Morgunblaðið - 15.12.2022, Síða 16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
DAGLEGTLÍF16
TILVALIN JÓLAGJÖF
FYRIR ÁHUGAFÓLK UM ÞJÓÐMÁL
„Örugglega besta bók sem ég hef lesið
um íslensk stjórnmál.“ – Frosti Sigurjónsson
„Sá sem ætlar að standa undir sæmdarheitinu
jafnaðarmaður, sósíalisti, kemst einfaldlega
ekki hjá því að hugsa og helst af öllu þarf hann
að hugsa skýrt. Það er gert í þessari bók.“ –
Ólafur Þ. Jónsson
„Skyldulesning fyrir allt áhugafólk um
stjórnmál.“ – Þorsteinn Siglaugsson
„Afar vönduð og vel skrifuð bók; minn-
ingarnar, mannlýsingarnar, málefnin,
hugsjónirnar.“ – Karl Sigurbjörnsson
„Frábær bók ... einlæg og Ögmundur
trúr sér að venju.“ – Níels Árni Lund
L
íflegt hefur verið að
undanförnu á jólamarkaði
þeim sem starfræktur er
að Kirkjubraut 4 á Akra-
nesi. Fólk sem sinnir til að mynda
handverksgerð ýmiss konar selur
þar fjölbreyttan varning. Hver leigir
sitt borð fyrir sölu, en þátttakendur
á markaðnum eru alls 23 talsins.
Markaðurinn er haldinn að frum-
kvæði Miðbæjarsamtaka Akraness
sem stofnuð voru fyrir nokkrum
misserum, en markmið starfs þeirra
er að efla mannlíf og atvinnustarf-
semi í gamla bæjarhlutanum á
Skaganum.
„Við viljum glæða miðbæinn lífi
og markaðurinn er hluti af þeirri við-
leitni okkar. Við vorum svo heppin
að fá til afnota frábært húsnæði, þar
sem áður var til dæmis dansstaður
og fataverslun. Vonandi verður
áframhald á því að þessi húsakynni
nýtist fyrir eitthvað skemmtilegt
í framtíðinni,“ segir Þorgerður
Ólafsdóttir verkefnisstjóri í samtali
við Morgunblaðið. Sjálf rekur hún
fyrirtækið Blue Water Kayaks og
er á markaðnum með búnað fyrir
sjósport ýmiss konar.
Opið um helgina og á Þorlák
Markaðurinn er opinn um næstu
helgi, bæði laugardag og sunnudag
frá kl. 13 til 18, og á Þorláksmessu frá
kl. 13 fram til kl. 22 um kvöldið.
„Við fjölskyldan erum vön ýmsu
föndri heima. Markaðurinn hér gef-
ur okkur fínt tækifæri til að kynna
okkur og selja vörur,“ segir Ragnar
Jónsson. Gervineglur, merkimiðar
og fleira fínerí er meðal þess sem
Ragnar og Aðalbjörg Guðbrands-
dóttir kona hans framleiða og selja
undir merkinu Bassabrand.com.
Salan fer að mestu leyti fram á
netinu en þau sæta lagi þegar tæki-
færi gefast á mörkuðum ýmiss konar.
„Annað sem ég gríp í er að færa
gamalt efni af myndbandsspólum
og kassettum yfir á stafrænt form.
Oft hafa spólurnar legið óhreyfðar
svo árum skiptir og liggja undir
skemmdum, ef ekki eyðileggingu.
Því er mikilvægt að færa efnið yfir í
form sem dugar betur og er aðgengi-
legt í tæki nútímans. Fyrir þessa
þjónustu er mjög svo vaxandi þörf,“
segir Ragnar.
Heppnast vel
„Gamli bærinn á Akranesi er
staður margra möguleika. Jólamark-
aðurinn heppnast vel og fór fram úr
björtustu vonum,“ segir Ólafur Páll
Gunnarsson, formaður Miðbæjar-
samtaka Akraness. Samtökin voru
stofnuð í maí á þessu ári og á vett-
vangi þeirra eru margar hugmyndir
í deiglunni. „Við viljum með öllum
tiltækum ráðum vinna í því að efla
miðbæinn, gera hann meira aðlað-
andi og spennandi fyrir bæjarbúa og
aðra gesti. Maður er manns gaman
og að glæða mannlífið í miðbænum
er áhersluatriði,“ segir Ólafur Páll
og heldur áfram:
Vilja meira pláss
fyrir fólk á fæti
„Okkur finnst mikilvægt að gömlu
húsunum hér í bænum verði gefin
grið og þau gerð upp eins og kostur
er. Mörg voru byggð snemma á
síðustu öld og endurgerð þeirra
verður að vera í stíl við annað sem
fyrir er á svæðinu. Hér þarf allt að
haldast í hendur ef vel á að vera
svo heildarmyndin glatist ekki. Ég
sé líka fyrir mér að með einföldum
aðgerðum mætti hægja á umferð
bíla í mðibænum svo fólk á fæti
fengi meira pláss. Fyrir þessu höfum
við talað meðal annars við fulltrúa
Akraneskaupstaðar sem hafa sýnt
samtökunum og starf þeirra áhuga
og velvild.“
Markaðsstemning í miðbæ á Skaga
Jólabær! Margra grasa
kennir á markaði á
Akranesi, þar sem allt
mögulegt til jólanna er
á boðstólum. Líflegur
staður og allt að gerast.
Miðbær í endurnýjun
lífdaga.
Efla miðbæinn, gera
hann meira aðlaðandi
og spennandi fyrir
bæjarbúa og
aðra gesti.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Bassabrand Ragnar Jónsson var á svæðinu og seldi ýmsan varning. Hann er hér með
börnunum sínum, sem eru Jóhanna Gyða og Guðbrandur Snær. Öll í hátíðarskapi.
Morgunblaðið/Sigurður BogiJólafólk Konur úr Oddfellow seldu kakó og smákökur. Hér eru þær frá vinstri; Arnheiður Andrés-
dóttir, Unnur H. Arnadóttir, Sigríður Karen Samúlsdóttir og Petrína Helga Ottsen. Við hlið þeirra
eru svo þau Þorgerður Ólafsdóttir og Ólafur Páll Gunnarsson frá Miðbæjarsamtökum Akraness.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akranes Horft yfir Neðri-Skaga; gamla bæinn sem nú breytir um svip.
Viðburður til styrktar börnum á flótta
Listaverkauppboð haldið í Iðnó
Listaverkauppboð verður haldið í Iðnó í Reykjavík nk. laugardag kl. 14. Þar geta
gestir stutt við börn á flótta með því að kaupa listaverk. Að uppboðinu standa
samtökin Réttur barna á flótta. Þau styðja börn og fjölskyldur sem þurfa að
leita réttar síns í samræmi við Barnasáttmála Sþ.
Listaverk eftir marga af helstu listamönnum landsins verða á uppboðinu,
en ágóða af því verður varið til að styðja Nour Ahmad, en sá kom til Íslands
fylgdarlaus en var vísað úr landi eftir að hann náði 18 ára aldri.
GOWALK JOY
12.995 KR./ ST. 36 - 41
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
INNISKÓR
Í JÓLAPAKKANN
SKECHERS