Morgunblaðið - 15.12.2022, Side 56

Morgunblaðið - 15.12.2022, Side 56
ÍÞRÓTTIR56 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2022 Ómar með 12 og Gísli níu í París Þýskumeistararnir í Magdeburg unnu glæsilegan útisigur, 37:33, á Frakklandsmeisturum París SG í Meistaradeild Evrópu í handbolta í gærkvöld. Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson fóru báðir á kostum hjá Magdeburg. Ómar Ingi skoraði 12 mörk, fimm þeirra á fyrstu sex mínútum leiksins, og lagði auk þess upp nokkur mörk til viðbótar á liðsfé- laga sína. Gísli skoraði níu, lagði upp nokkur mörk og átti flottar línusendingar. Ljósmynd/Szilvia Micheller Tólf Ómar Ingi Magnússon átti stórleik í París í gærkvöld. Meistaradeild karla A-RIÐILL: París SG –Magdeburg ........................ 33:37 Ómar Ingi Magnússon skoraði 12 mörk fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist- jánsson 9. Efstu lið: París SG 16, Veszprém 15, Mag- deburg 14, Dinamo Búkarest 10. B-RIÐILL: Elverum - Pick Szeged ........................ 32:34 Orri Freyr Þorkelsson skoraði 2 mörk fyrir Elverum. Staðan: Barcelona 17, Kielce 16, Nantes 12, Kiel 8, Pick Szeged 8, Aalborg 7, Celje Lasko 4, Elverum 2. Þýskaland B-deild: Bietigham – Balingen .......................... 24:24 Daníel Þór Ingason skoraði 5 mörk fyrir Balingen og Oddur Gretarsson 2. Coburg –WolfeWolfsburg .................. 27:21 Tumi Steinn Rúnarsson skoraði 3 mörk fyrir Coburg. Danmörk Skanderborg - Herning-Ikast ........... 24:35 Steinunn Hansdóttir skoraði eitt mark fyrir Skanderborg. Noregur Tertnes – Storhamar ........................... 22:27 Lovísa Thompson lék ekki með Tertnes. Axel Stefánsson þjálfar Storhamar. Svíþjóð Sävehof - Redbergslid ......................... 33:33 Tryggvi Þórisson skoraði ekki fyrir Sävehof. Skara – Lugi ........................................... 23:22 Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði eitt mark fyrir Skara en Jóhanna Margrét Sigurðar- dóttir og Ásdís Guðmundsdóttir ekkert. Sviss Amicitia Zürich – Suhr Aarau ......... 26:30 Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði 2 mörk fyrir Amicitia. HM í Katar Undanúrslit: Frakkland –Marokkó.......................... 2:0 Theo Hernandez 5., Kolo Muani Randal 79. Leikur um bronsverðlaun: 17.12. Marokkó – Króatía ........................ 15.00 Úrslitaleikur HM 2022: 18.12. Frakkland – Argentína................. 15.00 MARKAHÆSTIRÁHM: Kylian Mbappé, Frakklandi.......................... 5 Lionel Messi, Argentínu................................ 5 Julian Álvarez, Argentínu ............................ 4 Olivier Giroud, Frakklandi ........................... 4 Benedikt er ekki ristarbrotinn Benedikt Gunnar Óskarsson, handknattleiksmaður í Val, fór meiddur af velli undir lok leiksins við Svíþjóðarmeistara Ystad í Evrópudeildinni í fyrrakvöld. Var óttast að Benedikt væri ristarbrotinn, en hann staðfesti við Morgunblaðið í gær að hann hefði sloppið við brot. Hann fer í myndatöku í dag, þar sem skoðuð verða möguleg liðbandsmeiðsli. Benedikt hefur vakið athygli fyrir góða frammistöðu með Val í vetur. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Valur Benedikt Gunnar hefur átt stórleiki í Evrópudeildinni. Ævintýrið er á enda hjáMarokkó lFrakkar mæta ArgentínulFyrstir í 20 ár til að leika tvo úrslitaleiki í röð Frakkar verða fyrsta liðið í 20 ár til að leika tvisvar í röð til úrslita um heimsmeistaratitil karla í fótbolta, og geta orðið fyrsta liðið í 60 ár til að vinna styttuna eftirsóttu tvisvar í röð. Ævintýri Marokkó lauk í Al Rayy- an í Katar í gærkvöld þegar Frakkar unnu undanúrslitaleik liðanna, 2:0. Draumurinn um að verða fyrsta Afríkuþjóðin til að leika til úrslita um heimsmeistaratitilinn varð að engu. Frönsku heimsmeistararnir náðu að knýja fram sigurinn og það eru þeir sem mæta Lionel Messi og félögum frá Argentínu í úrslitaleikn- um á sunnudaginn. Marokkó leikur hins vegar gegn Króatíu um bronsverðlaunin á laugardaginn og lið þeirra getur mætt stolt í þann leik eftir magnaða frammistöðu á mótinu. Króatía skoraði ekki hjá Marokkó. Belgía skoraði ekki hjá Marokkó, sem skoraði síðan sjálfsmark gegn Kanada. Spánn skoraði ekki hjá Marokkó, ekki einu sinni í vítaspyrnukeppninni og Portúgal skoraði ekki hjá Marokkó. Bakvörðurinn skoraði strax En bakvörðurinn Theo Hernand- ez, sem í byrjun móts var varaskeifa fyrir bróður sinn í stöðu vinstri bakvarðar franska liðsins, var aðeins fimm mínútur að koma bolt- anum í markið hjá Bono, markverði Marokkó, eftir góðan undirbúning hjá Antoine Griezmann og skot frá Kylian Mbappé í varnarmann. Staðan var strax orðin 1:0 og ljóst að Walid Regragui þjálfari Marokkó þurfti að búa sitt lið undir að reyna að jafna metin í fyrsta skipti á þessu heimsmeistaramóti. Í fyrsta skipti síðan hann tók við liðinu í ágúst- mánuði! Marokkómenn gerðu oft harða hríð að marki Frakka, þrýstu þeim hvað eftir annað niður í nauðvörn í eigin vítateig og Jawad El Yamiq átti m.a. stórbrotna hjólhestaspyrnu í stöng. En lið Marokkó var laskað eftir hörkuleiki undanfarinna daga og vikna í Katar. Miðvörðurinn Nayef Aguerd varð að hætta við þátttöku í leiknum rétt áður en hann hófst og félagi hans í vörninni, fyrir- liðinn Romain Saiss, entist aðeins í 18 mínútur. Þriðji varnarmaðurinn fór af velli eftir fyrri hálfleikinn. Marokkómenn sóttu samt af hugdirfsku og áttu möguleika langt fram eftir leik en einhvers staðar hlutu þeir að rekast á vegg. Sá veggur var blár, hvítur og rauður. Varamaðurinn Kolo Muani Randal skoraði með sinni fyrstu snertingu á 79. mínútu, 2:0, og þar með gátu Frakkar andað léttar. Þeir leika til úrslita. Stærsta sviðið er tilbúið fyr- ir Mbappé og Messi á sunnudaginn. Það verður veisla. HM Í KATAR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is AFP/Adrian Dennis MarkOlivier Giroud og Ousmane Dembélé fagna Theo Hernandez eftir að hann kom Frökkum yfir á 5. mínútu gegnMarokkó í gærkvöld. Sannfærandi sigrar hjá toppliðunum Keflavík hélt sínu striki á toppn- um á Subway-deild kvenna í körfu- bolta með 89:78-sigri á grönnum sínum í Njarðvík í 13. umferðinni í gærkvöldi. Með sigrinum náði Keflavík fjögurra stiga forskoti á toppnum, í bili hið minnsta. Hefur Keflavík unnið tólf leiki og aðeins tapað einum. Grindavík er í fimmta sæti með átta stig og ljóst að liðið er ekki á leiðinni í úrslita- keppnina, en á hinn bóginn laust við falldrauginn. Keflavík hefur svarað tapinu fyr- ir Val í 11. umferðinni með þremur sigrum í röð í öllum keppnum og ætlar liðið sér deildarmeistaratitil- inn. Daniela Wallen átti afar góðan leik og skoraði 24 stig, tók 14 frá- köst og gaf 9 stoðsendingar. Dani- elle Rodríguez lék vel að vanda hjá Grindavík og skoraði 20 stig, tók 10 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Valskonur komnar á flug Valur vann sinn fjórða leik í röð er liðið heimsótti Fjölni og valtaði yfir deildarmeistarana, 122:63. Valskonur hafa verið á miklu flugi og er Valur enn eina liðið sem hef- ur unnið Keflavík í vetur. Þá hefur liðið verið mjög sannfærandi síðan landsliðsfyrirliðinn Hildur Björg Kjartansdóttir gekk í raðir félags- ins á dögunum. Valur er aðeins á eftir efstu tveimur liðunum, en liðið ætlar sér að berjast um þann stóra í ár. Kiana Johnson skoraði 24 stig og gaf 14 stoðsendingar fyr- ir Val og Hildur Björg gerði 20 stig og tók sjö fráköst. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir skoraði 28 stig fyrir Fjölni og tók níu fráköst. Staða botnliðsins versnaði Breiðablik hafði betur gegn ÍR í botnslag í Smáranum. Breiðablik lagði grunninn að sigrinum með tíu stiga sigri í öðrum leikhluta og var ÍR ekki líklegt til að jafna í seinni hálfleik. Sigurinn var sá fyrsti hjá Breiðabliki, frá því að liðið vann ÍR í október og aðeins þriðji sigur liðsins á leiktíðinni. ÍR er sem fyrr án stiga og orðið afar ólíklegt að liðið nái að halda sæti sínu í deild þeirra bestu, eftir að hafa komið upp úr 1. deild á síð- ustu leiktíð. Hin serbneska Sanja Orozovic átti afar góðan leik fyrir Breiðablik og skoraði 24 stig, tók 12 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Jamie Cherry gerði 20 stig fyrir ÍR. Morgunblaðið/Árni Sæberg Frákast Rósa Björk Pétursdóttir úr Breiðabliki og Sólrún Sæmundsdóttir, fyrirliði ÍR, berjast um frákast í Smáranum í Kópavogi í gærkvöldi. lVon botnliðs ÍR er orðin afar veik „Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Vals í karlaflokki í handknattleik, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ vegna brottvísunar í leik Vals gegn Aftureldingu síðasta föstu- dag. Hann stýrir því Valsliðinu ekki þegar það mætir ÍBV í bikarkeppninni í Vestmannaeyjum á laugardaginn. „Sara Rún Hinriksdóttir og Elvar Már Friðriksson hafa ver- ið valin körfuknattleikskona og körfuknattleikskarl ársins 2022 af KKÍ. Bæði voru þau í lykilhlutverkum í íslensku landsliðunum á árinu og hafa gert það gott í atvinnumennsku í Evrópu. Sara leikur nú með Faenza á Ítalíu og Elvar með Rytas í Litháen. „ Írski körfuknattleiksmaðurinn Brian Fitzpatrick hefur skrifað undir samning við KR og leikur með liðinu út þessa leiktíð. Fitzpatrick er 33 ára og getur leikið sem kraftframherji og miðherji en hann er 203 sentímetrar á hæð. Hann lék síðast með Bashkimi í Kósóvó en spilaði með Haukum tímabilið 2020-2021.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.