Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 16

Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 16
FRÉTTIR Innlent16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 Hágæða fóður fyrir hunda og ketti Gott fyrir meltingu Gott fyrir liðina Gott fyrir feldinn Bætir ofnæmis- kerfið L i f and i v e r s lun fy r i r ö l l gæ ludýr Kauptúni 3, Garðabæ | Skeifan 9, Reykjavík | Sími 564 3364 | www.fisko.is | Opið virka daga 10-19, laugardag 10-18, sunnudag 12-18 100% NÁTTÚRULEGAR AFURÐIR 20% FERSKT KJÖT ..kíktu í heimsókn endurprenta eldri bækur sem hafa klárast. Eftirspurnin hefur verið gríðarleg og við heyrum af mörgum ungum krökkum sem eru að safna öllum bókunum,“ segir Egill Örn Jóhannsson framkvæmdastjóri Forlagsins. Birgitta er vitaskuld hæstánægð með þetta. „Mér þykir ótrúlega vænt um að bækurnar fái að lifa og séu endurprentaðar. Enda eru þær nokkuð tímalausar svo það skiptir ekki máli hvort þú lest þær í dag eða eftir fimm ár,“ segir hún. Nýju bækurnar tvær kallast Hrekkjavaka með Láru og Lára fer í útilegu. Þá verður söngbókin Syngdu jólalög með Láru og Ljónsa aftur fáanleg en hún seldist upp í fyrra. „Ég er sérstaklega spennt fyrir því að hún fáist aftur því hún hvarf fljótt úr búðunum og við gátum ekki pantað meira á tímum Covid. Þarna syng ég jólalög með dóttur minni, bæði gömul og góð og svo nýrri lög í bland. Og svo geta krakkarnir sungið sjálfir við undirleik.“ Nú ber einnig svo við að tvær bækur Birgittu verða gefnar út á ensku. Nefnast þær Lara visits the farm og Lara goes swimming. Egill Örn hjá Forlaginu segir að um tilraun sé að ræða. Viðtökur bókanna hér á landi hafi verið slíkar að rétt sé að kanna hvort þær eigi erindi á erlenda markaði. „Annars vegar munum við dreifa þessum bókum í verslanir hér á landi þar sem þær vonandi rata til erlendra ferðamanna. Svo getur þetta reynst mikilvægt í allri kynningu á bókum Birgittu, svo sem á bókamessum. Þetta er vonandi fyrsta skrefið í útrás þessara bóka.“ Lára og Ljónsi einnig á ensku Birgitta bendir á að hér á landi búi margir sem lesi ekki íslensku og bækurnar gætu gagnast þeim. Þær gætu einnig nýst í kennslu. „En svo er líka allt þetta ferðafólk sem kem- ur til landsins. Okkur langaði að sjá hvort það vill ef til vill taka með sér bækur sem minjagripi og lesa fyrir börnin heima eða í flugvélinni. Það væri náttúrlega alveg geggjað ef fólk úti í heimi hefur áhuga á Láru-bókunum. Ég held að þau Lára og Ljónsi nái jafn vel til barna úti í heimi og hér á Íslandi. Þótt ég sé með Ísland í huga þegar ég skrifa þær þá eru börn úti í heimi mörg ekkert ólík börnunum hér.“ „Það er ótrúlega gaman að heyra af því að verið sé að prenta eldri bækurnar á ný. Mér finnst dásam- legt að vita til þess að krakkarnir sækja ekki bara í nýju bækurnar mínar heldur þær eldri líka,“ segir Birgitta Haukdal, rithöfundur með meiru. Birgitta verður áberandi í jóla- bókaflóðinu í ár rétt eins og síðustu ár. Hún gefur út tvær nýjar bækur um þau Láru og Ljónsa en nú ber svo við að margar eldri bækur hennar verða einnig endurprent- aðar. Fyrsta skrefið í útrás bókanna Samkvæmt upplýsingum frá útgefanda bókanna verður Birgitta umsvifamesti rithöfundur landsins fyrir þessi jól. „Það verða hátt í 40 þúsund bækur Birgittu prent- aðar nú í haust. Annars vegar eru þetta nýjar bækur sem við erum að prenta í stærri upplögum en við höfum áður gert með bækur hennar. Hins vegar erum við að lUmsvifamesti höfundurinnlHátt í 40 þúsund eintök Tvær bækur Birgittu gefnar út á ensku í ár VIÐTAL Höskuldur Daði Magnússo hdm@mbl.is Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Stórtæk Birgitta Haukdal sendir frá sér tvær nýjar Láru-bækur fyrir jólin og tvær eldri bækur hennar verða gefnar út á ensku. Þá verða margar bækur Birgittu endurprentaðar til að anna eftirspurn ungra aðdáenda. „Kennsla um nærumhverfið er mikilvæg,“ segir Hilmar Arason, skólastjóri Grunnskóla Snæfells- bæjar. „Átthagafræði snýr að því að kynna nemendum átthaga sína; fræða þá um náttúru, sögu og mannlíf. Menntun sem nemendur öðlast þarna geta þeir síðan byggt á með áframhaldandi námi. Fara frá nærumhverfinu til þess sem er framandi. Jafnframt vonumst við til þess að geta með þessu dregið fram hið jákvæða í samfélagi okkar. Opn- að augu nemenda fyrir tækifærum hér á Snæfellsnesi.“ Veitt voru á dögunum Íslensku menntaverðlaunin svonefndu sem eru í fimm flokkum. Í C-flokki, þar sem viðurkenning var veitt fyrir framúrskarandi þróunarstarf, fóru verðlaunin í Snæfellsbæ. Í grunn- skólanum þar hefur síðasta áratug verið haldið úti verkefninu Átthaga- fræði, sem beinist að því að efla þekkingu nemenda á heimabyggð. Fræðast um örnefni og sjávarútveg „Átthagafræði er þverfagleg grein sem við leitumst við að tengja öllum hefðbundnum námsgreinum,“ segir Hilmar skólastjóri. „Ekki er á neinu eiginlegu námsefni að byggja, en í námskrá skólans er útlistað hvaða viðfangsefni skuli tekin fyrir hjá hverjum bekk. Sem dæmi má nefna að nemendur fræðast um Snæfells- jökull á fjölbreytilegan hátt, svo sem um jarðfræði og þjóðsögur. Í 10. bekk er svo leiðangur á jökul,“ segir Hilmar. Grunnskóli Snæfellsbæjar fékk árið 2009 styrk úr svonefndum Vonarsjóði til námskrárgerðar en um líkt leyti var menntastefna Snæ- fellsbæjar í mótun. Skv. áherslum þessum er í áttahagafræði farið í vettvangsferðir og tekin viðtöl við fólk um svæðið og staðhætti. Úr þeim fróðleik sem nemendur afla sér þarna eru svo unnin verkefni og frásagnir. Námskráin í Snæfellsbæ gerir ráð fyrir að í yngstu bekkjum læri nemendur örnefni á svæðinu, tengi þau við staði og þekki söguna að baki. Í 4. bekk kynnast nemendur starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja, erja jörðina með því að rækta matjurtagarð, fá fræðslu um Ingjaldshólskirkju og fleira. Öðlast einnig æfingu í því að koma fram, segja frá og standa fyrir máli sínu. Skapa framtíðina Áherslur eru með líku lagi í 6.-10. bekk sem kennt er í Ólafsvík en taka eðlilega mið af því að þá hafa börnin öðlast meiri þroska. Í 6. bekk er til dæmis fjallað um nátt- úru Snæfellsjökuls, saga Ólafsvíkur er tekin fyrir í 7. bekk og í 9. bekk er farið í jarðfræði. Í 10. bekk kynnast nemendur svo ferðaþjónustu á svæðinu, enda komin á aldur til að velja sér starf og skapa sér framtíð. „Í skólastarfi er gaman að fara nýjar leiðir og vinna með nemend- um á fjölbreyttan hátt. Tilgangur- inn hér er líka sá að skapa tengsl nemenda við heimabyggð, svo Snæfellsbær sé álitlegur þegar að því kemur hjá gömlum nemendum að velja sér búsetu sem fullorðið fólk,“ segir Hilmar Arason. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Átthagafræðin verðlaunuð í Snæfellsbæ lNýjungar í námilSkólastarf sem vekur athyglilTengsl við byggðina Menntun Starfsfólk og nemendur Grunnskóla Snæfellsbæjar með Guðna Th. Jóhannessyni forseta Íslands þegar verðlaun voru veitt á dögunum. n

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.