Morgunblaðið - 10.12.2022, Side 30

Morgunblaðið - 10.12.2022, Side 30
✝ Völundur Þor- steinn Hermóðsson búfræðikandídat og leiðsögumaður fæddist að Nesi í Aðaldal 8. nóv- ember 1940. Hann lést eftir skamma sjúkdómslegu á sjúkrahúsinu á Ak- ureyri 26. nóvem- ber 2022. Völundur var fyrsta barn for- eldra sinna, Jóhönnu Álfheiðar Steingrímsdóttur húsmóður og rithöfundar, f. 20.8. 1920, d. 25.3. 2002, og Hermóðs Guðmunds- sonar bónda og frumkvöðuls í Laxárdeilunni, f. 3.5. 1915, d. 8.3. 1977. Völundur ólst upp hjá for- eldrum sínum fyrst að Nesi og síðan nýbýlinu Árnesi sem þau stofnuðu árið 1945. Hann átti þrjú yngri systkini, Sigríði Ragn- hildi, f. 1942, Hildi, f. 1950, og Hilmar, f.1953, d.1999. Árið 1961 kvæntist Völundur Völundur útskrifaðist gagn- fræðingur frá Laugaskóla, stundaði eftir það nám við Bændaskólann á Hvanneyri og útskrifaðist þaðan búfræði- kandídat 1961. Stundaði síðan framhaldsnám í vélaverkfræði við búnaðarháskólann í Ultuna í Svíþjóð. Eftir að Völundur kom heim vann hann hjá Búnaðar- sambandi Suður-Þingeyinga við úttekt jarðabóta og túnamæl- ingar. Hann vann um skeið við jurtakynbætur hjá Búnaðardeild atvinnudeildar Háskóla Íslands og einnig hjá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins. Völundur starf- aði síðan hjá Surtseyjarfélaginu við rannsóknir í Surtsey. Eftir það flutti Völundur á heimaslóðir og setti á stofn fyrirtæki sem rak skurðgröfur og einnig rútur sem hann notaði til að aka skólabörn- um á veturna og ferðamönnum um hálendið á sumrin. Þekktastur var Völundur sem leiðsögumaður og leiðbeinandi við Laxá í Aðaldal þar sem hann þekkti hvert kennileiti og hvern veiðistað eins og lófann á sér. Útför Völundar fer fram í Nes- kirkju í Aðaldal í dag, 10. desem- ber 2022, klukkan 14. Hægt verður að fylgjast með athöfninni í gegnum streymið www.twitch.tv/hljodveridbruar Þorsteinn eigin- konu sinni Höllu Lovísu Loftsdóttur kennara, f. 31.5. 1943. Börn þeirra eru þrjú: 1) Stein- unn Birna, f. 1961, sem starfar á HSN á Húsavík við umönn- un aldraðra. Eig- inmaður hennar er Sigmundur Hreið- arsson framleiðslu- stjóri hjá Norðlenska á Húsavík, synir þeirra eru Jóhann Ágúst og Vilberg Lindi. Eiginkona Jó- hanns er Ásta Margrét Rögn- valdsdóttir, börn þeirra eru Vil- borg Halla, Hallveig Birna og Valtýr Smári. 2) Viðar hár- greiðslumeistari og danskennari í London, f. 1963, maki hans er Robert Gowing lögfræðingur. 3) Völundur Snær, f. 1973, mat- reiðslumaður í Reykjavík, eig- inkona hans er Þóra Kolbrá Sig- urðardóttir blaðamaður, börn þeirra eru Baldvin Snær og Móey Mjöll. „Ég var að velta því fyrir mér hvort við gætum fundið út hver framleiddi veiðihattinn minn. Það væri gaman að láta laga hann,“ sagði Völli tengdapabbi við mig síðast þegar ég var í heimsókn. Við vorum bara tvö heima og eins og honum einum er lagið var hann búinn að finna gott verkefni fyrir okkur að brasa við. Áður en ég vissi af var hann búinn að draga fram stækkunargler og sterkt ljós og þannig reyndum við að finna út hver framleiddi hinn forláta veiðihatt sem hver einasti veiði- maður, sem veitt hefur undir hans leiðsögn, kannast svo vel við. Þrátt fyrir töluverða rann- sóknarvinnu höfðum við það eitt upp úr krafsinu að til eru tvær megingerðir af tweed-efni á Ír- landi og að hatturinn er fram- leiddur úr annarri þeirra. Þar með var það verkefni lagt til hliðar en þetta lýsir Völla í hnotskurn. Alltaf með verkefni á prjónunum. Völli var einstakur maður. Þegar ég rifja upp okkar sautján ára sögu rekur mig ekki minni til þess að okkur hafi nokkru sinni orðið sundurorða. Hann var alltaf ljúfur og þegar ég stóð óþarflega föst á mein- ingunni hafði hann vit á að láta kyrrt liggja. Eins og á æfing- unni fyrir brúðkaupið mitt þeg- ar ég tók það ekki í mál að feður okkar stæðu með okkur við alt- arið. Ég man að ég fjasaði heil ósköp yfir því hvað mér fyndist þetta úr sér gengin hefð og að þessu vildi ég breyta. Völli var á öndverðum meiði en sagði ekki orð. Lét þess í stað eins og hann heyrði ekki í mér og virtist hafa mikinn áhuga á kirkjubekkjunum. Eins og verða vill í aðdraganda brúð- kaups var í mörg horn að líta og fljótlega var ég farin að segja skoðun mína á einhverju öðru. Daginn eftir stóð Völli teinrétt- ur upp við altarið og ég man að ég hló inni í mér þegar ég sá hann brosa blíðlega til mín sínu alvitra brosi. Hann var mér alltaf góður og hafði einlægan áhuga á öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur. Hann var með eindæm- um bóngóður og alltaf til í að ræða allt milli himins og jarðar enda afar fróður og vissi ým- islegt sem ekki allir hafa getu til að skilja. Ég var nýverið stödd á Vestfjörðum og innti hann eftir því næst þegar ég hitti hann að mig vantaði sárlega heimildir um álfabyggðir þar. Eins og endranær kom ég ekki að tóm- um kofunum og sendi hann mig heim með merkilegt lesefni. Jafnframt laumaði hann að mér bókinni „Á vit hins ókunna“ og sagði mér að glugga í hana. Mér þætti það ábyggilega fróðlegt. Hann sá ekki sólina fyrir barnabörnunum og þeirra er missirinn mestur. Hann náði þó blessunarlega að kenna þeim einhverja vitleysu eins og að keyra og þeir voru ófáir veiði- hringirnir sem voru eknir í þeim tilgangi. Vinsælasta dægradvöl- in í sveitinni var sumsé að fara út að keyra með afa Völla. Þú kvaddir of fljótt. Þú varst langt á undan þinni samtíð, bráðgreindur, vel lesinn og um- fram allt mesta góðmenni sem ég hef hitt. Það var mín gæfa að eiga þig sem tengdaföður og ég mun halda loforðið sem ég gaf þér á dánarbeðinum. Hvíl í friði elsku Völli – hlakka til að hitta þig á ný. Þín uppáhalds- (og eina) tengdadóttir, Þóra Kolbrá. Elsku afi Völli. Það er erfitt að trúa því að nú sé komið að kveðjustund. Minningar leita á hugann og kalla fram sorg í hjarta en um leið þakklæti fyrir yndislegar samverustundir. Það verður skrýtið að koma heim í Álftanes og finna þig ekki í horninu við eldhúsborðið með einlæga brosið, kærleikann og hlýjuna. Þú tókst okkur alltaf opnum örmum og sýndir því ávallt áhuga sem við tókum okk- ur fyrir hendur. Þú varst mikill fróðleiksbrunnur og hafðir gam- an af að upplýsa okkur yngri kynslóðina um allt milli himins og jarðar. Þú varst metnaðar- fullur og vandvirkur og komst svo vel að orði þegar þú kenndir Jóhanni á gröfu fyrir margt löngu: „Þú ert aldrei lengur að gera hluti vel en illa.“ Of mikil fljótfærni getur án efa komið manni í koll síðar. Þú hafðir svo gaman af að spila vist og mikið var skemmtilegt þegar endur- vakin var hefðin að spila saman í Álftanesi í kringum jólin. Þú varst byrjaður að kenna Vil- borgu að spila vist og henni þótti svo vænt um að fá að fara með ykkur á síðasta spilakvöld. Þú gerðir þér líka lítið fyrir og skelltir þér á danssýningu, að- eins viku áður en þú kvaddir, til að sjá Hallveigu dansa og það sem hún var glöð að fá þig, ömmu Höllu og fleiri að horfa á sig. Þú varst líka stoltur af litla stubbnum okkar, Valtý Smára, og gafst þér alltaf tíma til að spjalla við hann og gantast. Þú og amma Halla hafið ávallt verið boðin og búin að létta undir með okkur fjölskyldunni, hvort sem er að hafa ofan af fyrir börn- unum okkar, lána okkur runna- klippurnar, líma saman brotna hluti (það var ekki almennilega gert nema afi Völli gerði það), veita góð ráð eða bara hvað sem helst. Við reyndum svo að gjalda í sömu mynt með því til dæmis að ráðast á blessaða skriðjurtina í blómaskálanum sem Jóhann elskar svo heitt og breytast í Ástu tæknitröll ef ein- hver hafði í ógáti skráð þig út af facebook-reikningnum ykkar í tölvunni þinni. Ein af okkar uppáhaldsminningum er samt þegar við settumst saman við borðstofuborðið í Álftanesi, hlustuðum á jólatónlist og skár- um út laufabrauð. Þú skarst laufabrauðið alltaf út með hníf og kenndir okkur hinum listina af mikilli natni og þolinmæði. Þú varst svo mikið jólabarn og í Álftanesi á hvert jólaskraut sinn sérstaka stað og varla hægt að skreyta nema þú værir til að stýra hvert hlutirnir færu. Nú þegar jólin nálgast hellast yfir okkur ljúfsárar minningar um þessar stundir þegar við fjöl- skyldan litum inn og aðstoðuð- um ykkur við að skreyta. Það mun reyna á okkur nú að finna út hvar allt á að vera þegar þú ert ekki lengur til að leiðbeina okkur, en það erum við viss um Völundur Þor- steinn Hermóðsson HINSTA KVEÐJA Elsku besti afi. Mér þykir svo vænt um þig. Ég sakna þín svo. Kveðja, Valtýr Smári. Elsku afi Völli. Þú varst rosalega skemmtilegur. Þú varst oft fyndinn. Þegar ég kom í pössun til ykkar þá spiluð- um við stundum ólsen-ól- sen. Mér fannst það skemmtilegt. Ég sakna þín rosalega mikið. Kveðja, Hallveig Birna. Elsku afi Völli. Ég man þegar ég var yngri að við fórum saman út í blóma- skála og tíndum jarðarber. Þú kenndir mér líka að spila félagsvist og mér fannst svo gaman að spila við þig og ömmu. Ég á eftir að sakna þess að heyra þig segja: „Nei, sæl elsku hjartað mitt“ þegar ég labba inn í eldhúsið í Álfta- nesi. Ég mun aldrei gleyma þér, hjartað mitt. Kveðja, Vilborg Halla. 30 MESSUR á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 AKRANESKIRKJA | Aðventustund barnanna kl. 11. Syngjum saman jóla- lög og heyrum jólasögu. Kór Grunda- skóla syngur. AKUREYRARKIRKJA | Sunnudaga- skóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Síð- asti sunnudagskóli fyrir jól. Umsjón Sonja Kro og Hólmfríður Her- mannsdóttir. Æðruleysismessa í Akur- eyrarkirkju kl. 20. Ólína Freysteinsdótt- ir fjölskyldufræðingur flytur hugleiðingu. 10 mínútna djúpslökun í umsjá jógakennarans Þuríðar Helgu Kristjánsdóttur. Tónlistin er í höndum Hermanns Arasonar, Eyþórs Inga Jóns- sonar og Guðrúnar Arngrímsdóttur. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Mola- sopi í safnaðarheimilinu að messu lok- inni. ÁRBÆJARKIRKJA | Árlegt jólaball verður haldið sunnudag 11. desember að lokinni fjölskylduguðsþjónustu sem hefst kl. 11. Jólasveinar líta inn með glaðning fyrir börnin. Prestur er Þór Hauksson ásamt Ingunni Björk Jóns- dóttur djákna. Aðalheiður Þorsteins- dóttir leikur á flygilinn og Hildur María Torfadóttir syngur. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 13. Emma og Þorsteinn annast sam- verustund sunnudagaskólans. Sr. Helga Kolbeinsdóttir prédikar og þjón- ar fyrir altari. Hljómfélagið leiðir safn- aðarsönginn undir stjórn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. Hressing í Ási að messu lokinni. ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta í Ástjarnarkirkju kl. 17. Skátar koma með friðarloga alla leið frá Betlehem og tendra með honum friðarljós í kirkj- unni. BESSASTAÐAKIRKJA | Jólastund fjölskyldunnar kl. 11. Helgileikur sem börn á Álftanesi setja upp. Ungir hljóð- færaleikarar og listasýning 10-12 ára barna. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sameiginlegt jólaball Breiðholtssafnaðar og alþjóð- lega safnaðarins kl. 14. Umsjón með stundinni hafa sr. Pétur Ragnhildar- son, sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir og sr. Toshiki Toma. Örn Magnússon leiðir tónlistina. BÚSTAÐAKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Fermingarbörn sýna helgileikinn Verði ljós. Daníel Ágúst, Katrín Eir, Eva Björk og Jónas Þórir þjóna. Við kveikj- um á þriðja kertinu á aðventukransin- um og syngjum jólalög. DIGRANESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson pre- dikar og þjónar fyrir altari. Jólastund í sunnudagaskólanum á sama tíma í umsjón Ásdísar og Hálfdáns. Súpa og samfélag í lokin. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, prest- ur er Elínborg Sturludóttir, Guðmundur Sigurðsson er organisti og Dómkórinn. Eftir messuna verður boðið upp á góð- gerðarmorgunverð í Safnaðarheimilinu til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar sem styður við fátækar fjölskyldur fyrir jólin. Norsk messa kl. 14, sr. Þorvaldur Víð- isson, Kári Þormar og félagar úr Dóm- kórnum leiða sönginn. FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Jólaball kl. 17. Sr. Pétur Ragnhildarson hefur umsjón með stundinni og Arnhildur Val- garðsdóttir leiðir tónlist og söng. Frek- ari upplýsingar inn á www.fellaoghola- kirkja.is FRIÐRIKSKAPELLA | Aðventu- messa á vegum JELK.is sunnudag kl. 11. Sakarías Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kaffi og meðlæti eftir messu. GARÐAKIRKJA | Hátíðarguðsþjón- usta á vegum Rótarýklúbbsins Görðum í Garðakirkju kl. 12.30. Sr. Guðrún Egg- erts Þórudóttir þjónar fyrir altari. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Sigurður Grétar Helga- son þjónar. Nemendur úr Tónlistar- skóla Grafarvogs leika á hljóðfæri. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli er á sama tíma á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hafa Ásta Jóhanna Harðardótt- ir og sr. Guðrún Karls Helgudóttir. Und- irleikari er Stefán Birkisson. Selmessa kl. 13 í Kirkjuselinu í Spöng. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Kórkonur úr Domus Vox syngja undir stjórn Margrétar Pálmadóttur. Ásta Haraldsdóttir kantór leikur á flygil og orgel. Sr. Þorvaldur Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjón- um. Þriðjudagar kl. 12, kyrrðarstund í hádeginu í Grensáskirkju, einnig í streymi. Fimmtudagar kl. 17.15 núvit- undarstundir. Helgihald um jól og ára- mót er aðgengilegt á heimasíðunni kirkja.is. GRUND dvalar- og hjúkrunarheim- ili | Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrr- um þjónandi presta kl. 14 í hátíðarsal Grundar. Prestur er Gunnar Björnsson. Félagar úr Grundarkór leiða söng undir stjórn Kristínar Waage organista. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Prest- ur er Leifur Ragnar Jónsson sem þjón- ar og predikar fyrir altari. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir og kór Guðríð- arkirkju syngur. Kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi eftir mess- una. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Jóla- stund fjölskyldunnar kl. 11. Sr. Jónína Ólafsdóttir þjónar ásamt Rósu Hrönn Árnadóttur. Barna- og unglingakór Hafnarfjarðarkirkju syngur og flytur helgileik. Stjórnendur kóranna eru Brynhildur Auðbjargardóttir og Helga Loftsdóttir. Kári Þormar leikur á píanó og orgel. Jólaball í safnaðarheimilinu á eftir og sveinki mætir. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Ósk- arsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Ragnheiður Bjarnadóttir, María Elísabet Halldórs- dóttir og Alvilda Eivör Elmarsdóttir sjá um barnastarfið. Organisti er Steinar Logi Helgason. Karlakór Reykjavíkur leiðir messusöng undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Tórshavnar Manskór syngja kórverk undir stjórn Bjarna Re- storff. HALLGRÍMSKIRKJA SAURBÆ | Að- ventuhátíð kl. 20. Kór Saurbæjar- prestakalls syngur. Ólafur Sverrisson talar og segir frá starfinu í Vatnaskógi. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Kordía, kór Háteigs- kirkju syngur. Organisti er Guðný Ein- arsdóttir. Heitt á könnunni að messu lokinni. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa sunnudag kl. 17. Sr. Karen Lind Ólafs- dóttir leiðir stundina. Matthías V. Bald- ursson sér um tónlistarflutninginn og með honum verður Lögreglukórinn. HVALSNESKIRKJA | Sjá Sandgerðis- kirkju. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma kl. 11. Service. Translation into English. Samkoma á ensku kl. 14. English speaking service. Samkoma á spænsku kl. 16. Reuniónes en esp- añol. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Aðventu- samkoma með lofjörð og fyrirbænum. Samkoman verður í umsjá unga fólks- ins – UNIK. Friðrik Páll Ragnarsson Schram prédikar. Kaffi að samveru- stund lokinni. KÁLFATJARNARKIRKJA | Söng- og helgistund í Álfagerði, sunnudag kl. 14. Kór Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn Daníels Arasonar og sr. Arnór Bjarki Blomsterberg leiðir stundina og flytur aðventuhugvekju. KEFLAVÍKURKIRKJA | Jólaball í Keflavíkurkirkju kl. 11, byrjum með helgistund í kirkjunni förum síðan í Kirkjulund þar sem hljómsveit Tónlist- arskóla Reykjanesbæjar leiðir jólatrés- söng í Kirkjulundi. Jólasveinar koma í heimsókn. ,,Nú mega jólin koma fyrir mér“ kl. 20. Helgistund í Keflavíkurkirkju með jóla- söngvum sem allir þekkja og uppá- haldssögu prestsins fyrir alla yngri sem eldri. KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Selmessa sunnudag kl. 13. Sr. Sigurður Grétar Helgason þjónar. Nemendur úr Tónlist- arskóla Grafarvogs leika á hljóðfæri. Vox Populi leiðir söng. Organisti er Há- kon Leifsson. KOLAPORTIÐ | Kolaportsmessa kl. 14 sunnudag. Jólasöngvar og hugarró. Umsjón sr. Bjarni Karlsson og Ragn- heiður Sverrisdóttir, djákni. Tónlist Guðrún Árný Karlsdóttir. Túlkað á ensku og úkranísku. KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson prédik- ar og þjónar fyrir altari. Félagar í kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Gengið verður til altaris. Sunnnudaga- skólinn á sama tíma í safnaðarheim- ilinu Borgum. KVENNAKIRKJAN | Aðventuguðþjón- usta í stofum Kvennakirkjunnar í Þing- holtsstræti 17 kl. 20. Aðalheiður Þor- steinsdóttir og Anna Sigríður Helgadóttir leiða söng jólalaga. Konur segja hver annarri frá trú sinni. Á eftir verður borið fram kaffi, súkkulaði og smákökur. LANGHOLTSKIRKJA | Krúttamessa kl. 11, söngur, jólasveinar og jólaball. Sara Grímsdóttir söngkona leiðir stundina. Krúttakórinn syngur undir stjórn Bjargar Þórsdóttur og Sunnu Karenar Einarsdóttur. Jólasveinar kíkja í heimsókn og dansa með krökkunum í kringum jólatréð. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er Jón Ásgeir Sigurvinsson. Organisti er Elísabet Þórðardóttir. Kammerkór Reykjavíkur syngur undir stjórn Sigurðar Bragasonar. Kaffi og samvera í safnaðarheimili eftir messu. LÁGAFELLSKIRKJA | Jólakirkjubrall – aðventustund barnanna kl. 12-14. Fjölskylduvæn samvera með föndri, jólatrésrækt, ratleik, skreyta piparkök- ur, fjárhúsahvíld og helgileik en um leið fræðast um atburði jólanna. Góður gestur kíkir í heimsókn og brallinu lýkur með máltíð. Umsjón: Bogi, sr. Henn- ing, Þórður og sunnudagaskólaleiðtog- ar. NESKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Barnakór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þórhallssonar. Jóla- lög, jólasaga og jólaleikrit í umsjá Krist- rúnar Guðmundsdóttur æskulýðsfull- trúa og sr. Steinunnar A. Björnsdóttur. Aðventuhátíð kl. 17. Kór Neskirkju syngur undir stjórn Steingríms Þór- hallssonar. Gissur Páll Gissurarson syngur einsöng. Pamela De Sensi og Ásta Sóllilja Auðunsdóttir leika á flautu. Ræðumaður er Auðunn Atla- son. Prestar Neskirkju leiða stundina. Hressing á Torginu eftir hátíðina. SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni | Að- ventumessa kl. 14. Sigríður Ósk Krist- jánsdóttir syngur. Sigrún Steingríms- dóttir organisti stjórnar almennum safnaðarsöng. Í lok messunnar verður sungið sérstaklega með börnum á öll- um aldri. Altarisþjónusta og prédikun verður í höndum sr. Kristins Ágústs Friðfinnssonar. Sandgerðiskirkja | Aðventuhátíð kl. 18. Kirkjukórinn, Söngsveitin Víkingar, Skólakór Sandgerðis, atriði frá tónlist- arskólanum, hugvekja, almennur söng- ur. Ljósin tendruð í lokin og allir syngja saman. SELJAKIRKJA | Barnaguðþjónusta kl. 11. Óli og Helgi leiða samveruna. Guðsþjónusta kl. 13. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson predikar. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða safnaðarsöng. Organ- isti er Sveinn Arnar Sæmundsson. Að- ventutónleikar kl. 17. Karlakórinn Fóst- bræður syngur undir stjórn Árna Harðarsonar. Ingibjörg Aldís Ólafsdótt- ir, sópransöngkona, syngur einsöng. Undirleikari: Sveinn Arnar Sæmunds- son. Ókeypis aðgangur. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Sr. Jón Stein- grímsson og móðuharðindin. Jón Krist- innn Einarsson, sagnfræðingur, talar. Þakkargjörðarguðsþjónusta og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjón- ar. Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Anton Sigurðsson, pípulagningar- meistari, segir frá borholu 17. Guð- laugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra, talar. Félagar úr Kammerkórnum syngja. Kaffiveitingar eftir athöfn í safnaðarheimilinu. Morg- unkaffi kl. 9 og kyrrðarstund kl. 12 á miðvikudag. ÚTSKÁLAKIRKJA | Sjá Sandgerðis- kirkju. VÍDALÍNSKIRKJA | Jólaball sunnu- dagaskólans kl. 11. Sr. Matthildur og Jóna Þórdís leiða stundina. Stundin hefst á stuttri athöfn í kirkjunni áður en við förum yfir í safnaðarheimilið og dönsum kringum jólatréð. Berglind Halla leikkona leiðir söng með Davíð gítarleikara. Jólasveinninn kemur í heimsókn með glaðning fyrir börnin. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 10 í umsjá Benna og Dísu. Fjölskylduhátíð kl. 11. Nú æf- um við og syngjum jólasálma saman og leiða félagar úr Kór Víðistaðasóknar sönginn undir stjórn Sveins Arnars org- anista. Sr. Bragi sóknarprestur leiðir stundina. Stekkjastaur kemur í heim- sókn. Kaffi, djús og smákökur í safn- aðarsal að athöfn lokinni. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Aðventu- hátíð sunnudag kl. 17. Ingibjörg Hjör- dís Einarsdóttir, sópran syngur. Strengjasveit Tónlistarskóla Reykja- nesbæjar kemur fram og kór Njarðvík- urprestakalls leiðir söng. Fermingar- börn og foreldrar þeirra hvött til að mæta. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Grundarkirkja Minningar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.