Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
Afganistan er gleymt
land. Eftir að talibanar
náðu þar völdum á ný
hefur alþjóðasamfélagið
snúið við landinu baki,
með réttu eða röngu. Al-
þjóðleg aðstoð, sem áð-
ur nam 75% af fjárlög-
unum, hefur gufað upp.
Við bætast náttúru-
hamfarir á borð við
þurrka og flóð og
matvælakreppan vegna
stríðsins í Úkraínu. Tal-
ið er að 90% þjóðarinnar hafi ekki nóg
að borða.
Eins og þetta sé ekki nóg, hefur
komið í ljós að fyrirheit talibana um að
stjórna með mildari hætti og virða
réttindi kvenna reyndust fals eitt.
Kúgun kvenna í Afganistan er jafn-
slæm eða verri í þetta sinn og stöðugt
gengið á réttindi þeirra; þeim hefur til
að mynda verið bannað að ferðast ein-
ar, að afla sér menntunar og að sækja
staði á borð við líkamsræktarstöðvar
eða almenningsgarða.
Christina Lamb, fréttastjóri er-
lendra frétta á The Times og sérfræð-
ingur í málefnum Afganistans, kom
hingað til lands í fyrra á vegum lands-
nefndar UN Women og hélt áhrifarík-
an fyrirlestur um hlutskipti kvenna í
stríði. Hún skrifaði nýlega grein í The
Times um ástandið í Afganistan, en
þangað hefur hún farið í þrígang eftir
að talibanar náðu völdum. Hún segir
m.a. frá fjölskyldum sem selja barn-
ungar dætur sínar í hjónaband með
miklu eldri mönnum til að eiga fyrir
mat, frá konum sem krafsa í snjónum
eftir grasi til að seðja sár-
asta hungrið, konum sem
deyja af barnsförum
vegna vannæringar og
járnskorts – og hug-
rökkum konum sem reka
leynilega skóla fyrir
stúlkur.
Sameinuðu þjóðirnar
og ýmis hjálparsamtök
leitast við að lina þján-
ingar afgönsku þjóð-
arinnar. Á meðal stofn-
ana sem starfa í landinu
er UN Women, jafnrétt-
isstofnun SÞ. Á vef landsnefndar UN
Women á Íslandi, unwomen.is, getur þú
keypt táknrænar jólagjafir til stuðn-
ings verkefnum stofnunarinnar í þágu
kvenna víða um heim, meðal annars í
Afganistan. Vegna þeirra takmarkana
sem afganskar konur búa við eiga þær
erfitt með að nálgast það sem við lítum
á sem brýnustu nauðsynjar. Fyrir
1.900 krónur geturðu sent afganskri
konu neyðarpakka, sem hjálpar henni
að viðhalda persónulegu hreinlæti og
mannlegri reisn.
Hvað er betri gjöf handa þeim sem á
allt en stuðningur við þann sem á ekki
neitt? Sýnum að við munum eftir kon-
unum í Afganistan. Að hjálpa konu í
gleymdu landi kostar minna en bíómiði
– en getur mögulega bjargað mannslífi.
Ólafur Stephensen
» Sýnum að við mun-
um eftir konunum í
Afganistan.
Ólaf ur
Stephensen
Höfundur situr í stjórn Landsnefndar
UN Women á Íslandi.
Gjafir fyrir konur
í gleymdu landi
Við höfum í gegnum
árin byggt samfélag
okkar á Íslandi á þeim
grunngildum að með
lögum skuli land
byggja og að leiðarljós
okkar séu kristileg
gildi.
Þetta hefur reynst
íslensku þjóðinni vel í
gegnum aldirnar. Hér
hefur verið eitt frið-
samasta land í heimi og
við getum státað af vel stæðri þjóð
þar sem velmegun er með því mesta
sem gerist í heiminum.
Alvarlega er nú sótt að megin-
gildum okkar og fara þar fremstir í
flokki þingmenn Pírata.
Vilja ekki guðsorð í skólum
Aðventan er runnin upp og jólin
nálgast, ein mesta hátíð kristinna
manna. Á sínum tíma voru það hátíð-
arstundir þegar skólabekkirnir fengu
að heimsækja kirkjuna í sínu nær-
samfélagi og hlusta á boðskap prests-
ins um kristna trú og hvers vegna jól-
in eru haldin hátíðleg.
Nú er þetta eitur í augum sumra.
Ef við sem erum komin á efri ár lítum
til baka er ég viss um að nánast allir
minnast þessara stunda með ánægju
í huga. Það getur varla nokkrum
dottið í hug að við höfum haft eitt-
hvað slæmt af þessum heimsóknum í
kirkjuna.
Hafði einhver 11 ára nemandi
slæmt af því að fá nýja testamentið
afhent í skólanum? Nú má það ekki
lengur.
Það er með ólík-
indum að Guð og Jesú
skuli vera bannorð á að-
ventunni í skólum
landsins.
Á sínum tíma var
kennd kristinfræði í
hverri viku í grunn-
skólum landsins. Hafði
nokkur nemandi slæmt
af því að fá þessa
fræðslu? Var eitthvað
slæmt við það að fá
kennslu í siðfræði krist-
innar trúar? Var eitt-
hvað slæmt við það að fá fræðslu um
boðskap Jesú og svo Marteins Lút-
ers?
Nú eru þetta allt bannorð í skólum
landsins.
Trúnaður teygjanlegur
segja Píratar
Á Alþingi þarf eflaust oft að ræða
mál í algjörum trúnaði eðli málsins
samkvæmt. Nú kom það nýlega fram
að því sem átti að vera trúnaður um
stuttan tíma var lekið í fjölmiðla.
Forysta Pírata segir að trúnaður
sé teygjanlegt hugtak og þeir megi
alveg leka upplýsingum sýnist þeim
svo.
Hvers konar þjóðfélag vilja Pírat-
ar eiginlega?
Á að opna landið alveg?
Píratar hafa gert miklar at-
hugasemdir við framgöngu dóms-
málaráðherra að nauðsynlegt sé að
herða eftirlit og hafa einhver tak-
mörk á því hvað við getum tekið á
móti mörgum hælisleitendum inn í
landið.
Það er full samstaða um það í land-
inu að við tökum vel á móti Úkra-
ínufólki sem er á flótta vegna ólög-
legrar innrásar inn í land þeirra.
En það getur ekki gengið að við
tökum ótakmarkað á móti hælisleit-
endum sem ekki búa við nein stríðs-
átök í sínu landi. Við verðum að hafa
ákveðnar takmarkanir. Það sjá flest-
ir hvers konar ástand það yrði í okk-
ar landi fengju Píratar að ráða.
Slæm reynsla í Reykjavík
Píratar hafa síðustu kjörtímabil
setið í meirihlutastjórn í Reykjavík
ásamt Samfylkingu og Viðreisn.
Vinstri-græn gáfust upp á samstarf-
inu eftir síðustu kosningar. Reykja-
vík hefur verið rekin með miklum
halla og óstjórn. Nú ætla þau að
skera niður svo um munar til að bæta
úr eigin óstjórn. Þessi niðurskurður
mun bitna fyrst og fremst á barna-
fólki.
Hvað ætli nýjum formanni Sam-
fylkingarinnar finnist um þann boð-
skap? Reynslan af Pírötum í meiri-
hluta Reykjavíkur er góð viðvörun
um að þeir komist ekki til valda í
landsmálunum.
Hvernig væri þjóðfélagið
ef Píratar réðu?
Sigurður Jónsson » Það er með ólík-
indum að Guð og
Jesú skuli vera bannorð
á aðventunni í skólum
landsins.
Sigurður Jónsson
Höfundur er fv. bæjarstjóri í Garði.
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
STEINAR WAAGE
Axelda Bremen
12.995 kr. / St. 41-46
Birkenstock Zermatt
12.995 kr. / St. 37-46
Calvin Klein Jeans
14.995 kr. / St. 37-41
Shepherd Hugo
13.995 kr. / St. 41-46
ShepherdThelma
16.995 kr. / St. 36-41
Shepherd Jessica
13.995 kr. / St. 37-41
Inniskór sem henta öllum
Axelda Assen
11.995 kr. / St. 41-46
Birkenstock Arizona
13.995 kr. / St. 37-48
Tommy Hilfiger
10.995 kr. / St. 41-45
Shepherd Selma
12.995 kr. / St. 36-41
Rohde
14.995 kr. / St. 42-47
Rohde
14.995 kr. / St. 36-41