Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 49
MINNINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 ✝ Málfríður Ás- geirsdóttir eða Mollý, eins og hún var ávallt kölluð, fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1955. Hún lést í faðmi fjöl- skyldunnar á líkn- ardeild Landspít- alans 27. nóvember 2022. Hún var dóttir hjónanna Huldu Sigurbjörnsdóttur Knudsen verkakonu, f. 1932, d. 2014, og Ásgeirs Daníels Einarssonar sölumanns, f. 1929, d. 1973. Seinni maður Huldu var Jakob Þór Óskarsson leigubílstjóri, f. 1924, d. 2013. Mollý átti þrjú alsystkini og tvær hálfsystur. Elstur var Óm- ar, f. 1951, d. 2019, þá Sig- urbjörn, f. 1952, og Valgerður, f. 1958. Hálfsystir hennar samfeðra er Jóhanna Lind, f. 1951. Hálfsystir hennar sammæðra er Ásgerður Ósk Jakobsdóttir, f. 1976. Mollý kynntist eftirlifandi eig- ob Orra, f. 2006, Emil Inga, f. 2008, og Kára Stein, f. 2010. Fyrir átti Bragi dóttur, Berg- lindi, f. 1974. Eiginmaður hennar er Árni Magnússon f. 1965. Berg- lind á tvö börn, Elvar Andra, f. 1993, og Söndru Karen, f. 2001, og þrjú stjúpbörn, Guðrúnu Magneu, f. 1983, Söru Dögg, f. 1994, og Árna Pál, f. 1996. Mollý ólst upp í Skipholti 43. Mollý og Bragi hófu sína sambúð í kjallaranum hjá foreldrum Braga á Þorfinnsgötu 2. Þau byggðu í Fífuseli og fluttu svo tímabundið til Bergen og Ros- endal í Noregi. Að því ævintýri loknu fluttu þau aftur í íbúðina í Fífuseli. Þau byggðu saman hús í Logafold 172 og voru ein af frumbyggjum Grafarvogs. Síðar byggðu þau í Vættaborgum 119 og leið alla tíð mjög vel þar í fal- legu umhverfi. Mollý gekk í Hlíðaskóla og Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Hún lauk námi við öldungadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti á listabraut. Mollý vann á ýmsum stöðum, s.s. í versluninni Herj- ólfi, á Tollinum og við ræstingar. Hún vann þó lengst af á ónæm- isfræðideild Landspítalans við skrifstofustörf. Útför Mollýjar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 15. des- ember 2022, klukkan 13. inmanni sínum, Braga Sigurði Bald- urssyni rafvirkja, árið 1974. Bragi fæddist í Reykjavík 1952, sonur hjónanna Önnu Guðbjargar Björns- dóttur húsmóður, f. 1914, d. 1992, og Baldurs Kolbeins- sonar vélstjóra, f. 1914, d. 1981. Bragi og Mollý giftu sig 6. nóv- ember 1976 og eignuðust þau þrjú börn saman: 1) Baldur Geir, f. 1976. Unnusta hans er Þórunn Eva Hallsdóttir, f. 1974. Stjúp- sonur Baldurs er Örnólfur Þór, f. 1996, og saman eiga þau eina dóttur, Urði Eiri, f. 2010. 2) Hulda Guðrún, f. 1978. Eigin- maður hennar er Guðmundur Kristján Sæmundsen, f. 1979, og eiga þau tvo syni, Braga Krist- ján, f. 2008, og Ara Baldur, f. 2010. 3) Svanhildur Anna, f. 1981. Eiginmaður hennar er Guðmundur Ingi Hinriksson, f. 1981, og eiga þau þrjá syni, Jak- Elsku besta mamma mín. Ég frestaði því eins lengi og ég gat að setjast niður og skrifa þessi orð því það gerir þetta svo endanlegt. Þú ert í alvöru horfin á braut, einungis 67 ára gömul og kemur ekki aftur. Það er svo erfitt að sætta sig við þetta en ég verð að halda í góðu minning- arnar og vera þakklát fyrir að hafa átt svona einstaka mömmu. Þú varst alltaf svo hlý og góð, settir okkur börnin og fjölskyld- una ávallt í fyrsta sæti og kennd- ir okkur svo margt gott. Þú varst dugleg að hrósa og sinntir okkur vel. Þú lagðir mikið upp úr því að maður ætti að vera ánægður með það sem maður hefur en ekki öf- undast út í aðra, því grasið væri sjaldnast grænna hinum megin. Mikilvægast af öllu væri að vera góð manneskja. Ég gat leitað til þín með allt, jafnvel það sem ég var ekki stolt af en þér fannst mikilvægt að börn gætu leitað til foreldra sinna með allt. Þið pabbi voruð einstakar fyr- irmyndir og alltaf svo samstiga og ég man eiginlega ekki til þess að þið hafið nokkurn tímann rif- ist. Þið leiddust fyrir framan sjónvarpið, voruð heimakær og sátt og báruð ómælda virðingu hvort fyrir öðru. Þegar ég var ólétt að Jakobi fór ég á foreldranámskeið og var spurð hvernig uppalandi ég vildi verða. Ég svaraði: „Eins og for- eldrar mínir“ og leiðbeinandan- um fannst þetta svo fallegt. Ég hafði ekki nægan þroska þá til að skilja af hverju en ég skil það núna. Þegar ég eignaðist svo Jakob eftir erfiða meðgöngu var hann mjög óvær og ég að niður- lotum komin. Það var ekki að spyrja að því, þú stakkst upp á að við kæmum og byggjum hjá ykkur í smátíma, við myndum hjálpast að með þetta. Þú sagðir alltaf „við erum fjölskylda og við stöndum saman“. Það voru erfið skref fyrir nýbakaða móður að sýna „uppgjöf“ og flytja aftur heim í foreldrahús en þetta bjargaði mér algjörlega og sýnir svo vel hvað þú varst fórnfús og hjálpsöm. Þú varst dásamleg amma og elskaðir ömmubörnin þín svo heitt og innilega að leitun er að öðru eins. Þú varst alltaf til í að hjálpa til með þau og passa og lagðir þig fram um að vera inn- vikluð í þeirra líf. Þú gerðir allt sem þú gast til að létta undir og gaukaðir ýmsu að okkur en mest gafst þú þeim þó með því að sinna þeim einstaklega vel og elska af öllu hjarta. Í seinni tíð vorum ég, þú og Hulda systir ekki bara mæðgur, heldur líka bestu vinkonur. Við hringdumst á margoft á dag, hittumst á hverjum degi og fannst gaman að fara á flakk um helgar og kíkja í búðir. Tóma- rúmið í hjartanu er því ansi stórt en ég verð að vera sterk og læra að lifa með þessu. Þú barðist við andstyggilegan sjúkdóm af ein- stöku æðruleysi og kvartaðir aldrei. Þig langaði að lifa áfram og fylgjast með fólkinu þínu og lagðir á þig miklar raunir til þess og barðist til seinasta blóðdropa, elsku duglega mamma mín. Það kom ekki óvart að pabbi stóð við hlið þér eins og klettur í veikind- unum og á milli ykkar ríkti sönn og falleg ást. Ég verð víst að segja þetta gott, elsku besta mamma mín, takk fyrir allt, ég elska þig af öllu hjarta og mun alltaf gera. Þín dóttir, Svanhildur Anna. Elsku mamma er fallin frá eft- ir tveggja ára baráttu við krabbamein. Frá fyrsta degi tókst hún á við veikindin af slíku hugrekki, baráttuþreki og æðru- leysi að lengst af trúði ég ekki öðru en að lokaniðurstaðan yrði okkur í vil, hún myndi sigrast á þessu og við stórfjölskyldan eiga hamingjurík ár fram undan með henni, hjarta fjölskyldunnar. Það er erfitt að sætta sig við að mamma sé farin og muni ekki fá að njóta efri áranna með pabba, fái ekki að fylgjast lengur með barnabörnunum og ekki að verða langamma. Það er líka sárt að hugsa til þess að ég geti ekki séð eða heyrt í henni daglega, rabb- að við hana og borið allt undir hana, stórt og smátt, deilt með henni gleði og sorgum, sigrum og ósigrum. Það er búið að klippa á strenginn á milli okkar og ég er engan veginn tilbúin til þess. Æskuminningar mínar af mömmu eru allar hlýjar og góð- ar. Hún var svo ástrík og mikil fyrirmynd. Við systkinin vorum alin upp við að okkur væru allir vegir færir, okkur skorti aldrei neitt og við fengum að stunda þær tómstundir sem við höfðum áhuga á, en á sama tíma voru ekki gerðar óraunhæfar kröfur til okkar og við fengum að njóta þess að vera börn á upphafsárum Grafarvogsins. Það var gaman að alast upp þar, með fullt af leikfélögum og alltaf voru allir velkomnir heim til okkar. Þegar hugurinn hvarflar til æskuár- anna þá hugsa ég um góðar stundir í Logafoldinni, mamma jafnvel búin að baka og við fjöl- skyldan að spjalla saman. Nota- leg sjónvarpskvöld. Gleðileg jól og skemmtileg áramót. Mamma að segja sögur. Mamma í hlát- urskasti að segja brandara. Mamma að halda bestu afmælin. Mamma að koma óvænt heim með kettling. Mamma að setja plástur á sár. Mamma að hugga og hughreysta, hrósa og hvetja og stundum að skamma óþekkt- arangana, enda oft líf og fjör. Minningar úr seinni tíð eru ekki síður dýrmætar. Þegar við Gummi vorum að byrja saman og hann flutti nánast strax inn í Vættó og þau þoldu endalaust kossaflensið af neðri hæðinni. Allar sumarbústaða- og utan- landsferðirnar. Mamma með kvefpest úti á palli að kíkja á ný- fæddan Braga Kristján inn um gluggann. Mamma og pabbi að taka á móti okkur í heita pottinn og útbúa snarl á meðan við kús- uðum okkur. Mamma að leið- beina mér á hverju ári hvernig best sé að elda jólamatinn. Mamma að vara mig við hálku. Mamma að standa við bakið á okkur í gegnum súrt og sætt. Mamma og pabbi voru alltaf samstiga, samrýnd og sjálfum sér nóg. Í veikindum mömmu var ekki annað hægt en að dást að þeirra fallega sambandi. Pabbi stóð eins og klettur með henni, hvatti hana áfram og annaðist um hana. Þau héldu í vonina um bata fram á síðasta augnablik og gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að sú gæti orðið raunin. Að alast upp hjá svo góðum foreldrum er dýrmætara en orð fá lýst. Að fylgjast með þeim sem ömmu og afa hefur verið ynd- islegt og ég fyllist þakklæti fyrir alla aðstoðina sem þau hafa veitt okkur og allar frábæru samveru- stundirnar. Það eru forréttindi að vera dóttir þeirra og að þau séu amma og afi sona minna. Ég elska þig mamma og mun sakna þín alla tíð. Hulda Guðrún Bragadóttir. Elsku tengdamamma, með þessum orðum kveð ég þig í hinsta sinn. Lífið er ekki alltaf sanngjarnt og það var það ekki í þínu tilfelli því þú ert horfin á braut allt of snemma. Ég man þegar þú opnaðir dyrnar fyrir mér fyrir rúmum 20 árum þegar ég bauð henni Huldu á fyrsta stefnumótið. Fyrir innan ómaði dúndrandi sambatónlist sem þið Bragi voruð að hlusta á og þú varst skælbrosandi því ég veit ekki hvor var spenntari fyrir stefnumótinu, þú eða Hulda. Þetta voru mín fyrstu kynni af þér og svo einkennandi fyrir þig og Braga. Í Vættaborgum var ávallt líf og fjör, mikið um tón- list, alltaf eitthvað í gangi og allir svo velkomnir. Þú varst einstak- lega gestrisin og lagðir mikið í veislur, stórar sem smáar, ætíð með of mikið af veitingum því enginn skyldi fara svangur heim. Þú varst óeigingjörn og fórnfús og vildir allt fyrir alla gera enda var hægt að treysta á ykkur Braga ef okkur vantaði aðstoð með hvað sem er. Þið mæðgurn- ar áttuð einstakt samband og ég held bara að þið hafið talað sam- an á hverjum einasta degi frá því ég kynntist henni Huldu. Þú elskaðir fjölskylduna og sást ekki sólina fyrir barnabörnunum sem þú sóttir í að hafa hjá þér. Við höfum átt ótal samveru- stundir gegnum árin og það var sérstaklega gaman að fara með ykkur í bústaðarferðir og til út- landa. Bragi Kristján og Ari Baldur eru heppnir að hafa átt þig sem ömmu og þú varst þeim góð fyrirmynd. Söknuður okkar er mikill. Hvíldu í friði elsku Mollý. Guðmundur Kristján Sæmundsen. Elsku Mollý. Það er sárt að kveðja þig elsku systir, hjartað er svo fullt af sorg og söknuði. Þú varst svo mörgum góðum kostum gædd og mikil fyrirmynd mín, hjartahlý, ósérhlífin og vild- ir alltaf allt fyrir alla gera. Ein- faldlega góð í gegn. En hjartað er líka yfirfullt af þakklæti. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og mína í gegnum árin og allur stuðningurinn og hlýhugurinn er ómetanlegur. Minningarnar veita huggun á svona stundu og af góðum minningum er nóg. Að eilífðarströnd umvafin elsku, frjáls ert farin ferðina löngu. (Jóna Rúna Kvaran) Elsku Bragi og börn, missir ykkar er mestur. Hvíl í friði elsku Mollý. Þín systir, Ásgerður Ósk. Þegar Hulda Guðrún og Guð- mundur Kristján fóru að draga sig saman og ljóst varð hvert stefndi, fórum við hjónin ósjálf- rátt að velta fyrir okkur hvernig okkur mundi lynda við tilvonandi tengdafólk. Það voru óþarfa áhyggjur. Mollý og Bragi og allir þeir fjölskyldumeðlimir, sem við höfum haft þá ánægju af að hitta og kynnast, eru í einu orði sagt yndisleg og Mollý hreif okkur strax: einlæg, umhyggjusöm, glaðsinna og gestrisin. Okkur er minnisstæð heim- sókn í Vættaborgir. Mollý og Bragi voru að passa frændurna fimm, tápmikla og á stundum fyrirferðarmikla stráka. Við vor- um mætt til að sækja þá tvo sem tilheyrðu okkur. Það var líf og fjör í húsinu, mikill fyrirgangur, sem hefði ært óstöðugan, m.a.s. svarti labradorinn, Freyja, far- inn í felur. En ekkert raskaði ró þeirra hjóna. Bragi lá í stofusóf- anum og blundaði, en Mollý tók á móti okkur brosmild og hress að vanda og bauð okkur inn í hama- ganginn. Þessi litla minning lýsir e.t.v. best þeirri rósemd og yf- irvegun, sem maður upplifði í ná- vist þeirra. Og þannig tókust þau á við óvænt veikindi Mollýjar. Þau bæði hætt að vinna og ætl- uðu að njóta samvista í ellinni, þegar þessi ólánssjúkdómur setti strik í reikninginn. Tilveran get- ur verið svo grimm, svo átak- anleg. Við vottum Braga og fjöl- skyldunum okkar innilegustu samúð. Fátækleg orð sem hvorki lina né sefa missinn og sorgina, en minningin um hugrakka, hjartahlýja og geðprúða konu, sem snart líf okkar allra, yljar. Ari Kristján Sæmundsen Sigríður Ágústa Skúladóttir. Í byrjun aðventu bárust mér þær sorgarfréttir að Mollý væri látin, langt um aldur fram. Hún var tengdamóðir sonar míns, Guðmundar Inga. Hlýja, áhugi, ósérhlífni og umfram allt mann- gæska eru ákjósanlegir eðlis- kostir og veganesti sem duga vel. Alla þessa kosti hafði Mollý til að bera í ríkum mæli auk þess sem hún var mikill dýravinur. Mollý hlúði vel að fjölskyldu- böndunum, meðal annars hélt hún til margra ára áramótafagn- að til að fagna nýju ári, sem lifir í minningunni. Barnabörnin áttu alltaf skjól hjá henni, ýmist í gæslu eða dekri, sem henni fórst afar vel úr hendi og söknuður þeirra er mikill. Hafðu þökk fyr- ir alla umhyggjuna við fjölskyldu mína í gegnum árin. Við hefðum viljað að stundir okkar saman hefðu orðið fleiri. Elsku Bragi og fjölskylda, missir ykkar er mik- ill. Guð gefi ykkur styrk á þess- um erfiðu tímum. Ég og fjöl- skyldan mín sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu hennar. Ingibjörg Helga Hraundal. Elsku Mollý, okkur langar að þakka þér fyrir samfylgdina í gegnum árin. Það eru einstök forréttindi að hafa fengið að hafa þig í fjölskyldu okkar, því að já- kvæðni, bjartsýni, hjálpsemi, glaðværð og hlýlegt viðmót ein- kenndu þig. Þú hafðir einstak- lega góða nærveru og hafðir ein- stakt lag á því að láta öllum líða vel sem umgengust þig. Heimsóknir í Vættaborgir voru einstaklega góðar og ljúfar stundir og þá mætti manni alltaf hlýlegt viðmót og góðar mót- tökur. Það er með öllu ómögu- legt að útskýra í orðum þakk- lætið í þinn garð fyrir góðvildina og hlýjuna okkur til handa, við trúum því að vel verði tekið á móti þér í Sumarlandinu og hitt- umst vonandi þar þegar okkar tími kemur. Elsku fjölskylda: Bragi, Berg- lind, Baldur, Hulda, Svanhildur, makar og barnabörn, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Ég veit ekki hvort þú hefur huga þinn við það fest að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki, augað sem glaðlega hlær, hlýja í handartaki, hjarta sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef þú úr sálarsjóði sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Með kærri kveðju fyrir allt og allt, Gyða, Baldur, Pino, Þóra og börn. Málfríður Ásgeirsdóttir - Fleiri minningargreinar um Málfríði Ásgeirs- dóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sálm. 86.5 biblian.is Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN B. JÓNSDÓTTIR, Logafold 134, sem lést 17. nóvember á líknardeild Landspítalans, verður jarðsungin mánudaginn 19. desember klukkan 13 frá Grafarvogskirkju. Helgi Sigvaldason Elín Guðbjörg Helgadóttir Kristján Jónasson Svanfríður Helgadóttir Ellert Berg Guðjónsson Kristrún Halla Helgadóttir Þorfinnur Skúlason barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur sonur minn, VALDIMAR VILHJÁLMSSON, Boðagranda 5, lést á heimili sínu 19. nóvember. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Við þökkum hlýhug og sýnda samúð. Fyrir hönd aðstandenda, Vilhjálmur Valdimarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.