Morgunblaðið - 15.12.2022, Síða 36
FRÉTTIR
Erlent36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
ECCO EASY INNISKÓR
ÚR NUBUCK LEÐRI OG FÓÐRAÐIR AÐ INNAN MEÐ LAMBSULL
10.995.- / St. 40-46
Vnr.: E-531834
10.995.- / St. 36-41
Vnr.: E-231873
10.995.- / St. 40-46
Vnr.: E-531834
10.995.- / St. 36-41
Vnr.: E-231873
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
inn innflutning á rafmagni. Brugðist
var hratt við og hétu þjóðir um allan
heim 67 milljóna dala stuðningi til
að útvega mat og vatn í Úkraínu, 18
milljónum fyrir heilbrigðisgeirann og
23 milljónum fyrir samgöngur.
Á stuðningsfundinum í París var
einnig heitið 440 milljónum til að
byggja upp orkuinnviði Úkraínu. For-
seti Frakklands, Emmanuel Macron
sagði að stuðningur alþjóðasamfé-
lagsins sýndi að „Úkraína stæði ekki
ein.“
Stuttu eftir þær fregnir kom til-
kynning frá Kreml um að ekkert hlé
yrði á stríðsrekstrinum yfir jól og ára-
mót og ekkert vopnahlé væri í sjón-
máli. „Engar tillögur hafa borist frá
Kænugarði og ekkert umræðuefni af
þessu tagi er á dagskrá,“ sagði Dmitrí
Peskóv, talsmaður Kremlar í gær.
Breytt stefna Bandaríkjanna?
Í TheWashington Post í gær var sagt
að háttsettur embættismaður í stjórn
Joes Bidens Bandaríkjaforseta hefði
sagt í samtali við blaðamann blaðsins
að ef Bandaríkin myndu senda
Patriot-eldflaugakerfið til Úkraínu
myndi það marka breytingu á aðstoð
þjóðarinnar og hugsanlega framgangi
stríðsins. Bandaríkin hafa ekki sent
háþróuð vopn til Úkraínu hingað til,
eins og langdrægar eldflaugar og
orrustuþotur, til að dragast ekki inn
í átökin. Nú berast hins vegar fregnir
af því að stjórnvöld vestanhafs séu að
íhuga þennanmöguleika vegna hertra
árása Rússa á Úkraínu og ekki síður
vegna varnarsamstarfs Rússlands og
Írans, en eins og oft hefur fram komið
framleiðir Íran flesta drónana sem
hafa verið helsta vopn Rússa í lofti
til þessa. Á sama tíma hefur Úkraína
gert samning við Tyrki um að reisa
verksmiðju í Úkraínu sem á að fram-
leiða tyrkneska Bayraktar-dróna.
Peningaþvætti og vopnakaup
Bandaríkin hafa ákært fimm rúss-
neska ríkisborgara, einn bandarískan
ríkisborgara og einn íbúa með bú-
seturétt í landinu, fyrir að aðstoða
Rússa við að komast undan refsi-
aðgerðum með peningaþvætti og
með aðstoð við alþjóðleg innkaup
á vopnum. Rússarnir eru Yevgeniy
Grinin, Aleksey Ippolitov, Boris Livs-
hits, Svetlana Skvortsova og Vadim
Konoshchenok, en sá síðastnefndi var
handtekinn í Eistlandi 6. desember
og bíður framsals til Bandaríkjanna.
Auk þeirra voru Alexey Brayman
og Vadim Yermolenko handteknir.
Ákæran var birt síðasta þriðjudag í
New York-borg.
Þjálfa dómara
Forseti Lettlands, Egils Levits,
sagði í gær að stofna þyrfti alþjóð-
legan dómstól til að dæma Rússa fyr-
ir innrásina í Úkraínu. Saksóknari
Bretlands, Victoria Prentis, tók undir
það og sagði í samtali við Sky News að
90 úkraínskir dómarar fengju þjálfun
í að sækja til saka fyrir stríðsglæpi,
þótt stríðinu sé ekki lokið.
Undirbúa sig undir það versta
Stjórnvöld í Kænugarði taka
hótunum Vladimírs Pútíns forseta
Rússlands alvarlega þegar hann
talar um að hann sé reiðubúinn að
beita „öllum nauðsynlegum ráðum“
til að vinna stríðið í Úkraínu í rúss-
neskum fjölmiðlum og ýjar þar að
hugsanlegri notkun kjarnorkuvopna.
Borgarbúar búa sig undir það versta
með kjallarabyrgjum, bakpokum og
FM útvörpum. Í bakpokunum eru
vistir og fleira sem myndu duga í
viku og gætu reynst mikilvæg ef til
slíkrar árásar kæmi. Ríkisstjórnin
hefur einnig gefið út ráðleggingar
um hvernig best sé að bregðast við
ef borgin yrði fyrir kjarnorkuárás.
Hvetur til örlætis um jólin
Frans páfi hvatti fólk til að íhuga að
stilla jólahaldi í hóf í ár og gefa þess
í stað fé til að hjálpa Úkraínumönn-
um um þessi jól. „Sköpum auðmýkri
jól, með auðmýkri gjöfum, og send-
um það sem við getum til að bjarga
Úkraínumönnum sem þurfa á því að
halda,“ sagði hann í gær.
„Hryðjuverkamennirnir byrjuðu
í morgun með þrettán íranska
dróna,“ sagði Volodímír Selenskí
forseti Úkraínu í gær um loftárás
Rússa í miðborg Kænugarðs. „Allir
þrettán voru skotnir niður,“ bætti
hann við og hvatti íbúa Kænugarðs
til að leita vars þegar heyrðist í loft-
varnarflautunum.
Árásum á borgina hefur fjölgað
frá því í október þegar Rússar fóru
að beina spjótum sínum markvisst
að orkuinnviðum borgarinnar með
tilheyrandi rafmagns- og vatnsleysi
og kulda. Rússar náðu þó ekki tak-
marki sínu í gær og engin slys urðu
á mönnum en borgaryfirvöld sögðu
að brak úr drónunum hefði skemmt
íbúðarhús og stjórnsýslubyggingu á
svæðinu.
Úkraínumenn eru ekki einir
Árásirnar á Kænugarð koma í
kjölfar ákalls Selenskís til 70 landa
og alþjóðlegra samtaka í París um
aðstoð í vetur vegna árása Rússa.
Í myndskeiði frá Kænugarði sagði
Selenskí að þjóðin þyrfti aðstoð upp
á 800milljónir evra til að byggja upp
orkukerfið eftir árásirnar, en talið er
að um 40-50% orkuinnviða landsins
þarfnist viðgerðar. Hann sagði að
landið þyrfti varahluti til viðgerða,
öflugar rafstöðvar, aukagas og auk-
Ekkert vopnahlé yfir jól og áramót
lVörðust drónaárás í Kænugarði í gærlFjárstuðningi heitiðlHáþróuð vopn í augsýn?lFimm
Rússar handteknir vestanhafslBúa sig undir kjarnorkuáráslPáfinn biður um jól fyrir Úkraínu
Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
AFP/Sergei Chuzavkov
Orkuleysi Eldri kona kveikir á kerti í íbúð sinni í bænumGorenka í útjaðri
Kænugarðs. Byggingin varð fyrir loftárás í upphafi stríðsins.
Kuldakast hefur verið í Evrópu
í vikunni og féllu flugsamgöng-
ur niður á Stanstead-flugvelli í
Bretlandi á mánudaginn vegna
veðurs. Íslendingar hafa fundið
fyrir ísköldu heimskautsloftinu
færast yfir landið. Í Húsafelli
mældist 18 stiga frost í fyrrinótt
og búist er við gaddi í byggðum.
Miklar frosthörkur í norðanverðri Evrópu
Vetur konungur ríkir nú í Evrópu
AFP/Elena Fusco
Fjögur staðfest
dauðsföll í gær
lTugumbjargað úr köldumsjónum
Að minnsta kosti fjórir létust þegar
litlum báti, þétt setnum af farand-
fólki, hvolfdi í miklu frosti á Ermar-
sundi í fyrrinótt. Breskir fjölmiðlar
sögðu að 43 hefði verið bjargað,
þar af rúmlega 30 sem hefðu fallið
fyrir borð, en óttast var að tala
látinna myndi hækka. Frosthörkur í
norðanverðri Evrópu og hvassviðri
á Ermarsundi hefur aftrað sjófar-
endum undanfarna daga, en vind
lægði aðeins í fyrrinótt og þá fór
þessi litli bátur af stað. Rishi Sunak,
forsætisráðherra Bretlands, sagði
að í slysinu hefði orðið „hörmulegt
manntjón“.
Yfir 43.000 flóttamenn hafa
lagt í þessa hættulegu ferð yfir
Ermarsundið á þessu ári og hefur
fjöldinn aldrei verið meiri. 27 manns
drukknuðu þegar þeir reyndu að kom-
ast yfir Ermarsundið í fárviðri þann
24. nóvember í fyrra. Atvikið á mið-
vikudag kom upp daginn eftir að Rishi
Sunak, forsætisráðherra Bretlands,
tilkynnti um nýjan samning við Al-
baníu til að stemma stigu við straumi
innflytjenda, en þriðjungur þeirra sem
koma til Bretlands í ár eru Albanir.
Samningurinn kveður á um að Alban-
ir verði sendir beint til heimalandsins
við komuna til Englands.
Dóra Ósk Halldórsdóttir
doraosk@mbl.is
AFP/Carlos Jasso
Ermarsund Breskur björgunarbát-
ur siglir inn í höfnina í Dover.