Morgunblaðið - 06.10.2022, Page 14

Morgunblaðið - 06.10.2022, Page 14
Morgunblaðið/Kristín Heiða Egill Hann var fyrstur til að sjá lömbin úti á túni. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É g trúði varla mínum eig- in augum, þetta gat ekki verið og ég hrópaði til ömmu Rósu sem var með mér í bílnum: amma, amma, sjáðu! Eru þetta lítil lömb?! segir Egill Freyr Traustason, 10 ára, sem var fyrstur til að taka eftir að tvö nýbor- in lömb trítluðu á eftir móður sinni á túni þar sem hann hafði farið á rúnt- inn með ömmu sinni, Rósu Paulsen, bónda í Austurhlíð í Biskupstungum, sl. sunnudag, til að líta eftir kindum ömmu sinnar og afa. „Ég gat varla trúað þessu held- ur,“ segir Rósa og bætir við að hún hafi orðið mjög spennt við að sjá þetta óvænta ungviði og ætlað að stökkva út og huga að hvers kyns lömbin væru. „Egill bannaði mér það, hann var mjög strangur við ömmu sína, sagði að ég mætti ekki trufla kindina, hún væri alveg nýbor- in og mætti ekki hlaupa frá lömb- unum sem voru nýfarin að ganga og rétt svo komin á spena. Ærin er stygg og gaf ekki færi á sér, enda er hún gemlingur og hefur aldrei áður átt lömb, svo ég hlýddi Agli og lét hana vera,“ segir Rósa og bætir við að hún hafi lítið sofið nóttina eftir. „Ég hafði svo miklar áhyggjur af nýbornum lömbunum úti í haust- rigningunni sem lamdi húsið, en þau eru eldspræk, ég er búin að ganga úr skugga um það. Þau eru falleg á lit- inn, móbotnótt eins og mamma sín, Celica, sem er nafn á Toyota sport- bíl, en yngsti sonur okkar sem er mikill bílakarl, hann á þessa kind að nafninu til, þó hann sé orðinn fullorð- inn og löngu fluttur að heiman,“ seg- ir Rósa og bætir við að Celica sé af eðalkyni sem kallað er Mórkollukyn, en Mórkolla ættmóðir þess kom frá Hofi í Öræfum. „Kindur af Mórkollu- kyni hér á bæ bera allar bílanöfn, svo væntanlega fá litlu lömbin slík nöfn.“ Lömbin missa af sumri og sól Rósa og eiginmaður hennar, Magnús Kristinsson, halda um 60 kindur sér til gamans, eftir að þau komust á eftirlaunaaldur. Magnús segir tíðindin heldur betur hafa komið sér á óvart. „Ég var staddur á Haukadals- heiði í leit með Kristínu dóttur minni og fleira fólki, þegar hún fékk senda mynd í símann frá Rósu af lömbun- um. Ég hélt að Kristín ætti lömbin, enda eru hún og Trausti maður hennar með 600 kindur, en þessi októberlömb reyndust þá vera und- an kind frá okkur Rósu. Litur lamb- anna bendir til að faðirinn sé hinn ellefu vetra forystuhrútur Keisari, sem Kristín á. Keisari var settur fyrir misskilning saman við geld- ærnar okkar Rósu í vor þegar við settum þær út til að skapa pláss í fjárhúsinu fyrir sauðburð. Ég hef heyrt að forystuhrútar hafi þá sér- stöðu að vera hæfir til að lemba ær allan ársins hring, á meðan þeir hrútar sem ekki eru af forystukyni tapa þeim hæfileika á vissum árs- tíma, þeir verða nánast ófrjóir að vori, þá minnka eistu þeirra og kólf- ur. Celica hefur fengið fang snemma í vor, um miðjan maí, því meðgöngu- tíminn er um 20 vikur. Ærnar eiga ekki að vera að ganga á þessum árs- tíma, en sældin hefur sjálfsagt eitt- hvað með þetta að gera, þær voru vænar hjá okkur Rósu, enda dekur- kindur. Auk þess var komið þó nokkurt gras þessar fyrstu vikur í maí þegar þær fóru á tún, nýgræð- ingurinn hefur sjálfsagt sett þetta af stað hjá Celicu. Ég veit þetta gerðist hjá nágranna mínum Sighvati á Mið- húsum einhverju sinni þegar hann setti forystuhrúta út með geldfénu að vori. Ég man líka eftir að lamb hafi fæðst í janúar hjá Steina heitn- um í Helludal,“ segir Magnús og bætir við að vissulega missi lömbin af ýmsu þegar þau komi í heiminn á svo röngum tíma í náttúrudagatali sauðkinda, sem raun ber vitni. „Þau missa af sumri, sól og sæld sem þau lömb fá sem fæðast að vori. Nú þurf- um við að taka þau inn á hús svona ung og þau fá ekki sömu útiveru og hreyfingu sem náttúran gerir ráð fyrir hjá vorlömbum. Ætli við leyf- um þeim ekki að skottast í hlöðunni með mömmu sinni í vetur, en við þurfum að taka þau undan henni í desember þegar fengitími fer af stað.“ Ljósmynd/Kristín Sigríður Magnúsdóttir Eigendur októberlamba Rósa og Magnús ætla að leyfa lömbunum að skottast í hlöðunni með mömmu sinni í vetur. Egill trúði varla sínum eigin augum Öllum að óvörum komu tvö lömb í heiminn núna í október í Austurhlíð í Biskupstungum, en slíkt á vart að geta gerst. Meintur faðir er forystuhrúturinn Keis- ari sem hefur áður náð að lemba ær á röngum tíma. Morgunblaðið/Kristín Heiða Morgunblaðið/Kristín Heiða Stygg Celica hljóp, leyfði ei myndatöku nema í fjarlægð. Fallegt Annað lambið hljóp frá styggri móður og þá náðist mynd. 14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022 www.vest.is • Ármúli 17 • Sími 620 7200 Takmarkað upplag, fyrstur kemur fyrstur fær. 20-60% afsláttur 30. sept. - 2. okt. L ag er sa la Hinn meinti faðir októberlambanna, Keisari, er hrein- ræktaður forystuhrútur og Kristín, eigandi hans, segist hafa farið í sérstaka ferð með pabba sínum norður á Strandir til að ná sér í hreinræktaða forystugimbur, sem seinna varð móðir Keisara. „Ég keypti mömmu hans, Bínu Zö- beck, af Valgeiri og Hrefnu í Árnesi. Bína var af svaðalegu kyni og þegar ég náði í hana var hún sótt upp í fjall af því mamma hennar hafði strokið með þetta eina litla lamb, engar girð- ingar héldu henni, þó hún væri með staurfót. Þessi móðir Bínu var kölluð Sautján strengja Flekka, með vísan í yfir hversu háar girðingar með mörg- um strengjum hún gat stokkið.“ Kristín segir að þegar Bína hafi verið gemsi hjá henni þá hafi hún ver- ið sædd, af því hún vildi fá hreinræktuð forystuafkvæmi undan henni. „Ég valdi fyrir Bínu sæðingahrútinn Karl Philip, sem var hreintæktaður forystuhrútur. Ég hitti hann á sæðingastöðinni og hann var svo skemmtilegur, spakur og flottur. Ég kom á sæðingastöðina á fengitíma og þá var Karl Philip svo graður að kann kumraði ekki einvörðungu í fé heldur líka í fólk. Hann reyndi við allt,“ segir Kristín og hlær. „Ætli Keisari hafi ekki frá pabba sínum að vera svona nátúrumikill, því þetta er ekki í fyrsta sinn sem Keisari nær að lemba kind á óvenju- legum tíma. Hann náði eitt sinn að lemba kind hjá mér á Jónsmessu, en það er afar óvenjulegt að hrútar séu frjóir þá. Einnig er óvenjulegt að kind sé að ganga um hásum- ar. Hún bar um mánaðamótin október/nóvember og ég fékk eftirminnilegt handskrifað bréf frá Ólafi Dýr- mundssyni þegar þessi óvenjulegi atburður átti sér stað. Ólafur er með Keisara skráðan hjá sér sem sérstakt fyrirbæri, en hann er sérfræðingur í frjósemi sauðfjár og skrásetur og safnar upplýsingum. Ólafur vill meina að forystukyn, mislitt, kollótt og ættað af Ströndum, séu þættir sem hafi með frjósemi allt árið að gera.“ Kristín segir að þegar Keisari hafi viljað í heiminn koma á sínum tíma, hafi Bína ekki getað borið sjálf, svo hann var tekinn með keisaraskurði. „Þannig fékk Keis- ari nafnið sitt, en Bína hélt aldrei aftur lambi í sínu móð- urlífi eftir þessa aðgerð. Keisari er því hennar eina af- kvæmi. Amma Keisara, fyrrnefnd Sautján strengja Flekka, var kollótt, faðir hennar var ferhyrndur og Bína var það sem kallað er ferukollótt, með brúsk eins og fer- hyrnt fé en kollótt. Fyrir vikið er Keisari með óvanaleg horn, þau eru nett og hann var náhyrndur, en við reynd- um að laga hornin með því að draga í þau vír.“ Kristín segir að nú sér Keisari í vist hjá foreldrum hennar, Rósu og Magnúsi, því Trausti eiginmaður henn- ar sé ekki hrifinn af að hafa hann í fjárhúsinu. „Ég held mikið upp á Keisara, hann er fyrirbæri, hæfi- leikarík forysta og eldklár. Hann á gott með að fá aðra til að fylgja sér úti þó hann vilji fara sínar eigin leiðir. Keisari er gamalt rör og rosalega frekur og ákveðinn. Hann er ekki vinsæll í húsi, hann klifrar yfir allt og lembir þær ær sem honum sýnist. Hann verður alltaf al- veg óður á fengitímanum, lemur stíuna og hina hrútana sem eru þar með honum. Hann brjálast ef hann er ekki tekinn úr stíunni, hann tekur langt tilhlaup og reynir að brjóta fólk og fleka til að komast til kindanna. Hann vill fá að lemba. Ætli ég komi honum ekki á mömmu og pabba í vetur, þá getur fjölskyldan verið öll saman, Ce- lica, Keisari og afkvæmin tvö, ef Keisari hagar sér vel.“ Karl Philip, faðir Keisara, reyndi við allt Keisari Eldklár forystuhrútur sem fer sínar eigin leiðir. Bóndi Kristín Sig- ríður Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.