Morgunblaðið - 15.12.2022, Page 68
Í lausasölu 822 kr.
Áskrift 8.880 kr. Helgaráskrift 5.550 kr.
PDF á mbl.is 7.730 kr. iPad-áskrift 7.730 kr.
Sími 569 1100
Ritstjórn ritstjorn@mbl.is Auglýsingar augl@mbl.is
Áskrift askrift@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 349. DAGUR ÁRSINS 2022
ÍÞRÓTTIR
Góð upphitun að komast í undan-
úrslit á heimsmeistaramótinu
Snæfríður Sól Jórunnardóttir bætti Íslandsmet sitt í
100 metra skriðsundi tvívegis á heimsmeistaramótinu
í 25 metra laug í Melbourne í gær og komst í undan-
úrslit á heimsmeistaramóti í fyrsta skipti. Hún sagði
við Morgunblaðið að þetta hefði verið góð upphitun því
hún keppir í sinni aðalgrein, 200 metra skriðsundinu, á
morgun.» 57
www.husgagnahollin.is
Sími: 558 1100
Desember
tilboð
NAXOS
Borðstofuborð, svartur eða hvítur
marmari. Ø130 cm.
239.990 kr. 299.990 kr.
SPARAÐU 60.000 KR.
CHARLIETOWN
3ja sæta sófi, dökkrátt áklæði. 134.990 kr. 169.990 kr.
SPARAÐU 35.000 KR.
2ja sæta sófi, dökkrátt áklæði. 119.990 kr. 149.990 kr.
SPARAÐU 30.000 KR.
PINTO
U-sófi með vinstri eða hægri tungu. Koníakslitað Kentucky
bonded leður. 349 × 206 × 85 cm.
349.990 kr. 419.990 kr. SPARAÐU 70.000 KR.
VEGA
Sófaborð, hvítur
marmari. 140 × 70 cm.
89.990 kr. 119.990 kr.
SPARAÐU 30.000 KR.
OTTOWA
Borðstofustóll, grátt eða grænt
velvet eða grátt PU leður.
23.990 kr. 29.990 kr.
SPARAÐU 6.000 KR.
CRESTON
Borðstofustóll, ýmsir litir.
31.990 kr. 39.990 kr.
SPARAÐU 8.000 KR.
Jón Grétar Axelsson, sem hefur
búið í Kanada í rúm 34 ár, kom í
heimsókn til Íslands fyrir tæp-
lega hálfum mánuði og skömmu
síðar hitti hann í fyrsta sinn Sigurð
Ágúst Rúnarsson, bónda og verk-
taka á Glæsistöðum skammt frá
Hvolsvelli. „Í desember í fyrra fékk
ég að vita að við værum samfeðra,“
segir Grétar, en Einar Gunnar,
bróðir hans, sem býr í Bandaríkjun-
um, fór þá með Guðnýju Karólínu,
systur þeirra á Selfossi, til fundar
við Sigurð eftir að hafa heyrt af
skyldleikanum.
„Ég hef verið stóri bróðir í 65 ár
en er það ekki lengur, missti titilinn
til Sigga eftir allan þennan tíma,“
segir Grétar hlæjandi. „Hann er 11
mánuðum eldri en ég.“ Bætir við að
skyldleikinn hafi komið flatt upp á
sig og alsystkini sín. „Við vorum öll
mjög hissa og áttum alls ekki von á
þessu.“
Axel Þórðarson, faðir þeirra
úr Ölfusi og mjólkurbílstjóri í 44
ár, vissi alla tíð af frumburðinum
og hélt lengi sambandi við hann,
en sagði fjölskyldu sinni ekki frá
því. „Það vissu þetta allir hérna í
sveitinni og nú er það loks opinbert
að við erum hálfsystkini,“ segir
Siggi, sem fæddist eftir að Hild-
ur Ágústsdóttir, móðir hans, tók
saman við Rúnar Guðjónsson og
eignaðist með honum átta börn.
Axel eignaðist síðar dóttur, Sirreyju
Maríu, sem er látin.
Sérstök stund
Grétar, sem starfar sem stöðvar-
stjóri eldvarna hjá skógrækt
Manitoba á Gimli, dreif sig austur
fyrir fjall daginn eftir komuna til
landsins og fór með systur sinni á
Glæsistaði. „Það var mjög sérstakt
að hitta Sigga og heyra hann segja
frá því að þeir pabbi hefðu meðal
annars unnið saman í mjólkurbú-
inu á Selfossi og farið í ferðalög
saman,“ segir hann. „Þetta er alveg
magnað. Gjarnan hefur verið sagt
að ég væri líkur pabba en Siggi er
enn líkari honum, ekki síst í töktum.
Hann er sterkur karakter.“
Siggi ólst upp hjá afa sínum og
ömmu í Vestur-Landeyjum. „Þau
sögðu mér frá þessu þegar ég var
12 ára,“ segir hann. „Ég kallaði
þau alltaf ömmu og afa en mömmu
og stjúpa minn kallaði ég Hildi og
Rúnar.“ Hann segir að Sigurður
Rúnar, sonur sinn, hafi viljað aflétta
leyndinni og hafi haft samband
við Karólínu í fyrra. „Þetta er allt
mjög indælt fólk eins og Axel var,“
segir hann um hálfsystkini sín.
Hann bætir við að hann hafi verið í
sambandi við föður sinn og þeir hafi
til dæmis farið saman með Daða
Sigurðssyni frá Barkarstöðum í
Fljótshlíð á snjósleðum upp á Tind-
fjallajökul og Eyjafjallajökul. „Ég
held að leyndin hafi verið til þess að
hlífa mömmu gömlu.“
Grétar og Siggi hafa reglulega
verið í símasambandi síðan sann-
leikurinn varð báðum ljós. „Þetta
hefur verið mjög gaman,“ segir
Siggi og bætir við að þau hjónin
ráðgeri að heimsækja bræðurna í
Bandaríkjunum og Kanada næsta
sumar. „Ég hef aldrei farið til
Vesturheims en Lára, kona mín,
heimsótti einu sinni Eddu, systur
sína, í Winnipeg, þegar hún bjó þar,
en hún er látin.“
lHálfsjötugir hálfbræður hittust í fyrsta sinn
Jón Grétar ekki
lengur stóri bróðir
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Veisla Sigurður á Glæsistöðum tók vel á móti hálfsystkinum sínum, Guðnýju Karólínu og Grétari, (til hægri).
MENNING
Hulda og Jón sýna málverk um
móðurástina í Gallerí Gróttu
Móðurást er yfirskrift málverkasýningar Huldu Vil-
hjálmsdóttur og Jóns Magnússonar sem verður opnuð
í Gallerí Gróttu í dag, fimmtudag, klukkan 17. Þau hafa
bæði sýnt á fjölda einka- og samsýninga. Í tilkynningu
segir að móðurástin sé alltumlykjandi eins og loft, heit
eins og eldur, óbifandi eins og jörðin, ótæmandi eins
og hafið. Samt sé erfitt að tjá hana í mynd. En Jón og
Hulda víla ekkert fyrir sér; til að mála móðurást þarf
ekki annað en að mála móður og barn.