Morgunblaðið - 10.12.2022, Side 41

Morgunblaðið - 10.12.2022, Side 41
Subway-deild karla Grindavík – Breiðablik ......................... 93:122 Njarðvík – KR ........................................ 107:78 Staðan: Keflavík 9 7 2 822:762 14 Breiðablik 9 7 2 928:882 14 Valur 9 7 2 785:748 14 Njarðvík 9 6 3 816:717 12 Haukar 9 6 3 778:751 12 Tindastóll 9 5 4 767:729 10 Stjarnan 9 4 5 770:766 8 Grindavík 9 4 5 743:803 8 Höttur 9 3 6 742:755 6 ÍR 9 3 6 723:780 6 KR 9 1 8 810:936 2 Þór Þ. 9 1 8 851:906 2 1. deild karla Skallagrímur – Fjölnir........................... 113:84 Ármann – Hrunamenn........................... 82:91 Þór Ak. – Sindri .................................... 116:101 Staðan: Álftanes 11 10 1 1018:935 20 Hamar 11 8 3 1054:945 16 Sindri 12 8 4 1117:1017 16 Selfoss 11 7 4 1021:900 14 Hrunamenn 12 6 6 1133:1171 12 Ármann 11 5 6 983:977 10 ÍA 12 5 7 1005:1099 10 Skallagrímur 12 5 7 1083:1040 10 Fjölnir 12 3 9 1025:1106 6 Þór Ak. 12 1 11 930:1179 2 ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 Íslenska liðið er líklegt til að spila um verðlaun lAlfreðGíslason afar hrifinn af liði ÍslandslVerður að syngja þýska þjóðsönginn „Ég er staddur á Íslandi og ég sit einmitt fyrir framan tölvuna mína og er að skoða íslenska landsliðið. Ég er byrjaður á undirbúningnum fyrir vináttuleikina í janúar,“ sagði Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta, í samtali við Morgunblaðið. Ísland og Þýskaland mætast í tveimur vináttuleikjum í Bremen og Hannover 7. og 8. janúar í undirbún- ingi fyrir HM í Póllandi og Svíþjóð. Alfreð yfirgaf Þýskaland eftir að landslið þjóðarinnar féll óvænt úr leik í riðlakeppninni á HM karla í fótbolta í Katar. Miðasalan fer vel af stað „Ég fór frá Þýskalandi þegar þeir duttu út úr HM í fótbolta. Þá var alveg eins gott að vera ekki á staðn- um,“ sagði Alfreð léttur. Hann segir stemninguna í Þýskalandi vera að aukast fyrir heimsmeistaramótið í handbolta, nú þegar fótboltaliðið er úr leik. Þýskaland leikur í E-riðli á HM, með Alsír, Katar og Serbíu. Riðilinn er leikinn í Katowice í Pól- landi, rúmum 300 kílómetrum frá landamærum Þýskalands í austri. „Stemningin fyrir HM í hand- bolta er að byrja. Miðasalan fyrir leikina gegn Íslandi fer vel af stað. Það hjálpar líka til að ferðalagið til Póllands er þægilegt fyrir þýsku stuðningsmennina,“ sagði Alfreð. Miklar breytingar á skömmum tíma Þýska liðið hefur tekið miklum breytingum á skömmum tíma og er ákveðin uppbygging og endurnýjun í gangi. Alfreð segir markmiðið vera að liðið berjist um verðlaun á Evrópumótinu á heimavelli 2024. „Hugmyndin okkar var að vera með lið sem gæti staðið sig vel 2024 á Evrópumótinu á heimavelli og sú þróun gengur vel. Ég gerði breytingar á hópnum í fyrra og svo enn fleiri á þessu ári. Það eru komn- ir ungir leikmenn inn og það gengur vel. Leikmenn eins og Patrick Wi- encek og Steffen Weinhold hættu, þótt þeir hafi ekki verið það gamlir. Þá er Hendrik Pekeler meiddur og Fabien Wiede hjá Füchse Berlin gef- ur ekki kost á sér þriðja mótið í röð. Það er því nokkuð um breytingar hjá okkur. Þótt við horfum á 2024, þá ætlum við alls ekki að gefa mótið núna. Við ætlum að standa okkur þar líka, en við horfum sérstaklega á 2024.“ Aðeins á eftir Íslandi Alfreð segir að hægt sé að taka Íslendinga sér til fyrirmyndar þegar kemur að því að byggja upp lands- lið, en undanfarin ár hefur íslenska liðið byggst upp og er í dag sterkt lið með mikla breidd. „Það má segja að planið okkar sé tveimur eða þremur árum á eftir Íslandi. Það lýsir okkar ferli ágæt- lega. Ísland er komið með helvíti skemmtilegt lið, þar sem breiddin á leikmönnum á réttum aldri er mikil, og leikmenn hafa spilað mikið saman,“ sagði Alfreð. Þrátt fyrir að þýska liðið sé í uppbyggingarferli þessa stundina, gera Þjóðverjar kröfur um árangur, enda ein mesta handknattleiksþjóð heims. Liðinu gekk vel framan af á EM í Ungverjalandi og Slóvakíu en kórónuveiran fór afar illa með þýska hópinn og endaði liðið að lokum í sjöunda sæti, einu sæti á eftir því íslenska. „Það eru aldrei litlar væntingar hérna, en fólk gerir sér samt grein fyrir því hvað það er sem vantar og hvað þarf að gerast. Við byrjuðum mjög vel á EM síðasta janúar en svo fór allt liðið, því það voru 28 sem fengu Covid. Við enduðum samt bara einu sæti á eftir Íslandi.“ Frábærlega skemmtileg kynslóð Alfreð er afar hrifinn af íslenska liðinu og fylgist spenntur með framgangi þess, meðfram því að þjálfa þýska liðið á HM. „Íslenska liðið er komið með frá- bærlega skemmtilega kynslóð núna. Liðið er með gríðarlega sterka leikmenn eins og Aron, Ómar Inga og svo hefur Gísli Þorgeir komið svakalega vel inn í þetta. Það er komin mjög mikil breidd í allar stöður. Það var talað um að lína og markvarsla væri veikleiki og það þyrfti að bæta þær stöður til að Ísland gæti spilað um verðlaun. Það hefur breyst núna. Línumennirnir hafa vaxið rosalega í ár og sérstak- lega Viktor Gísli hefur staðið sig frábærlega í markinu. Íslenska liðið er því komið á mjög háan stall og það hafa allir í liðinu staðið sig í sínum félagsliðum,“ sagði Alfreð. Hann segir að íslenska liðið hafi alla burði til að keppa um verðlaun á heimsmeistaramótinu. „Það er ekkert sem mælir á móti því að Ísland geti spilað um verðlaun. Ég var einmitt í viðtali í Þýskalandi í vikunni og þá vorum við að tala um að Ísland væri með lið sem væri mjög líklegt til að spila til verð- launa.“ Ísland verði ekki í vandræðum Ísland er í D-riðli á HM, ásamt Portúgal, Ungverjalandi og Suð- ur-Kóreu. Alfreð á von á að íslenska liðið verði sterkara en Portúgalar og Suður-Kóreumenn, en á von á að Ungverjar gætu reynst erfiðir. Ungverjar náðu sér ekki almenni- lega á strik á EM á heimavelli í ár og vilja gera betur. „Portúgal hefur dalað á síðustu tveimur árum, en er samt með mjög gott lið. Suður-Kórea getur reynst erfið, því þar er spilaður óvenjuleg- ur bolti, en ég held að Íslendingar verði ekki í neinum stórum vand- ræðum með það. Ungverjaland olli síðan gífurlegum vonbrigðum á EM á heimavelli síðasta janúar, en var þar án þjálfara síns vegna Covid. Ungverjar eru með mjög vel mann- að lið og það er mjög mikil pressa á ungverska liðinu að gera betur en á EM á heimavelli.“ Ómar einn sá besti í heimi Alfreð þjálfaði Magdeburg á sínum tíma frá 1999 til 2006. Undir hans stjórn vann liðið bæði þýska meistaratitilinn og Meistaradeild Evrópu árið 2001. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnús- son eru tveir bestu leikmenn liðsins í dag og áttu þeir risastóran þátt í að Magdeburg varð þýskur meistari á síðustu leiktíð. Meistaratitilinn var sá annar í sögunni hjá félaginu og sá fyrsti frá því Alfreð gerði liðið að meistara í fyrsta sinn. „Það er frábært að Gísli Þorge- ir og Ómar Ingi spili saman hjá Magdeburg. Þeir eru báðir búnir að vera framúrskarandi þar. Það er svo einfalt að Ómar Ingi var besti leikmaður deildarinnar á síðustu leiktíð. Það voru nánast allir sam- mála því. Í fyrsta lagi spilar hann góða vörn, í öðru lagi var hann með flestar stoðsendingar í deildinni og svo var hann líka með markahæstu mönnum. Svo gerir hann nánast aldrei mistök. Það hefur verið lygi- legt að fylgjast með honum. Hann stimplaði sig inn á meðal bestu leikmanna heims í fyrra,“ sagði Al- freð um Selfyssinginn. Hann er ekki síður hrifinn af Gísla Þorgeiri. Al- freð lék lengi vel með með Kristjáni Arasyni, föður Gísla, í landsliðinu. „Gísli átti mjög gott ár í fyrra, en mér finnst hann vera búinn að vera enn betri í ár. Eina áhyggjuefnið fyr- ir landsliðið er að Íslendingarnir eru eiginlega aldrei teknir af velli hjá Magdeburg. Það á sérstaklega við um Gísla, sem spilar alla leiki, alltaf. Það gæti verið smá áhyggjuefni að hann fái ekki hvíld, áhyggjuefni fyrir okkur,“ sagði Alfreð, en leið- rétti sig síðan örlítið. „Ég má víst ekki segja okkur, þannig ég segi að þetta sé áhyggjuefni fyrir Gumma þjálfara,“ sagði hann kíminn. Skrítið að mæta Íslandi Alfreð viðurkennir að það verði skrítið að mæta Íslandi í vin- áttuleikjum í janúar og enn skrítnara ef þau mætast í mikilvægum leik á stórmóti. „Það er nógu skrítið að mæta þeim í vináttuleikjum,“ sagði hlæjandi og hélt áfram: „Ég h þetta verði mjög skrítin tilfinn að vera hinum megin. Það ver mjög athyglisvert. Ef við mæt síðan í útsláttarkeppni á stórm það verður bara eins og það v Þetta verður mjög skrítið.“ Dagur Sigurðsson gerði þýs liðið að Evrópumeistara árið Dagur var duglegur að syngja þýska þjóðsöngnum fyrir leik hefur Alfreð fárra kosta völ. „Ég hef frá því á Ólympíule unum í Tókýó sungið með þýska þjóðsöngnum, eftir að mér var bent á að Dagur hefði alltaf sungið með. Ég lofaði því að ég myndi gera það líka, ef við kæmumst á Ólympíuleik- ana í Tókýó. Ég komst ekki hjá því að standa við það loforð. Það verður mjög skrítið að syngja með þýska þjóðsöngnum og svo sjá viðbrögð Þjóðverja ef ég syng íslenska þjóð- sönginn líka,“ sagði Alfreð Gíslason glaðbeittur að lokum. Alfreð hefur náð mögnuðum árangri á löngum þjálfaraferli, sem hófst á heimaslóðum með KA, þar sem hann var spilandi þjálfari frá árinu 1991. Hann gerði KA-menn að Íslandsmeisturum 1997 og bikar- meisturum 1995 og 1996. Þá gerði Alfreð Magdeburg einu sinni að þýskum meistara og Kiel sex sinn- um. Akureyringurinn hefur einnig unnið sex þýska bikarmeistaratitla, þrívegis orðið Evrópumeistari og í tvígang fagnað sigri í EHF-bikarn- um, næststerkustu Evrópukeppn- inni. Hann var landsliðsþjálfari Ís- lands frá 2006 til 2008. Var íslenska liðið hársbreidd frá því að komast í undanúrslit á HM í Þýskalandi 2007 undir hans stjórn, en tapaði að lokum í tvíframlengdum leik gegn Danmörku. HM2023 Jóhann Ingi Hafþórsso johanningi@mbl.is n AFP Þjóðverjar Alfreð Gíslason ræðir við sína menn í þýska landsliðinu í leik á stórmóti. Hann stýrir Þjóðverjum í tveimur vináttuleikjum gegn íslenska landsliðinu rétt fyrir heimsmeistaramótið í janúar. „Handknattleiksþjálfarinn Aron Kristjánsson stýrir Barein á heimsmeistaramótinu í handbolta sem hefst í Póllandi og Svíþjóð í næsta mánuði. Þetta staðfesti hann í samtali við RÚV, en Aron, sem er fimmtugur, stýrði Barein einnig á heimsmeistara- mótinu 2019 og á Ólympíuleikunum í Peking á síðasta ári. Hann hefur stýrt landsliði Barein frá því á síðasta ári en samningur hans rennur út eftir Asíumótið sem fram fer í janúar 2024. „Knattspyrnulið Keflavíkur hefur misst enn einn leikmanninn frá síðasta tímabili. Enski miðjumaðurinn Kian Williams sem hefur leikið með Keflavík í þrjú ár er farinn til Kanada og búinn að semja við Valour sem hafnaði í fimmta sæti úrvalsdeildar- innar þar í landi í ár. „Hlynur Andrésson, einn besti langhlaupari Íslands, keppnir á Evrópumótinu í víðavangshlaupi á morgun, sunnudag. Mótið fer fram í Piemonte-La Mandria, skammt frá Tórínó á Ítalíu. Hlynur er marfaldur Íslandsmethafi í hlaupum. Hann flutti á dögunum til Ítalíu og æfir þar undir handleiðslu fyrrverandi ólympíumeist- arans Stefano Baldini, en hann hefur sett markið á Ólympíuleikana í París 2024. „Guðmundur Ágúst Kristjánsson er úr leik á Alfred Dunhill-meistara- mótinu í Suður-Afríku eftir að hann lék annan hringinn í gær á 73 höggum, einu höggi fir pari. Guðmundur var á einu höggi undir pari fyrir ringinn í gær og lék því ögn verr á öðrum hring, sem reyndist dýrkeypt. Hann varð að lokum einu höggi frá því að komast áfram g hafnaði í -90. sæti. hann eld ing ður umst óti, erður. ka 2016. með i og ik- y h o 77.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.