Morgunblaðið - 06.10.2022, Qupperneq 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2022
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Lifandi píanótónlist
öll kvöld
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–23:00
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
eða í síma 558 0000
GreenBytes var stofnað árið 2020 í Reykja-
vík til að hjálpa veitingastöðum að stjórna
rekstri, minnka matarsóun og auka hagnað.
Aðrir þátttakendur í fjármögnuninni eru
APX, vísisjóður frá Berlín, og valdir engla-
fjárfestar frá Þýskalandi. GreenBytes stefn-
ir á að nýta sér vélanám (e. machine learn-
ing) til að hjálpa við að besta aðfangakeðju
veitingastaða. Það leiðir til aukins hagnaðar
hjá veitingastöðum, minni matarsóunar og
minna kolefnisspori þeirra.
GreenBytes, sem hefur höfuðstöðvar í
Reykjavík, var stofnað af Renötu Bade Bar-
ajas og Jillian Verbeurgt en báðar eru þær
útskrifaðar úr meistaranámi HR í orkuverk-
fræði og hafa núna beint athygli sinni að
matarsóun.
Jillian og Renata hafa báðar starfað í
veitingageiranum og þekkja því af eigin
reynslu hversu krefjandi slík störf geta ver-
ið. Þær komust að því að tímatakmörk,
áhersla á afköst og þörfin fyrir að veita
góða þjónustu gera það að verkum að mikill
tími fer í að panta og viðhalda gæðahráefn-
um frá mörgum mismunandi birgjum.
„Oft á tíðum eru birgðastjórnun og pant-
anir birgða eitthvað sem fólki yfirsést
vegna yfirlegunnar sem til þarf svo vel sé
að verki staðið. Við erum að byggja og þróa
GreenBytes til að hjálpa veitingastöðum að
draga úr rekstrarkostnaði, minnka matar-
sóun og auka sveigjanleika starfsmanna til
að veita góða þjónustu og elda ljúffengan
mat,“ segja þær Jillian og Renata um fyrir-
tækið.
„Við höfum fylgst með GreenBytes-
teyminu frá stofnun og erum afar hrifin af
framtíðarsýn þeirra og framkvæmdagetu.
Við teljum að nú sé rétti tíminn fyrir veit-
ingageirann að auka afkastagetu sína með
hjálp stafrænnar tækni og gervigreindar,“
segja þær Helga Valfells og Svenja Harms,
fjárfestar hjá Crowberry Capital.
„Við erum afar spennt fyrir því að styðja
við GreenBytes á þeirri vegferð að minnka
matarsóun á snjallan og áhrifaríkan hátt.
Fyrirtækið hefur með góðum árangri þjón-
ustað sína fyrstu viðskiptavini og byggt upp
traust þeirra. Það sem sannfærir okkur þó
hve mest er allur sá drifkraftur og orka
sem teymið býr yfir. Það verður lykilatriði
meðan þær búa til ómissandi vöru fyrir
veitingahúsaeigendur,“ segir Henric Hung-
erhoff hjá APX.
Veitingahúsaeigendur vita sumir að nú er
rétti tíminn fyrir snjallvæðingu og tilfærslu
í átt að meiri sjálfbærni.
Þær stöllur segja að þeir séu óðum að
gera sér grein fyrir að nú sé rétti tíminn
fyrir snjallvæðingu og meiri sjálfbærni.
„Markmið okkar er að koma í veg fyrir
matarsóun og með hjálp GreenBytes trúum
við að við getum gert það. Við höfum verið
að vinna að þróun kerfisins með þeim og
erum mjög spennt að fá að notfæra okkur
það. Með kerfinu munum við geta einfaldað
pöntunarferli okkar og létt þar með vinn-
una fyrir verslunarstjóra okkar og sparað
þeim tíma,“ segir Gurrý Indriðadóttir, veit-
ingahúsaeigandi, sem nýtt hefur sér þjón-
ustu fyrirtækisins.
Næstu skref hjá GreenBytes eru að þróa
vöruna áfram. Fyrirtækið sé nú starfandi
hér á landi en næstu skref séu að færa sig
inn á þýska markaðinn.
Hafa safnað 140 milljónum til
að draga úr matarsóun veitingastaða
Íslenska tæknifyrirtækið
GreenBytes býður veitinga-
stöðum græna lausn. Fjár-
festar, með sjóðinn Crowberry
Capital í broddi fylkingar, hafa
nú fest eina milljón evra, jafn-
gildi 140 milljóna króna í fyrir-
tækinu.
Frumkvöðlar Þær Jillian Verbeurgt og Ren-
ata Bade Barajas eru útskrifaðar úr meistara-
námi HR í orkuverkfræði og hafa núna beint
athygli sinni að matarsóun.
„Þetta er búið að vera æðislegt – eiginlega lyg-
inni líkast,“ segir Jón Arnar en þétt hefur ver-
ið setið á staðnum sem býður upp á ítalskan
mat eins og hann gerist bestur. „Ég er með tvo
ítalska snillinga í eldhúsinu, hálfgerðar
mömmur, sem eru ótrúlegar. Þær kunna ekki
að gera vondan mat og eiga það til að taka upp-
skriftir sem hafa hingað til verið heilagar í
mínum augum og gera þær ennþá betri. Þetta
er því algjör matarveisla hérna,“ segir Jón
Arnar sem nýverið tók upp á því að bjóða upp
á hlaðborð í hádeginu á virkum dögum. „Þetta
er alvöru ítalskt hlaðborð þar sem boðið er upp
á geggjaða forrétti, klassíska aðalrétti, pítsur
og flest það sem gott hlaðborð þarf að hafa til
að bera.“
Að sögn Jóns Arnars eru spennandi tímar
fram undan enda jólavertíðin að nálgast.
„Þetta hefur farið ótrúlega vel af stað og fyrir
það erum við þakklát. Maturinn er ekki bara
góður hjá okkur heldur erum við ótrúlega stolt
af öflugu þjónustuteymi hjá okkur en það hef-
ur sannarlega reynst okkur vel að leita út fyrir
kassann og ráða eldra og reynsluríkara fólk.
Þetta var frábær ákvörðun sem skilar sér í enn
skemmtilegra andrúmslofti á staðnum. Ég
gæti ekki verið ánægðari með útkomuna,“ seg-
ir Jón Arnar að lokum.
Ítalskt og æðislegt Boðið er upp á ítalskar eðalveitingar í hádeginu.
Ítalskt hlaðborð
í hádeginu
Það hefur verið mikið
um að vera frá því að
veitingastaðurinn
Grazie var opnaður á
Hverfisgötu í sumar en
viðtökurnar hafa verið
framar björtustu von-
um að sögn Jóns Arn-
ars Guðbrandssonar
veitingamanns. Morgunblaði/Arnþór BirkissonLitla Ítalía Jón Arnar Guðbrandsson er maðurinn á bak
við Grazie Trattoria á Hverfisgötunni.