Morgunblaðið - 07.11.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 07.11.2022, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . 595 1000 www.heimsferdir.is Tenerife Flug aðra leið til 19.950 Flug aðra leið frá Flugsæti 16. nóvember BAKSVIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is Ekki var annað að sjá en að sverðin hefðu verið slíðruð eftir að úrslit í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins urðu ljós í gær. Kosningabaráttan hafði verið snörp þessa tæpu viku, sem hún stóð, en ekki harðvítug og báðir frambjóðendur lögðu áherslu á flokkseiningu í framboðsræðum sín- um fyrir kosninguna og þakkar- ræðum sínum eftir hana. Sögulegum landsfundi Sjálfstæð- isflokksins lauk í gær með afgerandi sigri Bjarna Benediktssonar í for- mannskjöri, en þar hafði Guðlaugur Þór Þórðarson skorað hann á hólm. Leikar fóru svo að Bjarni hlaut 1.010 atkvæði af 1.712 greiddum eða 59% atkvæða. Guðlaugur Þór fékk 687 atkvæði eða um 40%. Mikil spenna Gríðarleg spenna ríkti í troð- fullum sal Laugardalshallar þegar úrslitin voru lesin upp, fyrst var greint frá atkvæðafjölda en síðan at- kvæðafjölda Bjarna. Vegna þess hvernig atkvæði féllu þurfti enginn að reikna úrslitin frekar og allt ætl- aði af göflum að ganga. Við tóku gríðarleg fagnaðarlæti og lófaklapp landsfundarfulltrúa, sem risu á fæt- ur og klöppuðu allt þar til formað- urinn endurkjörni steig á svið og bað um hljóð. Báðir formannsframbjóðendurnir komu í pontu til þess að þakka fyrir og báðir lögðu þeir áherslu á einingu flokksins, þó tekist hefði verið á um formannsembættið á landsfundi. Ef eitthvað var kvað Guðlaugur Þór Þórðarson fastar að orði um það en Bjarni, en á hinn bóginn lét Bjarni í það skína að hann tæki gagnrýni Guðlaugs til sín og myndi bæta úr. Snúum bökum saman „Ég hef alltaf verið að leggja áherslu á það að við skilum árangri fyrir fólk, en þetta ákall snýr kannski að því að við séum duglegri í að virkja raddir innan flokksins og vettvang sem getur átt við hverju sinni,“ sagði Bjarni í samtali við blaðamann skömmu síðar. „Umfram allt held ég að kosningin sýni að ég fékk stuðning við það sjónarmið að við höfum skilað góðum árangri og við værum með áætlun um að halda áfram að skila árangri.“ Hann kvaðst ekki hafa áhyggjur af því að flokkurinn væri klofinn eft- ir formannsátökin. „Af minni hálfu lít ég þannig á að við hljótum að ætla að snúa bökum saman allir flokks- menn og vera í einu liði, þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur af því nú.“ Hann sagði ekki koma neinum á óvart að Guðlaugur hefði átt vænan hóp stuðningsmanna á landsfundi, hann hefði fengið mjög mörg at- kvæði í prófkjöri fyrir ekki löngu og væri oddviti í öðru Reykjavíkur- kjördæmanna. „Þess vegna var allt- af við því að búast að hann ætti ein- hvern hóp stuðningsmanna hér á fundinum, en mér finnst sigurinn vera mjög afgerandi.“ Fyrst og fremst væru skilaboð landsfundar til forystunnar að flokksmenn vildu herða sóknina og væru fúsir til þess að taka þátt í því. „Það eru allir tilbúnir til þess að leggja sitt af mörkum, fólk kemur hingað vegna þess að það hefur áhuga á landsmálunum, á pólitíkinni og lætur sig málefni samfélagsins varða og við þurfum að virkja þann áhuga allan með því að finna vett- vang og farveg fyrir allan þennan áhuga og auðvitað vil ég gera það,“ segir hann. Stoltur af sínu fólki Guðlaugur Þór Þórðarson sagði úrslitin á sinn hátt vonbrigði, en að það væri sér mikil hvatning að fá þó svo góða kosningu gegn sitjandi for- manni flokksins „Ég er mjög stoltur af því og stolt- ur af mínu stuðningsfólki.“ Hann kvaðst ánægður að áherslu- mál hans hefðu komist á dagskrá. „Enda gat ég ekki betur heyrt en að formaðurinn tæki undir þau,“ sagði hann og vísaði til sigurræðu Bjarna og orða hans um að flokks- menn yrðu að snúa bökum saman og sækja fram. „Þetta er það sem ég hef verið að leggja áherslu á. Við erum orðin þreytt á því að vinna sífellda varnar- sigra. Við getum verið stolt af því að vera sjálfstæðisfólk. Við getum verið stolt af gildunum okkar og sögu flokksins.“ Í augnablikinu er ekkert sem bendir til þess að formannskjörið hafi mikil eftirmál, en á hinn bóginn er ólíklegt að það hafi engar afleið- ingar er fram í sækir. Morgunblaðið/Eggert Varaformaður Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir var endurkjörin. Morgunblaðið/Eggert Formaður Bjarni Benediktsson bar sigur úr býtum í kjörinu. Morgunblaðið/Eggert 40% atkvæða Guðlaugur Þór Þórðarson laut í lægra haldi. Sverðin slíðruð eftir átakafund - Báðir formannsframbjóðendur leggja áherslu á einingu flokksins eftir formannskjör á landsfundi Morgunblaðið/HAG Ný forysta Sjálfstæðisflokksins Bjarni Benediktsson formaður, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varafor- maður og Vilhjálmur Árnason, nýkjörinn ritari flokksins, stigu á svið í lok landsfundar undir lófaklappi gesta. Stjórnmálaályktun 44. landsfundar Sjálfstæðisflokksins var með frek- ar hefðbundnu sniði, þar sem árétt- að var að frelsi og ábyrgð ein- staklingsins, mannréttindi og jafnræði væru hornsteinar stefnu Sjálfstæðisflokksins. Þar væru jöfn tækifæri, menntun og fjárhagslegt sjálfstæði einstaklinga undirstöður jafnréttis og góðra lífskjara, enda byggðist jafnrétti á frelsi ein- staklingsins. Atvinnufrelsi og eign- arréttur væru órjúfanlegur hluti frjáls samfélags og forsenda þess að Ísland væri land jafnra tæki- færa, enda væri velferð reist á öfl- ugu atvinnulífi. Hins vegar var þar komið að nýju leiðarstefi um innviði. Minnt var á að traust grunnþjónusta, öruggt og nægt rafmagn, áreið- anleg fjarskipti og góðar sam- göngur sköpuðu tækifæri til auk- inna lífsgæða um allt land. Í því samhengi var áréttað að Ísland ætti að vera leiðandi í orkuskiptum í heiminum með hagnýtingu end- urnýjanlegra náttúruauðlinda og verða fyrst landa til að verða óháð jarðefnaeldsneyti. Tekið var á ýmsum fleirum álita- efnum og voru útlendingamálin þar efst á blaði. Sagt var að breyta yrði útlendingalöggjöfinni þannig að hún tæki mið af löggjöf nágranna- landanna, og eins þyrft að tryggja að fólk, sem hingað leitaði eftir al- þjóðlegri vernd, fengi umsóknir sínar afgreiddar fljótt og örugg- lega. Innrás Rússlands í Úkraínu er harðlega fordæmd í ályktuninni og ekki kemur á óvart að þar er kveð- ið á um að lækka þurfi skatta og einfalda regluverk atvinnulífsins. Hvatt var til aukinnar beinnar fjár- festingar og þátttöku launafólks í atvinnulífi. Kveðið var á um að rík- ið ætti ekki að stunda samkeppnis- rekstur við fyrirtæki á almennum markaði; afnema ætti einkarétt ríkisins á smásölu áfengis og selja vínbúðir og fríhöfnina. Eins væri mikilvægt að losa eignarhluti rík- isins í fjármálafyrirtækjum, þar á meðal í Íslandsbanka. Beinir rík- isstyrkir til fjölmiðla væru óheil- brigðir og skaðlegir. Gæta þurfi meira aðhalds í ríkis- útgjöldum og halda aftur af skulda- söfnun ríkissjóðs. Sjálfstæðisflokk- urinn hafnar því að lausn allra mála felist í auknum útgjöldum hins opinbera. Endurskoða þurfi lög um opinber fjármál og lögfesta útgjaldareglu fyrir hið opinbera. Orkuskipti, lægri skattar og minni ríkisafskipti efst á blaði - Stjórnmálaályktun 44. landsfundar Sjálfstæðisflokksins Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2022

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.