Morgunblaðið - 10.12.2022, Síða 32

Morgunblaðið - 10.12.2022, Síða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 ✝ Ragnheiður Thelma Björnsdóttir fædd- ist í Hafnarfirði 11. september 1972. Hún lést 5. ágúst 2022 í Portúgal. Foreldrar henn- ar eru Svava Frið- þjófsdóttir skrif- stofukona, f. 9. nóvember 1953, og Björn Árnason húsasmiður, f. 20. desember 1950. Hann var giftur Jónu Sigurðar- dóttur, f. 1948, d. 2003, og átti hún fyrir tvö börn, þau Jón M. Schow, f. 1977, og Hlín Mo- gensdóttur, f. 1972. Hlín á fjögur börn. Stjúpfaðir Ragn- heiðar Thelmu er Hafsteinn Halldórsson sjómaður, f. 8 nóvember 1958. Systkini Ragnheiðar Thelmu eru; sam- feðra: Sif, f. 1983, sambýlis- maður hennar er Ingvar Högni Ragnarsson, f. 1981. Dóttir þeirra er Malín Yrja, f. 2018, sonur Sifjar er Theodór Svarfdal Sveinbjörnsson, f. 2008. Sammæðra: Kristján Hafsteinsson, f. 1980, sam- býliskona hans er Jóhanna Helga Viðarsdóttir, f. 1983. Þeirra börn eru Iðunn Björk, f. 2008, Kári Rafn, f. 2011, og Orri Steinarr, f. 2021. Frið- þjófur Arnar Hafsteinsson, f. 1987, sonur hans er Friðþjófur Mikael, f. 2012. Eftirlifandi eiginmaður Ragnheiðar Thelmu er Brynj- ar Örn Sigurðsson siglinga- fræðingur, f. 25. júlí 1975. Foreldrar hans eru Sigurður Jónsson tæknifræðingur, f. 1954, og Olga Ólafsdóttir skrifstofukona, f. 1954. Sonur Ragnheiðar Thelmu er Aron Lloyd Green vefþró- unarstjóri, f. 5. janúar 1993, og er hann giftur El- ísabetu Guð- mundsdóttur nema, f. 17. apríl 1993. Börn þeirra eru Júlía Kristín, f. 24. desember 2019, og Huginn Ragnar, f. 31. júlí 2022. Faðir Arons er Matthew Lloyd Green, f. 1967. Dætur hans eru Layla, f. 1999, og Kather- ine Alabama, f. 2005. Dóttir Ragnheiðar Thelmu og Brynjars er Írena Ósk förð- unarfræðingur, f. 8. október 1998. Sambýlismaður hennar er Úlfur Þór Böðvarsson vefþróunarstjóri, f. 2. mars 1999. Ragnheiður Thelma ólst upp í Hafnarfirði og stundaði grunnskólagöngu við Lækjar- skóla. Að grunnskóla loknum fór hún í Menntaskólann á Laugarvatni og eignaðist þar marga góða vini og kunn- ingja. Ragnheiður Thelma fluttist til Lúxemborgar 1990 og bjó þar til ársins 1994. Eftir heim- komu starfaði hún við umönn- un fatlaðra og á hæfingarstöð- inni Bæjarhrauni. Hún kynnt- ist Brynjari Erni Sigurðssyni eiginmanni sínum árið 1996 og gengu þau í hjónaband hinn 19. ágúst árið 2000. Ragnheið- ur Thelma fór svo í Iðnskól- ann í Hafnarfirði og lærði hársnyrtiiðn. Hún bjó ásamt fjölskyldu sinni í Hafnarfirði til ársins 2014 og fluttu þau þá á Eyrarbakka. Ragnheiður Thelma var mikill náttúruunnandi og naut þess að ferðast vítt og breitt. Bálför hefur farið fram. Elsku Thelma okkar. Þú varst elsta barnabarnið og tókst það hlutverk mjög alvarlega. Þér fórst það einstaklega vel úr hendi. Þú passaðir öll frænd- systkinin á einhverjum tíma- punkti en þú passaðir líka upp á okkur öll, varst alltaf til staðar þegar við þurftum á þér að halda með góð ráð og aðstoð. Þú leist á það sem þitt hlutverk að halda utan um okkur öll og passa upp á að við værum í góðu sambandi. Skipulagðir frændsystkinahittinga, útilegur og aðrar skemmtilegar uppá- komur. Fjölskyldan skipti þig svo miklu máli. Móðurhlutverkið og seinna ömmuhlutverkið var þér allt. Þú varst okkur sannkölluð fyrir- mynd þar og var yndislegt að fylgjast með þér halda utan um fólkið þitt. Að sjá þig takast á við ömmuhlutverkið, mikla barnagælan sem þú varst, var dásamlegt. Þið Júlía voruð ein- stakar vinkonur og svo óskap- lega nánar. Þú varst alltaf svo yndisleg, elsku besta Thelma. Alltaf með bestu ráðin og vissir alltaf hvað átti að gera. Þú varst svo mikil fyrirmynd fyrir okkur. Það sem stendur upp úr fjölmörgum minningum er góðmennskan, hjálpsemin og hvað fólkið í kringum þig skipti þig miklu máli. Kjarnafjölskyldan þín sem reiddi sig á þig, stórfjölskyldan og endalaus fjöldi af vinum. Enginn var þér óviðkomandi og kærleikinn þitt aðalsmerki. Við systurnar eigum enda- laust af dásamlegum minning- um um þig. Hugljúfum sem og fjörugum. Rauði þráðurinn er samt alltaf stuðið, húmorinn og fjörið sem var í kringum þig. Þú varst skemmtilegasta barnapían og mesta barnagælan. Við þökkum þér væntumþykjuna, stuðninginn, að vera alltaf til staðar og allan hláturinn. Við munum varðveita minninguna um uppáhalds stóru frænku alla ævi. Takk fyrir allt, elsku Thelma. Elsku Binni, Aron, Írena og fjölskyldur, Svava, Kristján, Friðþjófur og fjölskyldur, miss- ir ykkar er mikill. Hugur okkar er hjá ykkur. Þínar frænkur, Friðsemd, Linda og Ragnheiður. Ragnheiður Thelma Björnsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Sálm. 86.7 biblian.is Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BENTH U. BEHREND Skógargötu 18, Sauðárkróki, lést á HSN Sauðárkróki laugardaginn 26. nóvember. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju mánudaginn 12. desember klukkan 13. Alda Ferdinandsdóttir Þyri Edda Bentsdóttir Guðrún Elísabet Bentsdóttir Gústav Ferdinand Bentsson Annemie Milissen barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, ÁGÚSTA SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR, Mávabraut 1a, Keflavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut, laugardaginn 26. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Halldór Angantýr Þórarinsson Þóra Björk Halldórsdóttir Andri Már Eyþórsson Ólöf Ösp Halldórsdóttir Sveinn Haukur Albertsson Valdís Þóra Gunnarsdóttir Vignir Már Guðjónsson Sara Lind Gunnarsdóttir Páll Þórir Jónsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTBJÖRN ÞÓR ÁRNASON, Bóbi, skipstjóri, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Húsavík, 5. desember. Útför hans fer fram í Húsavíkurkirkju miðvikudaginn 14. desember klukkan 14. Birna Sigurbjörnsdóttir Aðalbjörg Kristbjörnsdóttir Jón Gíslason Árni Björn Kristbjörnsson Sandra B. Franks barnabörn og barnabarnabörn Okkar kæra GUÐBJÖRG EIRÍKSDÓTTIR, Bagga í Steinsholti, er látin. Aðstandendur Elskuleg móðir, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN INGUNN MAGNÚSDÓTTIR frá Króktúni í Landsveit, síðast til heimilis í Reykjanesbæ, sem lést laugardaginn 3. desember á Landspítalanum í Fossvogi, verður jarðsungin frá Skarðskirkju laugardaginn 17. desember klukkan 13. Magnús Benediktsson Rakel Ýr Björnsdóttir og börn Ástkær móðir, tengdamóðir, amma, systir, mágkona og frænka, ÁSDÍS VÉBJÖRG JÓNSDÓTTIR, lést 8. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Eiríkur Örn Guðmundsson Þorbjörg Ósk Úlfarsdóttir og barnabörn Sigurður Þ. Jónsson Fríða Ástvaldsdóttir og fjölskyldur Elsku hjartans eiginkona mín, dóttir, mamma, tengdamamma og amma okkar, HALLDÓRA HALLA JÓNSDÓTTIR, Gröf 1, Hvalfjarðarsveit, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi miðvikudaginn 7. desember í faðmi ástvina. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 16. desember klukkan 13. Sigurbaldur Kristinsson Jón Eiríksson Rut Hallgrímsdóttir Guðný Elíasdóttir Jökull Helgason Jón Hartmann Elíasson Hrafnhildur Kristinsdóttir Hreinn Elíasson Kristín Jezorski Marín Rut Elíasdóttir Sigurjón Ingi Úlfarsson Stella Eyrún Sigurbaldursd. Arnar Þór Ólason Sindri Már Sigurbaldursson Kristbjörg Víðisdóttir og ömmugullin Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐMUNDA P. HERMANNSDÓTTIR, Munda frá Ysta-Mói, Sauðárhæðum, Sauðárkróki, lést á HSN Sauðárkróki laugardaginn 26. nóvember. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 17. desember klukkan 13. Athöfninni verður streymt frá Sauðárkrókskirkju: https://www.youtube.com/watch?v=3KwlqYhTDIw Hlekk má einnig nálgast á mbl.is/andlat. Jarðsett verður í Barðskirkjugarði, Fljótum. Sigurhanna Ólafsdóttir Jóhanna Petra Haraldsdóttir Jónas S. Svavarsson Linda Nína Haraldardóttir Jón Eðvald Friðriksson Lára Gréta Haraldsdóttir Magnús Sigfússon Þröstur Georg Haraldsson Guðrún Haraldsdóttir Ellen Hrönn Haraldsdóttir Gunnar Björn Ásgeirsson Stefán Logi Haraldsson Inga S. Baldursdóttir Róbert Steinn Haraldsson Erla Valgarðsdóttir Haraldur Smári Haraldsson Eydís Eysteinsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn Ástkær faðir okkar, GUNNAR KARL GRÄNZ málarameistari, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi mánudaginn 17. október. Útför hefur farið fram að ósk hins látna. Guðrún Sandra, Gunnar Þór og fjölskyldur Elsku eiginkona mín, móðir, amma og langamma, ÁSTA ÁKADÓTTIR frá Súðavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi fimmtudaginn 8. desember. Útför fer fram í kyrrþey að hennar ósk. Sigurður Borgar Þórðarson Þórður Þ. Sigurðsson Nanna Sigurðardóttir Una Sigurðardóttir barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.