Morgunblaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 10.12.2022, Blaðsíða 48
Í lausasölu 1.410 kr. Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr. PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is LAUGARDAGUR 10. DESEMBER 344. DAGUR ÁRSINS 2022 MENNING Aðventa Gunnars Gunnarssonar lesin í Gunnarshúsum á morgun Aðventa, saga Gunnars Gunnarssonar um eftirleitir Fjalla-Bensa og förunauta hans, Eitils og Leós, á Mývatnsöræfum verður að venju lesin í Gunnarshús- um í Reykjavík og á Skriðuklaustri á morgun, þriðja sunnudag í aðventu. Hjá Rithöfundasambandi Íslands í Gunnarshúsi á Dyngjuvegi 8 les Sigríður Láretta Jónsdóttir, leikkona og meistaranemi í ritlist, og hjá Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri Orri Huginn . Lesturinn hefst stöðum kl. 13.30. rður lesin víðar, til þýsku í samkomusal endiráðanna í Berlín ast hefur í áratug. rifaði nóvelluna Aðventu árið 1936 og er hún það verk Gunnars sem þýtt hefur verið á flest tungumál. les leikarinn Ágústsson á báðum Sagan ve dæmis á norrænu s líkt og tíðk Gunnar sk ÍÞRÓTTIR Argentína í undanúrslitin eftir dramatískan sigur á Hollendingum Argentínumenn komust í gærkvöld í undanúrslit heimsmeistaramóts karla í fótbolta eftir mikla dramatík gegn Hollendingum en þeir sigruðu í víta- spyrnukeppni eftir að viðureign liðanna í Katar endaði 2:2. Þar með verða það Argentína og Króatía sem mætast í fyrri undanúrslitaleik keppninnar á þriðju- dagskvöldið kemur. » 40 FÖNN ullarkápa Íslensk ullareinangrun Kr. 44. 990.- ÞÍN ÚTIVIST ÞÍN ÁNÆGJA icewear.is „Sígild jól“ er yfirskrift jólatónleika, sem Sigríður Ósk Kristjánsdóttir messósópran stendur að í Seltjarn- arneskirkju miðvikudagskvöldið 21. desember. Gissur Páll Gissurarson tenór og Hallveig Rúnarsdóttir sópran syngja með henni blöndu af íslenskum og erlendum jólasöngvum og -sálmum ásamt sígildum söngv- um. Lenka Mátéova leikur á orgel og flygil og Ólöf Sigurvinsdóttir á selló. „Aðalmarkmiðið er að búa til fallega jólatónleikadagskrá með þessum frábæru tónlistarmönnum, sem ég hef fengið í lið með mér, og skapa ljúfa jólastemningu,“ segir Sigríður Ósk. Áhersla er lögð á hátíðleikann og fegurðina í mikilli nánd. „Við erum fá og syngjum í kirkju sem er ekki mjög stór en þar er fínn hljómburð- ur,“ segir Sigríður Ósk. „Ég vonast til þess að boðskapur jólanna um frið, kærleika og heimsins ljós skili sér til áheyrenda í gegnum tónlistina og textana.“ Þetta eru þriðju tónleikar Sigríðar Óskar í Seltjarnarneskirkju með þessum hætti. „Á fyrri tónleikunum, sem voru fyrir Covid, skapaðist hátíðleg og falleg stemning í þétt setinni kirkjunni og við vonumst til að upplifa svipaða stemningu nú í ár.“ Gefur af sér Listamennirnir hafa verið mjög virkir í íslensku tónlistarlífi. Söngv- ararnir hafa sungið víða, hérlendis sem erlendis, og til dæmis reglulega með Íslensku óperunni og Sinfóníu- hljómsveit Íslands. „Ég hef alltaf sungið og haft gaman af því,“ segir Sigríður Ósk. Sem krakki hafi hún meðal annars sungið í söngleikjum í Þjóðleikhúsinu. „Ég heillaðist af þessari blöndu af söng, leikhúsi, ljóðlist og tónlist.“ Eftir að hafa lokið söng- og píanókennaranámi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík hafi hún rétt eftir hrun útskrifast með meistaragráðu frá Konunglega tónlistarskólanum í Lundúnum, Royal College of Music, og haft nóg að gera síðan, bæði heima og erlendis. „Við fluttum heim eftir að dóttirin fæddist 2014 og ég hef verið í mörgum skemmtilegum söngverk- efnum auk þess sem ég kenni söng og píanóleik.“ Sigríður Ósk hefur fengið fjölda viðurkenninga og var m.a. tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2016, 2017, 2018 og 2021. Þrátt fyrir miklar annir leggur hún áherslu á mikilvægi þess að vera með fjöl- skyldu og vinum og njóta lífsins, en þannig segist hún hafa meira að gefa í lífinu og listinni. „Ég ólst upp við að fara á skíði í Skálafelli og það skemmtilegasta sem ég geri í frístundum er að fara á skíði. Mér finnst það að skíða vera eins og að syngja, maður svífur áfram í flæði í gegnum fallega náttúru.“ Tónleikarnir hefjast klukkan 20 í Seltjarnarneskirkju og miðasala er hafin á netinu (tix.is). lSígild jól yfirskrift jólatónleika í Seltjarnarneskirkju Boðskapur jólanna í tónlist og textum Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir Ópera Sigríður Ósk í hlutverki Rosinu í Rakaranum frá Sevilla í uppfærslu Íslensku óperunnar. Gissur Páll Gissurarson heldur utan um hana, en Sigurlaug Knudsen og Hulda Óskarsdóttir eru fyrir aftan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.