Morgunblaðið - 07.11.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.11.2022, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022 ✝ Mundína Ásdís Kristinsdóttir fæddist á Akureyri 30. nóvember 1972. Hún lést á líknar- deild Landspítalans 31. október 2022. Foreldrar henn- ar eru María S. Ás- grímsdóttir, f. 20. ágúst 1939, og Kristinn Finnsson, f. 8. janúar 1941. Systkini Mundínu eru: 1) Dreng- ur, f. 11. október 1966, d. 11. október 1966. 2) Drengur, f. 11. október 1966, d. 11. október 1966. 3) Þorgerður, f. 12. nóv- ember 1967, eiginmaður hennar er Bjarni Ragnarsson, f. 5. maí 1966. Börn þeirra eru Halldóra Margrét, f. 23. apríl 1993, sam- býlismaður hennar er Valur Hauksson, f. 4. júlí 1981, og eiga þau tvær dætur, Hebu, f. 2. ágúst 2020, og Ásu, f. 24. mars 2022. Kristinn Már, f. 28. júní 1995, eiginkona hans er Jessica Elizabeth Matyas, f. 28. apríl 1997. Guðmundur Ingi, f. 19. janúar 1999. 4) Anna María, f. Mundína lét mikið til sín taka í íþróttahreyfingunni, þá sérstaklega innan blak- og skíðasambandsins. Hún fór sem sjúkraþjálfari með skíðalands- liðum fyrir Íþrótta- og ólympíu- samband Íslands á ólympíudaga æskunnar frá 1999 og einnig á vetrarólympíuleika í Tórínó 2006 og í Vancouver 2010. Hún fór einnig víða sem sjúkraþjálf- ari fyrir blaklandslið Íslands, meðal annars á ófáa smáþjóða- leika. Síðustu ár var hún einnig þessum samböndum innan hand- ar við að útvega sjúkraþjálfara í ýmis verkefni og gerði það með sóma þrátt fyrir veikindi sín. Mundína sat í stjórn Félags sjúkraþjálfara 2003-2009, í stjórn blakdeildar Aftureld- ingar 2013-2017 og í stjórn Blaksambands Íslands 2013- 2014. Þá var hún í afreksnefnd Blaksambands Íslands til fjölda ára. Hún var sæmd silfurmerki Blaksambands Íslands og silf- urmerki Aftureldingar árið 2018. Hún spilaði sjálf öld- ungablak með Aftureldingu eins lengi og heilsa leyfði. Hún hafði mikla unun af ferðalögum, jafnt innanlands sem utan. Útför Mundínu fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 7. nóv- ember 2022, og hefst athöfnin klukkan 13. 22. maí 1974, eig- inmaður hennar er Friðrik Kjart- ansson, f. 22. októ- ber 1975. Börn þeirra eru María Björk, f. 5. febrúar 2004, og Kjartan Ingi, f. 29. sept- ember 2008. Mundína ólst upp á Akureyri. Hún gekk í Lundarskóla og síðar lá leiðin í Mennta- skólann á Akureyri þaðan sem hún lauk stúdentsprófi árið 1992. Áhugi hennar á íþróttum byrjaði snemma, en sem barn æfði Mundína knattspyrnu og skíði af miklu kappi. Hún flutti til Reykjavíkur haustið 1993 þar sem hún lærði sjúkraþjálfun við Háskóla Ís- lands og lauk B.Sc.-gráðu þaðan árið 1997. Hún starfaði alla tíð sem sjúkraþjálfari, á Reykja- lundi 1997-2008, á HL-stöðinni frá 1999 og til starfsloka, síð- ustu árin sem yfirsjúkraþjálfari. Hún hafði starfað hjá Gáska sjúkraþjálfun frá árinu 2008. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. Hafðu gát á hjarta mínu halt mér fast í spori þínu, að ég fari aldrei frá þér, alltaf, Jesús, vertu hjá mér. Um þig alltaf sál mín syngi sérhvern dag, þó eitthvað þyngi. Gef ég verði góða barnið, geisli þinn á kalda hjarnið. (Ásmundur Eiríksson) Nú þögn er yfir þinni önd og þrotinn lífsins kraftur í samvistum á sæluströnd við sjáumst bráðum aftur. (Ingvar N. Pálsson) Mamma og pabbi. Elsku mamma Munda. Þú varst svo stór hluti af öllu sem ég gerði og tók mér fyrir hendur. Þótt aðeins séu rúm tíu ár síðan ég kynntist þér líður mér eins og þú hafir verið hjá mér allt mitt líf. Þú sendir mig á braut sem ég vissi ekki að væri ætluð mér, en að sjálfsögðu varstu löngu búin að finna út úr því hvað ég ætti að gera. Það eru ekki margir sem kynnast verndarenglum í mann- legu formi en það var hún Munda mín, verndarengill fyrir alla í kringum sig. Við upplifðum ófá ferðalög saman og þótt hún væri titluð sjúkraþjálfari í flest- um þeirra var það oftar en ekki sem hún setti teip á hausinn frekar en annað. Hún kenndi mér að berjast fyrir því sem ég trúði á, las yfir mér þegar ég gerði eitthvað ekki svo gáfulegt og meira segja sendi mig út í horn í miðjum leik fyrir að láta ekki eins og íþróttamaður ætti að láta. Hún var reyndar ósátt þegar pabbi kom og huggaði lít- inn fýlupúka en ég tel að ég hafi lært mína lexíu. Munda var óhrædd við að segja sínar skoð- anir og standa með þeim sem þurftu, ávallt reiðubúin að að- stoða og leiða fólkið sitt í rétta átt. Saman upplifðum við gleði, sorg, hamingju og ósanngirni, því miður mun meiri ósanngirni en margir upplifa og enginn á skilið. Þú snertir við öllum sem kynntust þér og steigst inn í öll þau verkefni sem þér bárust og aðrir þurftu aðstoð með. Þrátt fyrir allar hindranirnar sem á vegi þínum urðu var aldrei langt í hamingjuna og að lifa í núinu, þvílík barátta sem einkenndi þig, sama hvað á móti blés. Þú sýndir okkur hvað það er mikilvægt að gera það sem skiptir okkur máli; standa með okkur sjálfum og hafa trú. Ég er svo þakklát Mundu minni fyrir að hafa fengið að vera partur af hennar lífi þessi tíu ár sem voru alltof fljót að líða. Á þessum stutta tíma tókst okkur að upplifa hluti sem fáir upplifa allt sitt líf; við urðum saman Evrópumeistarar smá- þjóða, við komumst í atvinnu- mennsku, við komumst í námið, við lentum á veggjum, við lent- um í erfiðum holum og við fund- um leið upp, saman, alltaf sam- an. Ég veit ekki hvaða góðverk ég gerði í fyrra lífi til þess að vera svo lánsöm að eiga þrjá foreldra til þess að ala mig upp og gera mig að þeirri manneskju sem ég er í dag, en Munda var aukafor- eldrið sem allir þyrftu að eiga og einhverjir auk mín voru svo lán- samir að kynnast. Aldrei hef ég kynnst manneskju eins og þér Munda. Þú varst og verður minn uppáhaldsherbergisfélagi í landsliðsferðum, grínisti í erfið- um aðstæðum og verndarengill þegar ég sé enga leið út. Að stíga næstu skref án þín verður það erfiðasta sem ég mun gera, að útskrifast úr náminu sem þú komst mér í er óhugs- andi og að spila næsta leik án þín verður eins og að spila einhent. En ég veit að þú horfir til okkar, verndarengillinn minn, og gefur okkur þann styrk; þinn styrk til þess að halda áfram og muna að lífið er núna. Eins og Bubbi sagði það best; um aldur og ævi þú verður mér kær, aldrei ég skal þér gleyma. Hvíldu í friði, fallega ljós, þín verður minnst um ókomna tíð. Fjölskyldu og ættingjum votta ég samúð mína. Þín blakdóttir, Thelma Dögg. Elsku Munda. Ég trúi því varla að ég sé að skrifa þér minningarorð. Ég trúi ekki að ég eigi ekki eftir að geta hringt í þig aftur og að stelpurnar mínar muni ekki eiga Mundu frænku eins og ég var svo heppin að hafa alltaf mér næst. Mér finnst titillinn þinn sem móðursystir mín ekki lýsa okkar sambandi nógu vel. Þú varst mér svo miklu meira en það. Þú varst mér eins og önnur mamma og mín besta vinkona. Við áttum líka svo margt sameiginlegt, enda grínuðumst við oft með það að ég hlyti nú eiginlega að vera dóttir þín. Ég var litla frímerkið þitt frá fyrsta degi. Ætli það hafi ekki mótað mig að mörgu leyti þegar þú bjóst hjá okkur þegar ég var tæplega ársgömul. Sat á gólfinu hjá þér á meðan þú lærðir líffærafræðina. Við ræddum oft að það hlyti að hafa verið upphafið á áhuga mín- um á hjúkrunarfræði. Snemma beygist krókurinn. Ég leit alltaf mikið upp til þín og vildi helst verða alveg eins og þú. Við störfuðum báðar í heil- brigðisgeiranum og deildum áhuga á hvers kyns íþróttum og útivist. Þú varst konan sem ég gat hringt í og fengið ráð hjá, eða ef ég þurfti bara smá hvatn- ingu. Alltaf varst þú boðin og bú- in að aðstoða. Mér eru minnisstæð öll ferða- lögin okkar milli landshluta, þar sem ég var yfirheyrð um helstu staðhætti alla leiðina, ef við vor- um þá ekki að syngja einhver góð íslensk lög saman. Ekki ör- vænta, ég mun halda áfram að þreyta Maríu Björk með söngn- um. Í seinni tíð var það ekki bara ég sem fékk að njóta þess að eiga þig sem frænku, en dætur mínar tvær dýrkuðu þig og dáðu og ég veit að það var gagn- kvæmt. Litlu gullmolarnir þínir tveir. Samband þitt og Hebu minnar var einstakt. Hún vildi alltaf hringja í Mundu frænku. Stafurinn þinn var líka sá fyrsti sem hún lærði. Svo fæddist Ása og ekki var hún minna í uppá- haldi hjá Mundu frænku. Þú ljómaðir í kringum þær systur og vildir alltaf hafa þær nálægt þér. Jafnvel á síðustu metrunum opnaðir þú faðminn fyrir litlu konurnar. Ég mun gera mitt allra besta að halda minningu þinni lifandi og segja stelpunum mínum sögur af þér. Elsku Munda. Söknuðurinn er óbærilegur. Ég held að það hafi ekki verið til betri kona en þú. Kona sem lifði fyrir fólkið sitt, lífsglöð og kvartaði aldrei. Sagði bara áfram og upp, ekkert væl. Takk fyrir að vera besta frænka í heimi. Takk fyrir allt. Sakna þín og elska. Frímerkið þitt, Halldóra Margrét. Elsku Munda frænka. Það er sárt að sjá á eftir þér svo skömmu áður en ég kom aft- ur heim. Að kynna þig fyrir kon- unni minni var það sem ég hlakkaði mest til, svo þessar fréttir voru afskaplega sárar. Þú hefðir getað kennt Jess nöfn hvers einasta fjalls og farið yfir nauðsynlegan búnað fyrir háska- för út á land með bros á vör, því þú varst alltaf tilbúin að aðstoða. Við munum bæði sakna þín mik- ið, þrátt fyrir að bara annað okk- ar hafi hitt þig. Kristinn og Jessica. Við Ytri-Ár-frænkur minn- umst Mundu frænku með hlýju, þakklæti og söknuði. Við erum tuttugu og fimm systkinadætur og eigum ættir okkar að rekja til Ytri-Ár á Kleifum við Ólafsfjörð. Við segj- um oft að við séum heppnar að tilheyra þessari stóru fjölskyldu en ekki síst að vera fæddar í rétta hollinu, svo ánægðar erum við hver með aðra. Í mörg ár höfum við ræktað vinskap okkar með reglulegum samverum, með frænkuboðum á vorin, nú síðast í maí síðastliðn- um heima hjá Mundu, og einni utanlandsferð sem við fórum í vorið 2019. En hæst ber þó ár- legan hitting okkar í Vatnsdaln- um síðustu ellefu ár. Samvera sem byrjaði sem helgi, en er nú þrír dagar af því að það er svo gaman. Ævintýraljómi hefur ein- kennt þessar helgar og samveru og þar höfum við haft einstakt tækifæri til að rækta vinskap okkar, gert handavinnu, farið í gönguferðir, lært hver af ann- arri, haldið galakvöld og glaðst yfir lífinu og uppruna okkar. Munda setti sinn svip á þessa samveru, hvatti okkur til hreyf- ingar og dreif okkur áfram, miðl- aði þekkingu sinni, hvort heldur er varðaði heilsu eða handa- vinnu. Munda átti líka til að stoppa ruglið í okkur hinum um einstök málefni með rökum og staðreyndum. Nærvera hennar einkenndist af jákvæðni, bros- mildi en á sama tíma gat hún verið mjög ákveðin. Þessar sam- verustundir okkar hafa gefið okkur alveg ótrúlega mikið og erum við auðmjúkar og þakklát- ar fyrir þær. Það er ekki gefið að eiga svona frænkuhóp. Í byrjun október var okkar ár- legi hittingur í Vatnsdalnum og var alveg skýrt af hendi Mundu að þangað ætlaði hún. Óhætt er að segja að ákveðni hennar, þrjóska og einbeittur vilji hafi komið henni þangað. Við nutum félagsskapar hver við aðra eins og áður en mögulega vorum við hljóðlátari þessa daga en fyrri ár. Það fór ekki framhjá okkur að dagurinn í dag skipti máli, ekki gærdagurinn og ekki morg- undagurinn, aðeins dagurinn í dag og stundin sjálf. Eins og Munda sagði svo oft: „Brosa og njóta, lífið er núna.“ Við höfum fengið að kynnast því í þessum frænkuhóp að lífið er hverfult og við vitum ekki hvaða tíma við höfum hér. Njótum hans meðan við getum. Systrabandalag þeirra systra, Mundu, Þorgerðar og Önnu var náið og hlýtt og ljóst er að þær systur hafa misst mikið. Að ári mun loga kerti á frænkuhelginni fyrir Mundu og munum við ávallt minnast henn- ar með hlýju og söknuði. Við vottum foreldrum hennar, systrunum Þorgerði og Önnu Maríu og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Fyrir hönd systkinadætranna, Erla Hrönn og Guðrún. Elsku Munda frænka, það er erfitt að sætta sig við það að þú skulir vera farin frá okkur svo snemma. Ég verð ævinlega þakklátur fyrir allar okkar stundir saman og mun varðveita þær um ókomna tíð. Ég mun sakna þess að fá ekki spurningar frá þér um heiti allra fjarða, dala og fjalla á förnum vegi með þér. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér. Þú skilur eftir stórt skarð í lífi okkar allra sem við reynum að fylla með þeim hlýju minningum sem við eigum. Sjáumst síðar. Þinn Guðmundur Ingi. „Áfram og upp.“ Þetta var mantran hennar Mundu frænku minnar. „Áfram og upp.“ Þegar ég horfi til baka, þá á ég svo auð- velt með að sjá þennan þráð í gegnum allt hennar líf: „Áfram og upp.“ Þegar Munda frænka flutti suður og byrjaði í sjúkraþjálfun við HÍ, þá hittumst við mun oftar en áður. Við sameinuðumst í áhuga okkar á útivist og þá sér- staklega á skíðum. Við fórum víða saman, upp ýmsar innlendar sem erlendar skíðabrekkur og niður þær jafn margar. Munda var alltaf skrefinu á undan mér. Hún stóð upp um leið og klukkan hringdi á morgnana á meðan ég sneri mér á hina hliðina. Hún reyndi einu sinni að kippa af mér sænginni til að koma mér á fæt- ur, í brunakulda á gistihúsi í austurrísku Ölpunum. Hún reyndi það ekki aftur. Munda var fyrst í morgunmat og hún var fyrst að spenna á sig skíðin. Hún var fyrst í lyfturöðina og hún renndi sér fyrst af stað nið- ur brekkurnar. Það þýðir ekki það að hún hafi ekki borið hag okkar hinna fyrir brjósti sér, þvert á móti. Hún var ötul við að hvetja sitt fólk áfram til góðra verka og var alltaf fyrst á stað- inn þegar aðstoð vantaði. Hún sá tækifærin, bjóst við því besta og var sannfærð um að það yxi sem að væri hlúð. Mitt faðirvor Ef öndvert allt þér gengur og undan halla fer, skal sókn í huga hafin, og hún mun bjarga þér. Við getum eigin ævi í óskafarveg leitt og vaxið hverjum vanda, sé vilja beitt. Þar einn leit naktar auðnir, sér annar blómaskrúð. Það verður, sem þú væntir. Það vex, sem að er hlúð. Þú rækta rósir vona í reit þíns hjarta skalt, og búast við því bezta, þó blási kalt. Þó örlög öllum væru á ókunn bókfell skráð, það næst úr nornahöndum, sem nógu heitt er þráð. Ég endurtek í anda þrjú orð við hver mitt spor: Fegurð, gleði, friður mitt faðirvor. (Kristján frá Djúpalæk) Það er sagt að tíminn sé ótak- mörkuð auðlind, sem er vissu- lega satt að ákveðnu marki. Tím- inn heldur áfram og stoppar aldrei. Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himn- inum hefur sinn tíma. Uppgjöf var ekki til í huga frænku minn- ar, hún skoraði tímann svo sann- arlega á hólm. Með sókn í huga tókst hún á við hvert verkefnið á eftir öðru, allt fram á síðasta dag. Vilborg Dagbjartsdóttir gerði tímann að yrkisefni í ljóði sínu Viðhorf. Þar lýsti hún tímanum á þann hátt að hún þræddi dagana, eins og skínandi perlur, upp á óslitinn silfurþráð. Minningar mínar um minn tíma með Mundu frænku má því finna sem skín- andi perlur á mínum silfurþræði. Við vorum frænkur og vinkon- ur, við vorum um margt líkar og þó ekki, okkar tenging var ein- læg og nærandi. Við heyrðum hvor í annarri reglulega, hitt- umst þegar það var hægt og not- uðum smáskilaboð og myndsend- ingar mikið. Síðasta kveðjan hjá okkur var að bjóða hvor annarri góða nótt. Rúmum sólarhring síðar kvaddi Munda. Elsku Munda mín frænka, hafðu þökk fyrir allt og allt. Minning þín mun lifa um ókomna tíð. Ég næ ekki að halda í við þig núna, en sendi þér fegurð, gleði og frið upp í hæstu hæðir. Áfram og upp. Guðrún Lárusdóttir (Gurra). Munda var einstök kona, vin- kona og frænka. Hún gerði allt fyrir alla og ofdekraði okkur frændsystkinin. Það var alltaf jafn gaman að hitta Mundu, hún tók alltaf fagnandi á móti manni og kyssti okkur með sínum hætti sem var að purra svona á mann. Líf Mundu endaði alltof snemma og held ég að við getum öll verið sammála um það. Þetta er klár- lega það erfiðasta sem ég hef gert, því ekki var ég bara að kveðja systur mömmu minnar heldur eina af bestu vinkonum mínum og klettinn minn. En í stað þess að velta okkur upp úr hlutum sem hún mun missa af, eins og 50 ára afmælinu sínu, út- skriftum, afmælum, jólum og svo mætti lengi telja, vil ég minnast allra góðu stundanna með henni. Ég var svo heppin að vera mjög náin Mundu og þegar ég var lítil var ég oft kölluð frímerkið henn- ar þar sem ég límdist við hana um leið og ég sá hana. Við Munda gerðum margt saman. Við fórum til útlanda í skíðaferð þar sem hún fékk ógeð á brauði og pítsum út af mér, ég fékk einkaferð til Reykjavíkur að hitta hana, ættarmót, útilegur og allt þetta. En það sem stendur hve mest upp úr eru þessir ein- földu hlutir eins og að syngja ABBA-lög alla leið frá Reykjavík til Akureyrar, búa til göngu- skíðabraut í garðinum hans afa, spurningakeppnir og fótbolti á Ytri-Á og samvera með henni yf- irhöfuð. Hún var mikill peppari minn í námi og veitti mér traust og að- hald alveg fram á síðustu viku sína. Hún hjálpaði mér fyrir erfðafræðipróf síðastliðinn mánudag. P.s. Munda, við feng- um 9,8, náði bara aldrei að segja þér það. Munda var þannig gerð að hún setti alla í fyrsta sæti, ég veit ekki hve oft hún hefur bjargað mér í fótboltaferðum þar sem ég hef meiðst eða þurft hef- ur að teipa. En Munda mætti ávallt og reyndi að tjasla okkur saman og hvatti okkur svo áfram. Það skipti engu máli hvort hún var með krabbamein eða ekki, hún mætti á alla leiki okkar hér fyrir sunnan. Ég veit þú ert á betri stað núna þrátt fyrir að þetta sé ósanngjarnt fyr- ir okkur hin, en njóttu þess að gera allt sem þú gast ekki gert hér hjá okkur. Ég verð alltaf stolt af því að geta kallað þig frænku og verð þér ævinlega þakklát að þú beiðst eftir mér. Þangað til næst elsku Munda. Kveðja, María Björk. Elsku Mundan okkar er farin á vit nýrra ævintýra á allt öðrum og óþekktum slóðum. Eins og allir vita sem þekktu Mundu, þá hafði hún áhrif á alla sem hún umgekkst og það á svo sannar- lega við um mig. Við kepptum saman í blaki og strandblaki og alltaf var það Munda sem var með hlutina á hreinu. Hún var fæddur leiðtogi innan vallar sem utan og ein mesta baráttukona sem ég hef komist í kynni við. Stundum var staðan í blakleikj- unum ekki vænleg, en þá var það oftar en ekki Munda, sem bjarg- aði bolta úr gólfi eða sandi á ein- hvern ótrúlegan hátt – glotti lít- illega og öskraði okkur svo í gang. Utan vallar var Munda ómissandi á svo margan hátt. Hún var eftirsóttur fararstjóri og fór sem sjúkraþjálfari í fjölda landsliðsferða bæði með blaklið- um og skíðafólki. Hún fór á nokkra Ólympíuleika og var allt- af tilbúin að miðla af sinni fjöl- þættu reynslu. Hún var næm á líðan fólks og íþróttafólkið okkar sem hún sem sjúkraþjálfari sinnti af svo mikilli natni, það fékk ekki bara nudd og tape heldur líka hvatningu og eign- aðist vin. Því umfram allt var Munda vinur og ekkert er betra en hvatning góðs vinar. Munda hafði einlægan áhuga á íþróttum og málefnum íþrótta- hreyfingarinnar á Íslandi. Síð- Mundína Ásdís Kristinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.