Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 54

Morgunblaðið - 17.11.2022, Side 54
MENNING54 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Komið og skoðið úrvalið Mikið af vönduðum borðstofu- húsgögnum frá CAS0 Teg. Embla hringborð 120 og 140, reykt eik og nature eik Teg. 230 langborð 200x98 og 240x98 stækkun 2x50 cm, reykt eik og nature eik J óhannes Nordal (f. 1924) hóf árið 2009, 85 ára, að skrá minningar sínar um 20. öldina og birtast þær í bókinni Lifað með öldinni. Á titilsíðu er þess getið að sagnfræðingurinn Pétur Hrafn Árnason hafi aðstoðað við skrásetninguna. Hann er höf- undur sögu VG 1999-2019, Hreyfing rauð og græn. Er kærkomið að Jóhannes hafi tekið sér þetta mikla verk fyrir hendur. Verður ekki framvegis skrifað um ís- lensk stjórnmál, efnahagsmál og stórstígar framfarir í atvinnumálum á 20. öldinni án bókar Jóhannesar. Jóhannes vegur ekki að nein- um þótt stundum gæti þungrar undiröldu í frásögninni. Jóhannes lítur viðfangsefni sitt af hófsemd og raunsæi. Hann lét að sér kveða við margar stærstu ákvarðanir varðandi þjóðarbúið á síðari helm- ingi aldarinnar. Þá geymir bókin dýrmætar lýsingar Jóhannesar á æskuárum hans og viðhorfum þess tíma auk minninga um ýmsa samtímamenn hans. Hann segir að bókin hafi í raun orðið persónulegri en hann ætlaði sér. Spillir það síður en svo verkinu. Bókin skiptist í sex hluta: I. Veröld sem var: 1900-1918; II. Milli- stríðsárin: 1918-1938; III. Heims- styrjöldin síðari og eftirstríðsár: 1939-1960; IV. Viðreisn og stofnun Seðlabanka Íslands og Landsvirkj- unar: 1960-1971; V. Verðbólguárin: 1971-1983; VI. Í átt til jafnvægis: 1983-2000. Bókarhlutarnir skiptast síðan í mismarga kafla og þætti. Bókin er lesendavæn. Höfundur ritar látlausan og skýran texta. Allt er kynnt til sögunnar á þann veg að auðvelt er til skilnings, fyrir utan að ártala mætti oftar geta. Margrét Tryggvadóttir annaðist ritstjórn mynda og er skrá yfir þær og nafna- skrá í bókinni. Birt er mynd RAX (685) af Jó- hannesi af forsíðu sunnudagsblaðs Morgunblaðsins 26. september 1982 með viðtali mínu við hann. Urðu töluverðar umræður á ritstjórninni um ábúðarmikla myndina. Niður- staðan varð að láta hana spanna hálfsíðu til að árétta stöðu viðmæl- andans í þjóðlífinu. Í bókinni segir Jóhannes að um áramótin 1979/80 áður en Gunnar Thoroddsen myndaði ríkisstjórn sína 5. febrúar 1980 í óþökk meirihluta þingflokks sjálfstæðis- manna hafi Kristján Eldjárn forseti Íslands tvisvar sinnum verið að því kominn að skipa Jóhannes forsætis- ráðherra í utanþingsstjórn. Jóhannes fylgdist með fram- vindunni og segir: „Sannleikurinn er sá að Geir [Hallgrímsson] og fylgismenn hans vanmátu ætíð styrk og vinsældir Gunnars og því fór sem fór.“ (661) Hvorki eru neðanmálsgreinar né heimildaskrá í bókinni enda ekki um fræðirit að ræða. Þess er getið neðanmáls (152) að öll sendibréf sem vitnað sé til „í riti þessu eru úr fórum höfundar“. Bókin er reist á víðtækri þekkingu Jóhannesar og reynslu. Efnahags- og peningamál setja mikinn svip á verkið auk orku- og stóriðjumála. Áhugi Jóhannesar á þjóðfélagsmálum er þó enn víðtækari. Allt frá barnæsku hafði hann lifandi áhuga á framvindu alþjóðamála. Þegar hann fór í sveit að Réttarholti í Skagafirði sumarið 1940 var ekkert útvarp á bænum og blöð bárust ekki þangað nema á hálfs mánaðar fresti. „Það er ekki ofsögum sagt að þyrmt hafi yfir mig við þessi tíðindi.“ (93) Jóhannes gerði þá ráðstafanir með aðstoð Sigurðar, föður síns, til að fá Morgunblaðið sent daglega til sín um Varmahlíð. Jóhannes ólst upp í nánum tengslum við íslenska menningu og sveitalíf. Að loknu námi við Menntaskólann í Reykjavík, þar sem hann var valinn til forystu nemenda, sigldi hann á stríðsárun- um til Leith í Skotlandi í nóvember 1943. Hann stundaði nám í London School of Economics og lauk doktorsprófi í félagsfræði árið 1953. Þegar Jóhannes kom heim árið 1954 og hóf störf í hagfræðideild Landsbankans hafði hann „fastmót- aða sannfæringu fyrir því að frjáls markaðsbúskapur ásamt öflugum almannatryggingum og opnun hag- kerfisins fyrir erlendri samkeppni væri farsælasta leið Íslendinga til frambúðar“ (553) Hann vann að framgangi mála í þessum anda og gætti áhrifa hans í sívaxandi mæli. Honum var kapps- mál að standa að útgáfu menningar- legs og fræðilegs efnis og ritstýrði: Nýju Helgafelli og Fjármálatíðind- um. Farsæla stjórnarhætti lærði hann af reynslunni. Nýkominn til starfa sat Jóhannes í nefnd undir formennsku Benja- míns J. Eiríkssonar um rekstrar- skilyrði sjávarútvegsins. Nefndin kynnti um áramótin 1955-1956 Ólafi Thors forsætisráðherra tillögur sínar. Ólafur boðaði nefndarmenn á fund með Eysteini Jónssyni fjár- málaráðherra. Ráðherrarnir höfn- uðu tillögunum. „Fannst mér hann [Ólafur] tala til okkar eins og við værum skólastrákar sem þekktum lítið til alvöru lífsins.“ (268). „Mér fannst eftir á að það hefði átt að vera hlutverk Benjamíns, sem var bæði formaður nefndarinn- ar og efnahagsráðunautur ríkis- stjórnarinnar að reyna að kanna hvar þolmörk ríkisstjórnarinnar væru varðandi einstakar aðgerðir í stað þess að koma með tillögu um launalækkun sem Ólafur Thors og Eysteinn töldu ekki þess virði að ræða.“ (269) Á viðreisnarárunum átti Jóhann- es aðild að lykilákvörðunum um íslenskt efnahags- og atvinnulíf og umbyltingu þjóðlífsins í heild þegar það var opnað fyrir erlendri samkeppni með aðild að EFTA. Hann nefnir eitt dæmi um að hann hafi farið út fyrir „þolmörk“ við- reisnarstjórnarinnar. Vildi Jóhann- es hækka gengi krónunnar undir lok sjöunda áratugarins, á það var ekki fallist. (527) Jóhannes kom að því (651) að marka nýja stefnu varðandi verðtryggða ávöxtun fjármagns á verðbólgutímum þegar hann lagði drög að kaflanum um peningamál í frumvarpi Ólafs Jóhannessonar for- sætisráðherra um stjórn efnahags- mála sem varð að lögum í apríl 1979 (Ólafslögunum). Sumarið 1984 fékk seðlabankinn, að tillögu Jóhannes- ar, heimild Halldórs Ásgrímssonar, starfandi forsætisráðherra í fjar- veru Steingríms Hermannssonar, til að gefa út almennar reglur um heimild banka og sparisjóða til að ákveða sjálfir vexti á útlánum sínum í stað þess að fylgja sam- ræmdum reglum seðlabankans. (678) Síðan vann seðlabankinn að því að stofna Verðbréfaþing Íslands í júní 1985. (679). Hafði það víðtæk og jákvæð áhrif, meðal annars á lífeyriskerfið: „Án aðgangs að öflug- um verðbréfamarkaði og frjálsum vöxtum var nær óhugsandi að byggja lífeyriskerfið upp á sjóðs- söfnun.“ (702) Með góðum rökum, málafylgju og lagni var skref fyrir skref gengið til þess frjálsræðis sem nú er talið sjálfsagt. Framgangi „fastmótaðrar sannfæringar“ Jóhannesar frá 1954 er lýst á sannfærandi hátt í bók hans. Vissulega voru á stundum ljón á veginum. Steingrímur Hermannsson var forsætisráðherra á þeim árum sem stefnubreytingin varð í peninga- málunum. „Raunar fann hann henni allt til foráttu,“ segir Jóhannes: „Sannleikurinn var sá að Stein- grímur hafnaði, að minnsta kosti í orði kveðnu, öllu því sem hann kallaði „vestrænar hagstjórnarað- ferðir“. Hann var í rauninni það sem oft hefur verið kallað „fyrir- greiðslupólitíkus“. Honum var tamt að einblína á málefni einstakra fyr- irtækja og starfsgreina fremur en þær almennu reglur og skilyrði sem vörðuðu starfsemi þeirra.“ (684-5) Jóhannes Nordal er 98 ára þegar 770 bls. saga hans birtist okkur lesendum. Hann hefur unnið að ritun hennar í 13 ár. Gildi bók- arinnar er ótvírætt. Hún segir Íslendingum hvernig þeim var sköpuð umgjörð til að njóta bestu lífskjara. Ekkert er þó sjálfgefið. Sífellt verður að hafa vakandi auga með straumum samtímans, virkja þá og laga að því sem Íslendingum er fyrir bestu – án þess að höggva á menningarlegar rætur eða minnka rækt við þær. Í krafti sannfæringarinnar Morgunblaðið/Kristinn Gildi „Jóhannes Nordal er 98 ára þegar 770 bls. saga hans birtist okkur lesendum. Hann hefur unnið að ritun hennar í 13 ár. Gildi bókarinnar er ótvírætt,“ skrifar gagnrýnandi um bók Jóhannesar og gefur fullt hús stiga eða öllu heldur stjarna, fimm af fimmmögulegum. BÆKUR BJÖRN BJARNASON Samtímasaga Lifað með öldinni  Eftir Jóhannes Nordal. Vaka-Helgafell 2022. Innb. 770 bls., myndir, nafnaskrá. Beyoncé tilnefnd til níu verðlauna Björk Guðmundsdóttir hefur verið tilnefnd í 13. sinn til Grammy-verð- launa en nýjasta plata hennar, Fossora, er að þessu sinni tilnefnd í flokki bestu óháðu eða jaðar (alternative) hljómplatna ársins. Björk hefur reglu- lega verið tilnefnd allt frá árinu 1994 í hinum ýmsu flokkum þessara virtu bandarísku verðlauna, án þess að hljóta þau. Að þessu sinni er tónlistarkonan Beyoncé tilnefnd til alls níu Grammy- verðlauna, sem er ekkert nýtt; Beyoncé hreppti fern síðast og hefur nú hlotið 28 Grammy-verðlaun, fleiri en nokkur önnur kona. Allar tilnefningarnar nema ein eru að þessu sinni vegna nýjustu plötu hennar, Renaissance. Beyoncé, sem er 41 árs gömul, hefur nú verið tilnefnd til alls 88 Grammy-verðlauna og stendur þar jöfn eiginmanni sínum, Jay-Z, á toppnum hvað fjölda tilnefninga varðar í sögu verðlaunanna. Allra flest Grammy-verðlaun hefur hins vegar klassíski hljómsveitarstjórinn George Solti hlotið, 31 alls. Hvað fjölda tilnefninga að þessu sinni varðar koma á hæla Beyoncé þau Kendrick Lamar, sem er tilnefndur til átta verðlauna, Adele og Brandi Carlile, sem eru tilnefndar til sjö, og þá er tónlistarfólkið Harry Styles, Mary J. Blige, Future og DJ Khaled og laga- höfundurinn og upptökustjórinn sem kallar sig The-Dream tilnefnd til sex verðlauna hvert. Þá má geta þess að sænski ABBA-flokkurinn er tilnefndur til fernra verðlauna fyrir endurkomu- plötu sína, Voyage. Grammy-verðlaunin eru veitt í alls 91 flokki tónlistar og tónlistartengdrar útgáfu af ýmsu tagi. Sjónir beinast samt einkum að fjórum flokkum, sem eru dægurtónlistarplata ársins – þar eru tilnefnd Beyoncé, Adele, Kendrick Lamar, Lizzo, Carlile, Mary J. Blige, Coldplay, ABBA og Bad Bunny; upptaka ársins; lag ársins og besti nýliðinn. Í síðastnefnda flokknum eru tilnefnd listamennirnir og hljómsveit- irnar Anitta, Omar Apollo, Domi & JD Beck, Samara Joy, Latto, Maneskin, Muni Long, Tobe Nwigwe, Molly Tuttle ogWet Leg. Verðlaunin verða afhent 5. febrúar næstkomandi. Tilnefnd Fossora, nýjasta plata Bjarkar, er tilnefnd til Grammy-verðlauna í ár.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.