Morgunblaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
Innlent4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022
TENERIFE!
SAMAN Í VETRARSÓL
8 DAGAR | 23. NÓVEMBER - 01. DESEMBER
LA SIESTA HOTEL 4*
STAÐSETT Á PLAYA DE LAS AMERICAS
TVÍBÝLII MEÐ HÁLFU FÆÐI.
VERÐ FRÁ 179.900 KR.
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, HÁLFT FÆÐI, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 UU.IS
HÁLFT
FÆ
ÐI
„Þetta var stórkostlegt, ekki bara
að sjá geimskotið heldur að finna
drunurnar frá eldflauginni. Ég verð
lengi að vinna úr því,“ segir Daniel
Leeb, framkvæmdastjóri Geimvís-
indastofnunar Íslands ehf. (Iceland
Space Agency). Hann var viðstaddur
geimskot Artemis I SLS-eldflaugar-
innar í gærmorgun, að íslenskum
tíma, frá Kennedy-geimferðamið-
stöð NASA á Canaveral-höfða í
Flórída. Eldflaugin flutti ómannað
Orion-geimfar og evrópska þjón-
ustueiningu. Geimfarið mun fara
til tunglsins og umhverfis það þar
sem ýmis búnaður verður prófað-
ur áður en það snýr aftur til jarðar.
Síðar munu menn ferðast með slíku
geimfari til tunglsins og er það liður
í undirbúningi ferða manna til Mars.
Daniel fylgdist með geimskotinu frá
útsýnisstað þar sem helstu yfirmenn
NASA, geimferðastofnunar Banda-
ríkjanna, og samstarfsaðilar Artem-
is-áætlunarinnar voru samankomnir.
Það var um þrjá kílómetra frá skot-
pallinum. Fjöldi áhorfenda fylgdist
með frá öðrum stöðum í nágrenninu.
„Það var ótrúleg lífsreynsla að
standa þarnameð geimförumNASA.
Þarna var m.a. dr. Jessica Watkins
geimfari sem var nýkomin úr Al-
þjóðlegu geimstöðinni. Þarna voru
líka geimfarar frá Evrópsku geim-
ferðastofnuninni (ESA), stórkostleg-
ur alþjóðlegur hópur sem fagnaði því
að nú er stefnan aftur tekin á tunglið.
Það var mikill heiður að vera þarna
með fólkinu sem kom þessu í kring,“
segir Daniel. Artemis-áætlunin er
samstarfsverkefni NASA, evrópskra
samstarfsaðila og fleiri.
Hann segir að Artemis-áætlunin
sé mikilvæg fyrir Ísland sem kom
við sögu þegar fyrstu tunglfararnir
voru undirbúnir fyrir ferðir sínar.
„Það er stórkostlegt að vera hér í
eigin persónu sem fulltrúi landsins
okkar. Það er sannur heiður.“ Daníel
segir mikla möguleika felast í þessu
samstarfi fyrir Ísland. Hann telur að
geimskotið marki upphaf nýs tíma-
skeiðs í geimkönnun.
„Við erum að tengjast á ný við vís-
indin og tæknina sem byggð var upp
fyrir meira en 50 árum. Nú ætlum
við að fara aftur til tunglsins til að
dvelja þar og halda síðan áfram til
Mars. Þetta er mikilvægt, ekki aðeins
fyrir geimkönnun heldur einnig fyr-
ir nýsköpun og til að veita komandi
kynslóðum um allan heim innblástur.
Um leið og við sækjum til stjarnanna
lærum við betur að vernda jörðina
sem við stöndum á. Þetta er bara
upphafið,“ segir Daniel.
Hann segir að Artemis-geimfarar
hafi verið hér á landi við undirbúning
og þjálfun á liðnu sumri og í fyrrasum-
ar. „Við erum tengd þessu verkefni og
ætlum að vera eins góður samstarfs-
aðili og mögulegt er,“ segir Daniel.
Þegar rætt var við Daniel í gær var
hann nýkominn af fundi með alþjóð-
legum starfshópi um ferðir til Mars.
„Ísland nýtur nú fullrar þátttöku og
tekur þátt í umræðum um könnunar-
tæknina sem beitt verður á yfirborði
Mars. Ísland tekur þar þátt með öllum
geimvísindastofnunum sem taka þátt
í verkefninu. Daniel segir að á Íslandi
sé að finna landslag hliðstætt því sem
er bæði á tunglinu og Mars. Það eru
landkostir sem Ísland hefur fram að
færa og allur heimurinn viðurkennir.
Þar er hægt að prófa nýja tækni og
ýmsar rannsóknaraðferðir. Það er líka
vettvangur nýsköpunar sem gefur ís-
lenska háskólasamfélaginumikilvæg
tækifæri til þátttöku í undirbúningi
geimrannsókna.
„Mér þykir mest spennandi að
dætur mínar á Íslandi eiga framtíð á
þessu sviði. Þær munu sjá kvenkyns
geimfara ganga á yfirborði tunglsins
og það getur gefið þeim innblástur
til að feta nýjar slóðir og gera Ísland
framsæknara á sviði nýsköpunar,“
segir Daniel.
lDaniel Leeb frá Geimvísindastofnun Íslands var viðstaddurlGeimfarar úr Artemis-áætluninni hafa
heimsótt ÍslandlHillir undir mannaðar tunglferðir á nýlÍsland tekur þátt í undirbúningi Marsferða
Stórkostlegt geimskotArtemis
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
AFP/Kevin Dietsch
Artemis I SLS Geimflauginni var skotið á loft í gærmorgun. Hún ber Orion geimfar sem fer til tunglsins og umhverfis það áður en það snýr til jarðar.
Ljósmynd/DL
Geimrannsóknir Bill Nelson (t.v.), stjórnandi NASA, öldungadeildarþing-
maður og fv. geimfari, ásamt Daniel Leeb frá Geimvísindastofnun Íslands.
„Íslendingum finnst gaman á
góðri stundu að taka lagið. Því
verður talið í og hafin upp raust,“
segir Geirmundur Valtýsson
tónlistarmaður á Sauðárkróki.
Með góðum hópi hljóðfæraleikara
verður hann nú um helgina með
söngkvöld á tónleikastaðnum
Græna hattinum við Hafnar-
stræti á Akureyri. Skemmtunin
verður á laugardagkvöld og
hefst kl. 21. Þar koma fram, auk
Geirmundar, sem leikur á harm-
oniku, þeir Finnbogi Kjartansson
bassaleikari, JóhannMidjörd
trommari og á píanóið leikur
Stefán R. Gíslason stjórnandi
Karlakórsins Heimis.
„Sönghefðin er sterk á Norð-
urlandi. Því langaði mig að efna
til svona skemmtunar sem er allt
öðruvísi dagskrá en ég hef áður
verið með. Takist þetta vel er
sjálfsagt að bjóða upp á eitthvað
svipað hér í Skagafirði,“ segir
Geirmundur. Meðal laga sem eru
á söngskrá helgarinnar eru til
dæmis Kötukvæði, Óbyggðirnar
kalla og Rasmus í Görðum. Einnig
Geirmundarlögin Ort í sandinn,
Nú er ég léttur og Bíddu við svo
einhver séu nefnd. sbs@mbl.is
lGleði áGrænahattinumlLíflegt
kvöldlOrt í sand ogÓbyggðir kalla
Geirmundur syngur
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sveifla Geirmundur er alltaf á ferðinni og auðvitað með einkanúmer.
K var einkennisstafur Skagafjarðarsýslu í gamla bílnúmerakerfinu.