Morgunblaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 32
FRÉTTIR Erlent32 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 Bláu húsin v/Faxafen, sími 553 7355, vefverslun selena.is Vefverslun selena.is Frábært úrval af Modal náttfötum Trump býður sig fram á nýjan leik lRonDeSantis sagður helsta ógnin Donald Trump fyrrverandi Banda- ríkjaforseti tilkynnti í fyrrinótt að hann hygðist bjóða sig fram að nýju til forseta Bandaríkjanna, en kosið verður í nóvember 2024. „Endurkoma Bandaríkjanna hefst núna,“ sagði Trump í ræðu sinni í Mar-a-Lago, þar sem hann tilkynnti framboðið að viðstöddum stuðn- ingsmönnum sínum. Skaut Trump föstum skotum að eftirmanni sínum á forsetastóli, Joe Biden, og sagði markmið sitt að tryggja að hann næði ekki endur- kjöri. Óvanalegt er að forsetaframboð sé tilkynnt svo snemma í kosninga- ferlinu, en nú er nýlokið kosningum á miðju kjörtímabili Bidens, þar sem repúblikanar náðu ekki þeim árangri sem skoðanakannanir höfðu bent til. Þegar er ljóst að demókratar munu halda meirihluta sínum í öldungadeild Bandaríkjaþings, en repúblikanar voru búnir að tryggja sér 217 þingsæti í fulltrúadeildinni í gær. Vantar þá þar með einungis eitt þingsæti í viðbót til þess að ná meirihlutanum í deildinni, en telja þarf áfram í nokkrum kjördæmum í Arizona, Colorado og Kaliforníu. Stjórnmálaskýrendur vestan- hafs segja að framboðstilkynning Trumps nú sé m.a. tilraun til þess að fæla aðra vonbiðla repúblikana frá framboði, þar sem Trump þykir enn njóta mikils stuðnings meðal grasrótar flokksins. Er þar helst bent á Ron DeSantis ríkisstjóra Flórída, en hann náði góðum árangri í kosningunum nú, ólíkt mörgum öðrum repúblikönum. Þá er talið að Mike Pence, fyrrver- andi varaforseti Trumps, öldunga- deildarþingmaðurinn Ted Cruz og Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu, hafi einnig fram- boð í hyggju. AFP/Alon Skuy Framboð Trump ásamtMelaniu konu sinni eftir tilkynninguna. ríkjunum og er notað af bæði Rússum og Úkraínumönnum. Vilja taka þátt í rannsókninni Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagðist hins vegar í gær ekki vera í neinum vafa um að eldflaugin hefði ekki komið frá Úkraínumönnum. Sagði Selenskí að samkvæmt upplýs- ingumÚkraínuhers teldi hann öruggt að um rússneska eldflaug hefði verið að ræða. Þá sagði Selenskí að Úkraínumenn hefðu ekki séð nein sönnunargögn þess efnis að flaugin hefði komið frá þeim, en Oleksí Danilov, ritari þjóðaröryggisráðs Úkraínu, greindi frá því í gær að Úkraínumenn hefðu óskað formlega eftir því að taka þátt í rannsókn málsins, sem nú er á hendi Pólverja og Bandaríkjamanna. Sagði Danilov að úkraínsk stjórn- völd væru reiðubúin til þess að af- henda gögn sem þau teldu sýna að Rússland bæri ábyrgð á atvikinu, en hann ætti nú von á upplýsingum frá bandamönnum sínum í vestri um þær fullyrðingar að eldflaugin hefði komið frá Úkraínu. Rússar neita allri sök Leiðtogafundi G20-ríkjanna í Balí lauk í gær, en leiðtogar vesturveld- anna á fundinum héldu neyðarfund ummálið í gærmorgun eða í fyrrinótt að íslenskum tíma. Joe Biden Banda- ríkjaforseti sagði eftir fundinn að það væri „ólíklegt“ að Rússar hefðu skot- ið eldflauginni, en rannsókn þyrfti að leiða sannleikann í ljós áður en ákvarðanir væru teknar um næstu skref. Dmítrí Peskov talsmaður Rússlandsforseta hrósaði Banda- ríkjastjórn í kjölfarið fyrir „íhugul og fagmannleg viðbrögð“ við atvikinu, en Rússar hafa þvertekið fyrir að þeir beri nokkra ábyrgð á sprengingunni í Póllandi. Hélt rússneska varnarmála- ráðuneytið því fram í gær að loftárás- ir þeirra í fyrradag hefðu einungis beinst að skotmörkum innanÚkraínu og hvergi nær en 35 kílómetrum frá landamærum Póllands að landinu. Olaf Scholz Þýskalandskanslari var hins vegar ekki reiðubúinn til þess að fría Rússa ábyrgð á atvikinu, sama hvort eldflaugin hefði verið úkraínsk eða rússnesk. Sagði hann mikilvægt að gera það „skýrt að þetta hefði ekki gerst nema vegna stríðs Rússa gegn Úkraínu, án eldflauganna sem eru stöðugt og í stórum stíl skotið á inn- viði Úkraínu“. Sagði Scholz einnig ljóst af fundi G20-ríkjanna að Vlad- imír Pútín Rússlandsforseti stæði nær einn þegar kæmi að Úkraínu- stríðinu. Samþykktu leiðtogar vestur- veldanna á fundinum ályktun þar sem þeir fordæmdu harðlega eldflauga- árásir Rússa á Úkraínu. Christian Thiels, talsmaður þýska varnarmálaráðuneytisins, sagði svo í gær að Þjóðverjar gætu sent orr- ustuþotur sínar til Póllands til þess að aðstoða Pólverja við að gæta loft- helgi sinnar, og að það gæti byrjað frá og með deginum í dag ef pólsk stjórnvöld óskuðu eftir því. Myndu þýsku þoturnar fljúga frá bækistöðv- um sínum í Þýskalandi til loftrýmis- gæslunnar. Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sagði í gær að frumrannsókn á sprengingunni í Póllandi í fyrradag benti til þess að hún hefði líklega verið af völdum loftvarnaflaugar, sem Úkraínumenn hefðu skotið á loft til að verja sig gegn rússneskum stýriflaugum. Stolten- berg tók fram að enn væri verið að rannsaka málið, og að bíða þyrfti niðurstöðu hennar. „En við sjáum engin merki þess að þetta hafi verið viljandi árás,“ sagði Stoltenberg. Hann stýrði í gær neyðarfundi fastafulltrúa bandalagsríkjanna í Brussel, þar sem farið var yfir stöðuna, en óttast var í fyrstu að rússneskar eldflaugar hefðu valdið sprengingunni, sem varð tveimur Pólverjum að bana. Stoltenberg sagðist vilja taka sér- staklega fram að atvikið væri ekki Úkraínumönnum að kenna, heldur bæru Rússar þar endanlega ábyrgð með ólöglegum stríðsrekstri sínum í Úkraínu, en þeir skutu um hundrað eldflaugum á borgaraleg skotmörk í Úkraínu í fyrradag. „Óheppilegt slys“ Andrzej Duda forseti Póllands tók í sama streng og Stoltenberg, en Pólverjar höfðu kallað eftir neyðar- fundinum í gær, og íhuguðu pólsk stjórnvöld einnig að virkja 4. grein Atlantshafssáttmálans, sem kveður á um að sérhvert bandalagsríki geti óskað eftir formlegu samráði þegar landsvæði, sjálfstæði eða öryggi þess er ógnað. Þess mun ekki vera talin þörf í þessu tilfelli. Sagði Duda líkt og Stoltenberg að ekkert benti til þess að um viljandi árás á Pólland hefði verið að ræða, og að sökin lægi ekki hjá Úkraínumönn- um. Sagði Duda að það væri mjög líklegt að Úkraínumenn hefðu skot- ið á loft loftvarnaeldflaug frá tímum Sovétríkjanna og að um „óheppilegt slys“ hefði verið að ræða. Myndir frá staðnum þar sem eldflaugin lenti sýndi brak, sem sumir sérfræðingar töldu að kæmi frá S-300-loftvarna- kerfinu, sem á uppruna sinn í Sovét- Sprengingin talin vera óviljaverk lPólverjar og NATO segja líklegast að um úkraínska loftvarnaflaug hafi verið að ræðalDuda segir Rússa bera endanlega ábyrgð á mannfallinulÞjóðverjar bjóða Pólverjum aðstoð við loftrýmisgæslu Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is AFP/Pólska lögreglan Rannsókn Pólskir lögreglumenn sjást hér rannsaka ummerkin eftir sprenginguna í Przewodów í fyrradag. UTANRÍKISMÁLANEFND ALÞINGIS Mikilvægt að sýna hófstillingu Bjarni Jónsson, formaður utan- ríkismálanefnd- ar Alþingis, sagði í gær í samtali við mbl. is að mikilvægt væri að sýna hófstillingu í viðbrögð- um vegna sprengingarinnar í Póllandi. Nefndin fundaði í gær með fulltrú- um utanríkisráðuneytisins til þess að afla sér upplýsinga um málið. Sagði Bjarni að áhersla Pólverja og annarra lykilaðila væri á að komast til botns í því hvað hefði gerst. „Við virðumst vera að fær- ast fjær því að þarna hafi verið um meðvitaða árás Rússa að ræða en auðvitað væri þetta ekki að gerast ef það væri ekki vegna innrásar Rússlands í Úkraínu og þetta eru afleiðingar þess með einum eða öðrum hætti,“ sagði Bjarni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar óskaði eftir fundi í nefndinni með utanríkis- ráðherra, sem er nú erlendis. Er stefnt að því að nefndin fundi með forsætisráðherra í dag. Bjarni Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.