Morgunblaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 25
25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 Framkvæmdir Verktakar una glaðir við tíðarfarið undanfarnar vikur og mánuði, nú þegar nálgast miður vetur. Byggingar rísa um borg og bý, líkt og hér í Kópavogi í vikunni. Árni Sæberg Óvíða á landinu á sér nú stað jafn mikil uppbygging og í Hafn- arfirði. Er áætlað að íbúum bæjarins muni fjölga um allt að fjórð- ung næstu þrjú til fjögur árin. Íbúða- hverfi rísa og stækka með blandaðri byggð í fallegu umhverfi í Hamranesi, Skarðshlíð og Áslandi og þéttingu á eldri svæðum. Samhliða fjölgar fyrirtækjum jafnt og þétt í Hafn- arfirði. Mjög jákvætt er að í því krefj- andi efnahagsumhverfi sem nú ríkir er gert ráð fyrir um 1.200 milljóna króna rekstrarafgangi á A- og B- hluta sveitarfélagsins á næsta ári, þar af um 600 milljóna afgangi á A-hlutanum. Það næst einkum með auknu aðhaldi og hag- ræðingu í rekstri málaflokka og tekjum af sölu lóða en mikil ásókn hefur verið í lóð- ir í bænum að und- anförnu, jafnt undir fyrirtæki og íbúðir. Hefur þar án efa áhrif að festa er í rekstri bæjarins og skattaum- hverfið hagstætt þar sem álögum á íbúa og fyrirtæki er stillt í hóf. Á árinu 2023 verður útsvarsprósenta áfram 14,48% en dregið er úr heild- arálagningu fasteignagjalda á íbúðahúsnæði með lækkun á vatns- og fráveitugjöldum til að koma til móts við miklar hækkanir á fast- eignamati á íbúðahúsnæði. Skattprósenta á atvinnuhúsnæði í Hafnarfirði er sem fyrr ein sú lægsta á höfuðborgarsvæðinu. Á komandi ári stefnir sveitarfé- lagið á að fjárfesta fyrir rúmlega sjö milljarða króna. Forgangsraðað er í þágu grunnþjónustu, svo sem umhverfismála, samgangna, íþrótta- aðstöðu, húsnæðis og fráveitumála. Auk almenns frágangs, fegrunar og endurnýjunar í hverfum, útivist- arsvæðum og stofnunum bæjarins þá eru að hefjast framkvæmdir við nýtt knatthús og reiðhöll og í und- irbúningi er bygging leikskóla í Hamranesi. Fjárhagur bæjarins styrkist Einnig eru ýmis stór verkefni í undirbúningi eins og þróun mið- bæjar og Flensborgarhafnar, fyr- irhuguð uppbygging Tækniskólans við höfnina, þróun Krýsuvíkursvæð- isins og stóraukin umsvif í Straums- vík í tengslum við CodaTerminal. Þessi verkefni sem munu komast á verulegt skrið á komandi mánuðum og misserum, verða mikil innspýt- ing og auka umsvif í sveitarfé- laginu. Fjölgun íbúa og aukin at- vinnutækifæri munu því haldast í hendur. Þá miklu uppbyggingu og íbúa- fjölgun sem framundan er í bæj- arfélaginu þarf að undirbúa vel og því mikilsvert að undirstöður bæj- arins séu öflugar. Fjárhagur Hafn- arfjarðarbæjar styrkist með hverju árinu eins og kemur fram í fjár- hagsáætlun fyrir árið 2023 sem samþykkt var í vikunni. Markmið okkar Sjálfstæðis- manna um að ná niður afar þungri skuldastöðu bæjarsjóðs gengur vel sem sést best á því að gert er ráð fyrir að skuldaviðmiðið verði komið niður í um 93% í árslok 2023 sem er vel undir 150% skuldaviðmiði sam- kvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga. Árið 2014 þegar við komumst í meirihluta bæjarstjórnar var skuldaviðmiðið um 200% Óhætt er því að segja að fjár- hagsstaðan hafi færst í rétta átt á undanförnum árum. Það eru bjartir og spennandi tímar framundan í Hafnarfirði þar sem vöxtur, velferð og blómlegt líf er í forgrunni. Rósa Guðbjartsdóttir »… dregið er úr heild- arálagningu fast- eignagjalda á íbúða- húsnæði með lækkun á vatns- og fráveitugjöld- um … Rósa Guðbjartsdóttir Höfundur er bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Uppgangur í Hafnarfirði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir er og verður hinn eini sanni „orkupakkaráð- herra“. Hún „stóð vörð um EES“ að eigin sögn. Það var undir hótunum Norðmanna, sem leyft hafa okkur að vera „aftanívagn“ þeirra í EES. Við vit- um öll að eigendur út- flutningsfyrirtækj- anna hafa notið EES og gróðinn hefur bæði verið notaður til upp- byggingar í atvinnugreininni og til kaupa á hlutum í stóru fákeppn- isfélögunum, sem stunda innflutning og þjónustu. Þjóð án verðskyns er auðlind, veiðileyfin á hana eru gjald- frjáls. Áhrif EES EES hefur valdið al- menningi vonbrigðum. Fólk trúði því að tenging við stóra, virka markaði mundi þýða lægri fram- færslukostnað. Svo reyndist ekki vera. Hann er tvöfaldur m.v. Evrópulönd. Örfá erlend félög hafa haslað sér völl hér og fljótt aðlagast fá- keppni og sjálftöku. EES felur í sér alla um- gjörð ESB um atvinnulíf og samkeppni. Aðild mundi engu breyta um fákeppnina. Erlendir fjárfestar, með erlent fjármagn og erlenda laxastofna, sem kallar á aukið erlent vinnuafl til landsins, misnota nú íslenska nátt- úru, með ofnýtingu og ófullnægjandi öryggi. Villtir stofnar, sem eiga eins og aðrar lífverur sinn tilvistarrétt, eru hugsunarlaust settir í hættu. Gullæði Gullæði hefur nú gripið um sig í eftirsókn eftir vindi, sem ekki hefur skort á Íslandi. Ekki er hugsað fyrir því hvernig þetta náttúruafl geti leik- ið vindmyllur, þegar saman fer fár- viðri og ísing. Enginn mun fjarlægja fallinn búnað gjaldþrota vind- orkuvers. Venjuleg byggingarefni grotna niður í tímans rás og hverfa aftur til jarðar, en trefjagler / trefja- plast / koltrefjar eru óendurvinnanleg og þarf að urða, ef einhver vill þá borga fyrir það. Þegar Norðmenn höfðu gengið vopnum sínum framar í fiskeldi í sjó og drepið náttúrulegt lífríki fjarða og skerjagarðs með laxaskít og lúsaeitri leituðu þeir hingað. Hér fundu þeir ósnortna náttúru til að nauðga, og voru boðnir velkomnir í nafni Mammons. Helreiðin Nú eru Norðmenn búnir að sprengja ísaldarklappirnar sundur til að geta komið risavöxnum vindmyll- um sínum fyrir. Strandlengja Noregs hefur verið kölluð „meistaraverk skaparans“. Andstaðan hefur farið vaxandi, svo nú leita þeir og þeirra peningar hingað. Hér eru fjöll og firn- indi, víðerni, Fjallkona, sem upplagt er að nauðga, í nafni Mammons. Staðreyndin er sú að engin fyr- irstaða stenst mátt peninganna. Við erum að umturna bæði náttúru lands- ins og menningu fyrir Mammon. Ef íbúum landsins fjölgar áfram með sama hraða og síðustu fimm árin verður fólk af erlendu bergi brotið helmingur íbúa landsins árið 2035. Ís- lenskt mál og menning getur ekki staðist þá áraun. Glópagull Ferðaþjónusta er orðin mesta gjaldeyrislind okkar. Fólk stórborga veraldarinnar þráir að upplifa náttúr- una, sem það lítur til úr fjarlægð, á skjánum. Að grafa undan sinni helstu tekjulind er eins og að saga þá trjá- greinina af sem maður situr á. Heimskan sést langar leiðir. Fórnum ekki ómetanlegum verðmætum, menningu og náttúru, á altari Mammons. Hann fær aldrei nóg, vill bara meira og meira. Ragnar Önundarson » Að grafa undan sinni helstu tekjulind er eins og að saga þá trjá- greinina af sem maður situr á. Heimskan sést langar leiðir. Ragnar Önundarson Höfundur er viðskiptafræðingur. Heljarslóðarorrusta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.