Morgunblaðið - 10.12.2022, Síða 10

Morgunblaðið - 10.12.2022, Síða 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 Allsherjar- og menntamálanefnd Al- þingis hefur til umfjöllunar veitingu heiðurslauna listamanna á grundvelli laga um heiðurslaun listamanna. Nefndin hefur bryddað upp á þeirri nýbreytni að óska eftir tilnefningum frá almenningi. Það hefur ekki verið gert áður af hálfu nefndarinnar. Unnt er að koma að tilnefningu til nefndarinnar á póstfangið heidurs- laun@althingi.is fyrir kl. 12 á hádegi sunnudaginn 11. desember nk. Samkvæmt lögum númer 66 frá 2012 veitir Alþingi árlega allt að 25 listamönnum heiðurslaun á fjárlög- um. Nefndin leggur fram breytingar- tillögu við frumvarp til fjárlaga ár hvert um þann hóp listamanna sem njóta heiðurslauna. Í fyrra bætti allsherjar- og mennta- málanefndar Alþingis engum á list- ann þrátt fyrir að tveir sem voru á listanum hefðu fallið frá á árinu 2021. Því fengu 23 einstaklingar launin í fyrra. Í ár hafa tveir til viðbótar fallið frá, sem voru á heiðurslaunalistanum. Samkvæmt lögum geta þeir einir geta notið heiðurslauna sem hafa var- ið starfsævi sinni eða verulegum hluta hennar til liststarfa eða skarað fram úr við listsköpun sína eða ef störf þeirra að listum hafa skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóðavett- vangi. Taka skal tillit til skiptingar í hópi heiðurslaunamanna eftir list- greinum og kyni. Eru sömu og starfslaun Forseti Alþingis skal skipa nefnd þriggja manna sem allsherjar- og menntamálanefnd leitar umsagnar hjá um þá listamenn sem til greina kemur að njóti heiðurslauna Alþingis. Nú er sem fyrr segir leitað til almenn- ings í fyrsta skipti. Heiðurslaun lista- manna eru veitt listamanni að fullu til sjötíu ára aldurs og skulu vera þau sömu og starfslaun listamanna eru á hverjum tíma. Eftir sjötugt verði þau 80% af starfslaunum. lÍ fyrsta skipti sem það er gertlFrestur er til sunnudags Alþingi hefur óskað til- nefninga um heiðurslaun Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Morgunblaðið/Hari Síminn stoppar ekki hjá bæjarstjóranum lÞór Sigurgeirsson vekur athygli fyrir opin samskipti við bæjarbúa „Pabbi gamli var alltaf með opna hurð inn á skrifstofuna og ég hef pælt í því hvort ég ætti hreinlega að láta taka hurðina af. Ég vil líka að bæjarbúar nái alltaf í mig, ég er bara einn af þeim,“ segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Þór, sem er sonur Sigurgeirs Sigurðssonar, bæjarstjóra um ára- tugaskeið, tók við starfinu í sumar og hefur þegar innleitt breytta stjórnunarhætti á Nesinu. Ný heimasíða bæjarins var opnuð á dögunum sem auka á upplýsinga- gjöf til íbúa til muna. Athygli vakti þegar hann viðraði á dögunum hugmynd sína um flutning bæjar- skrifstofunnar á Eiðistorg. Það gerði Þór í grein í bæjarblaðinu Nesfréttum og í lok greinarinn- ar gaf hann upp netfang sitt og farsímanúmer og bauð bæjar- búum að hafa samband við sig vegna málsins. Hringja ekki á nóttunni Þetta er algjörlega á skjön við það sem tíðkast orðið í opinbera geiranum þar sem lenskan virðist vera að allt þurfi að fara í gegnum nokkur lög af upplýsingafulltrúum og embættismönnum áður en al- Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Morgunblaðið/Hari Eiðistorg Bæjarstjórinn hefur hug á að flytja bæjarskrifstofuna á torgið. Bæjarbúar hafa tekið vel í hugmyndina og margir hafa sett sig í samband. Þór Sigurgeirsson menningur getur fengið eðlilegar upplýsingar um gang mála. „Ég vil enga hliðverði. Kannski er ég að koma með eitthvað nýtt inn í opinbera stjórnsýslu en mér þykir bara vænt um að heyra í fólki. Alveg sama hvort það er með mér eða á móti mér,“ segir Þór. „Það er ekkert öðruvísi hjá mér í þessu starfi en öðrum sem ég hef verið í, ég svara alltaf í símann. Það er bara heiðarleg nálgun við bæjarbúa og þeir eru heiðarlegir á móti. Þeir eru ekkert að hringja á nóttunni,“ segir hann í léttum tón. Símtöl og tölvupóstar Og viðtökurnar við þessu tiltekna máli um flutning bæjar- skrifstofunnar hafa verið miklar og góðar. Þór ítrekar reyndar í samtali við Morgunblaðið að hann hafi verið upptekinn við gerð fjárhagsáætlunar að undanförnu og ekki komist í að vinna frekar að málinu. Það stendur þó til bóta og ekki er vanþörf á. „Bæjarbúar hafa sýnt því mikinn áhuga. Ætli ég hafi ekki fengið svona 120 innslög, í símtölum, tölvupósti og á Messenger. Af þeim voru tveir eitthvað efins og einn taldi þetta galið. Aðrir voru jákvæðir.“ Grýlupottur og Leppalúðaklettar l162 þúsund örnefni skráð í grunn Örnefnum í örnefnagrunni Land- mælinga Íslands (IS 50V) fjölgar ört eða um þrettán þúsund á einu ári. „Frá útgáfunni í júní voru ný- skráningar alls 6.070. Heildarfjöldi örnefna í útgáfunni er nú rúmlega 162 þúsund en það má nefna að í desemberútgáfunni fyrir ári var heildartalan tæplega 149 þúsund [...],“ segir í umfjöllun um skrásetn- ingu örnefna á vefsíðu Landmæl- inga. Örnefnalagið í gagnagrunnin- um breytist stöðugt. „Á síðustu mánuðum hafa skráningaraðilar á Norður- og Austurlandi verið virk- astir að skrá örnefni. Örnefnateymi Landmælinga Íslands hefur hnitað inn fjölmörg örnefni af kortum og loftmyndum sem er að finna á drifum og í skjalasafni stofnunar- innar,“ segir þar ennfremur. Í tilefni jólanna er þess getið að í örnefna- laginu megi finna ýmis skemmtileg örnefni, þ. á m. tugi örnefna með tengingar við Grýlu en aðeins þrjú sem tengjast Leppalúða. Virðist af kortayfirliti að flest Grýlu-örnefn- in sé að finna á Vesturlandi og Norðausturlandi en víða um land má finna örnefni á borð við Grýlu- fossa í Vesturbyggið, Grýlubörn í Þingeyjarsveit, Grýlupotta í Árborg. Leppalúðakletta er aftur á móti að finna í Eyja- og Miklaholtshreppi. omfr@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Grýla Mörg örnefni á landinu tengjast Grýlu með ýmsum hætti. VW T-Rock Style 1,5 TST Fyrsti skráningard. 29.08.2018. Ekinn 12.400 km. Sumar- og vetrardekk fylgja. Söluábyrgð í gildi. Staðgreiðsluverð 3.600.000 kr. Uppýsingar í síma 897 6240. TIL SÖLU Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annanmannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.