Morgunblaðið - 07.11.2022, Side 15

Morgunblaðið - 07.11.2022, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022 Nýtt Landslagið í borginni breytist hratt þegar nýjar byggingar rísa. Í nýju húsi Alþingis milli Kirkjustrætis, Vonarstrætis og Tjarnargötu verða meðal annars skrifstofur fyrir þingmenn. Árni Sæberg Á hverju hausti ger- ist það að fréttahauk- urinn Kristján Már Unnarsson á Stöð 2 leggur í langferð og heimsækir fólk og byggðir landsins í þættinum Um land allt. Fréttamaðurinn kann að tala við fólk og leiðir fram bændur og búalið sem eru að gera merki- lega hluti í byggð sinni. Nú heimsótti hann Fljótin í Skaga- firði og varpaði sýn á dugmikið fólk, bændur í fremstu röð sem eiga sér hugsjónir og kunna að gera mikið úr búskap sínum og ferða- þjónustu. Í þættinum sáum við einnig dýr- asta hótel Íslands á Deplum; snjórinn, skíð- in, veiðin og kyrrðin gera Fljótin að kjör- lendi þeirra sem unna fegurð og ævintýrum. Sá sem þetta ritar var gestur í sumar á Fljótamannahátíð um verslunarmannahelg- ina, þar kynntist ég þessum drifkrafti og samvinnu og vilja allra sem reka bú- skap og fyrirtæki í þessari undr- anáttúru og búa við einstakt mann- líf. Ég fann að þetta dugnaðarfólk var ekki kröfuhart í garð stjórn- málamanna eða ríkisvaldsins. Grunnskólinn er farinn og þjónustan annaðhvort á Siglufirði, Akureyri eða Sauðárkróki, KS rekur verslun á Ketilási. Vegurinn til Siglufjarðar er að hruni kominn, hættulegur, já lífs- hættulegur. Og þegar ég spurði hvað skipti Fljótin mestu máli upp á framtíðina kom svarið í einum kór: „Jarðgöng til Siglufjarðar.“ Jarðgöng til Siglufjarðar eru ekki löng jarðgöng og vegurinn er hættu- legur, kallar á miklar úrbætur strax til að koma í veg fyrir slys. Fljóta- göng eru á dagskrá bæði hjá sveit- arstjórn Skagafjarðar, Kaupfélagi Skagfirðinga og Samtökum sveitar- félaga á Norðvesturlandi og vonandi á Norðausturlandi einnig. Fljóta- göng eru hvorki löng né dýr og þau myndu breyta Norðurlandi og vera mikilvæg tenging milli byggða- kjarna og atvinnulífsins. Húsavík í norðri með Vaðlaheiðargöng til Ak- ureyrar, Akureyri og Dalvík með Ólafsfjarðargöng til Ólafsfjarðar, Ólafsfjörður með Héðinsfjarðargöng til Siglufjarðar, Siglufjörður með jarðgöng yfir í Fljótin til Sauðár- króks og Þverárfjallið til Blönduóss. Norðurland yrði eitt stórt athafna- og atvinnusvæði. Héðinsfjarðargöng gerðu krafta- verk á Siglufirði, Róbert Guðfinns- son athafnamaður byggði upp hótel og nýtt atvinnulíf þar. Fljótagöngin gera Fljótin að þeim draumi sem duglega fólkið þar dreymir um. Stjórnmálamennirnir vita að Fljóta- göng og samgöngur eru mikilvæg- ustu innviðir byggðanna. Ég hvet stjórnvöld, innviðaráðherra og Vegagerðina til að hraða gerð þess- ara brýnu jarðganga. Guðni Ágústsson » Stjórnmálamenn- irnir vita að Fljóta- göng og samgöngur eru mikilvægustu innviðir byggðanna. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Fljótagöng breyta Norðurlandi og byggðamálum Samstarf á norð- urslóðum er okkur Ís- lendingum afar mik- ilvægt enda nauðsynlegt að samtal og samvinna fari fram um sameiginleg mál- efni svæðisins. Með þeim umhverfis- breytingum sem nú eiga sér stað auk ut- anaðkomandi áhrifa standa íbúar norð- urslóða frammi fyrir verulegum áskorunum. Mikilvægt er að við sem búum þar störfum saman að því að bæta lífskjör íbúa á norðurslóðum og styrkja félagslega og menning- arlega þróun á svæðinu. Eins og mörgum er kunnugt ligg- ur starf Norðurskautsráðsins og þingmannaráðstefnunnar um norð- urskautsmál niðri um þessar mund- ir vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Þrátt fyrir að formlegt samstarf liggi niðri sótti þingmannanefnd um norðurskautsmál ráðstefnu um málefni norðurskautsins sem haldin var á Grænlandi í september. Ráðstefnan var hald- in af danska þinginu og bar yfirskriftina: Ráð- stefna þingmanna á norðurslóðum – nor- rænt og norðuramer- ískt samstarf. Á ráð- stefnunni komu saman þingmenn frá Norðurlöndunum og Norður-Ameríku og ræddu málefni norðurskautsins. Þar voru ýmis áhugaverð verkefni sem unnið er að á norðurslóðum kynnt með sérstakri áherslu á Grænland. Áhersla á lausnir Tilgangur ráðstefnunnar var að deila reynslu og hugmyndum, eins og tíðkast hefur á þingmannaráð- stefnunni, sem að jafnaði er haldin annað hvert ár og hefur verið sam- starfsvettvangur þingmanna aðild- arríkja Norðurskautsráðsins frá 1993. Meginviðfangsefni voru lofts- lagsbreytingar, sjálfbær efnahags- þróun og mannlíf á norðurslóðum. Í því sambandi var komið inn á margt áhugavert, með áherslu á lausnir á áskorunum sem fólk á norður- slóðum glímir við. Fjallað var um mikilvægi þess að íbúar við norð- urskautið verði í forystu við að leita lausna við græna og endurnýjanlega orkuöflun, fyrir stór og smá sam- félög. Dæmi um slík verkefni eru frekari nýting vatnsafls, tilraunir með sólarrafhlöður sem koma skemmtilega á óvart, ræktun græn- metis í gróðurhúsum í Nuuk og hug- myndir um að nýta „jöklamjöl“ til áburðar. Mörg og mikilvæg málefni Réttindi og varðveisla menningar frumbyggja var til umræðu og þar á meðal mikilvægi þess að þeir væru sýnilegir í kvikmyndum og fjöl- miðlum. Það er svo mikilvægt að skoða veröldina frá sjónarhóli fólks- ins á norðurslóðum. Þá var lögð mikil áhersla á að halda áfram að yfirstíga miklar fjarlægðir norður- slóða og byggja upp möguleika dreifbýlissamfélaga með góðum net- tengingum til að efla fjarheilbrigðis- og velferðarþjónustu og rafræna námsmöguleika. Undirrituð tók þótt í umræðu um geðheilbrigðismál og greindi meðal annars frá íslenska forvarnarmód- elinu í vímuvörnum, vinnu að breyt- ingum í málefnum barna og nýsam- þykktri stefnu í geðheilbrigðis- málum. Þar var einnig sagt frá áhugaverðum rannsóknum Græn- lendinga við að greina þætti sem styrkja geðheilbrigði fólks á norður- slóðum og fjallað um þróunarverk- efni til sjálfseflingar fólks sem ekki finnur sig í skólakerfinu. Íslenska sendinefndin saman- stendur af þremur þingmönnum sem eru, auk undirritaðrar, Eyjólfur Ármannsson og Berglind Ósk Guð- mundsdóttir. Með nefndinni starfar alþjóðaritarinn Arna Gerður Bang. Að hitta fulltrúa annarra þjóða á norðurslóðum getur aðeins orðið til góðs, sérstaklega í því umróti sem nú á sér stað í heiminum. Ég get fullyrt að allir ráðstefnugestir hafi farið heim með mikilvægt veganesti inn í komandi verkefni og stærra tengslanet en áður. Samstarf á norðurslóðum heldur áfram Líneik Anna Sævarsdóttir » Að hitta fulltrúa ann- arra þjóða á norður- slóðum getur aðeins orðið til góðs, sér- staklega í því umróti sem nú á sér stað í heiminum. Líneik Anna Sævarsdóttir Höfundur er þingmaður Framsóknar og formaður þingmannanefndar um norðurskautsmál.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.