Morgunblaðið - 15.12.2022, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL 55
Trönuhrauni 8 – 565 2885 | Bíldshöfða 9 – 517 3900 | stod.is
Frábærir alhliða inniskór
Hannaðir af
stoðtækjaframleiðanda
Útskiptanlegt innlegg
Hentar sérlega vel
fólki með aumt
táberg
Tilvalin jólagjöf fyrir
ömmu, afa, mömmu, pabba
og alla sem vilja góða og
stöðuga inniskó
Vísnahorn
Jólasveinar koma til byggða
Baldur Hafstað sendi mér
góðan póst: „Sigurður
Sigmundsson í Ey í Vestur-Land-
eyjum sendi mér skemmtilega
vísu sem til varð í bændaferð til
meginlands Evrópu. Þar kemur
hálfsystir Sigurðar við sögu, Guð-
rún Sigurðardóttir (1934–2019)
frá Brúnum undir Eyjafjöllum.
Sigurður Sigmundsson skrifar:
„Það vildi til að í bændaferðinni
voru notaðar tvær stórar rútur,
og urðu samferða í annarri
Guðrún systir mín og hagmæltur
einhleypur karl, Ketill að nafni.
Þessi tvö notuðu tímann, milli
þess að leiðsögumaðurinn fræddi
farþegana um það sem fyrir augu
bar, að kveðast á og hljóp nokkurt
kapp í leikinn. Þess ber að geta
að tvær systur frá Brúnastöð-
um voru í sömu rútu og þau
tvö fyrrnefndu. Gekk nú áfram
kveðskapurinn og veitti Guðrúnu
og Katli betur á víxl, en þó fór
svo um síðir að Ketill þóttist bera
heldur skarðan hlut frá borði. Til
að rétta sinn hlut kastaði hann
fram botni eða seinni parti vísu
sem hljóðaði svo:
Bara ef ég barna þær
Brúnastaða dætur.
Guðrún var skjót til svars og
kom með fyrri partinn, og vísan
varð því svona:
Þó ég sé af einsemdær
allar fæ þess bætur
bara ef ég barna þær
Brúnastaða dætur.
Við þetta svar fór sá einhleypi
yfir í hina rútuna og þar með lauk
þessum leik þeirra Guðrúnar og
Ketils.“
Síðari hluti bréfsins verður
birtur á morgun.
Á Boðnarmiði spyr Hallmundur
Kristinsson: „ER ÞAÐ EKKI?“
Hvort sem að stag eða staut er vort
fag,
stundum vill naga oss kvíði.
En ein vísa á dag kemur öllu í lag
ef hún er haganleg smíði.
Ingólfur Ómar Ármannsson
fylgist vel með, – „Sá fyrsti kom
til byggða í nótt“:
Blesuð jólin bljúga gleði boða öllum
Jólasveinar kampakátir,
klöngrast nið’r af fjöllum.
Ærslafengnir arka snjóinn aular
þessir.
Koma þeir til byggða bráðum,
brosleitir og hressir.
Vaskir sveinar víðamunu vekja kæti.
Skatnar þessir skapa tíðum
skvaldur ys og læti.
„ÞÚ SAGÐIR AÐ ÉG MÆTTI FÁ LÖKIN
LÁNUÐ. HVAÐ HÉLSTU AÐ ÉG ÆTLAÐI AÐ
GERA VIÐ ÞAU?“
„ÉG MYNDI LÍKA GRÁTA EF ÉG VÆRI
SKÍRÐUR EMINEM DRAKE!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hlæja saman – oft.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER AÐ BYRJA NÝJA
LÍKAMSRÆKTARRÚTÍNU
EINN Á MORGUN ER
FÓTADAGUR
… BLÓM FYRIR
HELGU! LÁTIÐ
BLÓMIN
TALA
BLÓMIN
TALA
ÉG VIL BLÓM SEM SEGJA
„EKKI MEIÐA HANN“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Júlíana Sveinsdóttir, f. 22.5. 2014.
Sambýlismaður Lífar er Patrekur
Þór Agnarsson og sonur þeirra er
Rósant Rafn Patreksson, f. 6.10.
2019; 2) Aldís Þorbjörnsdóttir,
f. 11.3. 1976, sjúkraliði, búsett
á Akranesi. Maður hennar er
Guðmundur Geir Valgeirsson, f.
25.12. 1970 vélsmiður. Börn þeirra
eru Þorbjörn Tómas Guðmunds-
son, f. 1.12. 2008, og Hafdís Lilja
Guðmundsdóttir, f. 26.8. 2011; 3)
Sædís Gyða Þorbjörnsdóttir, f.
22.12. 1986, skjalastjóri, búsett í
Reykjavík.
Maður hennar er Stefán Örn
Finnbjörnsson tölvunarfræðingur.
Börn þeirra eru Finnbjörn Hektor
Stefánsson, f. 31.1. 2009, Berglind
Mánadís Stefánsdóttir, f. 8.9. 2011,
Salka Rökkurdís Stefánsdóttir,
f. 5.4. 2018, og Ýmir Nátthrafn
Stefánsson, f. 25.2. 2020; 4) Liljar
Már Þorbjörnsson f. 3.5. 1990,
húsasmiður og tölvunarfræðingur,
búsettur í Reykjavík. Sambýlis-
kona hans er Edda Rún Kjart-
ansdóttir, f. 30.9. 1990, ljósmóðir.
Börn þeirra eru Freydís Eva Lilj-
arsdóttir, f. 30.11. 2019, og Ásberg
Arnar Liljarsson, f. 25.12. 2021.
Systkini Þorbjörns eru Gunnar
V. Andrésson (sammæðra) f. 1.2.
1950, ljósmyndari, býr í Mosfells-
bæ; Guðrún Sveinsdóttir, f. 7.1.
1957, bókasafnstarfsmaður, bú-
settur í Vestmannaeyjum; Særún
Sveinsdóttir Williams, f. 12.8.
1960, d. 6.11. 2016, bjó í Bandaríkj-
unum, og Borgþór Sveinsson, f
.11.4. 1964, búsettur í Hafnarfirði,
starfsmaður hjá Stoð.
Foreldrar Þorbjörns voru
Sveinn Borgþórsson, f. 7.11.
1930, d. 14.8. 1980, verkamaður
í Hafnarfirði, og Vilborg Jó-
hannsdóttir, f. 15.9. 1931, d. 10.9.
2000, verkakona í Hafnarfirði.
Þau bjuggu allan sinn búskap í
Hafnarfirði og voru gift frá 1953.
Þorbjörn J.
Sveinsson
Vagnbjörg Magnúsdóttir
húsfreyja á Vopnafirði
Magnús Þorbergur Árnason
sjómaður og verkstjóri
á Vopnafirði
Þorbjörg Magnúsdóttir
húsmóðir og verkakona í Reykjavík
Jóhann Sigurður Þorkelsson
verkamaður í Reykjavík
Vilborg Jóhannsdóttir
húsmóðir og verkakona
í Hafnarfirði
Anna Jóhannsdóttir
húsfreyja á Dæli, síðar
vinnukona í Skagafirði
Þorkell Sigurður Ásgrímsson
bóndi á Dæli í Fljótum, Skag., drukknaði
Kristín Björg Guðmundsdóttir
húsmóðir á Tannanesi
Sveinn Jón Sigurðsson
bóndi á Tannanesi í Önundarfirði
Guðrún Sveinsdóttir
húsmóðir í Hafnarfirði
Borgþór Sigurbjörn Sigfússon
matsveinn og sjómaður í Hafnarfirði
Þórhildur Magnúsdóttir
húsmóðir í Hafnarfirði
Sigfús Þórðarson
sjómaður í Hafnarfirði
Ætt Þorbjörns J. Sveinssonar
Sveinn Borgþórsson
verkamaður í Hafnarfirði