Morgunblaðið - 17.11.2022, Síða 49

Morgunblaðið - 17.11.2022, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 DÆGRADVÖL 49 Eloflex rafknúinn hjólastóll fyrir fólk á ferðinni Léttur rafknúinn hjólastóll sem er fimur í keyrslu og með góða drægni. Hentar notendum sem þurfa einfaldan stól sem auðvelt er að ferðast með og setja í skottið á bíl. Stóllinn er í samning við Sjúkratryggingar Íslands. Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf. Trönuhrauni 8, Hafnafirði | Sími 565 2885 | stod.is tölvunarfræðideildar í átta ár og setið í framgangs- og fastráðningarnefnd, jafnréttisnefnd og fleiri nefndum innan Háskóla Íslands og utan. Á vettvangi félagsmála þá hefur Ólafur Pétur starfað fyrir Verk- fræðingafélag Íslands um langt árabil, nú í menntamálanefnd þess en áður í stjórn, útgáfunefnd og árshátíðarnefnd. Af öðrum félagsstörfummá nefna að hann var virkur dómari í sundi og frjálsum íþróttum ámeðan yngstu börn hans stunduðu þær greinar. Spurður út í áhugamálin segir Ólaf- ur, „Mitt aðaláhugamál er að fylgjast með framgangi fjölskyldunnar og uppáhaldshlutverkið núna er afahlut- verkið sem er einstaklega ánægjulegt og gefandi.“ Fjölskylda Eiginkona Ólafs er dr. Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, f. 1968, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Þau eru búsett í Reykjavík. Foreldrar Ragnheiðar eru hjónin Þórarinn E. Sveinsson, f. 1943, fv. yfirlæknir á Landspítalanum, og Hildur Bern- höft, f. 1944, fv. fulltrúi hjá danska sendiráðinu. Börn Ólafs Péturs og Ragnheið- ar eru: 1) Helga Kristín, f. 1990, stærðfræðingur, tölvunarfræðingur og doktorsnemi í stærðfræðilegri tölfræði í Gautaborg, sambýlismaður hennar er Gunnar Snorri Ragnars- son og synir eru Ólafur Páll, f. 2018 og Sigurður Björgvin, f. 2022; 2) Hildur Þóra, f. 1993, læknir á Landspítalan- um, eiginmaður hennar er Jón Ágúst Stefánsson og synir eru Hákon Þrá- inn, f. 2018, og Jóel Eysteinn, f. 2021; 3) Katrín Unnur, f. 1996, verkfræðing- ur og verkefnastjóri hjá HS Orku, sambýlismaður hennar er Snorri Örn Birgisson; 4) Karl Hákon, f. 2003, verkfræðinemi við Háskóla Íslands. Systkini Ólafs Péturs eru Kristín Pálsdóttir, f. 1960, bóndi á Höllu- stöðum í Blöndudal, og Páll Gunnar Pálsson, f. 1967, forstjóri Samkeppn- iseftirlitsins. Foreldrar Ólafs Péturs voru hjónin Helga Ólafsdóttir, f. 1937, d. 1988, bóndi og Páll Pétursson, f. 1937, d. 2020, bóndi, alþingismaður og félags- málaráðherra. Ólafur Pétur Pálsson Martha Glatved-Prahl stórþingskona í Noregi Haakon Glatved-Prahl verksmiðjueigandi í Alversund í Noregi Kristine Glatved-Prahl húsfreyja á Siglufirði Ólafur Þorsteinsson yfirlæknir á Siglufirði Helga Ólafsdóttir bóndi á Höllustöðum Helga Ólafsdóttir húsfreyja í Vík, frá Sumarliðabæ í Holtum Þorsteinn Þorsteinsson kaupmaður í Vík í Mýrdal, frá Neðra-Dal í Mýrdal Guðrún Björnsdóttir húsfreyja á Guðlaugsstöðum, frá Grímstungu í Vatnsdal Páll Hannesson bóndi á Guðlaugsstöðum í Blöndudal Hulda Pálsdóttir húsfreyja á Höllustöðum og kennari Pétur Pétursson bóndi og hreppstjóri á Höllustöðum Ingibjörg Sigurðardóttir húsfreyja á Steiná í Svartadal, frá Hringveri í Viðvíkursveit Pétur Pétursson kaupmaður á Akureyri, frá Hafsteinsstöðum í Staðarhr., Skag. Ætt Ólafs Péturs Pálssonar Páll Pétursson ráðherra og bóndi á Höllustöðum í Blöndudal Vísnahorn Þingeyskar konur ortu Hólmfríður Bjartmarsdóttir yrkir á Boðnarmiði: Hugrakkur gaur var hann Gestur og gerðist af löggunummestur. Eftir þjófi hann þaut og þrívegis skaut. Hinn látni er leikfangahestur. Sigríður Þorgrímsdóttir segir svo um afasystur sína Þuru í Garði: „Þura fór aldrei út fyrir landsteinana, hún var ekki „sigld“, eins og hún sagði frá í grein sinni „Enn verpa súlur á syllum“, en þar segir frá því þegar hún ákvað að bæta úr þessum lesti sínum og „sigldi“, eða flaug öllu heldur, til Grímseyjar! Á flakki sínu um landið kynntist Þura mörgum merkismanninum. Þar á meðal Jóhannesi Kjarval. Honum sendi hún sauðskinnsskó með þessari vísu“: Frjálsar ástir, frjálst er val, fín eru vinahótin. Gráhærð kona góðumhal gefur undir fótinn. Enn skrifar Sigríður: „Þessi orð eru úr ræðu sem Þura flutti eitt sinn fyrir minni karla á hjónasamkomu. Það er ekki um að villast að hún var hlynnt jafn- rétti kynjanna og henti gaman að hefðbundnum kynhlutverk- um. Í kveðskap sínum gerði hún gys að hjónabandinu og sömuleiðis að sjálfri sér“: Svona er að vera úr stáli og steini, stríðin, köld og ljót; aldrei hef ég yljað sveini inn að hjartarót. Mig hefur aldrei um það dreymt, sem eykst við sambúð nána. Þú hefur alveg, guðminn, gleymt að gefamér ástarþrána. Eitt sinn kvongaðist maður og tók banasótt hina fyrstu nótt er hann svaf hjá konu sinni. Þá kvað Rut í ljóðabréfi: Fljóðs á armi fyrstu nótt fleygir byrðar grana taka náði sára sótt, sem hann dró til bana. Saknamátti sæmdarmanns svoddan fólk í ranni. Gat ei yfir greftran hans grátinn staðið svanni. Eitt sinn kom Látra-Björg á flakki sínu í hríðarbyl á glugga í Kaupangi og kvað: Æðir fjúk áÝmis búk, ekki er sjúkra veður. Klæðir hnjúka hríð ómjúk hvítum dúkimeður. „ÉG TREYSTI ENGUM. ÞAÐ HEFUR ALDREI NEINN VERIÐ TIL STAÐAR FYRIR MIG.“ „ÉG FÆ MELTINGARTRUFLANIR BARA VIÐ AÐ HORFA Á ÞETTA.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að njóta trausts. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann EF ÞÚ SÝNIR MÉR HAGSTÆÐA TÖLU SKAL ÉG LAUNA ÞÉR RÍKULEGA ÞÚ GETUR EKKI MÚTAÐ MÉR! ÞRJÚ ORÐ: ÓTAK- MARKAÐ MAGN RAFHLAÐNA HALLÓÓÓÓ, GRANNI! BESTA VINKONA MÍN STAKK AF MEÐ ÓNYTJUNGINN MANNINN MINN NÚNA Í MORGUN! JEMINN! HVERSU LENGI HEFUR HÚN VERIÐ BESTA VINKONA ÞÍN? SÍÐAN Í MORGUN! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.