Morgunblaðið - 10.12.2022, Qupperneq 44
MENNING44
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 2022
B
rimhólar. Þar sem
hafrótið sundrar öllu og
holar allt, og þar sem
endalaus vindurinn
slípar allt niður í svo áferðarlausa
gleymsku að það er hægt að stinga
henni umhugsunarlaust í vasann.“
Svo er staðnum Brimhólum lýst í
samnefndri skáldsögu Guðna Elís-
sonar, en húsið á staðnum verður
einmitt miðpunktur bókarinnar
og um leið hennar helsta sögu-
svið. Brimhólar er einmana hús
sem stendur í litlu sjávarplássi, á
miðju eiði ofan
við endalausa
sanda, í nálægð
við hafið og
fjarri annarri
byggð í þorpinu.
Þar dvelur
sögumaður
okkar, ungur
íslenskur piltur,
sumarlangt og
verður ástfangin af pólskri stúlku
sem býr í þorpinu en dreymir um
að snúa aftur heim. Óvíst er að hve
miklu leyti ástin er endurgoldin en
kynnin reynast þó örlagarík. Ungu
elskendurnir ákveða að skiptast
á bókum og eftir það liggja leiðir
þeirra fyrst og fremst saman í
gegnum skáldskapinn og ljóð-
listina. Þannig kynnist sögumaður
einnig pólskum bókmenntum
sem eiga eftir að hafa mikil áhrif
í sögunni síðar meir. Undir niðri
kraumar síðan sterk samfélagsleg
ádeila og bókin vekur upp áleitnar
spurningar um stöðu innflytjenda
á Íslandi og sérstaklega þeirra
kvenna sem eru af erlendu bergi
brotnar. Ádeilan skilar sér vel í
textanum, jafnvel snilldarlega, og
er mjög áhrifamikil. Líkt og segir í
káputexta eru Brimhólar bók sem
snýst um þjóðirnar tvær sem búa
í þessu landi, og hér er fjallað á
vandaðan og umhugsunarverðan
máta um samfund þeirra, það sem
skilur þær að en ekki síður það
sem þær eiga sameiginlegt. Þetta
er eitt af því sem tekst svo einstak-
lega vel í bókinni. Skáldskapurinn
verður þannig brú á milli menn-
ingarheima og höfundur tvinnar
saman ólíkar bókmenntahefðir á
frumlegan og sannfærandi máta
svo að úr verður einstök frásögn.
Yfir Brimhólum hvílir napurleiki,
ægifegurð og kuldi íslenskrar
náttúru sem hitinn í ljóðlistinni
og ástríða ungs ljóðmælanda vega
upp á móti. Náttúrulýsingarnar í
bókinni eru eftirtektarverðar, fín-
lega smíðaðar og rómantískar, og
þær er unun að lesa. Andi 19. aldar
rómantíkurinnar svífur hér yfir
vötnum en skáldsagan og umfjöll-
un um samband manns og náttúru
er þó mjög í takt við samtímann
og talar beint inn í loftslagsum-
ræðuna. Höfundur sækir að auki í
bókmenntahefðina á margvíslegan
máta og í sögunni er að finna
margar skemmtilegar skírskot-
anir í önnur bókmenntaverk sem
unnið er vel úr. Þannig koma við
sögu goðsagnirnar um Orfeif og
Evrídísi, Keyx og Alkýónu auk fjöl-
margra vísana í breska, íslenska og
pólska bókmenntahefð, svo sem í
enska skáldið William Wordsworth
og pólsku skáldin Wisłöwu Szym-
borsku, Adam Zagajewski og
Czesław Miłosz. Vísanirnar eru
þræddar listilega inn í frásögnina
og settar skýrt fram svo gaman
er að, auk þess að þær gegna allar
mikilvægu hlutverki í sögunni. Því
þurfa lesendur alls ekki að vera
vel að sér í bókmenntum til þess
að ná tengslum við söguna, heldur
ætti hún öllu fremur að höfða til
fjölbreytts hóps lesenda. Lesturinn
er sömuleiðis mjög ánægjulegur
og frásögnin hefur að geyma ótal
vísbendingar og tákn sem gaman
er að velta fyrir sér. Þetta er því
marglaga saga sem læðist aftan
að lesandanum og kemur hon-
um sífellt á óvart. Hana er líka
vafalaust hægt að lesa mörgum
sinnum og uppgötva eitthvað nýtt
í textanum í hvert sinn. Sjálf sat
ég nánast orðlaus eftir lesturinn
og fannst ég verða að blaða aðeins
lengur í bókinni og fletta henni í
leit að vísbendingum um sögulok.
Fléttan er einmitt svo snilldarleg
því sagan kemur á óvart um leið og
hún gerir lesandanum ljóst nokkuð
sem hann veit nú þegar – og vissi
kannski allan tímann. Í kjarna bók-
arinnar hvílir einmitt hugleiðing
um það sem við sjáum án þess að
sjá, eða látumst kannski ekki sjá;
um það sem við vitum án þess að
vita, sannleikann sem við veljum
að líta undan. Er hægt að sjá heim-
inn eins og hann raunverulega er,
spyr sögumaður, og halda um leið í
ástina? Gerir ástin okkur blind?
Brimhólar er listilega skrifuð bók
og ógleymanleg ástarsaga. Hér
er tekist á áhrifamikinn máta á
við samtímaleg málefni í magn-
aðri sögu sem virkar einhvern
veginn sígild og tímalaus. Það
eru engir lausir endar, efnistökin
eru úthugsuð og lestrarupplifun-
in ákaflega ánægjuleg. Þetta er
einstaklega vel unnið bókmennta-
verk, djúphugult, frumlegt og
sterkt, sem skrifar sig inn í hefðina
um leið og það slær nýja tóna.
Ógleymanleg ástarsaga
BÆKUR
SNÆDÍS
BJÖRNSDÓTTIR
Skáldsaga
Brimhólar
Eftir Guðna Elísson.
Lesstofan 2022. Innb., 136 bls.
Morgunblaðið/Eggert
Guðni „Þetta er einstaklega vel unnið bókmenntaverk, djúphugult, frumlegt og sterkt,“ segir um skáldsögu hans.
Veronica Ryan
hreppti Turnerinn
Breska mynd-
listarkonan
Veronica Ryan
hlýtur hin virtu
Turner-mynd-
listarverðlaun í
ár og er elst til
að hreppa þau
en hún er 66
ára. Ryan skap-
ar skúlptúra og
innsetningar og hafa verk hennar
hlotið mikið lof – gagnrýnandi
The Guardian telur hana besta
listamann sem hreppir verðlaun-
in árum saman.
Ryan fæddist á Montserrat en
flutti barnung með foreldrum
sínum til Bretlands. Einnig voru
tilnefnd Ingrid Pollard, Heather
Phillipson og SinWai Kin.
Veronica Ryan
Útgáfutónleikar
Berglindar Maríu
BerglindMaría Tómasdóttir,
tónskáld og flautuleikari, sendi
í fyrra frá sér þrjár plötur en
vegna heimsfaraldursins náði
hún ekki að fagna áfanganum þá
með útgáfutónleikum. Nú er þó
komið að því. Tónleikarnir verða
í Áskirkju á morgun, sunnudag,
kl. 17 og er aðgangur ókeypis. Með
henni kemur fram Jesper Peder-
sen og mun hann halda utan um
rafmynd tónleikanna.
Höfundar verka sem flutt verða
á tónleikunum eru Anna Þor-
valdsdóttir, LiljaMaría Ásmunds-
dóttir og Tryggvi M. Baldvinsson,
auk flytjenda.
Sérstakur gestur verður Anna
María Bogadóttir en hún les
upp úr nýútkominni bók sinni,
Jarðsöngur.
Morgunblaðið/Eggert
Tónskáldið Berglind María heldur upp
á útgáfu þriggja platna á tónleikum.
Brimnes Þorsteins á sýningu hjá Ófeigi
„Brimnes“ er yfirskrift sýningar á málverkum eftir
Þorstein Auðun Pétursson sem verður opnuð í List-
húsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 í dag, laugardag, kl. 13.
Í tilkynningu segir að Þorsteinn sé uppalinn í
vesturbænum í Hafnarfirði, fæddur árið 1949. Frá
unga aldri hefur hann verið leikinnmeð blýant og
pensla en aldrei gert úr því alvöru fyrr en nú að
halda sýningu. Þá segir að hvatning Jóns Aðalsteins
listamanns hafi ráðið úrslitum um að Þorsteinn hafi
látið til leiðast að sýna: „Hér er hann kominnmeð
sína fyrstu sýningu og sýnir hann vatnslitamyndir.“
Sýningin er opin á verslunartíma og stendur til 4.
janúar á nýju ári. Allir eru velkomnir.
Þorsteinn Auðunn
Pétursson
Eygló Harðardóttir vinalistamaður Nýló
Eygló Harðardóttur hefur
verið valin vinalistamaður
Nýlistasafnsins fyrir árið 2023.
Eygló hefur verið áberandi
í íslensku myndlistarlífi um
áratugaskeið, og vakið athygli
fyrir óhefta sköpun og djúpstæða
forvitni um efnivið sinn. Hún
vinnur gjarnan tví- og þrívíða
abstraktskúlptúra, bókverk sem
og verk í almenningsrými. Eygló
hefur haldið fjölda sýninga og á
verk í eigu opinberra safna. Árið
2019 hlaut hún íslensku myndlist-
arverðlaunin fyrir einkasýningu
sínaAnnað rými sem haldin var í
Nýlistasafninu.
Eygló bætist í hóp virtra lista-
manna sem hafa skapað verk í
upplagi fyrir safnið. Því verður
fagnað með hófi sem opið er öllum
í Nýló í dag, laugardag kl. 13, og
þar verður verkið sýnt. Það heitir
Staður og vísar óbeint í sýn-
ingunaAnnað rými sem og önnur
verk sem Eygló hefur skapað
síðan. Fyrri vinalistamenn Nýló
eru Hreinn Friðfinnsson, Anna
Júlía Friðbjörnsdóttir, Arna Ótt-
arsdóttir, Unndór Egill Jónsson,
Guðjón Ketilsson ogMelanie
Ubaldo.
Vinalistamaður Eygló Harðardóttir
hefur gert upplagsverk fyrir Nýló.