Morgunblaðið - 15.12.2022, Qupperneq 4
FRÉTTIR
Innlent4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 UU.IS
STJÖRNUR OG
SÓLIR TAÍLANDS
*NÝTT* 14. - 28. MARS 2023
ÆVINTÝRALEG SÉRFERÐ SEM ER LJÚF EN ÞÓ
INNIHALDSRÍK LÚXUSREISA UM STRANDBÆINN
HUA HIN OG HÖFUÐBORGINA BANGKOK
FREKARI UPPLÝSINGAR Á UU.IS EÐA
SENDA FYRIRSPURN Á ASIUFERDIR@UU.IS
Allsherjar- og menntamálanefnd
Alþingis hefur lagt fram tillögu um
að fjórir listamenn bætist við þann
hóp sem nýtur heiðurslauna. Þetta
eru Hildur Hákonardóttir, myndvef-
ari og rithöfundur, Kristín Þorkels-
dóttir, grafískur hönnuður, Manfreð
Vilhjálmsson arkitekt og Þórhildur
Þorleifsdóttir, leikari og leikstjóri.
Á árinu 2021 bættust ekki fleiri
listamenn við þann hóp sem naut
heiðurslauna og á árunum 2021 og
2022 létust fjórir úr hópi þeirra
listamanna sem nutu heiðurslauna,
Jón Sigurbjörnsson og Vilborg Dag-
bjartsdóttir á árinu 2021 og Guðrún
Helgadóttir og Þuríður Pálsdóttir
árið 2022.
Auk þeirra fjögurra sem nú
bætast við fá heiðurslaun Bubbi
Morthens, Erró, Friðrik Þór
Friðriksson, Guðbergur Bergsson,
Guðrún Ásmundsdóttir, Gunnar
Þórðarson, Hannes Pétursson,
Hreinn Friðfinnsson, Jón Ásgeirs-
son, Jón Nordal, Jónas Ingimundar-
son, Kristbjörg Kjeld, Kristín
Jóhannesdóttir, Magnús Pálsson,
Matthías Johannessen, Megas,
Steina Vasulka, Vigdís Grímsdóttir,
Þorbjörg Höskuldsdóttir, Þorgerður
Ingólfsdóttir og Þráinn Bertelsson.
Fjögur bætast við
í heiðurslaunahóp
Heiðurslaun Hildur Hákonardóttir, Manfreð Vilhjálmsson, Kristín Þor-
kelsdóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir bætast í hóp heiðurslaunaþega.
Samfélagsmiðstöðin verði í sömu
byggingu og hluti starfsemi Fjöliðj-
unnar en frístundastarfið aðgreint
frá henni. Einnig er verið að undir-
búa byggingu glæsilegs húss þar sem
verða nytjamarkaðurinn Búkolla,
endurvinnslumóttaka þar sem tekið
verður á móti drykkjarumbúðum,
plasti og slíku, sem eru vinnustaðir
fatlaðra. Áhaldahús Akranesbæjar á
einnig að fá aðstöðu í húsinu. Sævar
óskaði eftir því á fundinum í gær að
eiga áfram samtal við fólkið í Fjöliðj-
unni til að reyna að skapa sátt um
þessa leið.
„Við áttum góðan fund og það var
gaman að sjá að fatlaðir eru að berjast
fyrir því sem skiptir þá máli í lífinu.
Ég hef fulla trú á að við getum skapað
sátt um þessa vegferð sem er ætlað
að mæta draumum þeirra og þörfum
til framtíðar,“ segir Sævar.
Búið er að hanna húsið fyrir
Búkollu, dósamóttökuna og áhalda-
húsið sem mun rísa á Kalmansvöll-
um 5 á Akranesi. Verið er að útbúa
þrívíddarteikningar sem sýna á
fólkinu í Fjöliðjunni á nýju ári. Þar
mun það sjá hvernig rýmið verður
sem því er ætlað. „Það komu mjög
skemmtilegar hugmyndir frá þeim á
fundinum þar sem þau lögðu til hvað
getur verið í því húsi,“ segir Sævar.
Bygging hússins hefst á næsta ári og
lýkur 2024.
Síðan verður reist samfélagsmið-
stöð á Dalbraut 8. Unnið er að hönnun
hennar í samvinnu við fatlað fólk og
þá sem stýra starfsemi barna og ung-
menna sem einnig verður í því húsi.
„Þessi vinna nær vel inn í næsta ár
og við hönnunina verður unnið með
þeirra óskir og þarfir,“ segir Sævar.
Hann segir að fólkið í Fjöliðjunni
vilji helst vera með alla sína starf-
semi á einum stað en með þessum
hætti geti bæjaryfirvöld leyst hús-
næðisvanda margra stofnana í einu
vetfangi. „Starfsemi í húsinu verður
ekki blandað saman heldur verður
hver með sitt rými.“
Starfsfólk Fjöliðjunnar á Akranesi
efndi í gær til mótmælagöngu frá
Fjöliðjunni að bæjarskrifstofunum.
Því finnst bæjarstjórnin ekki hafa
tekið nægt tillit til þess sem þau vilja
varðandi húsnæðismál Fjöliðjunnar.
Þau útbjuggu bæklinginn Hlustið á
okkur þar sem þau kvarta m.a. yfir
samráðsleysi. Sævar Freyr Þráins-
son bæjarstjóri tók þátt í göngunni
og átti fund með mótmælendunum á
bæjarskrifstofunum.
„Ég sagði þeim að bæjarstjórn
fyrirhugar afar metnaðarfulla upp-
byggingu á húsnæði fyrir Fjöliðjuna
á tveimur stöðum og til að mæta
húsnæðisþörfum ólíkra stofnana sem
hafa verið á hrakhólum, að hluta til
vegna raka- og mygluvandamála,“
segir Sævar. „Við ætlum ekki að
aðgreina fatlaða frá öðrum í samfé-
laginu heldur tryggja að þeir geti elt
sína drauma og væntingar og geti
unnið hjá hvaða stofnun eða fyrirtæki
sem er, líkt og annað fólk.“
Hann segir að verkefnið snúist um
að skapa sátt og bæjaryfirvöld vilji
mæta þörfum fatlaðra. Um leið sé
verið að leysa úr húsnæðisþörf frí-
stundastarfs barna og ungmenna.
lBæjarstjórinn á Akranesi gekk meðmótmælendumlÁttu góðan fund á bæjar-
skrifstofunumlVilji til að hlusta á fólkið í Fjöliðjunni við hönnun nýs húsnæðis
Fjöliðjan í mótmælagöngu
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Hlustið á okkur Mótmælendunum finnst hafa skort á samráðið við þá.
Morgunblaðið/Eggert
Bæjarskrifstofurnar Sævar Freyr bæjarstjóri átti gott samtal við mótmæl-
endurna. Metnaðarfull áform eru um nýtt húsnæði fyrir Fjöliðjuna.
Fjöliðjan Starfsfólkið gekk að bæjarskrifstofunum til að vekja athygli.
Saga kærir vegna
Ríkisútvarpsins
Útvarp Saga
hefur ákveðið
að kæra íslensk
stjórnvöld til
ESA, eftirlits-
stofnunar
EFTA, vegna
útvarpsgjalds
sem innheimt
er árlega og
rennur til
Ríkisútvarps-
ins, sem og vegna veru þess á
auglýsingamarkaði.
„Þessi forréttindastaða þeirra
er að brjóta á öllum frjálsum
fjölmiðlum og, það sem er kannski
alvarlegast, kannski að brjóta
gegn tjáningarfrelsi. Og það þýðir
auðvitað að allir frjálsir fjöl-
miðlar eru í lamandi stöðu við að
sinnna lýðræðishlutverki sínu,“
segir Arnþrúður Karlsdóttir, út-
varpsstjóri Útvarps Sögu. Telur
Útvarp Saga að íslensk stjórnvöld
brjóti með þessu gegn samkeppn-
isreglum EES-samningsins, sem
meðal annars leggja bann við
misnotkun fyrirtækja á markaðs-
ráðandi stöðu.
Arnþrúður
Karlsdóttir
Þingmenn komast
í jólafrí á morgun
Samningar hafa náðst um af-
greiðslu þingmála fyrir þinghlé
um jól. Orri Páll Jóhannsson,
þingflokksformaður Vinstri
grænna, segir að samningarn-
ir felist fyrst og fremst í því að
umræðu og afgreiðslu frumvarps
dómsmálaráðherra um breyt-
ingar á útlendingalögum verði
frestað fram í janúar. „Þetta
gengur allt saman vel og starfs-
áætlun Alþingis miðaði við að við
myndum klára á föstudaginn. Ég
geri ráð fyrir að við munum gera
það en í síðasta lagi á laugardag.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Samið hefur verið um þinglok.