir hún. Selma
hefur ekki sterka tengingu við KR en
fagnar því að geta tengst félaginu
með þessum hætti. „Maðurinn minn
er mikill KR-ingur og stjúpbörnin
eru í íþróttum hjá félaginu. Ég er
sjálf nýflutt í Vesturbæinn og það er
fallegt að fá svona móttökur fyrst
maður er kominn í hverfið.“
Morgunblaðið/Eggert
Við erum KR Bubbi og Selma sungu lagið með yngri iðkendum og leikmönnum meistaraflokka KR í vikunni.
Bubbi og Selma syngja
nýja útgáfu af KR-laginu
- Nú geta stelpur, strákar, hán og trans tengt sig við lagið