Morgunblaðið - 17.11.2022, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 17.11.2022, Qupperneq 56
MENNING56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2022 „Mig hefur langað til að kynna betur þessa hlið á mér. Á fyrri diskum með tónlist eftir mig hefur fókusinn verið á kórtónlist og mér finnst gaman að geta nú sýnt þessa hlið, hljófæratónlist, og líka hljóðfæratónlist með elektróník en ég gerði talsvert af slíku fyrir nokkrum árum og það hefur alltaf verið hluti af því sem ég hef samið.“ Tónskáldið Hugi Guðmundsson er að tala um sam- setningu verkanna á nýjum diski Kammersveitar Reykjavíkur með tónsmíðum hans, Windbells, sem hið virta bandaríska útgáfufyr- irtæki Sono Luminus gefur út en eins og Hugi segir, þá er áherslan á þessum þriðja sólódiski með verk- um hans á hljóðfæratónlist. Verkin eru samin á síðustu 17 árum og það fimmta og síðasta á diskinum einnig flutt af mezzósópraninum Hildigunni Einarsdóttur. Tónsmíðar Huga hafa hlotið mikla athygli á undanförnum árum og hefur hann til að mynda hlotið Íslensku tónlistarverðlaun- in nokkrum sinnum auk Bjart- sýnisverðlaunanna. Eins og hann segir hefur áhuginn á þeim ekki síst fallið á kórverk hans en í því sambandi má geta þess að næsti diskur með verki eftir hann hefur þegar verið hljóðritaður, með hinni nýju óratoríu hans, Guðspjall Maríu, og gefur danska útgáfan Dacapo Records hann út á næsta ári en Hugi hefur um árabil verið búsettur í Danmörku. Hugi segir að þau Kammersveit Reykjavíkur hafi fengið mjög frjálsar hendur við val verka á Windbells. „Þetta byrjaði mjög sakleysis- lega, með því að hljóðrita eitt verk, titilverkið á diskinum. Kamm- ersveitin flutti það á Myrkum músíkdögum árið 2019 og verkið fékk mjög fína dóma á erlendum miðlum, þar sem gagnrýnendur furðuðu sig á því að ekki væri búið að hljóðrita svona gamalt verk. Í kjölfarið var ákveðið að gera eitthvað í því en það var eins og snjóbolti sem rúllaði af stað og end- aði með því að Kammersveitin vildi gera heila plötu. Þau hafa borið hitann og þungann af þessu. Í sam- einingu völdum við tónverk sem þau hafa bæði flutt áður og önnur sem pössuðu inn í þeirra prófíl. Loks aðlagaði ég eitt verkið að sveitinni, „Söngva úr Hávamálum II“, það er upphaflega frá 2014 og fyrir færri hljóðfæri en ég stækkaði útsetninguna upp í þá hljómsveitar- stærð sem var í upptökunum.“ Mörg verk fá ekki líf Verkin á diskinum eru samin fyrir allt að 17 árum, er ekki erfitt fyrir tónskáldið að sitja svo lengi með verk án þess að fá að heyra þau hljóðrituð? „Jú, vissulega má segja það, en bara eitt hefur verið tekið upp áður. Það er skrýtið við þennan klassíska bransa hvað mörg verk fá ekki líf. Þau eru flutt einu sinni eða tvisvar, gleymast svo í einhver ár en eru svo kannski tekin fram aftur fyrir einhverja tilviljun og flutt. En þessi verk mín hafa verið spiluð töluvert og Kammersveitin vildi taka saman nokkur verka minna sem hafa feng- ið tónleikalíf hér og þar í heiminum og koma þeim út á plötu, búa til ein- hverskonar þráð úr því sem teygist yfir þennan tíma. Þetta var ekki hugsað sem neitt yfirlit yfir þennan tíma en raðaðist bara upp þannig. Og verkin passa saman á einhvern undarlegan hátt þótt þau spanni þetta langt tímabil.“ Hugi segist hafa rætt um valið á verkum við Kammersveitina sem fékk Sono Luminus til að taka þau upp og gefa út. „Þá vildi svo til að útgáfan var einmitt að hefja samstarf við tónmeistarann Ragnheiði Jónsdóttur sem lærði hér í Kaupmannahöfn og býr hér. Þá var upplagt fyrir okkur að vinna saman; það small mjög vel saman að vera með Danmerkurtenginguna með okkur tónmeistarann hér og hljómsveitina heima. En svo varð framkvæmdin öll rosalega flókin á covid-tímanum. Að reyna að fá upptökumann frá Ameríku og koma okkur frá Danmörku til Íslands, það tók eflaust eitt og hálft ár að fá það til að ganga upp. Við enduðum á að taka diskinn upp í Víðistaðakirkju, sem gekk vel.“ Kórverk Huga hafa mikið verið flutt en finnst honum að hljóm- sveitarverk sín hafi legið óbætt hjá garði í ljósi athyglinnar sem kórverkin hafa notið? Semur hann þau verk samhliða? „Ég hef alltaf samið jöfnum hönd- um kóratónlist, hljómsveitar- eða kammerverk. En kórtónlistin hefur vissulega farið víðar og verið flutt mun meira. Hún berst líka fyrr og greiðlegar um; kannski flytur 50 manna kór eitt verkið og svo eru fimm úr honum í öðrum kór líka og vilja syngja það líka með þeim kór – þannig getur kórverk skyndilega verið komið út um allt. Það er önnur dýnamík í hljómsveitar- og hljóðfæraverkum. Þau eru oft samin fyrir ákveðið tilefni eða hóp, eru spiluð nokkrum sinnum og ekki endilega aftur nema einhver annar hópur taki þau á efnisskrá.“ Má ekki segja að þessi nýi diskur sýni vel fjölhæfni Huga, samhliða kórtónlistinni? Ekki fastur í einum heimi „Jú, algjörlega,“ segir hann. „Ég hef getað haft þetta að lífsviður- væri allt frá því ég lauk námi og þá skiptir máli að ég hef getað brugðið mér í ýmis gervi. Þótt ég hafi til dæmis ekki verið að neinu gagni í kvikmyndamúsík þá hef ég líka prófað það. Ég hef ekki verið fastur í neinum einum heimi – það hefur nýst mér að hafa verið bæði með hljóðfæratónlist og sönginn, sérstaklega fyrir kóra.“ Hefur það auðveldað Huga að lifa af listinni að vera búsettur í Danmörku? „Já, það verið lykill að því að ég hef getað sinnt tónsmíðunum í fullu starfi, með tvö heimalönd sem eru tilbúin að líta á mig sem sinn. Ég hef stundum verið fulltrúi Dana í einhverri mynd en þó langoftast sem sá Íslendingur sem ég verð alltaf. Hér er maður vel tengdur Evrópu og Norðurlöndunum og hér verða til aðrar tengingar en ef ég væri heima á Íslandi.“ Þegar Hugi er spurður út í verklag sitt, hvort hann setjist til að mynda niður á hverjum morgni og einbeiti sér að einu verki þar til því er lokið, eða hvort hann sé samtímis með fleiri verk í smíðum, þá segist hann yfirleitt vera með nokkur verk bókuð á hverjum tíma en sér finnist erfitt að vinna í mörg- um samtímis. „Yfirleitt vinn ég því að einu verki í einu. Nú er ég að klára annað sam- starfsverk með Kammersveitinni, bassaklarínettukonsert fyrir Rúnar Óskarsson, og það er stóri boltinn núna. En á milli stórra verka set ég oft saman eitt lítið kórverk, eins og til að hreinsa palettuna,“ segir hann og hlær, „áður en ég einhendi mér í næsta stóra verkefni. Ég reyni að skipuleggja mig þannig að ég fari ekki beint úr einu stóru verki í ann- að. Upphafsvinnan við stærri verk- in er oft erfið þannig að mér finnst gott að takast á við ólík tónverk. En svo ræðst það af því hvaða beiðnir ég vinn með – og mikill tími fer líka í skrifstofuvinnu, ég er í raun að reka lítið fyrirtæki og margt sem þarf að svara og snúast kringum, því miður! Það væri óskandi að geta bara hgsað um músíkina en að öllu jöfnu sest ég niður á hverjum degi og vinn að mestu fullan vinnudag við að semja. Þegar ég er búinn með erfiðustu upphafsvinnuna þá er gaman þegar tónverkin fara að flæða. Það er skemmtilegasti kaflinn, eins og núna þegar ég er kominn inn í síðasta fjórðunginn í verkinu fyrir Rúnar, þá flæðir þetta oft skemmtilega. Þá er ég líka alltaf hættur að efast um að ég nái að klára stykkin – og þetta hefst einhvern veginn alltaf.“ lÁ nýrri plötu Kammersveitar Reykjavíkur með verkum eftir Huga Guðmundsson er áherslan á hljómsveitarverk tónskáldsinsl„Hefur langað til að kynna betur þessa hlið á mér,“ segir Hugi Gaman þegar verkin fara að flæða Ljósmynd/Ari Magg Tónskáldið „Verkin passa saman á einhvern undarlegan hátt þótt þau spanni þetta langt tímabil,“ segir Hugi. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Frábær kjötsögmeð hakkavél frá DYNAMI X 99.900 kr. Aðeins NÓVEMBER TILBOÐ SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Ryðfrítt vinnsluborð og bandsagarblað. Vinnsluhæð: 240 mm. Vinnslubreidd: 250 mm. Færanlegt vinnsluborð 470x600 mm. Mótor: 550 w. Hæð: 1.470 mm. Þyngd: 58 kg Söngkonan Margrét Eir kemur á morgun, föstudag, fram ásamt hljómsveit á þriðju tónleikum Síðdegistóna í Hafnarborg í vetur. Hefjast tónleikarnir klukkan 18. Með henni koma fram Karl Olgeir Olgeirsson á hammondorgel, Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur og Andrés Þór á gítar. Á efnisskránni verður blúsaður djass og djassað popp í vetrarleg- um búningi. Tónleikarnir standa í um klukkustund og er aðgangur ókeypis. Margrét Eir hefur starfað sem söng- og leikkona í rúm 25 ár. Hún hefur starfað sem sólisti og bakraddasöngvari með mörgum þekktum tónlistarmönnum, í upptökum og á tónleikum. Hún hefur gefið út þrjár sólóplötur og vinnur nú að þriðju plötu sveitarinnar Thin Jim sem hún stofnaði ásamt Jökli Jörgensen. Fjórða plata hennar, MoRDuran, var dúettaverkefni og naut athygli í Bandaríkjunum og Kanada. Þá hefur hún til að mynda þrisvar sungið sem sólósti með Sinfóníuhljómsveit Íslands og var ein af aðalsöngkonum Frostrósa. Margrét Eir með hljómsveit í Hafnarborg Margrét Eir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.