Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 8

Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 8
FRÉTTIR Innlent8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 Hjarta heimilisins Við hönnum innréttingar að þínum þörfum Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is.2000 — 2022 Virka daga 10-17 Laugardaga 11-15 STAKSTEINAR Hvað með afsögn og rannsókn? Árni Þór Árnason skrifar hér í blaðið í gær um lekann frá stjórnskipunar- og eftirlits- nefnd Alþingis og bendir á að enn gengisfalli Alþingi. Bent hefur verið á að það sé hlutverk þessarar nefndar að rannsaka mál af þessu tagi en Árni Þór telur það ekki vænlegt, sem von er. Hann leggur til að þeim sem lak „trúnað- argögnum verði gefinn kostur á að segja af sér nefndarstörfum, þannig að hægt sé að senda nefndinni trúnað- argögn í framtíðinni. Annars verður hún aldrei marktæk og treystandi. Ef það gerist ekki er spurn- ing að formaðurinn, Þór- unn Sveinbjarnardóttir, „axli ábyrgð“. Þetta er mjög vinsælt hjá Samfylkingunni en aðallega ætlað öðrum.“ Og hann segir að ef þetta gerist ekki beri að „víkja nefndinni frá í heild og kjósa nýtt fólk“. Hvað ætli systurflokkarnir þrír segðu ef lekinn hefði ekki verið þeim að skapi? Pírat- inn og nefndarmaðurinn Arndís Anna Kristínarsdóttir Gunn- arsdóttir segir að nefndin sé reið yfir lekanum, en að hún sé „ósköp slök gagnvart þessu“. Hvers vegna eru píratar allt í einu slakir yfir svona vinnu- brögðum? Hvers vegna krefjast þeir ekki rannsóknar? Árni Þór Árnason Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni www.mbl.is/mogginn/leidarar Heimilt verði að miðla myndum lUmsækjandi um ökuskírteini geti vísað á andlitsmynd í vegabréfaskrá Embættum ríkisins sem gefa út ökuskírteini verður heimilt að sækja ljósmynd af umsækjanda um ökuskírteini og rithandarsýnishorn hans úr vegabréfaskrá og nota við útgáfu ökuskírteinis. Það verður þó aðeins heimilt að fengnu samþykki umsækjanda. Með tillögu að breytingu á reglu- gerð sem kynnt er í samráðsgátt stjórnvalda er tekið skref í þá átt að gera umsókn um ökuskírteini staf- ræna að fullu. Í kynningu í samráðs- gátt segir að það sé til þess fallið að einfalda umsóknarferlið og muni væntanlega fækka heimsóknum til sýslumannsembætta. Fram kemur að andlitsmynd telst til viðkvæmra persónuupplýsinga. Þar sem miðlun milli tölvukerfa vegabréfa og ökuskírteina sé til hagræðis en stafi ekki af nauðsyn er lagt til að miðlunin verði aðeins heimil að fengnu samþykki umsækj- anda. Er þá gert ráð fyrir því að umsækjandi hafi val um hvort hann leggi fram nýja mynd eða mynd verði sótt í vegabréfaskrá. Til að gera þessa miðlun mögu- lega stendur til að sett verði tenging á milli netþjóna hlutaðeig- andi stofnana. Það er ekki talið fela í sér aukakostnað heldur fellur það undir verkefni sem er þegar í gangi, að því er fram kemur í kynningu dómsmálaráðuneytisins á fyrirhug- aðri breytingu. Morgunblaðið/Eggert Umferð Umsókn um ökuskírteini verður stafræn að öllu leyti. Slökkvibyssur Freyju virka vel lDæluæfing á Húnaflóa gekk vel Áhöfnin á varðskipinu Freyju hélt æfingu á Héraðsflóa á dögunum. Varðskipið er vel tækjum búið. Þar á meðal eru afkastamiklar slökkvi- byssur. Þær voru prófaðar ásamt öðr- um búnaði. Tilgangur æfingarinnar var að viðhalda þjálfun áhafnarinnar og kanna virkni búnaðarins. Slökkvibyssurnar geta dælt um 7.200 rúmmetrum af sjó á klukku- stund og sprautað vatninu 220 metra frá skipinu. Dælurnar kraftmiklu eru knúnar af aðalvélum skipsins. Æfingin heppnaðist vel, að því er fram kemur í tilkynningu Landhelgis- gæslunnar, þar sem lögð er áhersla á mikilvægi þess að áhöfnin geti brugð- ist við ef eldur kemur upp í skipum eða á hafnarsvæðum um allt land. Varðskipið Freyja var keypt notað og kom til heimahafnar á Siglufirði í byrjun nóvember 2021. Skipið er að miklu leyti sambærilegt varðskipinu Þór hvað stærð og búnað varðar en býr yfir meiri dráttargetu. Freyja leysti varðskipið Þór af hólmi. Býr Landhelgisgæslan nú yfir tveimur öflugum varðskipum, sérútbúnum til að sinna löggæslu, leit og björgun á krefjandi hafsvæðum umhverfis Ís- land. Við ákvörðun um að staðsetja Freyju á Siglufirði er litið til þess að með aukinni umferð skipa um norðurslóðir fjölgar ferðum stórra flutninga- og olíuskipa með austur- og norðurströndum Íslands, og ferð- ir skemmtiferðaskipa verða einnig tíðari. Ljósmynd/Kristinn Ómar Jóhannsson Vatnssúlur Varðskipsmenn þenja dælurnar um borð í Freyju.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.