Morgunblaðið - 15.12.2022, Side 12

Morgunblaðið - 15.12.2022, Side 12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 Viktor Gísli Hallgrímsson Fyrsti þáttur kominn á mbl.is Í fyrsta þætti af Sonum Íslands heimsækjum við handboltamark- vörðinn og landsliðsmanninn Viktor Gísla Hallgrímsson en hann hefur slegið í gegn með Nantes í frönsku 1. deildinni á yfirstandandi keppnis- tímabili. Viktor Gísli, sem er 22 ára gamall, gekk til liðs við Nantes frá GOG í Danmörku síðasta sumar en hann skrifaði undir þriggja ára samning í Frakklandi. Markvörðurinn er uppalinn í Fram þar sem hann lék sinn fyrsta meist- araflokksleik tímabilið 2016-17 en sama tímabil var hann valinn efnileg- asti markvörður úrvalsdeildarinnar. Hann gekk til liðs við GOG í Dan- mörku sumarið 2019 og lék með liðinu í þrjú tímabil. Hann varð Danmerkur- meistari með GOG síðasta vor. Handboltinn aftur á uppleið Viktor Gísli á að baki 35 A-lands- leiki þar sem hann hefur skorað eitt mark en hann lék sinn fyrsta landsleik gegn Noregi í Bergen í apríl árið 2018. Markvörðurinn er á leið á sitt fjórða stórmót með íslenska landsliðinu. „Maður fann klárlega fyrir því á síðasta stórmóti að fólk var aftur byrjað að fylgjast með landsliðinu,“ sagði Viktor Gísli í þættinum þegar hann ræddi gengi landsliðsins á Evrópumótinu í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar á þessu ári þar sem Ísland hafnaði í 6. sæti. „Það eina sem var talað um á Íslandi, eftir að landsliðið vann til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008, var handbolti. Svo tók fótboltinn við en maður fann það vel, eftir síðasta stórmót, að handboltinn er aftur á uppleið núna,“ sagði Viktor Gísli. Markvörðurinn fór á kostum á Evrópumótinu og átti einn af leikjum lífs síns gegn Frakklandi í milliriðla- keppninni þar sem hann varði 15 skot og var með 44%markvörslu en frammistaða hans á mótinu skilaði honum sæti í úrvalsliði Evrópumóts- ins. „Ég held að þessi leikur gegn Frakklandi sé besti leikur sem ég hef spilað á ævinni. Það var svo mjög gaman en óvænt líka að vera valinn í úrvalslið mótsins og ég skildi eiginlega ekki alveg hvernig það varð niðurstaðan. Ég spilaði helminginn af mótinu en maður lætur svona hluti ekki stíga sér til höfuðs eða neitt slíkt. Maður þarf að halda áfram að vinna í sínummálum og verða betri og það er það eina sem ég einblíni á.“ Íslenska liðið er til alls líklegt á komandi heimsmeistaramóti sem hefst í janúar í Svíþjóð og Póllandi. „Við ætlum að sýna heiminum að við erummeð hörkulið og hörkuleik- menn sem spila í mörgum af bestu deildum heims. Við getum gert stóra hluti á næstu árum,“ sagði Viktor Gísli. lMarkvörðurinnViktorGísliHallgrímsson er samningsbundinn stórliðiNantes í Frakklandi lViktorGísli er uppalinn í Framenhann er á leið á sitt fjórða stórmótmeð karlalandsliðinu Með hörkulið og hörkuleikmenn Morgunblaðið/Hallur Már NantesMarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson býr í fallegri íbúð í miðbæ Nantes en hann skrifaði undir þriggja ára samning í Frakklandi. HeimavöllurNantes spilar heimaleiki sína í Palais des Sports de Beaulieu-höllinni sem er einkar glæsileg. Höll Það myndast frábær stemning á heimaleikjum Nantes, bæði í deildinni og í Meistaradeildinni. SYNIR ÍSLANDS Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.