Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 Meðlætið er ekki af verri endanum og er hér á ferð hin fullkoma jólamáltíð. Boðið er upp á gljáða nípu, pönnusteika ostrusveppi og krækiberjasósu með kjötinu og er útkoman hreint dýrleg. Steiktar lambakórónur 2 stk lambakóróna 1 stk hvítlauksgeiri 50 ml matarolía sítrónutímjan Ofnbökuð nípa 2 stk nípa (einnig þekkt sem steinseljurót) timían 1 stk hvítlauksgeiri 50 ml matarolía 100 ml vatn salt Sveppamauk 3 box Flúðasveppir 30 ml matarolía 1/2 hvítlauksgeiri sítrónusafi Krækiberjasósa 300 ml krækiberjasafi 400 gr lambasoð Bone & Marrow 50 g kalt smjör skorið í teninga Steiktir ostrusveppir 100 g ostrusveppir 30 g skírt smjör 1 msk eplaedik salt Leiðbeiningar 1. Sannarlega hátíðleg steik úr uppáhaldsbita margra sem sómir sér vel á jólaborðinu. Lambakóróna er hryggvöðvi með áföstum rifbeinum, ef þið kjósið er hægt að nota hryggvöðva (e. filet) án beina en athugið þá að stytta eldunartímann um nokkrar mínútur. Steiktar lambakórónur 2. Snyrtið lambakórónur ögn en leyfið fitunni að vera ofan á vöðvanum, ristið tígla í fituna og marinerið í blöndu af olíu, sítrónutimían og söxuðum hvít- lauksgeira, látið standa við stofuhita í 2 klst, eða jafnvel í kæli yfir nótt. 3. Hitið ofn á 160°C. Þerrið mestu olíuna af, saltið og brúnið kjötið á pönnu, byrjið á fituhliðinni á meðalhita og bræðið fituna vel. Setjið á bakka, piprið og eldið í ofni í 15-20 mínútur, og mælið kjarnhitann á meðan. Meðalsteiking (e. medium) er 56°C fyrir lambakórónu. Sumir vilja meira steikt og fara þá eftir sínum smekk. Þegar æskilegum kjarn- hita er náð, piprið þá kjötið og látið það hvíla í a.m.k. 10 mínútur áður en það er skorið. Ofnbökuð nípa 4. Skerið nípu í tvennt eftir endilöngu og setjið á bakka með timían, salti, hvít- lauksgeira og vatni. Lokið með álpappír og eldið á 180°C í eina klst. Sveppamauk 5. Steikið Flúða-sveppi á pönnu þar til fallega brúnir, bætið ½ hvítlauksgeira við síðustu tvær mínúturnar. Færið í matvinnsluvél og maukið, bætið við olíu ef þarf, smakkið til með salti og sítrónusafa. Krækiberjasósa 6. Sjóðið krækiberjasafa niður um helming og bætið lambasoði við, tilvalið að nota íslenskt soð frá Bone & Marrow sem fæst víða. Takið pottinn af hellunni og pískið smjörið saman við og smakkið til. Steiktir ostrusveppir 7. Rífið ostrusveppi gróft niður og pönnusteikið í skírðu smjöri frá Bone & Marrow, saltið og setjið ögn af eplaediki yfir í lokin. Hér erum við með lambakórónu eins og hún gerist best. Hátíðar- lambakóróna Jólamáltíðin Lambakjöt nýtur mikilla vin- sælda á veisluborðum landsmanna og þar eru lambakórónurnar framarlega í flokki. Sælkeraverslunin Me & Mu, Garðatorgi 1 í Garðabæ, er hugar- fóstur þeirra Sveinbjargar Jóns- dóttur og Önnu Júlíusdóttur, sem langaði að stofna verslun þar sem gæði varanna væru í forgrunni. Úr varð verslunin Me & Mu sem köll- uð hefur verið mekka matgæðinga enda eru vörur þar í boði sem ekki eru fáanlegar annars staðar. Sveinbjörg segir að jólakörfurn- ar séu sérstaklega vinsælar – bæði meðal einstaklinga sem og fyrir- tækja. „Við erum með fimm gerðir af körfum í boði í mismunandi verðflokkum en svo er fólki meira en velkomið að setja saman sínar eigin körfur,“ segir Sveinbjörg en margir kjósa einmitt að kaupa sniðugar jólagjafir með þessum hætti sem bæði styðja við smá- framleiðendur og nýtast vel. Verslunin býður upp á mikið úrval af gæðakjöti frá innlendum framleiðendum þar sem áhersla er lögð á rekjanleika varanna. „Við erum með kjöt frá Brákarey í Borgarnesi sem er algjörlega framúrskarandi framleiðandi. Síðan erum við með Angus Galloway-lúxussteikur frá Sogni í Kjós. Við verslum við B. Jensen á Akureyri og Kristínu í Ytri-Hólma sem er rétt fyrir utan Akranes, en þar fáum við úrvals kofareykt hangikjöt og grafið ærkjöt,“ segir Sveinbjörg en jafnframt flytur verslunin inn hágæðavörur frá Ítalíu, Frakklandi og Englandi. „Það eru alls kyns pylsur, kæfur, paté og olíur. Kynstrin öll af spennandi jólavörum sem gleðja bragðlaukana,“ segir Sveinbjörg og hafa viðskiptavinir kunnað vel að meta. „Við erum sífellt að stækka og auka vöruúrvalið okkar. Við finn- um líka hjá okkar neytendahópi að eftirspurnin eftir vönduðum heilsuvörum er að aukast og því bjóðum við mikið úrval af alls konar heilsuvörurm sem einnig er hægt að fá í gjafakörfum. Bólgu- eyðandi te, vítamín og alls konar spennandi vörur þar sem áherslan er lögð á vönduð og góð vöru- merki,“ segir Sveinbjörg. „Ekki má heldur gleyma bakarí- inu okkar,“ bætir Sveinbjörg við en í búðinni er hægt að kaupa súr- deigsbrauð og alls konar kruðerí frá Sandholtsbakaríi jafnframt því sem boðið er upp á smákökur frá Björnsbakaríi. Me og Mu rekur tvær verslanir. Önnur er á Garðatorgi en hin er í Gróðurhúsinu í Hveragerði þar sem lögð er áhersla á vörur fyrir ferðamenn og hótelgesti. Matgæðingar eða aðstandendur þeirra þurfa því ekki að leita langt yfir skammt til að finna hina fullkomnu jólagjöf eða jólamatinn sem kemur öllum í sannkallað jólaskap. Sælkeraverslunin Me & Mu, Garðatorgi 1 í Garðabæ, er hugarfóstur þeirra Sveinbjargar Jónsdóttur og Önnu Júlíusdóttur, sem langaði að stofna verslun þar sem gæði varanna væru í forgrunni. Úr varð verslunin Me & Mu, sem köll- uð hefur verið mekka matgæðinga enda vörur þar í boði sem ekki fást annars staðar. Me & Mu: Mekka matgæðinga
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.