Morgunblaðið - 17.11.2022, Qupperneq 20
FRÉTTIR
Innlent20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022
ROMAGO
16.995 kr./ St. 41- 47,5
MEÐ MJÚKU INNLEGGI OG GÓÐUM STUÐNINGI
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
HERRA GÖTUSKÓR
SKECHERS
Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes • www.gaeludyr.is
Jólagjafir
gæludýranna
færðu hjá
okkur
„Við þurfum fleira fólk í fagið, svo
miklu skiptir að ferðamenn sem
koma til Íslands fái besta mögulega
viðurgjörning og jákvæða mynd
af landinu. Að slíku verður best
stuðlað með því að ferðaþjónustu
sé sinnt af fólki sem hefur aflað sér
góðrar menntunar í faginu og þar
er okkar fólk í lykilhlutverki,” segir
Friðrik Rafnsson, formaður í Leið-
sögn – stéttarfélagi leiðsögumanna.
Um síðustu helgi var efnt til há-
tíðarsamkomu og haldið upp á 50
ára afmæli félagsins, sem var stofn-
að í mars árið 1972. Upphaflega var
reyndar talað um Félag leiðsögu-
manna en nafninu var breytt fyrir
nokkrum árum og er nú flestum
orðið tamt. Nokkrir af stofnfé-
lögunum voru á samkomu síðustu
helgar og voru þar heiðraðir.
Frumkvöðlar og fjölbreytni
Viðstödd var einnig Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti
Íslands og heiðursfélagi í Leiðsögn.
Vigdís var frá því um 1950 og
næstu tuttugu árin gjarnan leið-
sögumaður erlendra ferðamanna
á Íslandi. Skipulagði og kenndi
á námskeiðum fyrir verðandi
leiðsögumenn og er að því leyti
frumkvöðull í faginu. Því var engin
tilviljun að samkomu leiðsögu-
manna væri valinn staður í Veröld
– húsi Vigdísar við Brynjólfsgötu í
Reykjavík, hvar er tungumálamið-
stöð Háskóla Íslands. Í ávarpi tiltók
Friðrik Rafnsson sérstaklega þau
orð Vigdísar að tungumál séu lykill-
inn að heiminum. Tungur veraldar
í öllum sínum fjölbreytileika séu
jafnframt verkfæri leiðsögumanna
þegar þeir segja ferðamönum frá
landi, náttúru þess menningu og
sögu.
Á hátíðinni um síðustu helgi voru
nokkrir af stofnfélögum Leiðsagn-
ar heiðraðir. Eðlilega eru sumir
frumherjanna fallnir frá, en nokkrir
lifa enn og sjálfsagt þótti að sýna
þeim sóma og þakka fyrir vel unnin
störf. „Nám leiðsögumanna, sem
sannarlega er mjög fjölbreytt, þarf
að vera í stöðugri þróun,“ segir
Friðrik Rafnsson sem starfað hefur
við leiðsögn, jafnhliða þýðingum,
frá árinu 1988.
Öryggismál og umgengni
Kjarnagreinar í leiðsögunámi eru
náttúrufræði, saga og samfélags-
greinar svo þau sem leiðsegja séu í
góðum færum að greina frá því sem
ætla má að ferðalangar vilji vita um
land og þjóð.
Nám í leiðsögu býðst nú við
Endurmenntun Háskóla Íslands og
Ferðamálaskóla Íslands í Kópa-
vogi, auk þess sem fleiri stofnanir
eru að færa sig inn á þessa braut.
„Nú þarf að taka í ríkari mæli inn í
námið þætti eins og öryggismál og
umgengni við landið, svo viðkvæm
er náttúra Íslands. Einnig þarf
að mínu mati að fjalla meira um
menningu landsins, því æ fleiri, og
þá sérstaklega unga fólkið, koma
hingað eftir að hafa heillast af
bókum íslenskra höfunda eins og
Arnaldar eða Ragnars Jónassonar,
hlustað á Björk eða GusGus eða séð
áhugaverðar íslenskar bíómyndir.“
Meðal þeirra sem ávörpuðu
hátíðarfund Leiðsagnar var
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður
Samtaka ferðaþjónustunnar. Í tölu
sinni fór hún yfir vöxt og viðgang
atvinnugreinarinnar á síðustu ára-
tugum og rifjaði upp að 1972, árið
sem Leiðsögn var stofnuð, komu
68.000 ferðamenn til Íslands. Þeim
hafi í sumum tilvikum verið sinnt
og veittur beini með afar frjálsleg-
um hætti – jafnvel á einkaheimilum
fólks. Í hægum skrefum á löngum
tíma hafi greinin svo þróast og
fólki frá útlöndum sem til Íslands
kom að sjá og njóta fjölgað. Reikna
megi með að ferðamenn sem til
landsins koma á næsta ári verði um
tvær milljónir, það er svipað og var
fyrir heimsfaraldur. Margt af þessu
fólki sé í hópferðum og í þeim eru
leiðsögumenn í aðalhlutverki, segir
Bjarnheiður.
Andlit Íslands
„Fimm stjörnu gisting og
Michelin-stjörnumáltíðir bjarga
ekki málunum, ef leiðsögnin er ekki
nógu góð. Á sama hátt má segja að
ef eitthvað vantar upp á varðandi
gæði annarra þátta, s.s. í gistingu
– eða ef veðrið er brjálað þá getur
góður leiðsögumaður bætt það upp
og rúmlega það,” segir Bjarnheiður.
Hún segist á sínum ferli í ferðaþjón-
ustu hafa unnið með miklum fjölda
leiðsögumanna sem séu mikilvægir
til að tryggja gæði hópferðar.
„Leiðsögumenn eru andlit Íslands
gagnvart erlendum gestum, þeir
eru sendiherrar, þeir eru öryggis-
fulltrúar, þeir eru verðir náttúr-
unnar og umhverfisins, þeir túlka
náttúruna, þeir eru upplýsingafull-
trúar, þeir eru leiðtogar, mála-
miðlarar, þurfa að vera frábærir
í samskiptum, læsir á menningu
og menningarmun, þurfa að vera
útsjónarsamir, stundvísir, fróðir um
sögu, menningu, stjórnmál, landa-
fræði, jarðfræði, samfélagsmál,
jurtir og dýralíf og bara um allt á
milli himins og jarðar og ofan á allt
þetta helst afburðaskemmtilegir.
Leiðsögn um Ísland er sem sagt
gæðamál – og gæðamál eru einmitt
það sem við þurfum að setja á
oddinn,“ sagði Bjarnheiður.
lFimmtíu ára fagfélag í ferðaþjónustunnilTímamótumvar fagnaðlMenningin heillar og er
sterkt aðdráttarafllNámog starf sé í stöðugri þróunlGæðamálin þurfa að koma sterk inn
Leiðsögumenn eru í lykilhlutverki
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Stofnfélagar Frumherjar í íslenskri leiðsögn voru heiðraðir á tímamótum. Á myndinni eru frá vinstri talið:
Halldóra Guðmundsdóttir, Sigríður Pálmadóttir, Valdís Blöndal, Elínborg Stefánsdóttir, Kjartan Lárusson,
Eyþór Heiðberg, Geirlaug Þorvaldsdóttir, Pétur Urbancic og Elísabet Brand. Lengst til hægri er Friðrik Rafnsson.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Ferðamenn Á rölti í miðborg Reykjavíkur að lifa og njóta á góðum degi.
Friðrik
Rafnsson
Bjarnheiður
Hallsdóttir
Veistu um góðan
rafvirkja?
FINNA.is