Morgunblaðið - 17.11.2022, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 17.11.2022, Qupperneq 45
Elskuleg móðir okkar, amma og langamma, INGVELDUR BJÖRNSDÓTTIR frá Kílakoti, Kelduhverfi, verður jarðsungin frá Áskirkju mánudaginn 21. nóvember klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta SOS Barnaþorpin njóta þess. Bergþór Ingi Leifsson Guðrún Birna Guðmundsdóttir Agnar Bragi Guðmundsson Hulda Lilja Guðmundsdóttir Björn Rúnar Guðmundsson makar, barnabörn og barnabarnabörn ✝ Þórður Rúnar Valdimarsson fæddist í Hafnar- firði 11. júlí 1947. Hann lést á Tener- ife 27. október 2022. Foreldra hans voru Valdimar Sig- urðsson, f. 5. feb. 1923, d. 14. nóv. 1983, og Ásdís Brynný Þórðar- dóttir, f. 1. okt. 1923, d. 27. mars 1993. Systur hans eru Sigríður Valdimarsdóttir, f. 1953, og Ragna Valdimarsdóttir, f. 1958. Þann 5. nóv. 1967 kvæntist hann Svanhildi Ísleifsdóttur, f. 7. nóv. 1945. Foreldrar hennar voru Ísleifur Pálsson, f. 23. okt. 1912, d. 14. mars 1972, og Guðný Gunnhildur Guðmundsdóttir, f. 26. sept. 1912, d. 4. feb. 1996. 3) Guðný Hrund Þórðardóttir, f. 1975, maki Sigurður Örn Arn- arson, f. 1975, eiga þau tvær dæt- ur: a) Sandra Ósk, f. 1998, unn- usti hennar er Þorbergur Ólafsson. b) Emilía Ósk, f. 2005. Þórður fæddist á Hringbraut 52 í Hafnarfirði. Hann bjó alla sína ævi í Hafnarfirði, lengst af á Klausturhvammi 6 sem hann byggði ásamt fjölskyldu sinni en síðustu árin bjó hann í Lækjar- götu 32. Þórður gekk í Barnaskóla Hafnarfjarðar, tók svo unglinga- próf í Flensborgarskóla. Útskrif- aðist hann sem framreiðslumað- ur frá Hótel Borg árið 1966 og starfaði hann sem þjónn á Hótel Borg, Lídó og á Skiphól. Hætti hann að starfa sem þjónn 1983 og fór að vinna í Skipasmíðastöðinni Dröfn. Þegar henni var lokað lá leiðin í Sundhöll Hafnarfjarðar þar sem hann vann í 20 ár eða þar til hann hætti og fór á eft- irlaun. Síðustu árin mætti hann reglulega í Suðurbæjarlaugina. Útför Þórðar verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 17. nóvember 2022, kl. 13. Þórður og Svan- hildur eiga þrjár dætur: 1) Ásdís Þórðar- dóttir, f. 1966, gift Herði Davíð Harð- arsyni, f. 1964, eiga þau fjögur börn: a) Hildur Kathleen Harðardóttir, f. 1989, gift Fannari Frey Guðmunds- syni, f. 1986, eiga þau Hörð Frey, f. 2011, og Emblu Ey, f. 2013. b) Alexandra Hödd, f. 1991. c) Bjarki Rúnar, f. 1996, unnusta hans er Anna Kristín Hrafnkelsdóttir. d) Snædís Helma, f. 2001. 2) Þórhildur Þórðardóttir, f. 1970 gift Hafsteini P. Vattnes, f. 1968, eiga þau tvær dætur: a) Svana Dís, f. 1996. b) Tinna Rut, f. 2001. Elsku pabbi. Hver á núna að elda steikina og búa til bestu brúnu sósuna í há- deginu á sunnudögum? Ekki grunaði okkur að sunnu- daginn 2. okt. væri síðasti sunnu- dagsmaturinn hjá okkur fjöl- skyldunni með þér. Við munum að Hörður Freyr, barnabarnið þitt, sagði: „Afi, þessi sósa fær 10 í einkunn – besta sósa í heimi.“ Nú verðum við systur að reyna að mastera afasósu sjálfar. Þegar við systur vorum yngri var ferðast innanlands og oftast með tjald og seinna með fjöl- skyldutjaldvagninum sem stór- fjölskyldan keypti. Bílarnir á þessum tímum voru kannski ekki alltaf upp á sitt besta og munum við eftir að í eitt skipti þá sauð á bílum uppi á einhverri heiði og þurfti pabbi að labba langa leið til að fá vatn á bílinn og svo var hökt í næsta bæ til að láta gera við bíl- inn. Og ekki var slegið slöku við ferðalögin þótt fjölskyldubílinn væri Trabant deluxe þegar bygg- ingarframkvæmdir voru í gangi. Ekki var alltaf sól í þessum ferð- um, stundum vöknuðum við fjöl- skyldan öll rennandi blaut því tjaldið hélt kannski ekki alveg vatni og vorum heppin ef það var ekki fokið líka. Ekki vorum við alltaf glaðar með þessar ferðir á sínum tíma en núna eru þetta góð- ar minningar til að rifja upp þegar við þurfum að kveðja pabba. Sunnudagsrúnturinn hjá okkur fjölskyldunni var alltaf sá sami en það var bryggjurúntur og bátar af ýmsum stæðum og gerðum skoð- aðir og alltaf fannst okkur systr- um pabbi keyra aðeins of nálægt bryggjubrúninni, en svo var splæst í ís eða farið í kaffi til ömmu og afa á Hringbraut. Árið 1982 ákváðu pabbi og mamma að fara að byggja á Klausturhvammi og þá voru allir virkjaðir í störf þar sama á hvaða aldri við vorum. Skafa timbur, raða í stafla og sópa, þar var pabbi verkstjórinn á staðnum. Þegar barnabörnin fæddust eitt af öðru þá var pabbi að vinna í Sundhöll Hafnarfjarðar eða í afa sundi eins og krakkarnir kölluðu laugina. Þá fórum við mjög oft með krakkana á laugardags- morgnum og fengum bestu þjón- ustu sem hægt er að fá í sundlaug. Seinni árin ferðuðust pabbi og mamma mikið til Spánar, aðallega Costa del Sol og Kanarí, þar sem honum fannst best að vera í hita og sól. Þar kvaddi hann þetta líf brúnn og sællegur og örugglega ánægður með að fá að fara í sum- arlandið beint frá Spáni. Hvíldu í friði, elsku pabbi. Þínar dætur, Ásdís (Dísa), Þórhildur (Tóta) og Guðný. Elsku afi, en það er það hlut- verk sem þú gegndir alltaf í mínu lífi, verandi yngst í frændsystk- inahópnum og nær barnabörnun- um þínum í aldri en frændsystk- inum mínum. Ég náði aldrei að kynnast afa Valla og var ansi lítil þegar amma Dísa lést. Þú og amma Svana voruð og eruð mín amma og afi og hafið alltaf hugsað um mig á þann hátt. Þegar ég hugsa til þín koma ótal margar minningar upp, en það sem stendur sérstaklega upp úr þessa dagana er sumarið þegar ég var sex ára og á sundnám- skeiði. Fyrir sex ára barn er leiðin frá Suðurbæjarlauginni og heim til ömmu og afa „í grænu blokk“ ansi löng, en vitandi af þér að bíða eftir mér fékk mig oftast til að greikka sporið, aðallega af því að þú hneykslaðist alltaf á því hvað ég gat verið lengi á leiðinni, eins og þér einum var lagið. En alltaf tókst þú vel á móti mér með góð- um hádegisverði. Þú varst alveg frábær kokkur og það var alltaf til nóg af mat heima hjá ykkur ömmu. Þetta sumar áttum við ótal marga eftirmiðdaga bara við tvö ein, og held ég að við höfum bæði haft mjög gott og gaman af þess- um félagsskap hvort annars. Síðustu 12 árin hef ég búið er- lendis og á því ekki eins margar minningar frá þessum tíma og úr barnæskunni. En mér þykir svo vænt um að hafa náð að hitta þig tvisvar í síðustu Íslandsferðinni, og það bara tæpri viku áður en þú fellur svona skyndilega frá. Ég sé þig svo ljóslifandi fyrir mér í dyra- gættinni með ömmu að kveðja okkur Emil, sem var of upptekinn að faðma bílinn og flugvélina sem þið gáfuð honum til þess að geta veifað ykkur bless. Takk fyrir allan góða matinn, faðmlögin og að hafa gengið mér í „afastað“, fyrir mér segir það allt um þann mann sem þú hafðir að geyma. Minningin um góðan afa lifir. Valdís Ragna. Elsku besti afi okkar. Við erum enn að átta okkur á því að þú sért farinn frá okkur. Þetta var erfiður fimmtudags- morgunn, þegar við fengum þær fréttir að þú hefðir fallið frá á þín- um uppáhaldsstað í sólinni á Spáni. Minningarnar hafa rifjast upp síðustu daga um ljúfan og einstak- an mann. Þú lést yfirleitt lítið fyr- ir þér fara en varst alltaf til staðar fyrir okkur. Þú áttir alltaf sérstök sæti í veislum og það verður tóm- legt í komandi veislum að sjá þig ekki í sætunum þínum. Það voru ófáar, sundferðirnar, sem við fórum til þín í afasund- laug. Það að eiga afa sem vann í sundlaug var mjög skemmtilegt. Við nutum þess í botn að koma um helgar til þín í sund og koma með vini okkar þangað. Það er erfitt að hugsa til þess að við munum ekki koma í sunnu- dagshádegismat til þín. Það var hefð, frá því vorum lítil, að mæta alla sunnudaga í heitan hádegis- mat til þín eftir sunnudagaskól- ann með ömmu. Fólk sem þekkti ekki til fannst þess hefð mjög merkileg og skildi varla hvernig þú nenntir að elda heilu steikurn- ar fyrir hádegi á sunnudegi en fyrir þig var þetta ekkert mál. Þú bjóst til bestu heitu brúnu sósu sem hægt var að hugsa sér og enginn vissi uppskriftina að nema þú. Við munum samt reyna að ná að gera hana einn daginn. Með þessari sunnudagshefð hittist stórfjölskyldan alla sunnudaga, sem gerði hana mjög nána. Fyrir þessar minningar erum við mjög þakklát. Góða ferð elsku afi og við lofum að passa vel upp á ömmu fyrir þig. Þín barnabörn, Hildur Kathleen, Alexandra Hödd, Bjarki Rúnar og Snædís Helma. Nú er Þórður frændi fallinn frá og þá er gott að geta hugsað um allar skemmtilegu stundirnar sem við áttum með honum. Fjölskyld- an okkar hefur alltaf verið náin í gegnum tíðina og systkinin þrjú, Þórður, Sigga og Ragna, haldið vel systkinahópinn ásamt fjöl- skyldum sínum. Systkinin ferðuð- ust t.a.m. alla tíð mikið innanlands með okkur krakkana, í útilegur, sumarbústaði og svefnpokaað- stöðu. Við eigum margar góðar minningar úr skemmtilegum ferðalögum í appelsínugula tjald- vagninum. Mesta spennan var svo auðvitað að fá að vera með Svönu og Þórði í bíl, því þau áttu svo flottan Trabant og best var ef maður fékk að sitja í skottinu. Þórður og Svana voru einstaklega góð við okkur frændsystkinin enda fengum við bæði að gista hjá þeim langdvölum þegar foreldrar okkar fóru í utanlandsferðir og þá var glatt á hjalla hjá okkur. Stelp- urnar þeirra dekruðu við okkur og okkur leið einstaklega vel hjá þeim hjónum. Til að mynda var ein af óskum Daða þegar hann var lítill að verða „deitur eins og drændi“ og má segja að sú ósk hafi ræst á seinni árum. Frændi var mikill matmaður og voru þau hjón alltaf höfðingjar heim að sækja. Þau pössuðu alltaf upp á að maður færi saddur og sæll heim á leið. Á hverju ári skiptust systkinin á að bjóða heim um áramót og þá naut Þórður frændi sín vel enda framreiðslu- maður að mennt og veislurnar hjá þeim hjónum skipulagðar allt frá fordrykk að snakkinu með skaup- inu og freyðivínsskálinni um mið- nætti. Þvílíkt stuð sem var á þess- um stundum og við minnumst þeirra með hlýhug þar sem alltaf var hávær og glettin umræða um gæðin á skaupinu þegar því lauk. Elsku Svana, Dísa, Tóta, Guðný, makar, börn og barna- börn, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð og megi minningin um Þórð frænda lifa. Ingibjörg (Inga) og Daði. Þórður Rúnar Valdimarsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi, við erum mjög leið að þú sért farinn frá okkur. Við söknum þín mjög mikið. Það var gott að geta farið alltaf yfir til þín í næsta hús í heimsókn. Við eigum eftir að sakna þess að fá bestu sósu í heimi hjá þér. Við skulum passa ömmu fyrir þig. Þín langafabörn, Hörður Freyr og Embla Ey. MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 - Fleiri minningargreinar um Þórð Rúnar Valdimars- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig. Faðir okkar, tengdafaðir og afi, HILMAR LOGI GUÐJÓNSSON garðyrkjufræðingur, lést 9. nóvember á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Ísafold. Jarðarförin fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 18. nóvember klukkan 15:00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir. Bendum á Líknarsjóð Oddfellow-stúkunnar Snorra Goða IOOF. Kt. 691093 3369. Reikningsnúmer: 0515-14-003281. Helga Hilmarsdóttir Viðar Ágústsson Hafdís Hilmarsdóttir Bjarni Jón Jónsson Atli Logi og Unnur, Hilmar Daði, Sigrún Dís Ástkær eiginmaður minn, pabbi, tengdapabbi, sonur, bróðir og mágur, GUÐMUNDUR ERLENDSSON, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 12. nóvember. Útförin fer fram í kyrrþey. Fjölskyldan þakkar fyrir samúðarkveðjur og vinarhug. Jelena Stramkauskiene Erlendur Guðmundsson Þóra Sigríður Guðmundsdóttir Anna Sigríður Egilsdóttir og aðrir vandamenn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ALFREÐ HALLGRÍMSSON frá Lambanesreykjum, lést á heimili dóttur sinnar á Dalvík 3. nóvember. Jarðsungið verður frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 19. nóvember klukkan 11. Jarðsett verður að Barði í Fljótum. Fyrir hönd aðstandenda, Margrét Alfreðsdóttir Magnús S. Alfreðsson Þóranna S. Sverrisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIRÍÐUR ÁRNADÓTTIR, Inga, Sléttuvegi 17, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 7. nóvember. Jarðsett verður frá Bústaðakirkju mánudaginn 21. nóvember klukkan 13. Guðríður St. Sigurðardóttir Guðbrandur Sigurðsson Rannveig Pálsdóttir Einar Sigurðsson Antoníus Þ. Svavarsson Inga Rós, Ása Björk, Bragi Þór, Valdís Guðrún, Anna Katrín, Ragna Kristín, Ingi Hrafn, Sigurður Ingi, Valgeir Daði, Birkir Atli og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR VILHJÁLMSSON, fyrrverandi fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, Hegranesi 30, Garðabæ, lést á Landspítalanum sunnudaginn 6. nóvember. Útför fer fram í Garðakirkju þriðjudaginn 22. nóvember klukkan 13. Hólmfríður B. Friðbjörnsdóttir Hjördís Harðardóttir Örn Sveinsson Margrét Harðardóttir Steve Christer Ragnheiður Harðardóttir Jón Scheving Thorsteinsson Sigrún Harðardóttir Andrew Clarke Hildur Harðardóttir Þórður Orri Pétursson og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.