Morgunblaðið - 07.11.2022, Síða 32

Morgunblaðið - 07.11.2022, Síða 32
WWW.SVEFNOGHEILSA.IS Svefn heilsa& ÚRVALAF VÖNDUÐUM HEILSURÚMUM EITT MESTA ÚRVAL AF HEILSUDÝNUM Á LANDINU VANDAÐAR SÆNGUROG KODDAR Í ÚRVALI STILLANLEG HJÓNARÚM HÖFUM ÞAÐ GOTT HEIMA GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ PANDORA STILLANLEGUR HÆGINDASTÓLL Listasafn Sigurjóns Ólafssonar stendur fyrir kvöld- stund í umsjón Oddfellow-hreyfingarinnar í Reykjavík annað kvöld kl. 20. Munu Guðmundur Þórhallsson og Kristján Óli Hjaltason kynna starf hreyfingarinnar og sögu holdsveikraspítalans sem danskir Oddfellow- menn reistu í Laugarnesi árið 1898. Var það mikið timburhús og líklega stærsta hús landsins á þeim tíma. Kynna starf Oddfellow og sögu holdsveikraspítala í Laugarnesi Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Upphaf þessarar bókar liggur í úti- legu sem við litla fjölskyldan vorum í fyrir nokkrum árum í Þakgili. Kon- an mín bað mig um að koma Ými syni okkar í háttinn, sem þá var sjö ára, og ég þurfti að skálda upp sögu fyrir hann í tjaldinu. Magnað um- hverfið varð mér innblástur og til varð grunnurinn að þeirri sögu sem bókin um Marísól geymir,“ segir Hafliði Sævarsson, höfundur barna- bókarinnar Marísól og sjóflugvélin, sem kom nýlega út og er hans fyrsta bók. „Ég samdi í tjaldinu sögu um stelpu í flugvél sem þarf að brot- lenda á sjó og um borð er talstöð þess eðlis að stelpan getur talað við hval í gegnum hana. Ég ákvað að halda mig við þessa hugmynd og gera söguna fyllri svo ég fléttaði inn í ýmsu sem ég hef kynnst í þjóðsög- um um víða veröld, bæði hér heima og í Asíulöndum, til dæmis í Japan þar sem ég bjó. Þjóðsögur frá Asíu tengjast oft hafinu og Japan er eld- fjallaeyja eins og Ísland og Japanir leggja líka mikið upp úr fiskveiðum eins og við,“ segir Hafliði og rifjar upp að Ýmir sonur hans hafi í tjald- inu verið nokkuð gagnrýninn á sögu pabba síns. „Nútímabörn gera rosalegar kröf- ur þegar kemur að sögum, enda hafa þau gríðarlegt aðgengi að af- þreyingu, en ég hafði gott af gagn- rýni hans. Skemmtilegast er að Ým- ir kom að myndskreytingu bókarinnar síðar í ferlinu, en ég vissi að hann hefði betri tök á tækninni á því sviði en ég. Ég teiknaði útlínur með blýanti á stór blöð, skannaði inn í tölvu og síðan tók Ýmir við fram- haldinu,“ segir Hafliði og bætir við að bókin um Marísól sé þriðja bókarhandritið sem hann skrifi. „Fyrst skrifaði ég handrit að ferðaskáldsögu sem ég gaf aldrei út og síðan skrifaði ég sakamálasögu sem mér fannst ekki þróast í rétta átt, svo ég lét hana liggja. Þegar ég svo hitti Yrsu Sigurðardóttur glæpasagnadrottningu sagði hún mér að hún hefði byrjað sinn rithöf- undarferil með barnabók og ég ákvað að taka mér það til fyrir- myndar.“ Örlagríkur föstudagur Hafliði hefur búið víða í veröld- inni, hann flutti 18 ára til Kína, til að setjast þar á skólabekk. „Þegar ég var í MR var ég í verk- legum efnafræðitímum annan hvern föstudag og í eitt skiptið þegar ég mætti á röngum föstudagsmorgni og þurfti að bíða til næsta tíma, rakst ég á auglýsingu uppi á vegg um al- þjóðlegan framhaldsskóla. Mér fannst þetta skemmtilegt tækifæri og lét bara vaða, sótti um að fara til Hong Kong og fékk inni. Tveimur árum seinna útskrifaðist ég með stúdentspróf og fékk styrk þaðan til að fara í háskóla í Utrecht í Hollandi og á sama tíma lærði ég Kínafræði í Leiden, tók lest á milli. Í Hollandi útskrifaðist ég í stjórnmálafræði og hagfræði og þar kynntist ég konunni minni, Beatrízi García, en hún er frá Kúbu. Ég fór líka sem skiptinemi til Japan í Kyoto, sem var æðislegt,“ segir Hafliði sem er verkefnastjóri í HÍ og kennir þar líka Kínafræði sem stundakennari. Einnig er hann í Sambandi íslenskra myndlistar- manna og hyggur á aðra mynd- skreytta barnabók næst. Tók glæpasagnadrottn- ingu til fyrirmyndar - Feðgar unnu saman að barnabók - Saga varð til í útilegu Morgunblaðið/Árni Sæberg Feðgar Hafliði og Ýmir sköpuðu saman bókina um Marísól og heimana þar. Bókin fjallar um unghetjuna Marísól og ferð henn- ar í sjóflugvél með fjölskyldu sinni frá eyju í Karíbahafinu til heimaeyju sinnar í Norður- Atlantshafi. Óvænt skakkaföll á leiðinni reyna mjög á útsjónarsemi Marísólar og hæfileika henn- ar til að vingast við menn, dýr og vættir. Unghetjan Marísól BÓK UM SJÁVARHÁSKA OG ÆVINTÝR MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 311. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 822 kr. Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr. PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr. FH og Afturelding eru á miklu flugi í úrvalsdeild karla í handbolta um þessar mundir. FH-ingar unnu sinn fjórða leik í röð í gær þegar þeir sigruðu Hörð í Kaplakrika og Afturelding vann fimmta sigurinn í röð þegar KA kom í heimsókn í Mosfellsbæinn. »26 FH og Afturelding eru á sigurbraut ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.