Morgunblaðið - 15.12.2022, Síða 52
52 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
✝
Hallberg Svav-
arsson fæddist
1. mars 1956 í Mos-
fellsbæ. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 30. nóv-
ember 2022.
Hallberg var
sonur hjónanna
Agnesar Helgu
Hallmundsdóttur,
f. 24. desember
1920, d. 22. sept-
ember 2009, og Svavars Er-
lendssonar, f. 1. febrúar 1913, d.
18. september 1988. Bræður
Hallbergs eru Erlendur, f. 29.
maí 1942, Kristinn, f. 15. desem-
ber 1947, og Heimir, f. 1. maí
1950.
Eiginkona Hallbergs er Stein-
unn Guðbrandsdóttir, f. 3. októ-
ber 1956. Þau giftust 5. júní
1976 og bjuggu saman í Kópa-
vogi, Garðabæ og lengst af í
Hafnarfirði. Hallberg og Stein-
unn eignuðust fjögur börn: 1)
Hallberg ólst upp í Smáíbúða-
hverfinu í Reykjavík og stund-
aði nám í Breiðagerðisskóla og
Réttarholtsskóla þar sem hann
kynntist eiginkonu sinni. Hall-
berg stundaði nám við Tónlist-
arskóla FÍH. Hann nam tann-
smíðar í Tannsmíðaskóla
Íslands og var á samningi hjá
Þórarni Sigþórssyni og lærði
hjá Kristni Sigmarssyni. Hann
starfaði sem tannsmiður, bæði
sjálfstætt og síðustu árin á tann-
læknastofu Engilberts Ó.H.
Snorrasonar. Einnig var hann
tónlistarmaður með ýmsum
hljómsveitum og tónlistarfólki,
þá lengst í hljómsveitinni Pónik
og með Stefáni P. Þorbergssyni.
Hann var virkur í félagsmálum
og var meðal annars í stjórnum
FÍH, Stangveiðifélags Hafn-
arfjarðar, Golfklúbbs Vatns-
leysustrandar og síðast en ekki
síst sinnti hann ýmsum embætt-
is- og nefndarstörfum, þar á
meðal sinnti hann hlutverkum
undir- og yfirmeistara í Odd-
fellowstúku nr. 12, Skúla fógeta,
og var hann yfirmeistari þegar
hann lést.
Útför Hallbergs fer fram frá
Bústaðakirkju í dag, 15. desem-
ber 2022, klukkan 13.
Þóreyju, f. 19. nóv-
ember 1976. Dóttir
Þóreyjar er Birta
Karen, f. 17. sept-
ember 2001, og
sonur Birtu Karen-
ar er Emanuel
Leon, f. 24. febrúar
2022. 2) Bjarki, f. 2.
maí 1982. Sambýlis-
kona hans er Karún
Herborg Guð-
mundsdóttir, f. 12.
júní 1985. Dóttir Bjarka er
Amelía Líf, f. 25. janúar 2009,
og sonur Karúnar er Frosti
Hrafn Sigurjónsson, f. 4. nóv-
ember 2008. 3) Tinna, f. 17. febr-
úar 1986. Eiginmaður hennar er
Brynjólfur A. Sandholt, f. 1. jan-
úar 1985. Sonur þeirra er Alex-
ander, f. 28. júlí 2010, og dóttir
þeirra Viktoría, f. 26. nóvember
2014. 4) Hallberg Daði, f. 27.
júní 1990. Sambýliskona hans er
Líneik Jakobsdóttir, f. 12. maí
1994.
Í dag, 15. desember, fer fram
útför góðs vinar, frænda og
spilafélaga míns, Hallbergs
Svavarssonar. Leiðir okkar Hall-
bergs lágu saman þegar hann
tók að sér að vera „rótari“ hljóm-
sveitarinnar Pónik þar sem bróð-
ir hans var fyrir. Hallberg var
táningur þegar þetta gerðist og
auðvitað leysti hann það verkefni
með sóma. Árið 1972 hætti
bassaleikari hljómsveitarinnar,
Sævar Hjálmarsson, og tók þá
Hallberg að sér bassaleikinn.
Hljómsveitin gerði hlé á sam-
starfinu seinna það ár og fóru
meðlimir hennar í aðrar hljóm-
sveitir eins og gengur. Haustið
1974 tók hljómsveitin aftur til
starfa og var ráðin húshljómsveit
í Sigtún við Suðurlandsbraut. Í
þeirri hljómsveit voru tvennir
bræður, undirritaður og Kristinn
Sigmarsson og Hallberg og tveir
bræður hans, Kristinn og Er-
lendur, sem sagt tvennir bræður.
Auk þess söng Einar Júlíusson
með hljómsveitinni. Þar með var
endurvakin hljómsveitin Pónik
og Einar sem hafði verið stofnuð
árið 1964. Hljómsveitin starfaði
með nokkrum breytingum til
ársins 1977 en hafði þá hægt um
sig um tíma. Árið 1979 kom
hljómsveitin saman á ný og var
þá Sverrir Guðjónson ráðinn
söngvari. Þessi útgáfa hljóm-
sveitarinnar gaf síðan út einu
stóru hljómplötuna sem kom út
með henni. Auðvitað átti Hall-
berg sinn hlut í útgáfu plötunnar
þar sem hann lék á bassann og
söng.
Annar snertiflötur okkar Hall-
bergs var Oddfellowreglan. Ég
hafði vígst inn í stúkuna Skúla
fógeta árið 1998. Árið 2000 gekk
síðan Kristinn, bróðir Hallbergs,
í stúkuna, og árið 2007 fylgdi
Hallberg í kjölfarið. Hann fann
sig alla tíð vel í stúkustarfinu og
var orðinn yfirmeistari þegar
hann varð segja sig frá embætt-
inu vegna veikinda.
Leiðir okkar hjónanna og
Hallbergs og Steinu lágu saman
alla tíð. Sambandið var alltaf
mikið á meðan við lékum saman
og hélt áfram þótt við spiluðum
ekki saman. Það er margs að
minnast frá liðnum tíma. Þar má
nefna ferðirnar í Veiðivötn með
góðum hópi vina. Við kölluðum
hópinn Harmonikkugengið því
eftir veiðidagana var sest niður í
veiðihúsinu Ampa og sungið og
spilað. Einnig má nefna ferðir að
Stóra-Hofi þar sem undirritaður
lék undir söng við varðeld. Eftir
Brekkusönginn var síðan haldið í
samkomuhús Byggiðnar þar sem
leikið var fyrir dansi fram á nótt.
Það var hljómsveit Stefáns P.
sem lék fyrir dansinum og auð-
vitað var Hallberg þar með stórt
hlutverk. Hallberg lék í síðasta
sinn með undirrituðum á Harm-
onikkufestivali hér í Hveragerði.
Hallberg laut í lægra haldi
fyrir illvíga sjúkdómnum sem
fellir alltof marga á besta aldri.
Hann lést á líknardeild LSH 30.
nóvember síðastliðinn.
Að leiðarlokum þökkum við
hjónin samfylgdina og vottum
elsku Steinu, börnum, tengda-
börnum, barnabörnum og barna-
barnabarni okkar dýpstu samúð
og vonum að þau öðlist styrk til
að takast á við missinn.
Úlfar Sigmarsson og
Björg Jósepsdóttir.
Það var árið 1978 að við fjórir
vinir ákváðum að koma upp stof-
um fyrir tannlækningar á Háa-
leitisbraut 1. Hafist var handa
við að innrétta og fljótlega bætt-
ust tveir tannsmiðir í hópinn,
Hallberg Svavarsson og Kristinn
Sigmarsson, landsþekktir tón-
listarmenn og frábærir tann-
smiðir. Þarna myndaðist vinátta
og samstarf sem entist að mestu
leyti næstu fjörutíu árin. Hall-
berg hafði góða nærveru, hafði
gaman af smá stríðni og gant-
aðist oft við klinkurnar þegar
spurt var um gang verkefna
gegnum símann. Nú er Hallberg
vinur okkar horfinn yfir móðuna
miklu, eftir hetjulega baráttu við
þennan erfiða sjúkdóm sem
krabbameinið er. Við kveðjum
þennan hæfileikaríka góða vin og
félaga með miklum söknuði.
Vottum Steinunni, börnunum og
öllum ættingjum hans okkar
innilegustu samúð.
Jón Birgir Baldursson,
Jónas Ragnarsson,
Guðmundur Hafliðason,
Heimir Sindrason.
„Er þér sama þó að bassaleik-
ari smíði krónuna upp í mig?“
var spurning sem ég fékk einn
vinnudaginn á tannlæknastof-
unni árið 1989 þegar ég var bú-
inn að taka mát fyrir postulínsk-
rónu upp í vin minn sem er
tónlistarmaður. Daginn þann
hófst samstarf okkar Hallbergs
sem varði óslitið fram til ársins
2020 þegar hann greindist með
illvígt krabbamein og þurfti að
hætta að vinna af þeim sökum.
Það kom í ljós að þessi vinur
vinar var ekki bara góður bassa-
leikari heldur var hann afbragðs-
tannsmiður og voru hans aðals-
merki sem tannsmiðs einstak-
lega gott form- og litaskyn. Hall-
berg var hógvær maður og gagn-
rýninn á verk sín. Þegar ég vildi
hrósa honum fyrir handbragðið
þoldi hann það afar illa og var
það jafnan viðkvæðið hjá honum
að það mætti alltaf gera betur.
Við ræddum oft um tónlist en
Hallberg hafði sterkar skoðanir
á öllu er tónlist varðaði enda fag-
maður á því sviði. Hann hafði
verið í þekktum hljómsveitum
frá því að hann var ungur maður
og var mjög hæfileikaríkur tón-
listarmaður. Hallberg var ekki
einungis fær hljóðfæraleikari
heldur var hann einnig mjög
góður söngvari. Líkt og með
annað sem Hallberg gerði vel
vildi hann ekki hafa mörg orð um
afrek sín á tónlistarsviðinu.
Lengst af rak Hallberg tann-
smíðastofu í Reykjavík og seinna
Hafnarfirði en síðustu ár starfs-
ævinnar flutti hann starfsemi
sína á tannlæknastofuna í Garða-
bæ þar sem við hjónin störfum.
Stofan er lítill og náinn vinnu-
staður þar sem starfar gott
teymi. Með þessum gjörningi
urðu kynni okkar af Hallberg
nánari og betri. Hallberg var
ljúfur og dagfarsprúður maður.
Hann hafði góðan húmor en þótt
hann væri þægilegur í umgengi
þá fór maður ekkert með hann.
Hann gat verið fastur fyrir og
hafði ákveðnar skoðanir á þeim
sviðum tilverunnar sem hann
taldi sig hafa þekkingu á. Hann
hafði einnig þann góða kost að
taka ekki þátt í umræðu um mál-
efni sem hann taldi sig ekki
þekkja.
Þótt Hallberg hafi unnið mikið
í einrúmi og væri lítið fyrir að
trana sér fram þá var hann einn-
ig mjög virkur í félagsmálum.
Hann var meðlimur í Oddfellow-
reglunni og sinnti ábyrgðaremb-
ættum innan hennar af mikilli
kostgæfni. Hann var einnig ein-
lægur áhugamaður um golf og
stangveiði og tók að sér ýmis
verkefni og skipulag í kringum
þessi áhugamál sín.
Í okkar huga var Hallberg
ákaflega hraustur maður og því
var það mikið áfall þegar hann
greindist með lungnakrabba-
mein á vormánuðum ársins 2020.
Síðasta tvö og hálfa árið sem
hann lifði háði hann erfiða bar-
áttu við meinið. Í veikindum sín-
um sýndi hann fádæma kjark.
Barðist meðan hann átti von og
mætti því sem bíður okkar allra
af æðruleysi. Hallberg var mikill
fjölskyldumaður og þau Steina
voru náin og samhent hjón. Fjöl-
skylda Hallbergs hefur misst
mikið. Við hjónin vottum Steinu,
börnunum og öllum afkomendum
Hallbergs okkar dýpstu samúð.
Við þökkum ljúfum dreng
góða samfylgd.
Engilbert Ó.H.
Snorrason og
Sigrún Tómasdóttir.
Hallberg
Svavarsson
Yndisleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
ÁSLAUG ÁRNADÓTTIR,
Vesturvangi 15,
lést á Sólvangi 8. desember.
Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 19. desember klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Ljósið.
Útförinni verður streymt á sonik.is/aslaug
Einnig má nálgast hlekk á streymi mbl.is/andlat
Margrét Pétursdóttir
Marteinn Pétursson Helen Deborah Arsenault
Pétur Lúðvík Marteinsson
Ingvar Kristján Marteinsson
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir
og amma,
LILJA HÓLM ÓLAFSDÓTTIR,
Hlíðarhjalla 61, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítala 3. desember
í faðmi fjölskyldunnar.
Útför hennar fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 19. desember
klukkan 13.
Haraldur Gunnarsson
Eiríkur Haraldsson Vala Magnúsdóttir
Ólafur Aron Haraldsson Helga Hrönn Óskarsdóttir
og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
STEINAR STEINGRÍMSSON
frá Ingvörum, Svarfaðardal,
lést á Dalbæ, Dalvík í faðmi fjölskyldunnar
laugardaginn 10. desember.
Útför fer fram í Dalvíkurkirkju laugardaginn 17. desember
klukkan 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á gjafasjóð Dalbæjar.
G. Verónika Konráðsdóttir
Sólrún Steinarsdóttir
Steingrímur R. Steinarsson Guðrún Erna Rúdolfsdóttir
Ólafur Ingi Steinarsson Dagbjört Sigurpálsdóttir
og barnabörnin
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÁRNI EINARSSON
kennari,
Úthlíð 8,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 21. nóvember síðastliðinn.
Fjölskyldan vill færa starfsfólki Hrafnistu á Ölduhrauni þakkir
fyrir alla góðvild og umhyggju sem honum var sýnd.
Útför fór fram í kyrrþey að hans eigin ósk.
Jakobína E. Björnsdóttir
börn, tengdabörn
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐNÝ RAGNA GUNNÞÓRSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 10. desember.
Útför hennar fer fram frá Hveragerðiskirkju
þriðjudaginn 20. desember klukkan 15.
Skafti Ottesen
Björn Marinó Vilhjálmsson Gunilla Carlberg
Þórhildur Vilhjálmsdóttir Níels Ragnarsson
Jónína Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og bróðir,
GUTTORMUR SIGURÐSSON,
fyrrverandi skógarbóndi
í Miklaholtsseli og meðlimur
í Ananda Marga-hreyfingunni,
frá Sólheimum í Hallormsstaðarskógi,
lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð sunnudaginn 11. desember.
Útför fór fram í kyrrþey að hans ósk. Þökkum starfsfólki
Brákarhlíðar innilega fyrir hlýhug og góða umönnun.
Guðríður Pétursdóttir
Sigurður Páll Guttormsson
Elísabet Sigurðardóttir
Gunnlaugur Sigurðsson
Daníel Sigurðsson
Þórhildur Sigurðardóttir
Ástkær móðir, tengdamóðir og amma,
ANNA INGÓLFSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 7. desember.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju
miðvikudaginn 21. desember klukkan 13.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Gigtarfélag Íslands.
Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat
Ingólfur Tómas Jörgensson Kristín Ásta Hafstein
Jón Andri Ingólfsson
Jörgen Ingólfsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ERNA AÐALHEIÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR,
Strandaseli 5,
lést á Landspítalanum laugardaginn
10. desember umvafin ást og hlýju.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 20. desember
klukkan 13.
Guðjón Ingi Eiríksson Sigríður Helgadóttir
Anna Herdís Eiríksdóttir Einar Hermann Einarsson
Agnar Freyr Helgason Katrín Þ. B. Thorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og systir,
MARÍA E. INGVADÓTTIR,
viðskiptafræðingur og skógarbóndi,
lést á heimili sínu laugardaginn
10. desember. Útför hennar fer fram frá
Digraneskirkju miðvikudaginn 21. desember klukkan 13.
Guðrún Jónasdóttir
Ingvi Jónasson Sigurrós Hallgrímsdóttir
Nökkvi Reyr, Jónas Nói, Högni Hallgrímur og María Elena
og systkini