Morgunblaðið - 15.12.2022, Page 8

Morgunblaðið - 15.12.2022, Page 8
FRÉTTIR Innlent8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Virka daga 10-17 Laugardaga 11-15 Hjarta heimilisins Við hönnum innréttingar að þínum þörfum 2000 — 2022 STAKSTEINAR Veituvandinn Björn Bjarnason rifjar upp á vef sínum hvernig til stóð „á sínum tíma að standa að netvæðingu borgarinnar á ævintýralegan hátt með því að sameina flutning á rafmagni og netgögnum. Vegna þess misheppnaða ævintýris var ráðist í að stofna Gagnaveituna undir hatti OR, fyrirtækið heitir núna Ljósleiðar- inn og er farið með upplýsingar um fjárhagslega stöðu þess sem algjört trúnaðarmál. Skákað er í því skjóli að um opinbert hlutafélag er að ræða.“ Útþensla og áhættusækni Orkuveitunnar í gegnum LínuNet/Gagnaveituna/Ljós- leiðarann er með ólíkindum ekki síst þegar litið er til þess hvernig forsvarsmenn þessa fyrirtækis í eigu almennings neita að svara sjálfsögðum spurningum fjölmiðla. Björn rifjar einnig upp að hér í eina tíð rökstuddi vinstri meirihlutinn gjaldskrárhækk- un Orkuveitunnar með hlýind- um í borginni. Og hann bendir á að aukin notkun á heitu vatni í kuldakastinu nú hafi ekki orðið til þess að gjaldskráin sé lækk- uð. Hvernig skyldi standa á því? Þá veltir hann því fyrir sér hvort vandræði með heitt vatn í höfuðborginni nú bendi til að „gengið hafi verið til byggðaþéttingar án þess að styrkja grunnvirkin neðan- jarðar“ líkt og gert hafi verið ofanjarðar. Það skyldi þó ekki vera að borgin hafi dregið lappirnar í fjárfestingum í veitukerfinu á sama tíma og Orkuveitan er skuldsett fyrir gæluverkefnum. Björn Bjarnason Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni www.mbl.is/mogginn/leidarar Sektað ef íbúðir standi auðar lengi lLokaúrræði að borgin skilgreini íbúð- ina sem óhagnaðardrifna leigueiningu Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Ís- lands, Trausti Breiðfjörð Magnús- son, hefur flutt tillögu í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur þess efnis að mótaðar verði reglur sem komi í veg fyrir að íbúðarhúsnæði standi autt til lengri tíma. Afgreiðslu til- lögunnar var frestað. Trausti Breiðfjörð leggur til að í reglunum verði kveðið á um að ef íbúð hefur verið laus í sex mánuði þurfi eigandi hennar að gera borginni ljóst að svo sé. Jafnframt verði kveðið á um að ef enginn hafi haft búsetu í hús- næðinu í síðustu 12 mánuði leiði það til sektargreiðslna, allt að 300.000 krónum. Í kjölfarið muni borgaryf- irvöld hafa samband við viðkomandi eiganda og leiti leiða til að íbúðin verði nýtt aftur. Sem lokaúrræði, eftir 12 mánuði, geti borgin skilgreint íbúðina sem óhagnaðardrifna leigueiningu. Í greinargerð með tillögunni kem- ur fram að fyrirmynd þessa fyrir- komulags sé Amsterdam í Hollandi. Þar hafi borgaryfirvöld komið í veg fyrir að aðilar safni til sín eigum á kostnað þeirra sem vantar þak yfir höfuðið. „Reykjavíkurborg verður að axla ábyrgð þegar kemur að húsnæð- iskrísunni og leggja til markvissar og skilvirkar aðgerðir sem hafa skilað ár- angri í öðrum löndum. Með því að tak- marka uppsöfnun á íbúðarhúsnæði er verið að skapa meira framboð fyrir þau sem þurfa á þessari grunnþörf að halda,“ segir m.a. sisi@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Reykjavíkurborg Sósíalistar vilja móta reglur um notkun íbúða. Sigþór Sigurðsson Andlát Sigþór Sigurðsson, fyrrverandi símaverk- stjóri, lést 9. desem- ber, 94 ára að aldri. Sigþór fæddist í Litla-Hvammi í Mýr- dal 28. september 1928 og bjó þar til æviloka. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Bjarni Gunnarsson, smiður og bóndi í Litla- Hvammi, og Ástríður Stefánsdóttir, hús- freyja og organisti. Sigþór gekk í Barnaskólann í Litla-Hvammi og starfaði síðan við sveitastörf og í vegavinnu. Hann reri fjölda vertíða á opnum bátum frá Dyrhólaey allt til ársins 1962. Róið var á áttæringi í um klukkutíma á miðin og aldrei notuð segl. Einnig fór hann á vertíðir í Vestmannaeyj- um og átti góðar minningar þaðan. Sigþór réðst í símavinnu 1953 og varð fastur starfsmaður hjá Landsímanum 1956. Hann var fyrst bílstjóri hjá línuflokki og fór víða um land til starfa. Síðan gerðist hann verkstjóri og eftirlitsmaður með símalínum frá Skeiðará að Markar- fljóti. Hann hætti störfum hjá Pósti og síma árið 1968, sjötugur að aldri. Hann sat í hrepps- nefnd um árabil, var stofnfélagi Lions- klúbbsins Suðra, sat í stjórn Byggðasafnsins í Skógum frá 1983 og starfaði mikið að uppbyggingu þess með Þórði Tómas- syni. Hann var félagi í kirkjukór Skeiðflat- arsóknar í 68 ár og fékkst við ritstörf. Sigþór skrifaði um Vatna-Brand í ritröð- inni Dynskógum en Brandur Stefánsson var móðurbróðir hans. Þá var Sigþór lengi fréttaritari Morgunblaðsins. Sigþór kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Sólveigu Guð- mundsdóttur, 22. desember 1957. Fósturdóttir Sigþórs er Guðrún Agnes Æ. Pétursdóttir, f. 1952. Börn þeirra Sólveigar og Sigþórs eru Guðmundur, f. 1957, Ástríður, f. 1959, Magnea, f. 1962, d. 1966, Aðaheiður, f. 1966, Sigurður Bjarni, f. 1968, Kristrún, f. 1971 og Steingerður Stella, f. 1972. Útförin verður frá Skeiðflatar- kirkju 17. desember klukkan 13. Henni verður streymt á www.mbl. is/andlat.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.