Morgunblaðið - 10.12.2022, Síða 42

Morgunblaðið - 10.12.2022, Síða 42
MENNING42 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022 Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is Vefuppboð nr. 639 Fjöldi glæsilegra verka Forsýning á verkunum hjá Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is JÓLAPERLUR vefuppboð á gæðaverkum lýkur 19. desember uppboð.is Karl Kvaran Ásm undurSveinsson hafi mótað hana sem þá manneskju sem hún er. Einelti í æsku hafði mikil áhrif á hana. Ellefu ára var hún orðin 180 cm á hæð og gerði sér þá ljóst að hún væri orðin stærri og sterkari en strákarnir sem voru að lemja hana og svaraði þá fyrir sig með þeim árangri að þeir hættu loksins,“ segir Ingibjörg og bendir á að Birna hafi ung gripið til þess ráðs að verja sig fyrir áföllum lífsins með töffaraskap. „En þessi töffaraskapur reyndist ekki aðeins vörn heldur gat hann einnig verið henni fjötur um fót. Í gegnum töffaraskrápinn glitti stundum í hræddu, viðkvæmu Birnu. Meðan hún stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri fannst henni ómögulegt að stelpurnar töluðu aldrei á málfundum, bara strákarnir, og stofnaði því Mál- fundarfélag kvenna til að efla þær til að hafa sig í frammi á fundum. Lamin út úr samfélaginu Þegar Birna flutti til Reykjavíkur 1968, aðeins 19 ára gömul, varð hún strax goðsögn; byltingarkona sem kreppir hnefann og hrópar á torg- um, enda bjó hún og býr enn yfir ríkri réttlætiskennd og ósk um að „Birna var svaramaður okkar Ragnars [Stefánssonar] þegar við giftum okkur í Svarfaðardal fyrir 32 árum. Þegar við héldum upp á 30 ára brúðkaupsafmæli okkar fyrir tveimur árum spurði Birna mig hvort ég gæti ekki skráð sögu henn- ar,“ segir Ingibjörg Hjartardóttir sem skrásett hefur sögu baráttu- konunnar Birnu Þórðardóttur í bókinni Var, er og verður Birna. „Birna ætlaði sér alltaf að skrifa sögu sína sjálf, en atvikin höguðu því svo að ekki varð af því,“ segir Ingibjörg og bendir á að Birna hafi í gegnum tíðina haldið öllum mögulegum gögnum um sig vel til haga. „Ég fer hins vegar ekki þá leið að skrifa hefðbundna ævisögu með nafnaskrá og efnisorðum, heldur fannst mér skáldveruleikinn henta betur sem form. Það endurspeglar líka stöðu Birnu í dag. Hún getur ekki lengur treyst skammtíma- minninu og lifir því meira og minna í óraunveruleikanum. Ég valdi þá leið að vera með henni þar, raðaði saman brotunum og þau sem vant- aði fann ég í skáldveruleikanum.“ Vörn í töffaraskapnum Rannveig Einarsdóttir ljósmynd- ari kom fljótlega inn í verkefnið, en bókina prýðir fjöldi nýrra mynda sem Rannveig tók af Birnu á tíma- bilinu frá maí 2020 til janúar 2021 meðan efnisöflun stóð yfir. „Rann- veig hefur mikið myndað flóttafólk í flóttamannabúðum í Berlín og legg- ur mikla áherslu á að kynnast fólki áður en hún myndar það. Við eydd- um sem dæmi heilum sólarhring með Birnu í upphafi verkefnisins,“ segir Ingibjörg og rifjar upp að þær Rannveig hafi mætt með svefnpoka heim til Birnu. Í framhaldinu hafi þær farið ýmsar ferðir á staði sem koma fyrir í ævi Birnu, m.a. austur til Borgarfjarðar eystri, þar sem Birna fæddist og ólst upp. „Mark- mið mitt var að reyna að teikna upp sanna mynd af karakter Birnu. Ég velti því einnig mikið fyrir mér hvað hafa áhrif á samfélagið til góðs. Hún var úthrópuð og fólk hræddist hana. En uppreisnarandinn bjargaði því sennilega að Birna varð ekki undir í lífinu,“ segir Ingibjörg og rifjar upp að eftir einn mótmælafundinn gegn stríðinu í Víetnam átti Birna að hafa sparkað í pung lögreglumanns. „Fræg mynd er til af Birnu sem birtist í blöðum og sjónvarpi þar sem hún er alblóðug í framan eftir barsmíðar lögreglunnar. Birna segir að með þessu höggi hafi hún verið lamin út úr samfélaginu. Um árabil fékk hún hvergi vinnu, þar sem hún var álitin óalandi og óferjandi.“ Lét sér Bakkus nægja Ingibjörg rifjar upp annað atvik í framhaldi af gjörningi sem Birna og Róska, sem var listamannsnafn Ragnhildar Óskarsdóttur, frömdu þegar þær máluðu slagorð utan á Alþingishúsið. „Þá voru þær hand- teknar og haldið í fangelsi í fimm daga án dóms og laga fyrir glæp sem þær hugsanlega myndu fremja. Birna og Róska voru mjög áberandi í bóhemalífi Reykjavíkur, drukku og djömmuðu. Róska bjó lengi úti í Róm og Birna fór þangað reglulega að heimsækja vinkonu sína. Hún kynntist vinum hennar og einnig eiturlyfjunum. En henni tókst að forðast þau þegar hún áttaði sig á hversu illa þau léku Rósku. Hefur hún síðan látið Bakkus alveg nægja. Ég gæfi ekki rétta mynd af Birnu ef ég minntist ekki á þann fylgifisk hennar í gegnum lífið.“ Spurð fyrir hverja bókin sé hugsuð segir Ingibjörg að hvort sem lesendur muni persónulega eftir Birnu eða ekki geymi bókin einstaka sögu baráttu- og byltingar- konu. „Bókin talar sterkt til hennar samtímafólks og þeirra sem muna tímann í kringum ‘68-byltinguna,“ segir Ingibjörg og bendir á að Birna hafi ekki aðeins látið sig heimsmál- in verða í mótmælum gegn stríði heldur hafi hún einnig verið virk í íslensku verkalýðshreyfingunni. „Ef ég á að lýsa Birnu með þremur orðum þá eru það: frelsi, jafnrétti og systkinalag.“ lVar, er og verðurBirna nefnist bók umbaráttukonunaBirnuÞórðardóttur sem Ingibjörg Hjartardóttir hefur skrifaðl„Fannst skáldveruleikinn henta betur sem form,“ segir höfundur Byltingarkona sem kreppir hnefann Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Ljósmynd/Rannveig Einarsdóttir Birna „Ég velti því einnig mikið fyrir mér hvað hafi mótað hana sem þámanneskju sem hún er,“ segir Ingibjörg. Þríeyki Ingibjörg Hjartardóttir, Birna Þórðardóttir og Rannveig Einars- dóttir. Birna ætlaði sér allaf að skrifa sögu sína sjálf, en náði því ekki. Upplestur höfunda á Gljúfrasteini Að vanda lesa höfundar upp úr nýjum bókum á Gljúfrasteini á aðventunni. Á morgun, á þriðja sunnu- dag í aðventu, kl. 15 les Elísabet Jökulsdóttir upp úr bók sinni Saknaðarilmur; Guðrún EvaMínervudóttir upp úr bók sinniÚtsýni; Jón Kalman Stefánsson upp úr bók sinni Guli kafbáturinn og Kristín Eiríksdótt- ir upp úr bók sinni Tól. Dagskráin, sem hefst kl. 15, stendur í klukkutíma. Aðgangur er ókeypis og öll vel- komin. Síðasti aðventuupplesturinn þetta árið verður haldinn á sunnudaginn eftir viku. Elísabet Jökulsdóttir Celine Dion greind með taugasjúkdóm Kanadíska tónlistarkonan Celine Dion hefur greinst með sjald- gæfan taugasjúkdóm og þarf af þeim sökum að fresta fyrir- hugaðri tónleikaferð sinni um Evrópu á næsta ári. Söngkonan greindi sjálf frá sjúkdómsgrein- ingunni í myndabandi á Insta- gram-síðu í vikunni, en hún er þar með 5,2 milljónir fylgjenda. „Ég hef verið að glíma við heilsuvanda um lengri tíma. Það hefur verið mér mikil áskorun að horfast í augu við þessar áskoran- ir og ræða opinskátt það sem ég hef gengið í gegnum. Nýverið var ég greind með afar sjaldgæfan taugasjúkdóm sem hrjáir einn af hverrri milljón,“ segir Dion og vísar þar til sjálfsónæmis- sjúkdóms sem á ensku nefnist „stiff person syndrome“ (SPS). Sjúkdómurinn hefur áhrif á taugakerfið og leiðir til þrálátra vöðvakrampa. „Því miður hafa þessir krampar áhrif á allt mitt líf, stundum valda þeir því að ég á erfitt með gang og þeir koma í veg fyrir að ég geti notað raddböndin til að syngja eins og var vön,“ segir Dion og fullvissar aðdáend- ur sína um að hún hafi frábært teymi lækna sem vinni að því að hjálpa henni að ná heilsu. „Ég vinn að því hörðum höndummeð fagfólki að endurheimta fyrri styrk og getu til að koma fram, en ég viðurkenni að þetta hefur verið erfitt. Söngurinn er mér allt.“ AFP/Philippe Lopez Breyting Tónlistarkonan Celine Dion á tónleikum í París árið 2016.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.