Morgunblaðið - 07.11.2022, Side 27
lið hans vann AaB á útivelli, 2:1. Stefán
jafnaði á 71. mínútu og var skipt af
velli á 83. mínútu. FCK og Silkeborg
eru í þriðja og fjórða sæti deildarinnar.
_ Óðinn Þór Ríkharðsson var í aðal-
hlutverki hjá Kadetten sem vann Bern,
37:32, á útivelli í svissnesku A-
deildinni í handknattleik á laugardag-
inn. Óðinn skoraði níu mörk í leiknum.
Ólafur Guðmundsson skoraði líka níu
mörk í deildinni í gær en lið hans, Ami-
citia Zürich, tapaði fyrir Suhr Aarau,
33:28.
_ Arnór Sigurðsson skoraði jöfn-
unarmark Norrköping, 3:3, gegn
meisturum Häcken á útivelli í loka-
umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu í gær.
Markið kom á
fimmtu mínútu í
uppbótartíma.
Andri Lucas Guð-
johnsen lagði upp
fyrsta mark Norr-
köping í leiknum
og Valgeir Lund-
dal Friðriksson
lagði upp eitt af mörkum Häcken.
_ Oddur Gretarsson skoraði 11 mörk
fyrir Balingen þegar liðið vann Nord-
horn, 29:24, í þýsku B-deildinni í hand-
knattleik á laugardaginn. Daníel Þór
Ingason skoraði eitt mark fyrir Bal-
ingen sem hefur unnið fyrstu tíu leiki
sína á tímabilinu.
_ Willum Þór Willumsson tryggði Go
Ahead Eagles stig í hollensku úrvals-
deildinni í knattspyrnu í gær. Hann
jafnaði metin, 1:1, gegn Twente á úti-
velli úr vítaspyrnu í uppbótartíma
leiksins.
_ Nökkvi Þeyr Þórisson lagði upp
annað mark Beerschot og skoraði það
þriðja í gær þegar liðið vann Lommel á
útivelli, 3:1, í belgísku B-deildinni í
knattspyrnu. Beerschot er þar í fjórða
sæti, fjórum stigum á eftir toppliði
Beveren.
_ Tryggvi Snær Hlinason var með
100 prósent skotnýtingu og skoraði 11
stig fyrir Zaragoza í mjög óvæntum
sigri liðsins á stórliði Real Madrid í
spænsku ACB-
deildinni í körfu-
knattleik í gær-
kvöld, 94:89.
Tryggvi tók fjögur
fráköst en hann
lék í 14 mínútur.
Zaragoza hafði
tapað fyrstu sex
leikjum sínum á
tímabilinu en komst af botninum með
sigrinum.
_ Adam Árni Róbertsson, sem skor-
aði fimm mörk fyrir Keflavík í 21 leik í
Bestu deild karla í fótbolta í ár, er far-
inn frá félaginu. Hann er kominn í raðir
Þróttara í Vogum sem féllu úr 1. deild-
inni í haust.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 2022
Olísdeild karla
FH – Hörður ......................................... 36:31
Afturelding – KA.................................. 34:29
Stjarnan – ÍR ........................................ 33:28
Staðan:
Valur 7 6 0 1 225:187 12
Fram 8 4 3 1 237:230 11
Afturelding 8 5 1 2 232:213 11
FH 8 4 2 2 228:228 10
Selfoss 7 4 1 2 215:200 9
Stjarnan 8 3 3 2 231:228 9
ÍBV 7 3 2 2 242:206 8
KA 8 2 2 4 225:237 6
Grótta 6 2 1 3 168:164 5
Haukar 7 2 1 4 196:197 5
ÍR 8 2 0 6 220:278 4
Hörður 8 0 0 8 231:282 0
Grill 66-deild karla
Þór – KA U............................................ 32:32
Þýskaland
Hamburg – RN Löwen........................ 40:37
- Ýmir Örn Gíslason skoraði ekki fyrir Lö-
wen.
Leipzig – Göppingen........................... 25:26
- Viggó Kristjánsson skoraði 2 mörk fyrir
Leipzig.
B-deild:
Eisenach – Empor Rostock ................ 31.23
- Sveinn Andri Sveinsson skoraði 3 mörk
fyrir Rostock og Hafþór Már Vignisson 1.
Danmörk
Mors – Aalborg .................................... 26:31
- Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir
Aalborg sem er efst í deildinni.
SönderjyskE – Ribe-Esbjerg ............. 31:36
- Elvar Ásgeirsson skoraði 3 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg og Ágúst Elí Björgvinsson
varði 4 skot í marki liðsins.
Ungverjaland
Veszprém – NEKA .............................. 41:30
- Bjarki Már Elísson skoraði 3 mörk fyrir
Veszprém.
Pólland
Kielce – Chrobry Glogów................... 41:25
- Haukur Þrastarson skoraði 2 mörk fyrir
Kielce.
Frakkland
Nantes – Créteil................................... 38:25
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 12/1 skot
í marki Nantes, 35 prósent.
Noregur
Haslum – Kolstad ................................ 25:34
- Örn Vésteinsson skoraði 2 mörk fyrir
Haslum. Janus Daði Smárason skoraði 2
mörk fyrir Kolstad en Sigvaldi Guðjónsson
ekkert.
Svíþjóð
Sävehof – Önnered.............................. 39:30
- Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark fyrir
Sävehof.
E(;R&:=/D
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Hlíðarendi: Valur – Selfoss.................. 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Álftanes: Álftanes – Skallagrímur ...... 19.15
Í KVÖLD!
HM KVENNA
Víðir Sigurðsson
Stefán Stefánsson
Kvennalandslið Íslands í hand-
bolta var ekki í teljandi vandræðum
með að tryggja sér keppnisrétt í um-
spilinu um sæti í lokakeppni heims-
meistaramótsins 2023.
Íslenska liðið vann Ísrael all-
örugglega í báðum leikjum þjóðanna
á Ásvöllum um helgina, fyrst 34:26 á
laugardaginn og síðan 33:24 í gær.
Ísland er þar með ein af þeim níu
þjóðum sem komast áfram úr for-
keppninni yfir í umspilið en hinar eru
Portúgal, Kósóvó, Slóvakía, Grikk-
land, Úkraína, Ítalía, Austurríki og
Tyrkland.
Þá sátu Tékkar hjá sem tíunda
þjóðin en þessar tíu verða dregnar
gegn tíu neðstu liðum Evrópumóts-
ins sem nú stendur yfir í Slóveníu,
Svartfjallalandi og Norður-
Makedóníu. Umspilið fer fram í vor
og sigurliðin þar komast í lokakeppni
HM sem Danmörk, Noregur og Sví-
þjóð halda sameiginlega í desember á
næsta ári.
„Mér fannst þetta verkefni um
helgina skila ótrúlega góðu. Við feng-
um fullt af æfingum og góðar tvær
vikur sem við höfðum saman. Við
náðum þá að stilla saman sóknarleik-
inn sérstaklega og við fórum aðeins
lengra fram á völlinn í vörninni, sem
var bara skemmtilegt,“ sagði varn-
armaðurinn reyndi Steinunn Björns-
dóttir við Morgunblaðið eftir seinni
leikinn í gær.
„Við vonum auðvitað að það verði
dregið vel þegar kemur að mótherja í
næsta leik og við ætlum í alla leiki til
þess að vinna þá. Það er líka svo gam-
an að hafa eitthvað framundan, það
er virkilega spennandi,“ sagði Stein-
unn.
Fyrri hálfleikurinn á laugardag
var jafn en Ísland var með forystu að
honum loknum, 18:15. Í seinni hálf-
leik dró í sundur með liðunum og ís-
lenska liðið komst tíu mörkum yfir,
32:22, en Ísrael lagaði stöðuna í 34:26.
_ Mörk Íslands: Sandra Erlings-
dóttir 11, Þórey Rósa Stefánsdóttir 7,
Thea Imani Sturludóttir 5, Andrea
Jacobsen 4, Perla Ruth Albertsdóttir
3, Rut Jónsdóttir 1, Steinunn Björns-
dóttir 1, Díana Dögg Magnúsdóttir 1,
Sunna Jónsdóttir 1.
_ Hafdís Renötudóttir varði 4 skot
og Saga Sif Gísladóttir 3.
Aldrei hætta í gær
Í gær var aldrei nein hætta á að
Ísraelar ynnu upp þetta átta marka
forskot. Ísland var með nauma for-
ystu í fyrri hálfleik og 14:11 að hon-
um loknum en rétt eins og á laug-
ardag breikkaði bilið í seinni
hálfleiknum og endaði í níu marka
sigri.
_ Mörk Íslands: Andrea Jacobsen
7, Sandra Erlingsdóttir 6, Steinunn
Björnsdóttir 3, Rut Jónsdóttir 3,
Thea Imani Sturludóttir 3, Perla
Ruth Albertsdóttir 2, Þórey Rósa
Stefánsdóttir 2, Rakel Sara Elvars-
dóttir 2, Elín Klara Þorkelsdóttir 2,
Sunna Jónsdóttir 1, Lilja Ágústs-
dóttir 1, Díana Dögg Magnúsdóttir 1.
_ Hafdís Renötudóttir varði 12/1
skot og Saga Sif Gísladóttir 4.
Sautján marka munur og umspil
- Ísland vann Ísrael 34:26 og 33:24
og leikur um HM-sæti í vor
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Ánægðar Þórey Rósa Stefánsdóttir og Sandra Erlingsdóttir fagna í leikslok
eftir að öruggur sigur og sæti í umspilinu fyrir HM var í höfn.
Þó að fjöldi góðra leikmanna sé
ekki til staðar hjá heims- og Evr-
ópumeisturum Norðmanna í hand-
knattleik kvenna á Evrópumótinu á
Balkanskaganum er liðið búið að
vinna tvo fyrstu leiki sína með sam-
tals 26 marka mun.
Þórir Hergeirsson stýrði sínum
konum til yfirburðasigurs í A-riðli
mótsins gegn Sviss í gærkvöld,
38:21, og fylgdi þar eftir níu marka
sigri á Króötum í fyrstu umferðinni
á föstudaginn.
Stine Bredal Oftedal var marka-
hæst hjá Norðmönnum í gærkvöld
með sex mörk en mörkin dreifðust
mjög jafnt á leikmenn liðsins og tólf
þeirra skoruðu.
Norðmenn eru með 4 stig, Ung-
verjar 2, Króatar 2 og Sviss ekkert
eftir tvær umferðir í A-riðlinum.
Svíar völtuðu yfir Slóvena, 33:22,
í B-riðlinum en slóvenska liðið hafði
unnið óvæntan sigur á Dönum í
fyrstu umferð. Danir tóku Serba í
bakaríið og sigruðu 34:21. Svíar
eru með 4 stig, Danir 2, Slóvenar 2
en Serbar ekkert.
Ljósmynd/IHF
Öflug Stine Bredal Oftedal var markahæst í norska liðinu í gærkvöld.
Sautján marka sigur
norsku kvennanna
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Aron Einar Gunnarsson lék sinn
100. A-landsleik fyrir Íslands hönd
og sjö nýliðar þreyttu frumraun
sína með A-landsliðinu í Abu Dhabi
í gær þegar Sádi-Arabía sigraði Ís-
land naumlega, 1:0, í vináttulands-
leik í knattspyrnu.
Sádi-Arabar eru á leið í loka-
keppni HM í Katar en þetta var
þeirra fimmti vináttuleikur af sjö á
lokasprettinum fyrir mótið.
Þeir voru mun sterkari aðilinn í
fyrri hálfleik og Saul Abdulhamid
skoraði markið sem skildi liðin að á
26. mínútu leiksins með skalla af
stuttu færi eftir fyrirgjöf frá
vinstri.
Íslenska liðið skapaði sér afar fá
færi í leiknum en var þó mun
frískara í seinni hálfleik og vantaði
aðeins herslumuninn til að jafna
metin. Óttar Magnús Karlsson var
næstur því en hann skaut yfir mark
Sádanna úr dauðafæri á markteig á
53. mínútu.
Nýliðarnir sjö sem léku sinn
fyrsta A-landsleik voru Róbert Orri
Þorkelsson, Ísak Snær Þorvalds-
son, Dagur Dan Þórhallsson og Jón-
atan Ingi Jónsson, sem voru í byrj-
unarliðinu, og þeir Logi Tómasson,
Bjarki Steinn Bjarkason og Júlíus
Magnússon sem komu inn á sem
varamenn.
Flestir aðrir í íslenska liðinu
höfðu leikið einn til fimm landsleiki
fyrir þennan og Óttar Magnús var
næstreyndastur en hann lék sinn
10. landsleik í gær.
Íslenska liðið fer nú til Suður-
Kóreu og leikur þar seinni leik sinn
í ferðinni á föstudaginn.
Sjö nýliðar stóðu í
HM-liði Sádanna
Ljósmynd/KSÍ
100 Aron Einar Gunnarsson í 100.
landsleiknum í Abu Dhabi í gær.
1. deild kvenna
KR – Tindastóll..................................... 87:64
Breiðablik b – Þór Ak......................... 45:101
Aþena/Leiknir/UMFK – Ármann....... 54:60
Staðan:
Stjarnan 7 7 0 601:434 14
Snæfell 7 6 1 474:368 12
KR 8 6 2 633:528 12
Þór Ak. 8 6 2 605:514 12
Hamar-Þór 8 4 4 614:571 8
Ármann 8 3 5 560:530 6
Aþena/LU 8 2 6 568:586 4
Tindastóll 8 1 7 556:603 2
Breiðablik B 8 0 8 301:778 0
Litháen
Rytas Vilnius – Zalgiris Kaunas........ 89:85
- Elvar Már Friðriksson skoraði 10 stig
fyrir Rytas, átti 5 stoðsendingar og tók eitt
frákast á 22 mínútum.
Ítalía
Pesaro – Olimpia Mílanó .................... 71:85
- Jón Axel Guðmundsson skoraði 2 stig,
tók eitt frákast og átti eina stoðsendingu á
14 mínútum með Pesaro.
Sassari – Faenza ......................... (frl.) 89:81
- Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 16 stig
fyrir Faenza, tók 3 fráköst og átti 3 stoð-
sendingar á 32 mínútum.
Belgía/Holland
Leiden – Aris Leeuwarden ................ 87:70
- Kristinn Pálsson skoraði 9 stig og tók 4
fráköst fyrir Aris á 18 mínútum.
Þýskaland
B-deild:
Artland – Münster............................... 78:68
- Hilmar Pétursson skoraði 13 stig fyrir
Münster, tók 3 fráköst og átti eina stoð-
sendingu á 25 mínútum.
4"5'*2)0-#