Morgunblaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 1
HÁTT Í 40 ÞÚS- UND BÆKUR Í HAUST BIRGITTA 16 EVA BJÖRG 12 HEIMA- SLÓÐIR SÖGUSVIÐIÐ • Stofnað 1913 • 270. tölublað • 110. árgangur • F IMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 Sigraðu innkaupin 17.–20. nóvember Fjárhundurinn Lubbi á Árbæjarsafni Fjárhundurinn Lubbi, sem hjálpar börnum að læra íslensku málhljóðin og efla orðaforðann, var í Árbæjarsafni í gær, á degi íslenskrar tungu, og börn sem heimsóttu safnið hjálpuðu honum að leita að málbeinum og lærðu ýmis áhugaverð þjóðleg orð yfir muni á safninu. Lubbi er aðalsöguhetjan í námsefni fyrir börn sem talmeinafræðingarnir Eyrún Ísfold Gísla- dóttir og ÞóraMásdóttir hafa búið til. Morgunblaðið/Eggert Stórkostlegt geim- skot Artemis I „„Þetta var stórkostlegt, ekki bara að sjá geimskotið heldur að finna drunurnar frá eldflauginni. Ég verð lengi að vinna úr því,“ segir Daniel Leeb, fram- kvæmdastjóri Geimvísindastofnunar Íslands ehf. Hann var viðstaddur geim- skot Artemis I SLS frá Canaver- al-höfða í gærmorgun. Þegar rætt var við Daniel var hann nýkominn af fundi með alþjóðlegum starfshópi um ferðir til Mars. Ísland tekur nú fullan þátt í starfi hópsins.» 4 Artemis I Fór út í geim í gærmorgun. Meiri ávinningur að endurvinnslu ker- brota en mengun „Skipulagsstofnun telur að fyrirhuguð endurvinnsla á kerbrotum frá álverum landsins auk innflutnings á slíku hráefni til að framleiða efni í sement sé ekki líkleg til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif. Því skuli framkvæmdin ekki háðmati á umhverfisáhrifum. Í rökstuðningi er bent á að fram- kvæmdin hafi í för með sér að ekki þurfi að urða kerbrot frá álver- um. Einnig er sagt að starfsemin hafi í för með sér aukna losun á flúor, ryki og brennisteinsdíoxíði út í andrúmsloftið en sú losun sé brotabrot af losun frá þeim iðjuverum sem fyrir eru. Auk þess sé verulegur ávinningur að því að umtalsvert dregur úr urðun á föstum úrgangi sem inniheldur sömu efni. Heildarávinningur aðminni losun sé meira en 130 þúsund tonn á ári.» 18 Morgunblaðið/Ómar Framleiðsla Álið er brætt í rafskauta- kerum og síðan steypt í formi. Ávísun karlhormónsins testósteróns til kvenna hefur margfaldast á skömmum tíma. Um er að ræða gel sem borið er á húð. „Fram að sept- ember 2021 voru afgreiddar um það bil jafn margar lyfjaávísanir á testó- steróni til kvenna í hverjummánuði og verið hafði mörg ár á undan. Ekki er ljóst hvort þær konur hafi allar verið með vandamál sem tengdist breytingaskeiðinu,“ segir Sigrún Hjartardóttir, kvensjúkdómalækn- ir hjá Kvenheilsu Heilsugæslu höf- uðborgarsvæðis- ins. „Svo gerist eitthvað fyrir um ári. Frá því í september 2021 og fram í lok febrúar 2022 um það bil tvöfald- aðist fjöldi lyfja- ávísana á testósteróni til kvenna, en eftir það sést gífurleg aukning. Ef maður ber saman fjölda lyfjaávísana geta verið á ýmsum aldri með mis- munandi þarfir. Sumar eru orðnar ömmur og vilja hjálpa til með barna- börnin og svo getur umönnun aldr- aðra foreldra bæst við. Álagið verður til þess að sumar konur greinast með kvíða og þunglyndi og detta jafnvel út af vinnumarkaði. Sigrún telur að ef hugsað sé um velferð þessara kvenna og hagsæld þjóðarinnar ætti að gefa konum tækifæri til aðminnka við sig vinnu án þess að skerða laun á þessu mikla álagstímabili. lFjöldi kvenna sem fá þessu hormóni ávísað hefur meira en átjánfaldast á einu ári lÁstæða eftirspurnarinnar er meðal annars rakin til umræðu á samfélagsmiðlum Mikið sótt í testósterón Guðni Einarsson gudni@mbl.is Fjöldi kvenna vill … »22 Sigrún Hjartardóttir á testósteróni til kvenna í nýliðnum september og október við septem- ber fyrir ári þá er fjölgunin rúmlega átjánföld.“ Sigrún telur að orsökin sé meðal annars umræða á samfélagsmiðlum um breytingaskeiðið. Mikið álag Sigrún segir að ótrúlega mikið álag sé á 40-50 ára gömlum konum, einmitt þegar breytingaskeiðið hefst. Þær eru oft á hátindi starfsferilsins og í krefjandi starfi. Mikið álag getur einnig verið á konunum heima. Börn Sérfræðingur á skrifstofusjúkrahúsa og sérþjónustu Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starfs sérfræðings á skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu. Verksvið skrifstofu sjúkrahúsa og sérþjónustu er annars og þriðja stigs heilbrigðisþjónusta auk eftirmeðferðar og endurhæfingar, sjúkraflutninga, þjónustu hjúkrunarheimila og dagdvalar aldraðra. Skipulag skrifstofunnar byggir á þjónustuflokkum og snýr auglýst starf fyrst og fremst að endurhæfingarþjónustu innan sem utan stofnana. Helstu verkefni:• Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð á sviði heilbrigðisþjónustu. • Eftirfylgni aðgerðaáætlana á sviði heilbrigðisþjónustu.• Samskipti við stofnanir heilbrigðisráðuneytis og þjónustuveitendur. • Svörun stjórnsýsluerinda. Hæfni og menntunarkröfur:• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.• Þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu og stefnumótunar er æskileg. • Þekking og reynsla af starfssviði endurhæfingar.• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.• Góð tölvukunnátta.• Metnaður og vilji til að ná árangri.• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt hæfni í verkefnastjórnun. • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.• Góð kunnátta í ensku er nauðsynleg og kunnátta í a.m.k. einu Norðurlandamáli æskileg. Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins hafa gert. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir einstaklingar eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá, afrit af prófskírteinum og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsóknarfrestur er til og með 28. nóvember 2022 og umsókn óskast fyllt út á www.starfatorg.is. Starfshlutfall er 100%. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum. Upplýsingar um starfið veitir Guðlaug Einarsdóttir,skrifstofustjóri gudlaug.einarsdottir@hrn.is ogKristín Helgadóttir, mannauðsstjóri, kristin@hrn.is. Stjórnarráð ÍslandsHeilbrigðisráðuneytið RÁÐGJÖF RÁÐNINGAR ATVINNUBLAÐ MORGUN- BLAÐSINS FINNAVINNU 8 SÍÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.