Morgunblaðið - 10.12.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 10.12.2022, Qupperneq 4
FRÉTTIR Innlent4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 Helgafell fasteignasala, Stórhöfði 33, Sími 566 0000 • www.helgafellfasteignasala.is ÞAÐ SKIPTIR MÁLI... efnahagsástandið spili inn í. Magnús Geir segir að sér sýnist að í Evrópu og í Bandaríkjunum sé talað um 25- 35% samdrátt í sviðslistageiranum á fyrstu mánuðum eftir Covid. Hann hafi rætt þetta við kollega sína í Nýtt Ómíkron-afbrigði, afleitt af BA.-gerð nýju kórónuveirunnar, hefur verið á kreiki í þó nokkurn tíma, lengst af í Asíu, m.a. í Singa- púr, Bangladess og Indlandi. Afbrigðið er kallað XBB og hefur nú greinst í 35 löndum. Þetta nýja afbrigði, XBB, virðist geta komist fram hjá mótefni sem líkaminn hefur myndað eftir fyrri sýkingar af nýju kórónuveirunni eða eftir bólusetningar. Alþjóðaheil- brigðismálastofnunin WHO telur að nýja afbrigðið geti mögulega breiðst hratt út. Hingað til hefur XBB ekki valdið alvarlegri veikindum en eldri afbrigði veirunnar. XBB-afbrigðið er orðið nokkuð útbreitt á austur- og vesturströnd Bandaríkjanna, það er í New York- ríki og Kaliforníu. XBB-afbrigðið er á bak við um 5% nýrra sýkinga en sums staðar í Bandaríkjunum allt að 11% nýrra tilvika. Sumir sérfræðingar telja að það geti valdið nýrri sjúkdómsbylgju að sögn Al Tompkins, fréttaskýranda hjá Poynter-stofnuninni. COVID-19-smitum hefur fjölgað í Los Angeles-sýslu og innlögnum á spítala vegna veirusýkinga einnig. Smitin gætu verið enn útbreiddari en opinberar tölur gefa til kynna vegna þess að margir nota heima- próf án þess að tilkynna um niður- stöðuna og aðrir taka ekki próf. Heilbrigðisyfirvöld fylgjast grannt með þróuninni og hafa varað við því að breiðist smitið út verði jafnvel sett á grímuskylda innandyra. Guðrún Aspelund sóttvarna- læknir segir að XBB-afbrigðið hafi greinst hér innan við tíu sinnum en ekki náð neinni útbreiðslu. gudni@mbl.is lHefur greinst nokkrumsinnumen ekki dreift sér hér XBB – nýtt af- brigði veirunnar Morgunblaðið/Eggert GrímurNú er rætt um grímuskyldu innandyra í Kaliforníu. Kostnaður hefur aukist mikið „Tónleikageirinn er enn í mikl- um sárum,“ segir einn viðmælenda Morgunblaðsins meðal tónleika- haldara. Þungt hljóð er í þeirra hópi og margir hafa áhyggjur af aðsókn á jólatónleika þetta árið. Eins og Morgunblaðið greindi frá í byrjun nóvember eru vel yfir eitt hundrað jólatónleikar í boði þetta árið auk annarra tónleika og uppistandssýn- inga. Viðmælendur Morgunblaðsins eru sammála um að þómiðasala gangi vel á ýmsa viðburði megi ljóst vera að tap verði af fjölmörgum. „Það bera sig allir vel og það taka allir slaginn en undir yfirborðinu er titringur í bransanum,“ sagði ann- ar tónleikahaldari sem kvaðst telja að miðasala hefði heilt yfir dregist saman um 30-40% frá því sem var fyrir Covid. Ljóst er að afleiðingar Covid-tímans eru enn að bíta. Í vor var loks hægt að haldamargfrestaða tónleika en þá hafði ýmis kostnaður hækkað um allt að 20% frá upphaflegum áætlunum þegar miðaverð var reiknað út. Þar með fór von um hagnað hjá mörgum en oft er miðað við að selja þurfi 80% af miðum til að eiga fyrir kostnaði og síðustu 20% af innkomunni séu hagnaður. Erfiðara að koma fólki upp úr sófanum en áður Miðasala fer seinna af stað á tón- leika nú en áður rétt eins og á öðr- um menningarviðburðum og ekki er vitað fyrr en talið er í hvað kemur í kassann. „Það er erfiðara en áður að koma fólki af stað, koma því upp úr sófanum og út úr húsi. Fólk er orðið vant því að alltaf eru til miðar svo því liggur ekkert á,“ sagði einn viðmæl- andi blaðsins. Sindri Hannesson, rekstrarstjóri Tix.is, segir að heilt yfir gangi miða- sala vel um þessar mundir. „Kaup- hegðun hefur vissulega breyst og fólk kaupir nú miða þegar nær líður viðburðum. Salan er heilt yfir bara fín þó hún sé vissulegamismunandi eftir viðburðum. Svo er auðvitað verðbólga í landinu og miðaverð er of hátt fyrir ákveðna hópa.“ menningargeiranum hér á landi og kveðst telja að íslenskt menningar- starf hafi ekki orðið fyrir jafn miklu höggi. „Mín tilfinning er að þetta sé ekki svona mikill samdráttur hér. Menn hafa áætlað gróflega að það vanti ef til vill um 20% upp á það sem var fyrir Covid, en það er ekki nákvæm greining enda of snemmt að segja nákvæmlega til um það,“ segir hann. „Fyrri hluti leikársins í Þjóðleikhús- inu hefur gengið afar vel en aðsókn er auðvitað breytileg eftir verkefnum. Lausasala er mjög góð en við finnum fyrir að gestir tryggja sér miða síðar en áður. Eins fundu allir hér á landi fyrir því að kortasala var tregari en áður enda ef til vill viðbúið þar sem ákveðið rof varð á sambandi menn- ingarstofnana við kortagesti á tím- um faraldursins. Ég hef trú á því að sala á áskriftarkortum muni ná sér á strik á ný á næstu tveimur árum.“ Lengri tíma virðist ætla að taka að komamenningarstarfi í sama horf og það var fyrir Covid en margir héldu. Áætla má að miðasala sé um það bil 20% minni í sviðslistageiranum og í tónleikabransanum er höggið jafnvel ennmeira. Þetta er ekki íslenskt fyrir- bæri því sambærilegar fréttir berast frá leikhúsum í nágrannalöndun- um og víðar að. „Við finnum að gestir eru af- skaplega þakk- látir fyrir að fá að koma saman og njóta menningar. Það finnum við í salnum og við- brögð áhorfenda eru ótrúlega sterk. Hins vegar virðist almennt sem fólk sé ekki alveg dottið inn í menningartaktinn aftur og sé seinna að tryggja sér miða en áður. Svo virð- ist sem fólk forgangsraði tíma sínum ákveðnar en áður. Áhrif þess ámenn- ingarlífið erlendis eru þau að fólk fer sjaldnar á viðburði og svo virðist sem stóru viðburðirnir, topparnir, haldi sínu en þeir minni verði frekar fyrir barðinu á þessari þróun,“ segirMagn- ús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri. Verk að vinna í að ná kortasölu aftur í gang Hann segir að það hafi reynst flók- ið fyrir flesta að koma út úr Covid. Lengri tíma virðist ætla að taka að koma öllu í fyrra horf en margir hafi kannski vonað. „Það duttu all- ir úr takti og þar á meðal í menn- ingarneyslu. Það tekur tíma að koma öllu í gang. Við í Þjóðleikhúsinu kvört- um þó ekki og erum bjartsýn.“ Fréttir frá nágrannalöndunum gefa til kynna að miðasala í leikhúsum og öðrum menningarstofnunum sé umtalsvert lakari nú en fyrir Covid. Minna seljist af miðum í ár en árið 2019. Skýringin er sögð sú að bæði sé fólk ekki eins áhugasamt um að sækja viðburði og áður og einnig að lMiðasala á menningarviðburði er enn langt undir væntingum eftir CovidlTitringur í bransanum Menningargeirinn er enn í sárum BAKSVIÐ Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Gleðistund Það var mikið líf á Iceland Airwaves-hátíðinni á dögunum. Miðasala á tónleika gengur misvel í ár. Ljósmynd/Hörður Sveinsson Jólaboðið Ein sýninga Þjóðleikhússins um þessar mundir. Lausasala hefur gengið vel í leikhúsinu eftir Covid en kortasalan hefur ekki tekið við sér. Magnús Geir Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.