Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Frystitogarinn Sólberg ÓF-1 lýkur í dag síðasta túr sínum á árinu og með aflanum sem hafist var handa að landa um klukkan sex í morgun hefur skipið borið 12.260 tonn að landi mælt í óslægðum afla, þar af eru tveir þriðju þorskur en einnig náðist töluvert af ufsa, ýsu, grálúðu og karfa. Þá eru aflaverðmæti skips- ins á árinu rúmlega sjö milljarðar króna og er það mesta aflaverðmæti sem íslenskur togari hefur fengið á einu ári. „Þetta hefur gengið ljómandi vel og áhöfnin á hrós skilið. Þetta fer mikið eftir heimildunum sem má veiða í hverjum túr, en það þarf að vinna þetta og það eru ófá handtök- in,“ segir Sigþór Kjartansson skip- stjóri á Sólberginu um Íslandsmetið og vísar til þess að áhöfnin fullvinn- ur allan afla skipsins. Úr þeim hluta fisksins sem ekki er frystur er unnið fiskimjöl og lýsi. Það þarf því stóra áhöfn og útskýr- ir Sigþór að alla jafna séu 34 um borð. Það eru því margir munnar að metta? „Já það er nóg að gera sem matsveinn með þessa hákarla í mat,“ svarar skipstjórinn og hlær. „Það var lagt upp með að vera með 35 með aðstoðarmanni matsveins, við myndum gjarnan vilja hafa hann en launin eru ekki til þess að halda mönnum í þeirri stöðu.“ Eins og Sigþór bendir á hefur af- urðaverð verið hagstætt og upplýsir Rammi hf., sem gerir skipið út, að eftirspurn eftir afurðum Sólbergsins hafi verið góð á árinu. „Bretland er langmikilvægasti markaðurinn fyrir þorsk- og ýsuflökin, sem eru seld þar undir vörumerkinu RAMMI í „fish and chips“-veitingastaði. Verð á fiski var gott á árinu sem er að líða og hækkaði töluvert milli ára. Söluhorfur á næsta ári eru ágætar.“ Síðasta veiðiferð yfirvélstjórans Sólbergið var á leið sinni til Akur- eyrar til að taka olíu áður en haldið var til löndunar á Siglufirði þegar slegið var á þráðinn til Sigþórs. Hann stýrði skipinu í þessum síðasta túr ársins en á móti honum sinnir Trausti Kristinsson skipstjórn. Túrinn hefur verið um mánaðar langur og því skiljanlega margur skipverjinn tilbúinn í jólafrí, en jólastoppið er óvenju langt að þessu sinni þar sem á að taka upp aðalvél skipsins og er það alla jafna gert á 20 þúsund tíma fresti. Sigþór seg- ir hefðbundið að síðasta túr ljúki í kringum 21. eða 22. desember, en eins og fyrr segir lýkur síðasta túr í dag. Þá er jafnframt ekki haldið til veiða milli jóla og nýars og því stefnir í dágott frí fyrir áhöfnina. „Við höfum verið heppnir að geta verið hjá fjölskyldum okkar yfir há- tíðarnar.“ Túrinn skilar ekki aðeins áhöfn- inni Íslandsmeti í aflaverðmætum, hann er líka stór tímamót fyrir yf- irvélstjórann Þórð Þórðarson. Um er að ræða síðustu veiðiferð Þórðar en hann hefur verið yfirvélstjóri hjá Ramma hf. frá árinu 1986. Flóknara að sækja þorsk en áður Spurður hvernig túrinn hafi verið svarar Sigþór: „Við minnumst þessa túrs líklega helst vegna þess hve gott veður var miðað við desember. Það er búið að vera frekar rólegt veður fyrir utan eina brælu sem gerði það að verkum að við þurftum að flýja Vestfirðina og á norðausturmiðin.“ Þá hefur þorskurinn ekki varið jafn auðsóttur og áður. „Ég held að það sé samdóma álit skipstjórnar- manna að það er flóknara að sækja þorsk en verið hefur. Það þarf að hafa svolítið mikið fyrir honum. Það er ekkert hægt að ganga að honum vísum. Margir ísfisktogarar hafa farið að miðlínunni við Grænland til að sækja þorskinn. Svo virðist hafa verið fínasta veiði þar síðustu daga en við fórum aldrei þangað.“ Aflinn í þessum síðasta túr er blandaður, að sögn Sigþórs. „Við erum með einhver 130 tonn af ufsa, rúm 100 tonn af ýsu og 600 af þorski. Lítið af karfa. Það er nú eitt með karfann, hann er bara úti um allt og truflar veiðar því það má ekki veiða hann. Samkvæmt ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar er staða stofnsins ekki góð, en karfinn er úti um allt.“ lRúmlega sjö milljarðar króna á árinulÁhöfninni að þakka segir skipstjórinn SólbergÓFmeð Íslands- met í aflaverðmæti Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Met Sólberg ÓF-1 hefur landað afla fyrir rúma sjö milljarða á árinu, mest allra íslenskra togara frá upphafi. Undirrit- uðu síðasta samninginn lEinfaldað ferli Að öllum líkindum hefur verið undirritaður síðasti samningur milli Færeyja og Íslands um gagnkvæm fiskveiðiréttindi. Nýtt fyrirkomu- lag mun gera slíka samninga óþarfa. Fram kemur í tilkynningu á vef stjórnarráðsins að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Árni Skaale, sjávarútvegsráðherra Færeyja, undirrituðu nýverið 46. samninginn af þessum toga en þeir hafa verið gerðir skriflega frá árinu 1976 með undirritun ráðherra ríkj- anna og síðan lagðir fyrir Alþingi og Lögþing Færeyja. Þetta ferli mun heyra sögunni til þegar nýr rammasamningur ríkjanna um fiskveiðar tekur gildi. Var hann undirritaður í október af Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, utanríkisráðherra Íslands, og Jenis af Rana, þáverandi ráðherra mennta- og utanríkismála Færeyja. Bíður samningurinn nú samþykktar Alþingis og Lögþings- ins. Rammasamningurinn er sagður einfalda samningaferli ríkjanna „með tilfærslu af hinu pólitíska sviði yfir á svið embættismanna“. Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fiskveiðiréttindi Samningaferlinu hefur verið breytt og það einfaldað. Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Mikið úrval af HVÍLDARSTÓLUM með og án rafmagns lyftibúnaði ELITE stólalínan 3 gerðir: Wiliam, Alex, Charles, 3 möguleikar: Rafdrifinn, manual eða með skammeli. 3 litir Cognac, dökk brúnt, svart, albólstraður með anelin leðri. Komið og skoðið úrvalið Hækkanlegur rafdrifinn tóll með innb. skammel. vörtu leðri og gráu tauáklæði.Til í s LIVER Hækkanlegur rafdrifinn hvíldarstóll, 2 mótorar, með innb. skammel. Til í svörtu leðri og gráu tauáklæði. Afurðaverð á markaði 14. desember,meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 465,32 Þorskur, slægður 491,53 Ýsa, óslægð 382,34 Ýsa, slægð 297,07 Ufsi, óslægður 249,55 Ufsi, slægður 243,27 Gullkarfi 162,87 Blálanga, óslægð 28,00 Blálanga, slægð 252,90 Langa, óslægð 319,58 Langa, slægð 265,89 Keila, óslægð 170,42 Keila, slægð 216,80 Steinbítur, óslægður 13,00 Steinbítur, slægður 162,49 Skötuselur, slægður 776,64 Grálúða, slægð 455,00 Skarkoli, slægður 428,10 Þykkvalúra, slægð 546,35 Langlúra, óslægð 84,01 Sandkoli, óslægður 192,70 Gellur 1.218,82 Hlýri, slægður 218,13 Hvítaskata, slægð 25,00 Lúða, slægð 540,98 Lýr, óslægður 12,00 Lýsa, óslægð 11,54 Lýsa, slægð 74,05 Náskata, slægð 20,00 Skata, slægð 28,00 Stórkjafta, slægð 179,77 Undirmálsýsa, óslægð 32,82 Undirmálsýsa, slægð 39,88 Undirmálsþorskur, óslægður 241,62 Undirmálsþorskur, slægður 269,04
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.