Morgunblaðið - 15.12.2022, Síða 2

Morgunblaðið - 15.12.2022, Síða 2
FRÉTTIR Innlent2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 www.heimsferdir.is Tene fei Flug aðra leið til 19.975 Flug aðra leið frá Flugsæti í janúar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Raftenging úr landi í gámaskip er ekki komin í öðrum höfnum í Evrópu og þó víðar væri leitað eftir því sem við best vitum. Að því leytinu markar þetta verkefni tímamót á svo margan hátt,“ segir Vilhelm Már Þorsteins- son forstjóri Eimskips. Í gær voru formlega teknar í notkun landtengingar gámaskipa við athafnasvæði Eimskips í Sunda- höfn í Reykjavík. Fjölmenni var við athöfn sem efnt var til á þeim tímamótum, þar sem Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra opnaði fyrir tengingu um borð í Dettifoss. Nú er hægt að landtengja stærstu skip Eimskips við raf- magn þegar þau eru í Sundahöfn í stað þess að ljósavélar sem ganga fyrir olíu séu keyrðar. Tengingin verður til að byrja með fyrir tvö stærstu og nýjustu skipin, fyrst Dettifoss og svo Brúarfoss innan tíðar. Búnaðurinn nýi á að spara 240 tonn af olíu á ári og draga úr út- blæstri koltvísýnings sem nemur 750 tonnum árlega. Rafvæðing skipanna í höfn er samstarfsverk- efni Eimskips, umhverfis-, orku- og lofslagsráðuneytisins, Reykja- víkurborgar, Faxaflóahafna og Veitna samkvæmt yfirlýsingum sem fyrir ligga. „Umhverfismálin eru í brenni- depli hjá Eimskip. Kranar við höfnina eru rafknúnir og með vorinu fáum við tvo vöruflutn- ingabíla sem báðir ganga fyrir rafmagni. Þrátt fyrir að sjóflutn- ingar séu með umhverfisvænustu valkostum í vöruflutningum þá er stóra áskorunin orkuskipti á flutningaskipum okkar sem eru ábyrg fyrir langstærstum hluta af losun gróðurhúsalofttegunda í okkar rekstri. Því skoðum við nú smíði á nýjum og umhverfisvænni skipum,“ segir Vilhelm Már við Morgunblaðið. sbs@mbl.is Betra loft og minni hávaði verða á hafnarsvæði Eimskips í Sundahöfn Rafmagn úr landi markar tímamót Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alls greindust 85 manns með kórónuveiruna við sýnatöku, skv. tölum frá síðastliðnum mánudegi, 12. desember. Þessi fjöldi er með því meira sem sést hefur í langan tíma. Jákvæð sýni þann 5. desem- ber voru 62 og þann 7. desember voru þau 53. Svo virðist nú sem Covid-19 sé í sókn á landinu og af þeirri ástæðu er ýmis viðbúnaður hafður. Í því sambandi má nefna að Sjúkrahúsið á Akureyri hefur hert reglur sínar og allir sem þangað koma inn fyrir dyr þurfa nú að bera grímur. Sjúklingar mega aðeins fá heimsókn frá einum í einu og það á fyrir fram ákveðnum tímum. Fram kemur að þetta sé gert vegna þess fleiri sjúklingar hafi lagst inn af völdum Covid-19, auk þess sem fleiri starfsmenn spítalans hafi sýkst af kórónuveirunni. Hjá Heilsugæslu höfuðborgar- svæðisins hefur verið mikið álag síðustu daga vegna margvíslegra sjúkdómseinkenna. „Þetta er Covid, flensa, niðurgangur og streptókokk- ar. Fólk bæði kemur og hringir á sama tíma og margt af okkar starfs- fólki liggur sjálft í veikindum. Af þessu skapast í raun tvöfalt álag og skafl sem við ætlum þó í gegnum,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar. Síðustu daga hefur verið hamrað á mikilvægi þess að fólk eldra en sex- tugt og þau sem eru með undirliggj- andi sjúkdómamæti í örvunarbólu- setningar, vegna Covid. Viðbrögð við því kalli hafa verið ágæt, segir Ragnheiður Ósk. lCovid virðist í sóknlHvatt til að mæta í örvunarsprautu Kórónaveiran kraumar víða og margir með flensu Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Kórónuveiru- smit í desember 80 60 40 20 0 1. des. 12. des. Heimild: covid.is 85 62 34 53 Staðfest innanlandssmit Samtök starfsmanna fjármálafyr- irtækja vísuðu í gær viðræðum um nýjan kjarasamning við Samtök at- vinnulífsins til ríkissáttasemjara til að fá hann til að stjórna viðræðun- um. Að sögn Friðberts Traustasonar, framkvæmdastjóra SSF, hafa samtöl við fjármálafyrirtækin ekki skilað árangri og fyrirtækin ákveðið að Samtök atvinnulífsins annist samn- ingaviðræðurnar fyrir þeirra hönd. Samningar starfsmanna fjármálafyr- irtækja runnu út 1. nóvember sl. Að sögn Friðberts koma samn- ingar um krónutöluhækkanir ekki til álita eins og síðast var gert undir miklum þrýstingi og kveðið er á um í nýgerðum samningum SGS og SA. Semja þurfi um prósentuhækkanir fyrir starfsfólk fjármálafyrirtækj- anna svo tryggt verði að það verði ekki fyrir kaupmáttarrýrnun. „70 til 80% félagsmanna okkar eru með há- skólamenntun og ef við förum [krónu- töluleiðina] verða fyrirtækin innan okkar raða ekki samkeppnishæf við ríkið um sérfræðinga. Það er stað- reynd að þó nokkuð af sérfræðingum innan bankakerrfisins hafa sagt upp og hætt að starfa þar á undanförnum misserum og ráðið sig hjá ríkinu og sveitarfélögum, stórfyrirtækjum og öðrum.“ Friðbert telur næsta víst að unnið verði að gerð skammtímasamnings. Spurður hvort nýr samningur iðn- og tæknifólks og verslunarmanna geti orðið fyrirmynd, með 6,75% prósentuhækkun og 66 þúsund kr. hámarkslaunahækkun, bendir hann á að sú prósentuhækkun miðað við meðallaun sé raunverulega aðeins rétt um 5 ½% þegar hagvaxtarauk- inn er undanskilinn en hann sé nú þegar umsaminn. Þá gagnrýnir hann 66 þúsund króna hámarkið. „Við skilj- um ekki alveg af hverju menn fara þá leið,“ segir Friðbert og bendir á að meðallaun í landinu séu á bilinu 750-800 þúsund. Ef fara eigi þessa leið öðru sinni þyrftu félagsmenn í SSF sem hafa aflað sér menntunar og starfsþjálfunar aftur að ganga frá samningum sem myndi leiða til þess að kaupmáttur launa rýrnaði. „Ég er ekki viss um aðmenn tækju vel í það.“ Í frétt á vefsíðu SSF í gær kemur fram að meðallaun félagsmanna í SSF eru í kringum 950 þúsund kr. í dag. Ef semja ætti um það sama og iðnaðar-, verslunar- og skrifstofufólk hefur gert, þýddi það að laun upp að 978 þús. hækkuðu um 6,75%. Síðan færi prósentan að lækka miðað við 66 þúsund kr. hámarkið og laun upp á 1,2 milljónir myndu t.a.m. hækka um 5,5%. „Umsaminn hagvaxtarauki 2023 er innifalinn í launahækkun nýgerðra samninga. Hann hefði líklega orðið kr. 9.750 fyrir flesta félagsmenn SSF. Hámarkslaunahækkun nýgerðra samninga er því kr. 56.250 eða 5,9% fyrir meðallaun innan SSF,“ segir á vefsíðu SSF. lHækkanir og þak í samningi iðnaðar- og verslunarfólks ylli rýrnun kaupmáttar meðal félagsmanna í SSFlSérfræðingar yfirgefa bankana og ráða sig til ríkisins Bankamenn vísa til sáttasemjara Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Bankar Samningar starfsmanna í SSF runnu út 1. nóvember sl. KJARADEILUR Leitað sátta Boðað hefur verið til sátta- fundar í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara á morgun klukkan 13. Þetta verður fyrsti sáttafundurinn sem haldinn er í deilunni frá því að Efling vís- aði deilunni til sáttameðferðar 7. desember. Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamning Starfsgreina- sambandsins við SA er hafin og á henni að ljúka í síðasta lagi á hádegi næstkomandi mánudag, 19. desember. Kynn- ingar á samningum iðn- og tæknifólks og verslunarmanna standa yfir og á atkvæða- greiðslu um þá að ljúka 21. desember. VR hélt félagsfund á Grand hóteli í gærkvöldi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.