Morgunblaðið - 15.12.2022, Qupperneq 28
FRÉTTIR
Innlent28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
Ljósaspeglar
„Þetta var ofboðslega gaman og ég er
mjög ánægð með að hafa tekið þessa
ákvörðun og látið af henni verða,“
segir Hafdís Sigurðardóttir sem um
liðna helgi hjólaði 1.012 kílómetra á 46
klukkustundum. Afrekið vann hún á
líkamsræktarstöðinni Bjargi þar sem
hún starfar. Góður stuðningur allan
tímann og að hafa bæði getað nærst
rétt og hvílst inn á milli skipti sköp-
um um að hún náði þessum áfanga.
Hafdís fékk hugmyndina að
tiltækinu síðastliðið sumar þegar
Bakgarðshlaupið, sem svo er kallað,
fór fram, en fyrirkomulag þess er
þannig að þátttakendur hlaupa 6,7
kílómetra á klukkustund og stendur
hlaupið yfir þar til einn stendur uppi.
„Mig langaði að yfirfæra þetta á
hjólið og skoðaði hvaða vegalengd
hentaði, eftir nokkrar vangaveltur og
prófanir varð niðurstaðan að hjóla 22
kílómetra á hverri klukkustund. Ég
var svona um það bil 45 mínútur að
hjóla þá vegalend og hafði smá tíma
til að hvíla mig þar til næsta törn
hófst,“ segir hún.
Ætlaði aldrei að keyra mig út
Hafdís byrjaði að hjóla klukkan
þrjú á föstudegi og hætti skömmu
eftir hádegi á sunnudegi; hafði þá
verið að í 46 tíma samfleytt og náð að
hjóla yfir 1.000 kílómetra.
„Þessi vegalengd var ekki endilega
á áætlun hjá mér þegar ég hófst
handa, það var ekki fyrr en um
kvöldmat á laugardag sem ég fór
að velta því fyrir mér að reyna við
þúsund kílómetra markið. Við fórum
yfir stöðuna; ég, vinkonur mínar og
stuðningsfólkið. Ég var í ágætu formi
og fann ekki fyrir mikilli þreytu, var
ekki með neina verki, en það var
alltaf mitt markmið að keyra mig
ekki út, gera það sem ég gæti með
góðu móti og koma þokkaleg út úr
þessu,“ segir Hafdís.
Þreyttust var hún þegar vel var
liðið á aðfaranótt sunnudags, milli
fjögur og sex, en hresstist á ný þegar
kom fram á morgun og hún fékk sér
smávegis koffín.
Hún segir að í kringum sig hafi
verið góður hópur vinkvenna, sjúkra-
þjálfari, þjálfarinn hennar og þá hafi
fjölmargir komið við og hjólað með
henni til stuðnings.
„Það er ómetanlegt, því ég hefði
aldrei getað þetta ein. Það þarf að
huga að svo mörgum smáatriðum
svo allt gangi upp, bæði í sambandi
við næringu og hvíld, og það gekk allt
upp með góðri aðstoð.“
Erfitt að betla peninga
Hafdís var kjörin hjólreiðakona Ak-
ureyrar á dögunum og eins var hún
kjörin hjólreiðakona Íslands, en henni
gekk mjög vel á senn liðnu ári. Hún
hefur staðið straum af allri sinni þjálf-
un og keppnisferðum sjálf. Áheitum
var safnað á meðan Hafdís hjólaði,
en hún segir þá hugmynd hafa komið
upp eftir að ferðalagið hófst.
„Ég á mjög erfitt með að betla
peninga, mér finnst það erfitt og
leiðinlegt, þannig að ég hef að mestu
sjálf séð um allan kostnað,“ segir hún
en bæði Hjólreiðafélag Akureyrar
og Hjólreiðasamband Íslands hafi
styrkt hana til keppnisferða, en hafi
vissulega ekki úr miklum peningum
að spila.
Evrópumót á nýju ári
Á komandi ári stefnir Hafdís
á nokkrar keppnisferðir, m.a. á
Evrópumót sem haldið verður í
Glasgow, en hún segir mikilvægt að
komast sem mest á stór mót. Hjól-
reiðaheimurinn á Íslandi sé lítill og
þegar vel sé séu um 12 konur ræstar
út í keppni í einu.
„Það eru um 120 konur ræstar út
í stóru mótunum og það er nokkuð
sem þarf líka að æfa sig í, að hjóla í
svo stórum hópi,“ segir Hafdís hin
hressasta eftir þrekraun helgarinnar.
lHafdís Sigurðardóttir á Akureyri hjólaði af miklu kappi á líkamsræktarstöðinni BjargilByrj-
aði á föstudegi og búin tæpum tveimur dögum síðarlKjörin hjólreiðakona Akureyrar á dögunum
Þúsund km á 46 klukkustundum
VIÐTAL
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Hjólakona Hafdís Sigurðardóttir á hjólinu sem hún notaði við afrekið. Á myndinni til hægri er hún ásamt móður sinni, Þórdísi Sigurðardóttur.
Stuðningur Fjöldi fólks lagði leið sína í líkamsræktarstöðina Bjarg til að
veita Hafdísi hvatningu og stuðning í verki. Um leið var safnað áheitum.
20 milljónir króna til hjálparsamtaka
Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmála- og vinnu-
markaðsráðherra úthlutar samtals 20 milljónum króna
fyrir jól í styrki til hjálparsamtaka sem styðja við við-
kvæma hópa víða um land, einkum með mataraðstoð.
Alls fá níu hjálparsamtök styrk. Þetta eru Hjálpræðis-
herinn, Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefndir í
Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Akranesi, Fjöl-
skylduhjálp Íslands, Velferðarsjóður Eyjafjarðarsvæðis
og Kaffistofa Samhjálpar.Pakkar frá Hjálp-
ræðishernum.
www.vest.is • Ármúli 17 • Sími: 620 7200