Morgunblaðið - 10.12.2022, Page 38

Morgunblaðið - 10.12.2022, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 DÆGRADVÖL38 KÄHLER í jólapakkann Skeifan 8 | Kringlan | Hafnartorg Gallery | Glerártorg | casa.is Til hamingju með daginn Stjörnuspá Sigríður Dögg Arnardóttir 40 ÁRA Sigga Dögg er Keflvíkingur en býr í Reykjavík. Hún er með BA-gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands og meistara- gráðu í kynfræði frá Curtin-háskóla í Vestur-Ástralíu. Sigga Dögg er sjálfstætt starfandi kynfræðingur, uppistandari og rithöfundur. Hún var að gefa sína sjöttu bók, sem heitir Litla bókin um blæðingar. Áhugamálin eru ferðalög, allt sem er yfirnáttúrulegt, að tína steina, ferðast um á húsbílnum og ævintýri. FJÖLSKYLDA Maki Siggu Daggar er Sævar Eyjólfsson, f. 1978, sjálfstætt starf- andi athafnamaður. Börn Siggu Daggar eru Íris Lóa, f. 2011, Henry Nói, f. 2013, og Benjamín Leó, f. 2017. Dóttir Sævars er Dýrleif, f. 2005. Foreldrar Siggu Daggar eru hjónin Íris Björk Guðjónsdóttir, f. 1964, millistjórnandi í Fríhöfninni, og Örn Garðarsson, f. 1963, matreiðslu- meistari á Soho. Þau eru búsett í Keflavík. Nýr borgari Vestmannaeyjar Adrian Pavlovskis fæddist 14. apríl 2022 í Reykjavík. Hann vó 3.860 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Olena Hubska og Olegs Pavlovskis. 21. mars - 19. apríl A Hrútur Lífið blasir við þér og þú brosir hringinn. Þú kemur vini til hjálpar í dag og úr verður hin besta skemmtun. Hvíldu þig í kvöld. 20. apríl - 20. maí B Naut Þú getur ekki ætlast til þess að aðrir viti um hvað þú hugsar. Horfstu í augu við það sem þú óttast og sjáðu hvað gerist. 21. maí - 20. júní C Tvíburar Ef þú finnur til óánægju skaltu ekki byrgja hana innra með þér. Hafðu hugfast að ein lítil mistök geta dregið dilk á eftir sér. 21. júní - 22. júlí D Krabbi Því minna sem þú reynir að ganga í augun á öðrum, því betri árangri nærðu. Taktu á málunum strax, annars geta þau bólgnað út. 23. júlí - 22. ágúst E Ljón Hugmyndirnar koma á færibandi um þessar mundir. Ekki láta þér bregða þótt þú fáir einhvers konar vitrun. Brettu upp ermarnar heima. 23. ágúst - 22. september F Meyja Láttu nöldur samstarfsmanns þíns lönd og leið. Þú hefur áhyggjur af eldri ættingja. Þú leggur blessun þína yfir nýtt ástarsamband vinar. 23. september - 22. október G Vog Þér hættir til að vera of ráðrík/ur í máli sem þig varðar ekkert um. Leitaðu leiða til að koma hugmyndum þínum á framfæri við fólk sem þú veist að getur komið þeim áfram. 23. október - 21. nóvember H Sporðdreki Til þín er leitað um ráðgjöf. Gefðu þér tíma til þess að íhuga næstu skref í lífinu.Æfðu þig í að slaka á. 22. nóvember - 21. desember I Bogmaður Þú skalt aldrei taka stuðningi annarra sem gefnum hlut. Þolinmæðin þrautir vinnur allar. Það eru blikur á lofti í ástamálunum. 22. desember - 19. janúar J Steingeit Þú hefur lagt þig fram í starfi og árangur þinn vakið athygli yfirmanna þinna. Vertu vakandi yfir málefnum barna í fjölskyldunni. 20. janúar - 18. febrúar K Vatnsberi Það getur verið dýrkeypt að blanda sér í annarra mál að ástæðu- lausu. Settu unglingnum úrslitakosti hins vegar. 19. febrúar - 20. mars L Fiskar Góður vinur leitar stuðnings hjá þér og þú verður að gefa þér tíma til þess að sinna honum. Lagfærðu hluti heima hjá þér og losaðu þig við drasl. Margrét Dóróthea Sigfúsdóttir hússtjórnarkennari – 75 ára Skólastjóri í nær aldarfjórðung M argrét Dóróthea Sigfúsdóttir fæddist 10. desember 1947 á Fosshólum í Holtum, Rang. „Þar var ljósmóðir sem var móðursystir móðir minnar, en ég ólst upp á Selfossi. Alls staðar var verið að byggja þar, nóg af vinnupöllum að hlaupa eftir, leika sér og stinga sig á nöglum. Þarna voru hross á beit ásamt kúm og heilmargir frístundabændur sem voru með kindur.“ Skátastarfið á Selfossi var nokk- uð og var Margrét í skátahópn- um Álkurnar. „Skátastarfið var skemmtilegt og gefandi. Við fórum í útilegur, vorum á Úlfljótsvatni og settum upp leikrit í Selfoss bíói. Þetta var gaman og gefandi.“ Eftir gagnfræðapróf fór Margrét í Húsmæðraskólann á Laugarvatni sem var eins árs skóli. Haustið eftir fór hún sem „au-pair“ til Bandaríkjanna og var í bænum Scarsdale í New York-ríki. „Ég var þar í eitt ár, eldaði mat fyrir níu manna fjölskyldu, þvoði þvott og passaði tvo stráka. Ég átti frí einn virkan dag í viku og fór oftast niður á Manhattan labbaði þar um og fór í bíó þar sem maður gat verið allan daginn að drekka kók, borða popp og horfa á bíómyndir. Þegar fór að vora var farið hvern laugardag á ströndina með nesti og síðan komið við á sveitabæ og keypt grænmeti á leiðinni til baka. Þarna kynntist ég ýmsum nýjungum, t.d. kjúkling- um, maískorni, papriku, pítsum, kleinuhringjum o.fl. Ég spurði konuna á heimilinu hvað sjóða ætti maiskornið lengi og hún sagði þar til það kemur góð lykt.“ Margrét kom síðan heim um haustið 1966 og fór þá beint í Hús- stjórnarkennaraskólann sem var nám í þrjá vetur og eitt sumar og útskrifaðist hún vorið 1969. „Þetta var ansi krefjandi nám, kennslu- dagurinn langur og mikill heima- lærdómur. Fólk virðist halda að ekkert mál sé að kenna hússtjórn- arfög og nægilegt sé að vera góður í eldhúsinu heima hjá sér. Það þarf að kunna að kenna og miðla efni til nemenda og hrífa þá með sér. Ef þetta tekst er sigurinn unninn og allir eru ánægðir. Sumarið sem við vorum í skólan- um vorum við á Laugarvatni í æf- ingarkennslu og garðyrkju. Þarna söfnuðum við einnig íslenskum jurtum, við vorum að greina þær, þurrka og pressa undir leiðsögn Ingólfs Davíðssonar grasafræðings. Síðan kom Baldvin Halldórsson leikari og kenndi okkur framsögn, sem veitir ekki af fyrir kennara því við þurfum að geta talað lengi án þess að örmagnast. Dvölinni á Laugarvatni lauk með veislu sem haldin var fyrir ungu stúlkurnar sem við höfðum verið að æfa okkur að kenna. Pökkuðum veisluföngum niður í kassa og héldum á grasa- fjall alla leið á Hveravelli þar sem við tíndum fjallagrös af miklum móð. Við vorum tólf ungar konur sem hófum nám og þarna varð til vinskapur sem heldur enn eftir öll þessi ár. Átta úr þessum hóp hittast alltaf einu sinni á ári og eru saman í þrjá sólarhringa. Nú erum við all- ar hættar að vinna og var ég síðust til þess eftir 53 ár í fullu starfi.“ Eftir útskrift var Margrét ráðs- kona á Sjúkrahúsinu á Selfossi frá hausti 1969 til ágúst 1972 en þá gerðist hún ráðskona í Hjúkrunar- skóla Íslands með kennsluskyldu í sjúkrafæði og næringarfræði. Árið 1976 fór Margrét síðan að kenna í Hússtjórnarskóla Reykja- víkur og svo leiðin í MH þar sem hún kenndi matreiðslu og nær- ingarfræði í 12 ár. Hún varð síðan skólastjóri við Hússtjórnarskólann í Reykjavík 1998-2022. „Skólastjórastarfið var óskaplega gefandi en krefjandi, vinnutíminn langur en ánægjulegur. Fyrstu árin einkenndust af miklum lagfær- ingum á húsnæðinu sem var orðið afar bágborið. Til dæmis voru brunavarnir afar litlar en húsinu var komið í lag og heimavistin tekin í gegn hvað þetta varðar. Síðan liðu árin og ekki fékk skólinn meiri pen- inga til viðhalds, nema ef hætta var á ferð eins og þegar ekki var orðið hægt að opna glugga á heimavist því þeir fuku út og þegar rafmagn- staflan sendi frá sér neistaflug og notaðar voru sleifar til að slá inn rafmagnið. Allir kennararnir voru með fram- haldsskólaréttindi hver í sínu fagi og starfsandinn var góður. Andinn í húsinu var einnig frábær sama þótt maður væri einn þar að kvöldi til og vont veður. Alltaf var sama vellíð- anin, húsið hélt utan um mann, ef hægt er að segja svoleiðis um hús. Svona nám kemur öllum til góða og fellur ekki úr gildi. Allir þurfa að geta séð um sig sjálfir, elda mat, þrífa heimili og fatnað, kaupa rétt inn og lifa góðu lífi. Í skólanum var upp til hópa alveg frábært ungt fólk sem gaman og gefandi var að vera með og sjá það síðan blómstra í líf- inu hvað varðar nám eða fjölskyldu. Öll faðmlögin og knúsið sem maður fær, það gefur mikið og hvað maður saknaði þess í kófinu. Ég segi alltaf við nemendur: heilsið mér og segið hvað þið heitið því á nokkrum árum gleymast nöfnin en ekki andlit.“ Margrét hefur einnig kennt á allskyns námskeiðum úti um allt land, í skólum, hjá kvenfélögum og fleiri félögum og stofnunum. Hún var einn umsjónarmanna sjónvarpsþáttanna Allt í drasli hjá Skjáeinum, en þeir nutu mikilla vinsælda. Meðaltalsáhorfið á þá var rúm 20 prósent. Margrét var sæmd íslensku fálkaorðunni árið 2012. „Núna er ég að búa til síldarsalat og fer svo að baka pönnukökur fyrir afmælið,“ segir Margrét þegar hún er spurð hvað hún sé að fást við eftir að hún lauk störfum. „Það er alltaf nóg að gera.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Í Hússtjórnarskólanum Margrét ásamt nemendum sínum. Hjónin Margrét og Sigurður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.