Morgunblaðið - 07.11.2022, Síða 6
Morgunblaðið/Eggert
Margt var um manninn á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves
sem haldin var um helgina. Úkraínska þjóðlagasveitin Go_A,
sem gerði garðinn frægan í Eurovision fyrir ári, kom fram í
Listasafni Reykjavíkur á laugardagskvöldið og voru fjöl-
margir aðdáendur sveitarinnar mættir til þess að fylgjast
með. Formleg dagskrá hátíðarinnar hófst á fimmtudaginn og
lauk á laugardagskvöld. Á dagskránni voru á níunda tug tón-
listaratriða á sex tónleikastöðum í miðbæ Reykjavíkur en að
auki voru óformlegir tónleikar hátíðarinnar víða.
Virtu fyrir sér
úkraínsku sveitina
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022
Dalvegur 30
www.ithaka.is • Lyngháls 4 • s: 595 7800
Verslunar- skrifstofu- og
þjónustuhúsnæði í uppbyggingu
Nokkur laus rými
Gengi bandaríkjadals hefur ekki ver-
ið hærra gagnvart íslenskri krónu
síðan í efnahagshruninu 2008. Már
Wolfgang Mixa,
lektor í fjármálum
við Háskóla Ís-
lands, segir stöðu
alþjóðamála
helsta áhrifavald-
inn, og þá sérstak-
lega stríðsátökin í
Úkraínu.
Annars vegar
valdi væntur efna-
hagssamdráttur í
Evrópu því að menn kjósi frekar að
geyma fjármuni sína í bandaríkjadal
en öðrum gjaldmiðlum. Hin ástæðan
er að mati Más landfræðilegt öryggi
Bandaríkjanna, sem er fjarri þeim
átökum sem geisa í Úkraínu.
Einhliða sveifla hækki verð
„Gjaldmiðlaviðskipti fylgja oft
sveiflum, þannig að ef verðsveiflur
byrja á annað borð að fara í eina átt þá
heldur sú sveifla áfram,“ segir Már
sem líkir þessu við ruðningsáhrif í eina
átt. „Það myndast eins konar vega-
tryggð, það er búið að afmarka veginn
og þetta heldur áfram. Það hefur verið
þróunin hér að bandaríkjadalur hefur
verið að styrkjast jafnt og þétt í svolít-
inn tíma, síðan bætist við þetta stríðs-
ástand í Evrópu og þá magnar það
þessa þróun í eina áttina.“
Staðan í dag er töluvert önnur en
sú sem var uppi þegar bandaríkjadal-
ur var síðast svo sterkur á móti krónu
í miðju efnahagshruni. Þá var krónan
afar verðlítil sem er ekki tilfellið í
dag.
Meðallaunþegi í sömu stöðu
Þá bendir Már einnig á að launa-
vísitalan hafi rúmlega tvöfaldast frá
árinu 2009 og vel það frá árinu 2007.
Samkvæmt því er dollar í dag, þrátt
fyrir þessa nýlegu hækkun, svipað
dýr og hann var fyrir íslenskan
meðallaunþega árið 2007. Már tekur
þó fram að kaupmáttur hvers dals sé
minni í dag en hann var þá.
„Bandaríkjadalurinn er núna í sér-
flokki. Þeir sem fóru þungir í dollar
fyrir 12 mánuðum síðan hafa ávaxtað
pund sitt vel,“ segir Már.
Hann kveður fleiri ástæður búa að
baki verðhækkuninni en alþjóða-
stjórnmál og bendir á að flest stærstu
fyritækja heims séu staðsett í Banda-
ríkjunum og að fjárfestaumhverfi
hafi lengst af verið hagfelldast þar.
„Bandarískir fjárfestar hafa haft
minnst upp úr því að dreifa áhætt-
unni sinni, ávöxtun innanlands hefur
sögulega verið betri heldur en annars
staðar,“ segir Már og kveðst ekki
hafa séð neina snilldartakta í hag-
stjórn Bandaríkjanna sem útskýra
þessar virðishækkun bandaríkjadals-
ins. baldurb@mbl.is
Bandaríkjadalur í hæstu hæðum
AFP
Fé Stærstu fyrirtæki heims eru
skráð á markað í Bandaríkjunum.
- Lektor í fjármálum telur góða hagstjórn ekki orsakavald - Skráð miðgengi stóð í 147 krónum á
föstudag - Þrátt fyrir hækkanir er hver dalur svipað dýr og hann var árið 2007 fyrir íslenska launþega
Már Wolfgang
Mixa.
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Landris hefur ekki mælst við Herðu-
breið eða í grennd við fjallið á síð-
ustu vikum. Mikil skjálftavirkni hef-
ur verið á svæðinu síðan 22. október
síðastliðinn þegar skjálfti af stærð-
inni 4,1 reið yfir. Var skjálftinn sá
stærsti frá upphafi mælinga í Herðu-
breið.
Benedikt Gunnar Ófeigsson, sér-
fræðingur á sviði jarðskorpuhreyf-
inga hjá Veðurstofu Íslands, segir
mjög ólíklegt að virknin sé tengd
hreyfingu á kviku og að líklegast sé
um hreyfingu flekaskila að ræða.
„Það myndi sjást vel á mælingum, ef
það væri að kvika að fara úr Öskju,“
segir Benedikt.
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur
tekur í sama streng og Benedikt og
bendir á að það sé mjög ólíklegt að
gjósa fari í Herðubreið eða Herðu-
breiðartöglum, þó í grenndinni séu
þekktar eldstöðvar á borð við Öskju.
„Þetta er utan við kerfi Öskju og
Kverkfjalla og hvorug megineld-
stöðvanna virðist kippa sér upp við
þetta. Þannig að þetta er greinilega
ótengt því,“ segir Páll.
„Þetta stafar að öllum líkindum af
spennu vegna flekahreyfinga. Það
eru engin merki um kvikuinnskot
þarna, ekki meðan á þessu stóð,“
bætir hann við og rifjar upp kviku-
innskot sem varð í Upptyppingum
árið 2007 og stóð yfir í ár.
Ekkert landris mælst í
grennd við Herðubreið
- Tengjast ekki kvikuinnskoti - Myndi sjást greinilega
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skelfur Herðubreið skelfur enn, en
ekkert landris hefur mælst.