Morgunblaðið - 07.11.2022, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022
BYGGINGALAUSNIR
FRAMTÍÐAR
Gæðahús á hagstæðu verði
Miklir möguleikar í stærðum og gerðum einingahúsa
Erum að taka við pöntunum á húsum
til afhendingar vor/sumar 2023
www.tekta.is
Ný mótmæli brutust út í Íran í
gær í háskólum víðs vegar í
norðvesturhluta landsins þar sem
fjöldi Kúrda býr. Hafa mótmælin í
Íran nú staðið yfir í sjö vikur þrátt
fyrir harðar mótaðgerðir yfirvalda.
Mótmælin í Íran brutust upp-
runalega út vegna dauðsfalls
Mahsa Amini en hún var handtekin
fyrir að hafa brotið gegn reglum
um klæðaburð kvenna þar í landi
og lést í haldi lögreglu. Mótmælin
sem geisa í Íran eru nú orðin
stærsta áskorunin gegn klerka-
stjórninni þar í landi síðan í bylt-
ingunni 1979.
Mótmælin í gær fóru af stað eftir
að Nasrin Ghadri, kúrdískur nem-
andi í Tehran, hafði verið barin til
dauða af lögreglu á laugardaginn.
Yfirvöld í Íran hafa enn ekki gefið
neina skýringu á dauðsfalli hennar.
Jörðuð án útfarar
Ghadri var jörðuð daginn eftir án
útfarar að kröfu yfirvalda. Yfirvöld
fóru fram á það vegna hræðslu um
að útför myndi hleypa af stað öng-
þveiti og frekari mótmælum.
Frá myndefni sem var deilt á
samfélagsmiðlum af mótmælunum
mátti sjá að mótmælendur köstuðu
steinum og brenndu íranska fán-
ann. Samkvæmt tilkynningu frá
mannúðarhópnum Hengaw skutu
öryggissveitir í bænum Marivan í
átt að mótmælendum með þeim af-
leiðingum að 35 manns særðust.
Að minnsta kosti 186 hafa verið
drepnir af lögreglu frá því mót-
mælin hófust í Íran. Þá voru sex-
tán skotnir til bana af öryggis-
sveitum í mótmælum eftir
bænastund á föstudaginn í bænum
Khash.
AFP
Íran Fjöldi mótmælenda gengur eft-
ir hraðbraut í borginni Karaj.
Mótmæli halda
áfram að brjótast út
- 186 mótmælendur drepnir hingað til
Alls létust nítján manns þegar far-
þegaflugvél hrapaði í Viktoríuvatn
í Tansaníu í gær. Flugferðin var á
vegum flugfélagsins Precision Air
en alls voru 43 farþegar um borð
þegar vélin hrapaði í vatnið eftir
að áhöfnin hafði byrjað að búa sig
undir lendingu í borginni Bukoba.
Viðbragðsaðilar og sjálfboða-
liðar fjölmenntu þá á staðinn til að
hefja björgunaraðgerðir á meðan
flugvélin sökk. Náðist þá að
bjarga 24 úr braki vélarinnar og
úr vatninu en tveir viðbragðs-
aðilar slösuðust við aðgerðinar.
Voru því 26 manns samtals fluttir
á spítala. Yfirvöld í Tansaníu telja
að slysið hafi mögulega orðið
vegna slæms veðurs en á tíma
slyssins var mikil rigning og vind-
ur á svæðinu.
Kassim Majaliwa, forsætisráð-
herra Tansaníu, var harmi sleginn
þegar hann ávarpaði hóp fólks á
flugvellinum í Bukoba í gær. „All-
ir ríkisborgarar Tansaníu eru með
ykkur í þessu sorgarferli.“
TANSANÍA
Flugvél brotlenti á
stærsta vatni Afríku
Imran Khan,
fyrrverandi for-
sætisráðherra
Pakistans, hefur
verið útskrifaður
af spítala en
hann hefur dval-
ið þar síðan hann
særðist í skot-
árás á mótmæla-
fundi á fimmtu-
daginn. Talið er að um banatilræði
hafi verið að ræða en skotið hæfði
Khan í báða fótleggina. Khan sjálf-
ur heldur því fram að Shehbaz Sha-
rif, núverandi forsætisráðherra,
hafi staðið á bak við tilraunina.
Skotárásin og ásökun Khans hafa
aukið spennustigið í Pakistan til
muna en spenna hefur ríkt þar síð-
an Khan var vikið úr embætti eftir
vantrauststillögu í apríl. Einn er í
haldi lögreglu vegna árásarinnar
en yfirvöld telja að hann hafi verið
einn að verki. Sá grunaði hefur ját-
að verknaðinn.
PAKISTAN
Khan laus af spítala
eftir morðtilraun
Imran Khan
Vítalí Klitsjkó, borgarstjóri Kænu-
garðs, varaði borgarbúa við mögu-
legu allsherjarrafmagnsleysi í borg-
inni og hvatti fólk til að búa sig
undir að þurfa að yfirgefa borgina í
flýti. Úkraínumenn hafa þurft að
þola síendurtekið tímabundið raf-
magnsleysi og skort á vatni vegna
linnulausra loftárása Rússa á mik-
ilvæga innviði í landinu.
Hingað til hafa um 40 prósent af
orkukerfum Úkraínu orðið fyrir
skemmdum sökum árása Rússa.
Í sjónvarpsútsendingu í Úkraínu
vísaði Klitsjkó til árása Rússa sem
hryðjuverka og þjóðarmorðs: „Vla-
dimír Pútín, forseti Rússlands, þarf
ekki á fólki Úkraínu að halda. Hann
þarf landsvæði, hann þarf Úkraínu
án okkar. Þess vegna er allt það
sem er að gerast núna þjóðarmorð.
Hann vill að við deyjum eða að við
flýjum landið okkar svo að hann
geti tekið við því.“
Svo virðist sem Úkraínumenn
hafi svarað fyrir sig í gær en sam-
kvæmt tilkynningu frá rússneskum
viðbragðsaðilum í Úkraínu eyðilagði
úkraínski herinn stíflu sem þjónar
lykilhlutverki vegna Kakhóva-virkj-
unarinnar í Kerson-héraði sem er
nú undir yfirráðum Rússa. Stíflan
var eyðilögð með eldflaugaárás en
stíflan útvegar vatn til Krímskaga
sem er einnig undir yfirráðum
Rússa.
Rússar þykjast hörfa
Þá tilkynnti úkraínski herinn í
gær að rússneskur herafli væri að
þykjast hörfa í Kerson-héraði til að
reyna að draga her Úkraínu í orr-
ustu á opnu svæði. „Rússneskir
hermenn reyna allt sem þeir geta
til að sannfæra alla um að þeir séu
að hörfa en við sjáum skýr merki
sem benda til þess að það sé ekki
satt,“ tilkynnti Natalía Húmenjúk,
einn upplýsingafulltrúa úkraínska
hersins. Að sögn Humenjúk er um
gildru að ræða og bendir hún á að
Rússar séu að reyna að fá her
Úkraínu til að færa sig inn á svæði
þar sem myndi reynast erfitt fyrir
hermenn að verja sig.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins undirbýr núna fjárhags-
aðstoðarpakka fyrir Úkraínu en
hann gæti numið 1,5 milljörðum
evra á mánuði. Það eru um 218
milljarðar íslenskra króna. Sam-
kvæmt tísti frá Volodimír Selenskí,
forseta Úkraínu, funduðu hann og
Ursula von der Leyen, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, í gær til að
ræða mögulega fjárhagsaðstoð, við-
skiptaþvinganir gegn Íran og fleira.
Samkvæmt yfirlýsingu frá ESB
mun von der Leyen leggja tillögu
fyrir framkvæmdastjórnina í þess-
ari viku.
Segir árásirnar þjóðarmorð
- Borgarstjóri Kænugarðs hvetur íbúa til að undirbúa rýmingu - „Hann vill að
við deyjum eða flýjum landið okkar“ - ESB undirbýr tillögu að fjárhagsaðstoð
AFP/Yasuyoshi Chiba
Stríð Vitalí Klitsjkó, borgarstjóri
Kænugarðs, var ómyrkur í máli.
Joe Biden, núverandi forseti
Bandaríkjanna, og Barack Obama,
fyrrverandi forseti, komu saman á
laugardagskvöld til að sýna stuðn-
ing sinn við John Fetterman, fram-
boðsefni Demókrataflokksins í
Pennsylvaníu til öldungadeildar
Bandaríkjanna. Fetterman berst
við Mehmet Oz sem er frambjóð-
andi Repúblikanaflokksins. Þing-
kosningar verða haldnar á morgun
og þykir ljóst að mikið er í húfi fyr-
ir báða flokka.
Kosið er um öll 435 sætin í full-
trúadeild Bandaríkjaþings og 35 af
100 sætum í öldungadeild. Eins og
er eiga demókratar og repúblik-
anar jafn mörg sæti í öldungadeild,
en atkvæðisréttur Kamölu Harris,
varaforseta Bandaríkjanna, gerir
gæfumuninn fyrir demókrata.
Mikið í húfi þegar kosið verður til fulltrúadeildar og öldungadeildar Bandaríkjaþings
Gengið til
kosninga á
morgun
AFP