Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 34
FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 15. desember 2022 Gjaldmiðill Gengi Dollari 143.29 Sterlingspund 176.2 Kanadadalur 105.36 Dönsk króna 20.312 Norsk króna 14.435 Sænsk króna 13.867 Svissn. franki 153.11 Japanskt jen 1.0431 SDR 190.16 Evra 151.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 180.5826 Aukin skuldsetning Þessir sömu eigendur bera þó ábyrgð á efnahagsreikningi OR og dótturfélaga, þar á meðal Ljósleiðar- ans. Eins og fram hefur komið þarf Ljósleiðarinn, sem skuldar yfir 14 milljarða króna nú þegar, að skuld- setja sig enn frekar fyrir kaupunum á grunnneti Sýnar. Kaupverðið er um þrír milljarðar króna. Til að rýmka fyrir frekari skuldsetningu Ljósleiðar- ans hefur OR þurft að aflétta fyrir- vörum í lánasamningi við Evrópska fjárfestingabankann, en kostnaðurinn við slíka afléttingu er um þrjár millj- ónir króna. Til þess þurfti samþykki borgarráðs, sem veitt var í síðustu viku. Morgunblaðið hefur heimildir fyr- ir því að Ljósleiðarinn þurfi þó að skuldsetja sig umfram þá þrjá millj- arða sem nýttir verða til að greiða fyrir grunnnet Sýnar. Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Ljósleiðarans hefur ekki viljað veita svör um kjör eða aðra þætti frekari skuldsetningar. Bókuðu mótmæli Þeir Kjartan og Eyþór létu bóka sérstaklega á fundinum í gær að verið sé að samþykkja heimild til stórauk- innar skuldsetningar Ljósleiðarans með því að taka skammtímalán á háum vöxtum. Ekki kemur þó fram hverjir vextirnir eru. Þá segja þeir jafnframt að þetta sé þvert á ný- samþykktar áætlanir OR og Reykja- víkurborgar. Þeir taka einnig fram að rýnihópur borgarráðs, sem skipaður var til að skoða málið, hafi ekki lokið störfum og að ekki liggi fyrir hvernig langtímafjármögnun Ljósleiðarans verði háttað. Þá segja þeir einnig að það sé með öllu óljóst hvort heimilt verði að auka hlutafé Ljósleiðarans, en eins og áður hefur komið fram er stefnt að hlutafjáraukningumeð þátt- töku einkafjárfesta. Borgarráð hefur þó ekki veitt heimild fyrir því. Þá telja þeir sem fyrr segir að borgarráð þurfi að fjalla um málið. Upplýsingafulltrúi OR vildi ekki veita svör við frekari spurningum Morgunblaðsins um málið í gær. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR), ákvað á fundi sínum í gær að gefa frá- farandi forstjóra OR, Bjarna Bjarna- syni, umboð til að staðfesta ákvörðun stjórnar Ljósleiðarans um að ganga til samninga við Sýn um kaup á stofnneti félagsins. Stefnt er að því að klára kaupin í dag. Stjórn OR var þó ekki einhuga ummálið og eins og ViðskiptaMogginn greindi frá í gær hafa tveir stjórnarmenn, þeir Kjart- an Magnússon og Eyþór Arnalds, gert athugasemdir við málið. Eins og fram hefur komið hefur Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands og stjórnar- formaður OR, neitað að tjá sig um málið við Morgunblaðið. Í tilkynn- ingu sem send var á fjölmiðla í gær kemur fram að Brynhildur, ásamt Gylfa Magnússyni og Valgarði L. Jónssyni, hafi bókað sérstaklega á fundinum í gær að hlutverk stjórn- ar sé að „verja og auka verðmæti eigna OR“ og að með ákvörðuninni sé verið að verja og auka verðmæti Ljósleiðarans, eins af dótturfélögum OR. Þá er einnig tekið fram í bók- un þeirra að ákvörðun um einstaka viðskiptasamninga sé ekki í höndum eigenda OR (sem eru Reykjavíkur- borg, Akranes og Borgarbyggð), heldur stjórnar og hluthafafundar Ljósleiðarans. Eins og ViðskiptaMogginn greindi frá í gær hafa þeir Kjartan og Eyþór óskað eftir því að borgarráð fjalli um málið og meti hvort fyrirhuguð starf- semi Ljósleiðarans á landsbyggðinni, með tilheyrandi skuldsetningu, sam- ræmist eigendastefnu OR. Þá er einnig tekið fram í bókuninni að þar sem helstu viðskiptavinir Ljósleiðar- ans séu með starfsemi um allt land sé eðlilegt að Ljósleiðarinn „styðji við starfsemi þeirra þar einnig,“ eins og það er orðað í tilkynningunni. lMeirihluti stjórnar Orkuveitunnar veitir samþykki fyrir frekari skuldsetningu innan samstæðunnar Skuldirnar aukast Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr@mbl.is Morgunblaðið/Óttar Geirsson Skuldir Orkuveitan svarar ekki spurningum um aukna skuldsetningu Eignir lífeyrissjóða námu 6.565 milljörðum króna í lok október sl. og hækkuðu um 127 ma. kr. á milli mánaða. Þar af voru eignir samtryggingadeilda 5.869 ma. og séreignadeilda 695 ma. Þetta kemur fram í tölum á vef Seðla- banka Íslands. Á sama tíma á síðasta ári námu eignir sjóðanna 6.589 milljörðum króna og er því um ríflega 0,35% lækkun að ræða milli 2022 og 2021. Eins og sjá má á vef Lands- samtaka lífeyrissjóða, LL, hafa eignir sjóðanna að raunvirði hækkað samfleytt síðan í lok árs 2008 og fram á þetta ár, en í fjármálahruninu 2008 lækkuðu eignirnar umtalsvert. Sé miðað við lok 2021, þá námu eignirnar á þeim tíma 6.747 milljörðum. Síðan þá hafa eignir sjóðanna lækkað um 2,7% miðað við tölur októbermánaðar. tobj@mbl.is Eignir sjóðanna lækkamilli ára Heildareignir lífeyrissjóðanna frá okt. 2021 7.250 7.000 6.750 6.500 6.250 6.000 5.750 okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. 2021 2022 Heimild: Seðlabanki Íslands Innlendar 4,3 4,3 4,3 4,3 4,3 4,4 4,4 4,3 4,3 4,4 4,4 4,3 4,3 Erlendar 2,3 2,3 2,4 2,2 2,2 2,2 2,1 2,1 2,1 2,2 2,3 2,1 2,2 Eignir alls 6,6 6,6 6,7 6,6 6,5 6,7 6,6 6,4 6,4 6,6 6,7 6,4 6,6 6.564ma.kr. 6.589ma.kr. Þús.ma.kr. Milljarðar kr. Góð melting er undirstaða góðrar heilsu! Heilbrigð þarmaflóra með góðgerlunum frá Bio-Kult. Meltingarensímin hjálpa þér að brjóta niður fæðuna og melta betur. Betri melting & öflug þarmaflóra Sölustaðir: Apótek og heilsuhillur stórmarkaða Matur KS keypti Gunnars í maí sl. Töf úr hófi fram lSKE ennmeð söluna á Gunnars til skoðunarlViðmiðunarmörk úrelt Sævar Þór Jónsson, lögmaður matvælafyrirtækisins Gunnars majóness, kveðst undrandi á að Samkeppniseftirlitið „setji þumal- skrúfu“, á fyrirtæki eins og Gunnars majónes, félag með tiltölulega lága veltu, líkt og ummilljarða fyrirtæki sé að ræða. Í maí sl. var Gunnars majónes selt til Kaupfélags Skagfirðinga og voru viðskiptin í kjölfarið tilkynnt til Samkeppniseftirlitsins. Segir Sævar að nú, þegar um sex mánuðir séu liðnir frá viðskipt- unum, hafi kaupin ekki enn verið samþykkt af eftirlitinu. Hann segir málið hafa tafist úr hófi fram auk þess sem skriffinnskan og gagnaöfl- unin sem Gunnars majónes er krafið um sé óþarflega mikil. Hann segist velta fyrir sér hvort þetta ferli sé á köflum hálfóyfirstíganlegt fyrir lítil fyrirtæki að standa í. Þá gagnrýnir Sævar lág við- miðunarmörk Samkeppniseftirlits- ins hvað varðar veltu félaga í við- skiptum sem þessum, en fyrirtæki með ákveðna veltu þurfa að sækja um leyfi þegar kemur að sölu eða samruna. Hann segir viðmiðunar- mörkin hafa verið þau sömu í mörg ár og ekki uppfærð í samræmi við verðlagsþróun. Unnið að gagnaöflun „Það er mjög bagalegt að lítil og meðalstór fyrirtæki þurfi að vera undir svona miklu eftirliti af hendi Samkeppniseftirlitsins,“ segir Sæv- ar. Hann segir að nú sé verið að taka saman ýmis gögn og skýringar til að koma sjónarmiðum Gunnars á framfæri áður en endanleg niður- staða SKE liggur fyrir. Sævar segir að óvissan sem fylgir seinkun á afgreiðslu málsins hafi mjög slæm áhrif. „Það er ábyrgðarhluti. Það er augljóst að ef þetta verður ekki samþykkt þá hlýst af því tjón og þá þarf að skoða það. Það gengur ekki að láta eftirlitið halda fyrirtæki nánast í hálfgerðri gíslingu í svona langan tíma.“ Samkvæmt upplýsingum á vef Samkeppniseftirlitsins er lokadag- setning fyrir ákvörðun í málinu 29. desember nk. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnaso torbj@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.