Morgunblaðið - 17.11.2022, Blaðsíða 44
✝
Jóhanna Rakel
Jónasdóttir
fæddist 6. ágúst
1935 í Vetleifsholti
í Holtum. Hún lést
á Hrafnistu Sléttu-
vegi 8. nóvember
2022.
Foreldrar henn-
ar voru Jónas
Kristjánsson bóndi
í Vetleifsholti, f.
19.5. 1894, d. 4.12.
1941, og Ágústa Þorkelsdóttir
húsmóðir í Vetleifsholti, f.
19.8. 1896, d. 30.6. 1974. Systk-
ini Jóhönnu Rakelar eru: Sig-
ríður, f. 1925, d. 2016, Þorkell,
f. 1926, d. 1927, Margrét Jóna,
f. 1927, d. 2020, Gerður Þór-
katla, f. 1929, d. 2021, Áslaug,
f. 1932, d. 2015, Gunnar Krist-
ján, f. 1930, d. 1953, Þórunn, f.
1931, d. 2012, Lárus, f. 1933, d.
2012, Ingólfur Gylfi, f. 1937, d.
2000, Auður Ásta, f. 1939.
Jóhanna Rakel ólst upp í
Vetleifsholti í Holtum til sex
ára aldurs, þegar faðir hennar
börn og 10 barnabörn; Jónas,
f. 12.9. 1959, sem á þrjú börn
og tvö barnabörn; Hávarður, f.
17.6. 1961, sem á tvö börn;
Dóra, f. 7.1. 1965, sem á tvö
börn; og Ólöf Rún, f. 12.9.
1966, sem á þrjú börn og tvö
barnabörn. Jóhanna Rakel átti
fyrir eina dóttur, Helgu Stol-
zenwald, f. 29.11. 1954, d.
15.10. 2016, þegar þau
Tryggvi kynntust sem Tryggvi
gekk í föðurstað. Helga eign-
aðist fimm börn og á samtals
38 afkomendur. Jóhanna Rakel
eignaðist 74 afkomendur í
fimm ættliðum.
Jóhanna Rakel undi vel sínu
hlutverki sem húsmóðir og
móðir sex barna og var oft
margt um manninn á heimili
þeirra hjóna á Háaleitisbraut-
inni. Jóhanna Rakel starfaði
lengst af sem saumakona, eða
til ársins 2020, og var hús-
móðir með stórt heimili, þar
sem allur fatnaður var saum-
aður á börnin og maturinn bú-
inn til heima fyrir. Hún var
einnig frístundabóndi með
hænur og kartöfluræktun með
eiginmanni sínum á Selásbletti
þar sem nú er Norðlingaholtið.
Jóhanna Rakel verður jarð-
sungin í Fossvogskirkju í dag,
17. nóvember 2022, kl. 13.
lést langt um ald-
ur fram. Fjöl-
skyldan fluttist á
Hellu og þurfti
móðir hennar að
senda mörg barn-
anna í fóstur og
fór Jóhanna Rakel
aðeins átta ára
gömul í vist til
hjóna í Reykjavík,
þar sem hún
stundaði nám í
Miðbæjarskólanum.
Hún flutti aftur á Hellu,
lærði saumaskap, en flutti
1954, ung einstæð móðir, til
Reykjavíkur með móður sinni
Ágústu og vann við saumastörf
þar til hún kynntist Tryggva
Þorvaldssyni bílstjóra og frí-
stundabónda, f. 6.11. 1917, d.
8.6. 1994. og hóf búskap með
honum í Reykjavík. Þau gengu
í hjónaband 1961.
Jóhanna Rakel og Tryggvi
eignuðust fimm börn saman á
níu árum, þau eru: Ingólfur
Helgi, f. 15.7. 1957, sem á átta
Elsku amma mín. Þú hefur
fengið hvíldina löngu. Ég á svo
margar minningar um þig úr
æsku þar sem ég var svo mikið
hjá þér bæði í pössun og í heim-
sókn. Það leið varla sá dagur sem
ég leit ekki við á Háaleitisbraut-
inni og alltaf var mikið af fólki í
heimsókn. Við áttum marga góða
tíma saman, hvort sem það var að
spila, horfa á bíómyndir eða úti í
labbitúr að tína dósir.
Þú kenndir mér góðar dyggðir
eins og kurteisi, þrautseigju og
þolinmæði. Við sátum oft lengi að
spila spil á borð við ólsen-ólsen,
lönguvitleysu og rommí. Þar kom
Háaleitisþrjóskan í ljós og ekkert
var gefið eftir. Ég fékk líka mjög
ungur að árum að prófa að
drekka kaffi með kandísmolum
og það þótti mér mikið sport.
Í seinni tíð kom ég reglulega í
heimsókn og við spjölluðum um
heima og geima og ég lagði fyrir
þig alls konar spurningaþrautir á
meðan þú varst að sauma hinar
og þessar flíkur fyrir fólk. Síðan
fórum við yfir svörin og kíktum
hvernig gekk. Þú varst algjör
töfrakona í höndunum og það var
alltaf fundin lausn á málinu þeg-
ar fólk kom með flíkurnar sínar
til þín. Man eitt sinn þegar við
spjölluðum saman að þú sagðir
að þig langaði alltaf svo í gulan bíl
þrátt fyrir að þú værir löngu
hætt að keyra.
Þú varst alltaf svo ótrúlega þol-
inmóð og góð þrátt fyrir það hvað
við krakkarnir sem vorum í heim-
sókn vorum oft uppátækjasöm.
Manni leið alltaf vel heima hjá þér
á Háaleitisbrautinni, það var svo
góð ára yfir heimilinu þínu.
Ég er þér þakklátur fyrir allt
amma mín. Hugsa mikið til þín.
Þinn
Daníel.
Jóhanna Rakel
Jónasdóttir
✝
Jósefína E.
Hansen fædd-
ist 4. ágúst 1956 á
Sauðárkróki. Hún
lést 5. nóvember
2022 á Heilbrigð-
isstofnun Norður-
lands á Sauðár-
króki.
Foreldrar henn-
ar voru Regína
Vilhelms, f. 3.4.
1931, d. 19.10.
2019, og Erlendur Hansen, f.
26.8. 1924, d. 26.8. 2012. Mað-
ur hennar er Tryggvi G. Ey-
mundsson, f. 8.10. 1940. Dóttir
þeirra er Regína Petra
Tryggvadóttir, f. 30.4. 1991.
Hennar maki Ingi
Valur Haraldsson,
f. 26.3. 1991, d.
22.2. 2022, sonur
þeirra er Haraldur
Tryggvi Ingason,
f. 18.11. 2021.
Jósefína, eða
Jósa eins og hún
var oftast kölluð,
stundaði sveita-
störf á Sævarlandi
allan sinn aldur
auk þess sem hún vann í ígrip-
um í frystihúsi og sláturhúsi á
Sauðárkróki.
Útförin fer fram frá Sauðár-
krókskirkju í dag, 17. nóv-
ember 2022,kl. 15.
Það var árvisst á hverju sumri í
mörg ár að fara í heimsókn á Sæv-
arland þegar ég var krakki. Það
var alltaf tilhlökkunarefni og mik-
ið ævintýri. Það þurfti að fara yfir
óbrúaða Laxána og fyrstu árin
þegar við vorum á fólksbíl var viss-
ara að Gummi væri til taks á trak-
tornum hinum megin við ána.
Það var alltaf alúðlega tekið á
móti okkur og mikil gestrisni þó
nóg væri að gera hjá heimilisfólk-
inu en við bara í fríi. Við dvöldum
alltaf marga daga og sváfum í
tjaldi þangað til byggt var við hús-
ið. Mér fannst Baldey alltaf vera í
eldhúsinu frá morgni til kvölds að
reiða fram mat eða kaffiveitingar
sem iðulega virtist vera nóg til af.
Gummi Rósi, afi minn, var bróðir
Baldeyjar og var kært með þeim
þó þau kynntust ekki fyrr en á full-
orðinsárum. Það var stutt á milli
mömmu og Regínu sem áttu alltaf
í mjög góðu sambandi.
Á Sævarlandi var rekinn sjálfs-
þurftarbúskapur. Mjólkin var not-
uð til heimilisins, unninn rjómi og
smjör og reykt bæði kjöt og fiskur.
Við fengum til fjölda ára að njóta
hins afbragðsgóða hangikjöts sem
sent var suður um hver jól.
Það var spennandi að fá að
veiða í ánni sem mátti gera hve-
nær sem var þangað til stofnað var
veiðifélag. Við komum alltaf með
lager af maðki þannig að við gæt-
um skilið eftir fyrir Gumma sem
Jósefína
E. Hansen
var sá sem sinnti veiðiskapnum.
Einnig sendi pabbi stundum
maðka norður sem fengu dulnefn-
ið hulstur eftir að ein maðkasend-
ingin þornaði. Gummi vildi síður
ræða um maðka í opna sveitasím-
ann heldur óskaði eftir að fá send
hulstur. Það var líka ævintýri að
fara niður í fjöru þar mátti m.a.
finna steina og skeljar, dýrgripi
sem fluttir voru suður.
Jósa fékk auðvitað það hlutverk
að sinna frænda en ég var tveimur
árum yngri svo við gátum alveg
leikið saman. Þó hún hefði ein-
hverjum skyldum að gegna gat ég
fylgt með og jafnvel stundum
hjálpað til með kýrnar, rakað eða
elt kindur í túninu. Mér þótti mikið
til Jósu koma sem kunni skil á fjöl-
mörgu sem var framandi fyrir
borgarstrákinn og það var alltaf
mikil væntumþykja á milli okkar.
Eftir að ég varð fullorðinn
minnkuðu samskiptin eins og
gengur en við komum í heimsókn
með Hrafnhildi okkar líklega
fimm ára og Regína Petra ári
eldri. Þær léku vel saman en ég
man að okkur þótti gestrisnin
ganga heldur langt þegar heima-
sætan vera látin gefa fullmikið eft-
ir fyrir borgarstúlkunni. Líkt og
áður var gert vel við okkur og sér-
staklega er minnisstæður dýrind-
islax sem var eldaður eins og á fín-
ustu veitingastöðum.
Sævarland og heimilisfólkið á
sérstakan sess hjá mér og ég á
margar ánægjulegar minningar.
Ég votta Regínu Petru,
Tryggva og Haraldi Tryggva inni-
lega samúð.
Þórólfur Jónsson.
Mig langar að minnast Jósefínu
frænku minnar með ljóði föðurafa
okkar sem mér finnst svo fallegt.
Ætti ég hörpu hljómaþýða,
hreina, mjúka gígjustrengi,
til þín mundu lög mín líða,
leita þín, er einn ég gengi.
Viltu, þegar vorið blíða
vefur rósir kvölddögginni,
koma til mín, kvæði hlýða,
kveðja mig í hinzta sinni.
Lífið allt má léttar falla,
ljósið vaka í hugsun minni,
ef ég má þig aðeins kalla
yndið mitt í fjarlægðinni.
Innsta þrá í óskahöllum
á svo margt í skauti sínu.
Ég vildi geta vafið öllum
vorylnum að hjarta þínu.
(Friðrik Hansen)
Þó svo að við hefðum verið ná-
skyldar og feður okkar nánir
bræður kynntist ég Jósu ekki fyrr
en við vorum komnar vel á fullorð-
insár. Þegar við hittumst var eins
og við hefðum alltaf þekkst. Jósa
var ein duglegasta kona sem ég
hef kynnst. Gekk í öll störf á bæn-
um hvort sem var úti eða inni.
Einu sinni þegar ég átti leið um
Skagafjörðinn var hún í þakvið-
gerðum á bóndabænum. Jósa var
svo áræðin og kjarkmikil og tókst
af krafti á við öll verkefni. Mikill
gestagangur var á heimilinu alla
tíð, enda var hún ákaflega gestris-
in og höfðingi heim að sækja. Þeg-
ar komið var í heimsókn var öllu
tjaldað til eins og drottningin væri
á ferðinni. Ótal kökur og kræsing-
ar dregnar fram svo borð svign-
uðu. Það var virkilega gaman að
heimsækja Jósu og fjölskyldu
hennar. Var þá mikið spjallað og
hlegið. Jósa var orðheppin og
skemmtileg og það var gaman að
vera í návist hennar. Jósa unni
jörðinni Sævarlandi af öllu hjarta.
Hún ólst þar upp á jörð móðurfjöl-
skyldu sinnar og fannst það besti
staður á jarðríki. Jósa veiktist af
krabbameini og tókst á við veik-
indin af æðruleysi og þrautseigju.
Tengdasonur Jósu varð bráð-
kvaddur fyrr á árinu og var það
henni þungbær missir. Ljósið í
myrkrinu var litli dóttursonur
hennar, Haraldur Tryggvi, sem
gaf Jósu bros og hlýju og hún naut
þess að fylgjast með honum þrosk-
ast og dafna. Mig langar að senda
innilegar samúðarkveðjur til
Tryggva eiginmanns Jósu og Reg-
ínu Petru dóttur þeirra. Megi al-
mættið umvefja ykkur með hugg-
un og styrk á þessum erfiða tíma.
Jósu þakka ég dýrmætar sam-
verustundir.
Kristín Edda
Ragnarsdóttir.
44 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022
- Fleiri minningargreinar
um Jósefínu E. Hansen bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGURLAUG GÍSLADÓTTIR
Fjallalind 6, Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
9. nóvember í faðmi fjölskyldunnar.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 21. nóvember
klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið. Streymt verður frá athöfn á slóðinni
https://seljakirkja.is/seljasokn/streymi
Hlekk á streymi má einnig nálgast á mbl.is/andlat
Þorvaldur Helgi Benediktsson
Halldóra Þorvaldsdóttir Ronny Thorød
Matthildur Þorvaldsdóttir Agnar Steinarsson
Þórunn Helga Þorvaldsdóttir Jóhann Böðvarsson
Guðmundur S. Þorvaldsson Jóhanna G. Þórisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
ÖRN SVEINBJARNARSON
múrarameistari og matstæknir,
Háulind 18, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
þriðjudaginn 8. nóvember.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 18. nóvember
klukkan 13. Þeir sem vilja minnast hans leggi Ljósinu lið.
Guðrún Ólöf Guðmundsdóttir
Björk Arnardóttir Ingimundur Magnússon
Hrönn Arnardóttir Haukur Ísfeld Ragnarsson
Magnús Bergmann Jónasson
Birgitta Saga Jónasdóttir
Örn Vikar Jónasson
Harpa Hauksdóttir
Júlía Hauksdóttir
Elskuleg móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
HREFNA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Skúlagötu 20, Reykjavík,
sem lést þriðjudaginn 8. nóvember á
hjúkrunar- og dvalarheimilinu Móbergi
Selfossi, verður jarðsungin frá Hveragerðiskirkju mánudaginn
21. nóvember og hefst athöfnin klukkan 13.
Jarðsett verður í Kotstrandarkirkjugarði.
Útförinni verður streymt á vefsíðunni promynd.is/hrefnag
Björn Sigurðsson Vilborg Sigurðardóttir
Guðjón Sigurðsson Vera Ósk Valgarðsdóttir
Guðmundur Rafn Sigurðss. Gígja Baldursdóttir
Atli Már Sigurðsson Auður Haraldsdóttir
Sigurður Valur Sigurðsson
Kristján Örn Sigurðsson Kristín Kristmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞÓRHALLUR AÐALSTEINSSON,
byggingafræðingur
og húsasmíðameistari,
lést mánudaginn 31. október.
Útförin fer fram frá Lindakirkju mánudaginn
21. nóvember klukkan 13.
Svanhildur Sigurjónsdóttir
Aðalsteinn Þórhallsson Gyða Þ. Guttormsdóttir
Sigurjón Þórhallsson
Jóhanna Katrín Þórhallsd. Davíð Örvar Hansson
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRETHE KRISTINSSON
Naustahlein 21, Garðabæ,
lést á heimili sínu 9. nóvember.
Útförin fer fram frá Garðakirkju mánudaginn
21. nóvember klukkan 13.
Björn U. Sigurbjörnsson Bjargey Einarsdóttir
Anna G. Sigurbjörnsdóttir Sævar G. Jónsson
Edda B. Sigurbjörnsdóttir Eiríkur Benediktsson
Helga S. Sigurbjörnsdóttir Rúnar J. Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn